Tíminn - 16.01.1945, Page 7

Tíminn - 16.01.1945, Page 7
I 4. folað TÍMIM, foriðjiulagiiiii 16. jan. 1945 Kátir voru karlar Vamban: Hæ, hvað gengur á! Vamban: Ja, illt er að kenna göldum grepp og gömlum hundi að sitja rétt! Á víðavangi. (Framhald af 3. siðu) Jónsson sem varamaður hans. Hins getur Mbl. ekki, að Sjálf- stæðismenn hefir oft vantað á þessa fundi, án þess að láta varamenn mæta. Sé hægt að kalla nokkuð sið- leysi, þá er það sú framkoma, að ætla að nota jafn fánýtar ásak- anir og hér er beitt til að stimpla andstæðing sinn siðlausan og ætla þannig að ómerkja gagn- rýni hans. Atferli „hurðarþjófsins“. Framangreind siðleysisskrif Mbl. hafa líka aðra alvarlegri hlið. Hér er reynt að draga ut- anríkismálanefnd og það, sem þar gerist, inn í opinberar um- ræður. Hingað til hefir þótt sjálfsagt, að halda utanríkis- málanefnd utan við opinberar umræður og pólitískar deilur. Það hefir verið litið þannig á, að nefndin kæmi í stað lokaðra þingfunda. í samræmi við þetta hættu fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins störfum um skeið í nefndinni, er þeir þóttust hafa grun um, að sagt hefði verið frá því, er gerðist á nefndarfundi. Hér hefir því verið unnin samskonar Verknaður og þegar sagt var frá lokuðum þingfundi í Mbl. 1941 og miklar og eðli- legar deilur risu út af. Sami „hurðarþj óf urinn“ hefir hér verið að verki. Hann hlifist ekki við að segja frá störfum lokaðra þingfunda og utanríkismála- nefndar, ef hann heldur sér hag í því. Það er ekki hlífzt við að draga þá friðhelgi, sem ríkt hef- ir um utanríkismálanefnd og lokaða þingfundi, niður í svað- ið. Það er ekki hikað við að gera samvinnu stjórnar- sinna og stjórnarandstæð- inga þar ómögulega, með því að láta þá fara að deila opinberlega eftir á um það, sem þar hefir gerzt. Fyrir utanríkis- mál landsins gæti það sam- vinnuleysi, er af þessu hlytist, Orðið næsta skaðlegt. Þess verður að vænta, að hin- ir betri menn stjórnarflokkanna hafi hér vit fyrir „hurðarþjóf- inum“ og stöðvi skemmdarverk hans. Annars er framtíð utan- ríkismálanefndar stefnt í fulla tvísýnu. Gróði flutningaskipanna og hámarksverðið. Því er stundum haldið fram í stjórnarblöðunum, að það muni draga úr gróða eigenda fiskflutningaskipanna, að' lág- marksverðið á ísfiski hefir ver- ið hækkað úr 45 í 52 aura á kg. Þetta er misskilningur a. m. k. hvað stærri skipin snertir. Ligg- ur hann í því, að áður fengu skipin yfirleitt ekki að kaupa ne.ma á þeún stöðum, þar sem fiskimagnið var lítið, því að Bretar höfðu flestar aflamestu verstöðvarnar samkv. fisksölu- samningnum. Nú þegar Bretar hætta að kaupa, breytist þetta í aflamiklum verstöðvum get- ur borgað sig. betur að kaupa fiskinn fyrir 52 aura, en í afla- lítilli verstöð fyrir 45 aura. Er því vafasamt, hvort gróði stærri flutningaskipanna minnkar nokkuð vegna breytinganna á lágmarksverðinu, nema síður sé ef ekki verður verðlækkun í Bretlandi eða aflaleysi, en þá munu eigendurnir láta skipin hætta að sigla. Það fer því fjarri, að nokkuð hart hafi verið gengið að eig endum hinna stærri flutninga- skipa, eins og Þjóðviljinn og A1 þýðublaðið vilja vera láta, með þessum ákvörðunum ríkis- stjórnarinnar. Hækkunin var sú allra minnsta, þegar miðað er við opnun aflamestu hafnanna Kveimabálkur Tímaus. (Framhald af 5. síðu) sópa,- ryksugur, gólffötur og annað þess háttar. Hinn er fyrir vinnuföt. Til hægri eru 3 djúp ar skúffur undir óhreinan þvott Þá kemur þvottavélin sjálf og er lítill vaskur við hliðina á henni. Skápar eru fyrir ofan vélina og skúffurnar. Þar er geymt þvottaefni og allt annað er nota þarf við þvottana. Tvennar dyr eru á vinstri vegg. Milli þeirra er saumaborð og strokfjöl (öðru nafni „strau bretti“). Saumaborðið er í senn einfalt, rúmgott borð og sauma vélarborð. Við endann á kæli skápnum og þvottavaskinum er stór skápur fyrir „leirtau' hnífapör og borðdúka. Teikningarnar hafa nú verið skýrðar í stuttu máli. íslenzkum húsmæðrum kann að virðast þetta nútímaeldhús líkara loft kastala en veruleika. En skyldi ekki formæðrum okkar hafa orðið á að hugsa hið sama, ef þeim hefði verið sýnd teikning af eldhúsum þeim, er nú tíðkazt á hverju heimili, þegar þær sátu í svælu og reyk við hlóðirnar í gluggalausu og sótugu eldhúsi þeirra tíma? Vlnnlð ötullega tgrir Timann. / MNÁLL TlfflANS \ janúar, mánudagur: Maðnr slasast. Maður að nafni Svavar Björns- son fannst liggjandi í blóði sínu með. brotna höfuðkúpu í ^and- dyri hússins nr. 10 við Kjart- ansgötu kl. 8 að morgni, þegar fólk kom á fætur. Maðurinn hefir sennilega fallið niður stiga. Meiðsl hans eru talin mjög al- varleg. janúar, þriðjudagur: TVýtt liámarksverð. á prentun og • bókbamli. Viðskiptaráð hefir fyrirskipað um áramótin allmikla verðlækk- un á prent- og bókbandsvinnu og bókapappír. Lækkun þessi nemur á prentvinnu 8%, bók- bandi 12% og lækkun pappírsins nemur um 18%. Heildsöluálagn- ing má hér eftir ekki vera hærri en 14%. Kjartan Ólafsson og Haukur Helgason taka sæti í viðskipta- ráði í stað Gunnlaugs Briem og Jóns Guðmundgsonar. 3T. janúar, miðvikudagur: Drengiir slasast. Á Akranesi vildi það slys til að drengur, Bragi Magnússon 12 ára gamall, slasaðist alvar- lega, er hann var að leika sér að skothylki, er sprakk í hönd- um hans. Missti hann fingur af vinstri hendi og fékk auk aess áverka á hægri hendi og í andlit. 4. janúar, fimmtudagur: Aðalfundur Sögu- félagsius. Haldinn var aðalfundur Sögu- félagsins. Félagar þess eru nú um 1100 og hafa 180 bætzt við á síðastliðnu ári. Stjórn félags- ins skipa: Einar Arnórsson, Þor- steinn Þorsteinsson, Guðni Jóns- son,- Hallgrímur Hallgrímsson, dr. Þorkell Jóhannesson. Alþingi kom saman til funda í dag að jólaleyfi loknU. 5. janúar, föstudagur: Lýst eftir manni. Maður að nafni Hannes Pálsson’ Grettisgötu 51, fór að heiman áleiðis til vinnu sinnar um morguninn, en síðan hefir ekkert til hans spurzt. Rannsóknarlögreglan hefir lýst eftir manni þessum, er hann hár vexti, ljósliærður og bjart- r ur yfirlitum. 6. janúar, laugardagur: Bæjarstjórnar- kosningar í Ólafs- firði. í Ólafsfirði, sem fékk bæjar- réttindi í haust, fóru fram bæj- arstjórnarkosningar í fyrsta sinn. (Frá úrslitunum var sagt í seinasta blaði). 7. janúar, sunnudagur: 50 ára leikara- afmæli. Frk. Gunnþórunn Halldórs- dóttir átti-50 ára leikaraafmæli, en hún hefir lengi verið ein vin- sælasta leikkona landsins. Leik- félagið minntist afmælisins með hátíðasýningu og samsæti. 8. jánúar, mánudagur: Bifreið ekiir fram af bryggju. Það vildi til í Stykkishólmi, að bifreið ók fram af bryggj unni þa-r og í sjóinn, er hún var að aka vatni um borð í skip, er lá þar við byggjuna. Slysið mun hafa orsakazt vegna hálku. Tveir menn, er í bifreiðinni voru komust út um glugga, eftir að hún var komin niður. _9. janúar, þriðjudagur: Ráðbás i Hafnar> firði. Vígt var hið nýja og veglega ráðhús Hafnarfjarðarbæjar (sjá nánar um hús þetta í seinasta blaði. Góð bújörð óskast til kaups í vor. Tilboð með nákvæmum upplýsingum um ásigkomulag jarðar og húsa, og einnig s‘luverð og greiðsluskil- mála, sendist undirrituðum fyrir 20. febrúar n. k. Erlent yfirlit. (Framhald af 3. síðu) ir haft nokkuð svipaða sögu að segja. Hann vánn mikla sigra í Frakklandsstyrjöldinni 1941 og hann sigraði heri Rússa í Ukr- aníu 1941. Þótti nazistum þá orðið nóg um herfrægð hans, en þeir hafa aldrei treyst honum fullkomlega og sendu hann þá til Frakklands. Þar hafði hann yfirstjórnina, er innrásin hófst, en varð ósammála herstjórninni, því að hann vildi ekki tefla á tvísýnu í Normandí, heldur hörfa í tæka tíð. Honum var því vikið frá, en var aftur kvaddur til ráða, þegar her Bandamanna var kominn að landamærum Þýzkalands, og þá falin yfirher- stjórnin á vesturvígstöðvunum. Ekki verður neitt um það sagt, hver hafi verið tilgangur Rund- stedt með gagnsókninni. Sumir telja að ætlunin hafi verið að ná Brussel og Antwerpen, króa þannig inni brezka herinn og 1. og 9. amerisku herina og upp- ræta þá. Aðrir telja, að mark- miðið hafi aðeins verið að tefja fyrir Bandamönnum og fá lengri tíma til að undirbúa vörnina. Það er sýnt, að gagnsókn Þjóðverja hefir þegar borið þann' árangur, að Bandamenn hafa orðið að hætta við sóknar- áform sín í taili, bæði noröan við Aachen, þar sem Bretar og 9. herinn voru til sóknar, og í Saar, þar sem 3. herinn (her Pattons) voru til sóknar. Þótt Þjóðverjar verði hraktir til baka, geta þeir með þessum hætti tafið fyrir sókn Bandamanna alltaf eina 2—3 mánuði. Sá tími, sem þeir fá til að undirbúa sóknina, getur leitt af sér enn aðra töf. Tjón Þjóðverja af gagnsókninni virð- ist ekki ætla að verða mikið meira en þeir hefðu mátt vænta í varnarstyrjöldinni. Reynslan sýnir, að varnarstríð er oft kostnaðarsamast. Þrátt fyrir, þótt Þjóðverjar hafi goldið mikið mannhroð síð- astliðið ár, eru þeir sagðir hafa mun meiri mannafla nú í Vest- ur-Evrópu en s.l. vor, en nokkru minni á austurvígstöðvunum Hergögn landhersins eru sögð næg og baráttuhugur hermann- anna allgóður. Það, sem Þjóð verja vantar, er flugher, en það kemur ekki eins að sök í varn- arstríði. Telja má víst ,að þýzki herinn geri hvert þorp og borg að virki og njóti yfirleitt stuðn ing borgaranna. Það má víða þú- ast við Stalingradvörn á vest- urvígstöðvunum næsta vor Mótstaða Þjóðverja hefir reynzt harðari undanfarið en við var búist og geta þeir enn átt eftir að koma Bandamönnum á óvart á því sviði. Samt má telja víst, að hern aðarstyrkur Bandamanna sé svo mikill, að vörn Þjóðverja verði brotinn á bak aftur og það sennilega á ekki löngum tíma því að Bandamenn munu vafa laust undirbúa lokasóknina í vor mjög vandlega. En mjög fer þetta þó eftir því, hvað Rússar gera á austurvígstöðvunum. Að því verður vikið í næsa blaði. LrsiO „Opið bréf til skólanefndar kennara og skólastjóra Iðnskóla Akureyrar, veturinn 1941—42“ Lesið um athæfi leiðtoganna Fæst í bókaverzlunum og hjá útgefanda: Ilelga Hósíassynl, Háteigsveg 18, Reykjavík GÆFAN fylgir trúlofunarhringum frá SIGURÞÓR, ÓAFNARSTR. 4. Sendið nákvæmt mál Sent mót póstkröfu. Anglýsið I Tímanmn Við þökkum sóknarnefnd HaHlgrímssóknar, .stjórn Kvenfélags Hallgrímskirkju, söngkór, meðhjálpara og Hall- grímssöfnuði öllum fyrir dýrmœtar gjafir. Við þökkum fyrir margan annan minnisstœðan vináttuvott. Liðin ár hafa auðgað okkur að ómetanlegum minningum. Guð blessi ykkur öll, sem hafið skapað okkur þær minningar. MAGNEA ÞORKELSDÓTTIR. SIGURBJÖRN EINARSSON. Við þökkum hjartanlega þœr rausnarlegu gjafir, sem konur l Fremri-Torfustaðahreppi sendu okkur nú fyrir jólin. Neðra-Núpi, 27. des. 1944. SVAVA STEFÁNSDÓTTIR ÞORBERGUR JÓHANNSSON. Sími 2333. HJÖRTUR UVGRÓRSSOA, Ásvallagötu 71, Reykjavík. Fiskbollur 1 kg. og Vz kg. dósir. Fiskbiíðingnr 1 kg. og Vz kg. dósir. Viðey-síld nýkomið. Niðursuðuverksmiðja S. í. F. Símar 1486 og 5424. Sfafnar tannkrem gerír tennurnar mjallhvítar Eyðir tannsteini og himnu- myndun. Hindrar skaðlega sýrumyndun I munninum og varðveitir með því tennurn- ar. Inniheldur alls engin skaðleg efni fyrir tennurnar eða fægiefni, sem rispa tann- = glerunginn. Hefir þægilegt og hressandi bragð. \OTIÐ SJAFHAR TAWKRFÆ KVÖLDl OG MORGAA. Sápuverksmiðjan Sjöin Akureyri r I Landsspítalann vantar konu til hremgernmga nokkra tíma að kvöldinu. Sömuleiðis vantar starfs- stúlku. Upplýsingar gefur forstöðukonan. TÍMINH er víðlesnasta auglýsingablaðið! \

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.