Tíminn - 24.11.1944, Page 1

Tíminn - 24.11.1944, Page 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. ÚTGEFFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. Símar 3948 og 3720. RITSTJÓRASKRIFSTOFOR: EDDUHÚSI, Llndargötu 9A. Símar 2353 og 4373. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA N OG AUGLÝSINaASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI. Llndargötu 9A. atmi 2323. 28. árg'. Reykjavík, föstudaginn 24. nóv. 1944 99. blaS „]\ýsköpimm“ í framkvœmd: Stjórnarílokkarnir ætla að stöðva áburðarverksm.málið Þeir þykjast ætla að láta athuga betur, bvort verksmiðjan muni „bera sig“! Fyrsta sönnunin er nú að fást fyrir því, hvernig stjórnin og fylgismenn hennar ætla að efna loforð sín um „nýsköpunina". Þrír fulltrúar stjórnarsinna í landbúnaðarnefnd neðri deildar hafa þar sameinast um að stöðva framkvæmdir í áburðarverk- smiðjumálinu, sem er tvímælalaust einn af veigamestu þátt- unum í nýsköpun atvinnúlífsins hér á landi. Hulinn verndarkraftui hlífði kirkjunni. í borginni Mantes í Norður-Frakklandi er ein fegursta og elzta kirkja Frakk- lands. í styrjöldinni í sumar varö Mantes fyrir miklum loftárásum og stórskotaárásum og lagðist að mestu irústir. En kirkjunni var eins og hlíft af huldum verndarvœtti og gnœfir hún lítt skemmd yfir rústunum eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Kvíkmynd af lýð- veldísháfíðmní Þjóðhátíðarnefnd fól þrem mönnum að kvikmynda hátíða- höldin í samtaandi við endur- reisn lýðveldisins. Verða kvik- myndir þeirra bráðlega sendar til Vesturheims og fullgerðar þar. Sennilegt er, að eitthvert kvikmyndafélag í Hollywood verði fengið til að fullgera myndirnar, skeyta þær saman í eina stóra mynd, sem tekur tvær klukkustundir að sýna. Myndin verður í eðlilegum litum. Inn í myndina verða teknar helztu ræður hátíðahaldanna eða hlutar þeirra. í myndinni verður eingöngu íslenzk tónlist og mun Páll ísólfsson sjá um hana. Þeir Kjartan Ó. Bjarnason, Eðvarð Sigurgeirsson og Vigfús Sigur- geirsson tóku kvikmyndirnar, er aðal myndin verður gerð af. Hörmulegt slys Klukkan um 10 y2 i gærmorg- un.varð hörmulegt slys niður við Possvog í Reykjavík. Átta ára gamall drengur varð fyrir bif- reið og beið þegar bana. Dreng- urinn var, ásamt 7 ára gömlum bróð^r sínum, að renna sér á sleða eftir Sléttuvegi, er bifreið- ina bar að og ætlaði hún að aka framhjá drengjunum, en sleðinn varð fyrir bifreiðinni,. er var keðjulaus á flughálku. Dreng- urinn dó samstundis. Hann hét Guðmundur Jón, sonur hjón- anna Önnu Guðmundsdóttur og Jóhanns Eyvindssonar. Eins og áður hefir verið skýrt ’rá í blaðinu,- flutti Vilhjálmur ^ór, þáverandi atvinnumálaráð- íerra, frumvarp um áburðar- /erksmiðju strax þegar þing tom saman í haust. Frumvarp- inu fylgdi ýtarleg áætlun imerísks verfefræðings, er ráð- áerrann hafði fengið til ' að rannsaka málið. Þegar frv. þeta var fyrst rætt í landbúnaðarnefnd neðri deild- rr, sem fékk það til athugunar, yirtust allir nefndarmenn vera 'oví sammála. Eftir stjórnar- >kiptin, breytti fulltrúi sósíalista 5trax um afstöðu og vildi helzt ívorki heyra málið eða sjá. Jón Pálmason tók þá einnig fljót- lega að veikjast í liðveizlu sinni við frv. og að lokum varð sú nið- urstaðan ,að þessir tveir menn, isamt fulltrúa Alþýðuflokksins, ’.ameinuðust um að gera þá breytingu á frv., sem stöðvar það im ófyrirsjáanlega tíma. Aðalatriðið £ frumvarpinu er rð stjórn áburðarverksmiðjunn- xr skuli skipuð nú þegar og skuli 'aún hafa allar undirbúnings- ráðstafanir með höndum. Með bví að setja þessa stjórn strax á laggirnar, ættu framkvæmdir í málinu að vera tryggðar. Stjórnarsinnarnir í landbún- aðarnefnd neðri deildar vilja stöðva áburðarverksmiðjumálið þannig, að við frv. sé bætt bráðabirgðaákvæði um, að ríkis- stjórninni sé falið að gera nýja áætlun um stofn- og rekstr- arkostnað verksmiðjunnar — til frekari vissu um, að fyrirtækið geti borið sig(!), og öllum fram- kvæmdum öðrum verði frestað á meðan. Er þetta vitanlega ekkert annað en svæfingartil- raun. Fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni, Bjarni Ásgeirsson, og Jón Sigurðsson á Reynistað hafa snúizt eindregið gegn þess- ari svæfingartilraun og halda fast við það ákvæði frv., að stjórn áburðarverksmiðjunnar verði kosin strax. Svo munu vit- anlega allir þeir gera, sem vilja koma málinu fram. Afdrifum þessa máls mun vissulega verða fylgt með mikilli athygli, því að hér er um eitt stærsta framtíðarmál land- búnaðarins að ræða, því að án nægilegs áburðar kemur rækt- unin að litlu gagni. Eina trygg- ingin fyrir nægum áburði er að nógu stór áburðarverksmiðja verði reist í landinu. I DAG birtist á 3. síðu fyrri hluti greinar eftir Pál Zóphóní- asson um kjötlögin, er nú hafa verið í gildi í tíu ár. Neðanmáls á þeirri síðu birtist upphaf greina- flokks, er Pálmi Hannesson rektor mun skrifa næstu mánuði, um ýmis nýmæli og framtíðardrauma á sviði tækni og vísinda. Neðanmáls á 4. síðu birt- ist niðurlag greinar séra Jakobs Jónssonar um skáldið Einar H. Kvaran. —.—-——— ------—-------> Stjórnin vill ekki láta athuga, hvernig ,nýsköpunin‘ verði bezt iramkvæmd RISAFALLBYSSUR, SEM ERU ÞAGNAÐAR Hún vill heldur ekki láta athuga, hvad gera purfi til að tryggja sam- keppnisfæran atvinnurekstur Það kom greinilega fram við meðferð nýbyggingarráðsfrv. stjórnarinnar í neðri deild, að ríkisstjórnin og stuðningslið henn- ar fyl/rja nýsköpun atvinnuveganna ekki af neinum heilindum, heldur í áróðursskyni. Þetta sást vel á því, að felldar voru þær tillögur frá Skúla Guðmundssyni, að nýbyggingarráði væri ekki aðeins falið að gera áætlun um þörf þjóðarinnar fyrir ný at vinnutæki, heldur einnig hvernig áætlun þessari verði bezt komið í framkvæmd og hvernig verði bezt að tryggja hallaiausan rekst- ur framleiðslunnar. Eftir 1. umr. um frv. í N. d. var því vísað til fjárhagsnefnd- ar. Stjórnarsinnar þar lögðu til, að frv. yrði samþykkt óbreytt, en Skúli Guðmundsson lagði til, að það yrði samþykkt með all- miklum breytingum. Tillögur Skúla. SKÚLl GUÐMU'NDSSON er að selja í samkeppni við framleiðslu annarra þjóða. Nýbyggingarráð skal einnig athuga í sambandi við hinar nýju framfarir, hvernig bezt verði fyrir komið stóratvinnu- rekstri í landinu og stuðlað að því, að þeir, sem við hann starfa, beri úr býtum endurgjald fyrir vinnu sína í samræmi við af- komu atvinnufyrirtækjanna og hafi þannig beinna hagsmuna að gæta um rekstrarafkomu þeirra. M. a. séu athugaðir möguleikar til þess að koma á ákvæðisvinnu, í sem flestum atvinnugreinum.“ Skúli lagði til, að framan- greint ákvæði um starfssvið ný- byggingarráðs kæmi í stað svo- hljóðandi kafla í stjórnarfrv.: „Hlutverk þess er að búa til heildaráætlun, fyrst um sinn miðaða við næstu fimm ár, um nýsköpun íslenzks þjóðarbú- skapar. Skal þar áætlað, hver atvinnutæki, samgöngutæki, byggingar og annað þurfi til sjávar og sveita, til þess að allir íslendingar geti haft vinnu vlð sem arðbærastán atvinnurekst- ur svo og hvernig bezt verði fyr- ir komið innflutningl fáanlegra tækja og efnis á næstu árum með það fyrir augum að hagnýta sem bezt vinnuafl þjóðarinnar og auðlindir landsins." (Framhald á 8. siðu) M i n n i ngf ar athöSn Minningarathöfn um þá, sem fórust með Goðafossi, fór fram í Dómkirkjunni í gær með mik- illi viðhöfn. Athöfnin hófst kl. 2 e. h. Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup flutti ræðu og Dómkirkjukórinn söng. Kirkjan var yfirfull, og hlýddi mikill fjöldi fólks á at- höfnina úti, því gjallarhornum hafði verið komið fyrir. Öllum verzlunum, skriístof- um og mörgum vínnustöðvum var lokað eftir hádegi í Reykja- vík og víða annars staðar á landinu. Fánar blöktu við hálfa stöng. Þjóöverjar höfðu allmargar langdrœgar fallbyssur við Ermarsund og skutu úr þeim á enskar borgir. Bandamenn hertóku allmargar slíkar byssur í sókn sinni í sumar og hafa þœr nú til sýnis. Ein slík fallbyssa sést á meðfylgjandi mynd. Má nokkuð marka stœrð hennar meö því að bera hana saman við hermanninn, sem sést hér á myndinni. Þingsályktunartill. um hlutleysi ríkisútvarpsins Skrifstofa forssetisráðherra hefir komið hlut- drægum ályktuuum í fréttir útvarpsius Eysteinn Jónsson hefir lagt fram í sameinuðu þingi tillögu til þingsályktunar þess efnis, að „Alþingi álykti að lýsa yfir þeim vilja sínum, að í fréttum ríkisútvarpsins verði gætt hlutleysis gagnvart stjórnmálastefn- um og stjórnmálaflokkum í landinu og stjórnmálaáróður ekki leyfður í útvarpinu, nema í almennum umræðum, þar sem stjórnmálaflokkum er ætlaður jafn ræðutími.“ tillögunnar í greinargerð segir: í „reglum um flutning inn- lendra frétta ríkisútvarpsins“,, sem út eru gefnar 17. janúar 1939, segir í fyrstu grein á þessa leið: „Fréttir þær, sem ríkisútvarpið flytur af eigin hvötum og á eigin á- byrgð, mega ekki vera mengað- ar neins konar ádeilum eða hlutsömum umsögnum um ein- stakar stjórnmálastefnur, stjórnmálaflokka, stefnur i al- mennum málum, félagsheildir, atvinnustofnanir eða einstaka menn“. Reglur þessar voru settar samkv. reglugerð um útvarps- rekstur rikisins 24. jan. 1936 og samþykktar af útvarpsráði 10. jan. 1939 „til leiðbeiningar og eftirbreytni öllu starfsliði fréttastofu ríkisútvarpsins, sem annast innlendar fréttir“. Yfirleitt mun það hafa verið álit almennings, að ríkisátvarp- ið eigi áð gæta fyllsta hlutleysis í stjórnmálum, enda hefir þessa hlutleysis ekki einungis verið gætt í hinum almennu fréttum, heldur einnig haft eftirlit með tilkynningum, sem fluttar eru í auglýsingatíma, svo að þar yrði eigi stjórnmálaáróðri við komið, og brýnt fyrir þeim, er erindi flytja, að bregðast ekki trausti útvarpsins í þessum efnum. Eins og kunnugt er, hefir ný- lega dregið til nmikurra stjórn- málaviðburða hér á landi með myndun nýrrar ríkisstjórnar. En slíkir viðburðir í stjórnmálalíf- inu valda oftast m$iri og minni deilum, og er þá sérstaklega á- ríðandi, að útvarpinu takist að vernda hlutleysi sitt. Útvarpsráð virðist líka um það (Framhald á 8. síðu) Aðalbreytingartillögur Skúla voru þessar: 450 milj. kr. I erlendum gjald- eyri verði lagðar á sérstakan innkaupareikning fyrir fram- leiðslutæki í stað 300 milj. kr., eins og gert er ráð fyrir í frum- varpinu. Aðalverksvið nýbyggingarráðs verði orðið þannig: „Verkefni þess er að gera heildaráætlun, fyrst um sinn miðað við næstu fimm ár, um framfarir í þjóðarbúskapnum. Skal þar áætlað, hvaða atvinnu- tæki, samgöngutæki, rafveitur, hafnarmannvirki, verksmiðjur, byggingar og aðrar sambærileg- ar umbætur þurfi til sjávar og sveita, til þess að allir lands- menn geti haft vinnu við sem arðbærastan atvinnurekstur, svo og hvernig nýjungum þessum verði komið í framkvæmd á heppilegastan hátt, þ. á m. hver skuli vera afskipti ríkisvaldsins af þeim framkvæmdum og stuðningur við þær. Ennfremur sé athugað, hvar unnt er að fá ný framleiðslutæki og efni til nauðsynlegra framkvæmda með hagkvæmustúm kjörum, og í því sambandi skal sérstaklega at- huga, hvort hægt er að fá ný framleiðslutæki gerð innanlands fyrir eigi hærra verð en þarf að greiða fyrir þau, ef keypt eru frá öðrum löndum. Ennfremur skal nýbyggingar- ráð athuga, hverjar aðrar ráð- stafanir þurfi að gera, til þess að atvinnuvegir landsmanna geti framleitt vörur, sem unnt FYRSTA „HEFNDARVOPN“ ÞJÓÐVERJA Mynd þessi er af einni flugsprengju Þjóðverja eða „mannlausri flugvél," sem skotin var niður á leiðinni og náði því ekki fyrirhuguðu marki. Nánar er sagt frá þessu vopni Þjóðverja í erlendu yfirliti blaðsins i dag.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.