Tíminn - 19.10.1945, Blaðsíða 6
6
TÍMINTV, föstwdagmn 19. okt, 1945
79. bla<5
/
SEXTU GUR:
Jónatan Jónasson
bóndt að Xípá í Kaldaklnn
Hinn 13. sept. s. 1. varð Jón-
atan Jónasson, bóndi á Nípá í
Kaldakinn, sextugur að aldri.
Jónatan er fæddur að Hrauni
í Aðaldal 13. sept. 1885, sonur
hjónanna Jónu Andrésdóttur og
Jónasar Sigurðssonar, sem þar
bjuggu.
Jónatan óx upp hjá foreldrum
sínum til 15 ára aldurs, en fór
þá úr föðurgarði og dvaldist í
ýmsum vistum fram að tvítugs-
aldri. Um tvítugt sótti hann
nám að Hólum og aflaði sér
þar þeirrar undirstöðumennt-
unar í búnaði, sem mörgum
bóndanum hefir síðar að gagni
orðið.
Árið 1914 reisti Jónatan bú
að Nípá, env það þótti þá ein
minnsta og lélegasta jörð' í
Ljósavatnshreppi. Hefir hann
búið þar síðan, eða í rösk 30
ár.
Fyrir 30 árum, þegar hinn
ungi, fríði og vaski bóndi úr
Aðaldal flutti sem félítill ein-
yrki á kotbýlið vestur við fjöll-
in, fylgdu honum engar sér-
stakar spár um væntanleg af-
rek. En kappgirni Jónatans og
stórhugur setti merkið hátt.
,,Saga smábýlisins“ hefir víða
gerzt, þar semjbugur og hönd
hafa markvisst stefnt að einu:
„Að bæta og prýða sinn heim-
ilisrann, svo kastali rísi úr rúst-
um“. Þessu marki hefir Jónatan
náð. Hann er búinn að skila
fullu dagsverki — áður en kvöld
er komið. Með ræktun, girðing-
um, áveitum og byggingum hef-
ir hann gert jörð sína hæfa til
þess að bera að mestu uppi eitt
af stærstu búum sýslunnar, um
allmörg undanfarin ár.
Jónatan á Nípá er dýravinur
mikill. Hann er „fjármaður“ á-
gætur og hefir því góðar og ár-
vissar afurðir af fjárbúi sínu.
Enn er hann léttur í spori og
fer í fjallgöngur haust og vor
í fjörmiklum kappleik við sín
mörgu lömb. Hann er gleðimað-
ur í hópi vina og kunningja
og vinsæll. Hann er ein styrk-
asta stoð sinnar sveitar.
Jónatan Jónasson
Jónatan er kvæntur Guðfinnu
Friðbjörnsdóttur frá Sandi,
mestu myndar- og ágætiskonu.
Þau eiga 2 sonu og 3 dætur,
sem dvalið hafa í föðurgarði að
þessu. Hafa þau veitt heimili
foreldra sinna mikinn stuðning
hin síðari ár.
Athafnamenn í bændastétt
má, án efa, telja í hópi hinna
nýtustu og virðulegustu þegna
hvers lands. Hið unga íslenzka
lýðveldi mun ekki verða langlíft,
ef það hefir ekki ávallt stórum
hóp slíkra manna á að skipa.
Samtíðarmenn, sveitungar og
vinir Jónatans á Nípá senda
honum árnaðaróskir í tilefni
sextugsafmælisins og þakka
honum og fjölskyldu hans þann
myndarlega skerf, sem heimili
þeirra hefir fram lagt til vegs-
auka íslenzkrar bændastéttir.
4. október 1945.
B. Baldv.
Skipun búnaðarráðs
Það mun almennt álit bænda,
að skipun hins svokallaða „bún-
aðarráðs“ sé frumhlaup og ger-
ræði af landbúnaðarráðherra,
eigi sízt vegna þess, að í undir-
búningi var um land allt fé-
lagsstofnun bænda sjálfra til
að taka verðlagsmál landbúnað-
arins til athugunar og verðleggja
vörurnar á innlendum markaði.
Skipun „búnaðarráðk“ virðist
því beinlínis hafa verið gerð til
torveldingar á þvi, að bændur
sjálfir hefðu þessi mál í sinni
umsjá, gegnum félagsstofnanir
sínar.
Hér virðist mikils hlutdrægni
gæta hjá stjórn landsins, þar
sem Alþýðusambandið og Sam-
band starfsmanna ríkis og bæja
eru. af ríkinu, viðurkennd sem
réttir aðilar, þegar um er að
ræða kaup og kjör þeirra stétta.
Er furða stór, ef nokkur bóndi
íslenzkur gerir sér að góðu þá
hlutdrægni, sem fram kemur í
garð bændastéttarinnar með því
að landbúnaðarráðherra snið-
gengur þannig þau bændasam-
tök, sem til voru og átti að efla
með alls herjar stofnun stéttar-
félags bændanna um land ailt.
Samband þetta var og í tæka
tíð stofnað til að taka verðlags-
málin í sínar hendur nú þegar
á þessu hausti.
Bændur íslenzkir mega muna
tvenna tíma nú og þá, er hinn
vinsæli foringi þeirra, Tryggvi
Þóhallsson, skipaði sæti land-
búnaðarráðherra með mikilli
sæmd og skörungsskap og hóf
mál bændanna til öndvegis á
þingi þjóðarinnar, svo sem með
stofnun Búnaðarbanka og marg
þættri löggjöf annarri til hags-
bóta íslenzkum landbúnaði.
Það er á valdi bændanna
sjálfra, með einbeittri, öflugri
framkomu á stjórnmálalegum
og félagslegum vettvangi, að
hefja mál sín aftur upp í hærra
veldi, svo að þeir geti áfram
haldið að ' byggja og rækta
landið, til hamingju og hags-
bóta fyrir sig og íslenzku þjóð-
ina, alda og óborna.
Saurum, 29. sept. 1945
Jóhannes Guöjónsson.
Samvinnunám í Svíþjóð
Samband sænsku samvinnu-
félaganna, Ko-operativa För-
bundet (K.F.), hefir ákveðið að
veita nokkrum nemendum frá
Danmörku, Finnlandi, íslandi
og Noregi styrk til náms við
Jakobsbergs lýðháskóla. Eru
styrkir þessir veittir í því skyni
að efla norræna samvinnu og
samnorræna menningu.
Styrkir þessir eru veitir 6
nemendum, og er hver þeirra að
upphæð 750 sænskar krónur.
Þeir, sem styrkinn fá, eru
skyldir til að ljúka námskeiði
við Jakobsbergslýðháskóla, það
ár sem styrkurinn er veíttur.
Námskeiðið byrjar hinn 28. okt.
og lýkur 5. eða 6. maí næsta ár.
Um styrki þessa ber að sækja
til forstöðumanns Jakobsbergs
lýðháskóla, fil. dr. Karl Petan-
der, Jakobsberg, Sverige. Um-
sóknunum verða að fylgja með-
mæli ásamt upplýsingum um
aldur, nám og störf umsækj-
anda.
Jakobsbergslýðháskóli er í
nágrenni Stokkhólms, ca. 17 km.
frá borginni. Þar eru kenndar
svipaðar námsgreinar og í öðr-
um norrænum lýðháskólum. Þó
er í honum lögð meiri áherzla á
hagfræði og samvinnufræði, m.
a. bankafræði, bókfærslu og ým-
islegt, er að samvinnu lýtur. M.
a. námsgreina má nefna:
Sænsku, bókmenntasögu, sögu,
þjóðfélagsfræði, ensku og þýzku.
Námskostnaður á Jakobsberg
„Sprengi-Pétur”
Bændur hafa nú fengið
reynslu af áburðartegund þeirri,
sem mjög hefir verið um deild
síðastliðið ár, vegna þess að
Pétur Magnússon hélt hann gæti
drepið málið með því að telja
bændum trú um, að hér væri
stórhættulegt sprengiefni á
ferðinni. Meira þyrfti ekki um
það að ræða. Bændur voru 'ekki
jafn auðtrúa og Pétur hugði.
Áburðarsala ríkisins flutti inn
um 1000 smálestir. Er dómur
bænda um áburð þennan aðeins
á einn veg, að hann sé alla staði
hinn ákjósanlegasti.
Formaöur Búnaðarfélags Kol-
beinsstaðahrepps segir nýlega
svo í bréfi til blaðsins:
„Áburðartegund sú, sem
keypt var hér síðastl. vor og
almennt er nefnd „sprengi-
efnið“, hefir hlotið einróma
álit allra þeirra, sem þann
áburð notuðu, sem voru flestir
búnaðarfélagar, að það sé sá
bezti áburður, sem fengizt
hefir nú á stríðsárunum. Það
virðist spretta sérlega fljótt
og vel undan honum og býst
ég við, að allir óski eftir að
fá hann keyptan eftirleiðis".
Margir bændur og búnaðarfé-
lagsmenn munu hafa svipaðar
sögur að segja.
Nýtt kaupfélag
í Hafnarfirði
Nýtt kaupfélag hefir verið
stofnað í Hafnarfirði. Er það
stofnað upp úr Hafnarfjarðar-
deild Kron, er óskaði skilnaðar
á síðastl. vori og hefir nýlega
lokið fjárhagslegum aðskilnaði
við félagið. Stofnendur hins
nýja félags voru á fjórða
hundrað manns.
í stjórn féiagsins hafa verið
kosnir Ólafur Þ. Kristjánsson,
formaður, Guðjón Guðjónsson,
Guðjón Gunnarsson, Óskar
Jónsson og Þórður Þórðarson.
Félagið hefir samþykks að sóka
eftir inngöngu í S. í. S.
Nafn kaupfélagsins er Kaup-
félag Hafnfirðinga.
Utanför Gunnars
Thoroddsen
Gunnar Thoroddsen prófessor
kom um mánaðamótin úr ferð
til nokkurra Evrópulanda, en
hann fór þangað á vegum rík-
isstjórnarinnar og stjórnar-
skrárnefnda og kynnti Gunnar
sér stjórnarskrár og ýmislegt
varðandi framkvæmd þeirra.
Gunnar skýrði blaðamönnum
frá för sinni síðastl. þriðjudag
og rakti það helzta, sem hann
varð áskynja í förinni. Gunnar
hafði heim með sér stjórnar-
skrár þeirra landa, er hann
heimsótti og auk þess talsvert
af öðrum bókakosti um stjórn-
lagamál, sem hann keypti fyrir
stjórnarskrárnefndirnar. Hann
var ánægður með förina og kvað
sér hafa verið tekið ágætlega,
alls staðar þar, sem hann kom.
Símtöl milli skipa
hafin
Símtöl milli íslenzkra skipa og
stöðva í landi hófust að nýju í
gær. Gjald hvers viðtalsbiLs er
kr. 6.00.
er áætlaður 130 sænskar krón-
ur á mánuði auk kennslugjalds,
er nemur 100 sænskum krónur,
og ferðakostnaður.
Þeir, sem óska eftir frekari
upplýsingum um skólann og
framannefnda styrki, geta snú-
ið sér til Fræðslu- & félags-
máladeildar Sambands ísl. sam-
vinnúfélaga, er gefur nánari
upplýsingar.
A5 búa til kreppu
(Framhald af 3. siOu)
þegar orðnir ríkari en rétt er,
velflestir. Ef aðgerðir stjórnar-
valdanna ná ekki til þeirra i
jöfnu hlutfalli við heiðarlega
og vinnandi alþýðumenn, verða
nauðsynlegar niðurfærslur ekki
gerðar á siðferðilegum grund-
velli. Um þessi úrræði verður
allt vinnandi alþýðufólk að
taka höndum saman. Annars
heldur stjórnarliðið áfram sín-
um loddaraleikjum, gælir við
stórbraskara og stríðsgróða-
menn en laumast aftan að heið-
arlegu fólki og sviftir það tekj-
um og eignum með gengislækk-
un, þegar ekki gefst lengri gálga-
frestur. Nú er skammt eftir að
síðasta tækifærinu til að af-
stýra því, að sú óstjórn, sem hér
hefir verið síðustu misseri, full-
komni það verk sitt, að búa til
kreppu á tímum hinna stór-
kostlegustu tækifæra, sem þjóð-
in hefir séð.
FYLGIST MEÐ
Þið, sem í drelfbýllnu búlð,
hvort heldur er viB sjó eða í
sveitl Minnist þess, að Tímlnn
er ykkar málgagn og málsvarL
Sýnið kunningjum ykkar blaðið
og grennslizt eftir þvi, hvort þeir
vilja ekki gerast fastir áskrif-
endur.
Utanáskrift: Tíminn, Llndar-
götu 9 A, Reykjavík.
BréfaskóLi S./.S.
veitir yður tækifæri til að nema undirstöðuatriði
enskrar tungu. Sérstök áherzla lögð á réttan fram-
burð og meginreglur málfræðinnar. Kennslugjald kr.
50.00.— Nánari upplýsingar hjá
Laus staða
Oss vantar afgreiðslumann í sölubúð frá næstu ára-
mótum.
Eiginhandarumsóknir, ásamt launakröfu, sendist
til Sigurðar Steinþórssonar, kaupféiagsstjóra, fyrir
15. nóvember næstkomandi. í umsóknunum séu upp-
lýsingar um aldur, nám og starfsferil.
Kaupfélag Stykkishólms.
r—
Hjartans þakklœti til barnanna minna, bróður míns,
mágs míns og sveitunga og annarra kunningja, sem
glöddu mig með heimsóknum, heillaskeytum og gjöfum
á sextugsafmœli mínu. — Guð blessi ykkur öll.
HALLDÓRA BÖDVARSDÓTTIR,
Vogatungu.
Tvær úrvals bækur haiida
börnum og unglingum.
I x
Æm m r ■
v i n t y r i
eftir Rudyard Kipling
eru talin með skemmtilegustu og stílfegurstu barna^ögum
heimsbókmenntanna.
Nýkomnar fjórar úrvalssögur í íslenzkri þýðingu eftir Halldór
Stefánsson, rithöfund. ' t
Bókin er prýdd'mörgum snilldarlegum teikningum eftir höfund-
inn sjálfan.
Kalda hjartað
eftir Vilhelm Hauff.
Nýkomin er í bókaverzlanir barna- og unglingabókin KALDA
HJARTAÐ eftir Hauff, ævintýraskáldið heimsfræga. Er hún talin
ein af beztu barnabókum, sem til eru, vegna skemmtilegrar
frásagnar og uppeldisgildis.
Þýðingin er eftir Geir Jónasson, magister.
Bókin er prýdd úrvalsteikningum eftir þýzkri útgáfu.
Bókaútgáfan Reykholt
i