Alþýðublaðið - 26.03.1920, Page 2
9
ALPÝÐUBLAÐIÐ
Aiþbl. kostar i kr. á mánuði.
Rússar og Pólverjar.
Khöfn 24. marz.
Frá Warschau [höfuðborg Pól-
lands] er símað að Pólverjar hafi
í gagnsókn unnið stóran sigur á
Kússum (bolsivíkum), tekið flóiri
■þúsund fanga og mikið af her-
gögnum.
£úaleg barðagaaðjerl.
Lögregla Bandaríkjanna
notar sprengikúlur.
„The New-York Call“ hefir ný-
lega ráðist á stjórn lögreglumál-
anna í Bandaríkjunum og borið
henni á brýn, að hún hafi dreyft
sprengikúlum meðal Kússa þar í
landi til þess, að geta fengið átyllu
til að vísa úr landi Rússum, sem
grunur er um að séu bolsivíkar.
Skrifari fréttastofu Sovjet-Rúss-
lands, Santeri Nourteva, hefir sent
öllum fréttastofum staðfestingu á
þessum áburði og það hefir orðið
til þess, að nefnd hefir veríð sett
í málið í öldungadeild Bandaríkja-
þingsins.
Nourteva heldur því fam, að
þetta sé aðallega gert til að hindra
það, að umboðsmenn Sovjet-Rúss-
lands i New-Ifork, Gregorij Wein-
stein og Martens, fái ekki, með
frekari dvöl sinni sannfært verka-
menn í Ameríku um hve raka-
lausar þær sögur væru, sem
blaðasnápar bandamanna hafa bor
ið um Rússa.
Nourteva segir svo í skeyti sínu:
„Yér gleðjumst ef vér fáum tæki-
færi til að sannfæra nefndina um
hið raunverulega ástand hjá oss
og vísa á bug þeim lygum, sem
dreyft er út um stjórn vora og
rússnesku fréttastofuna í New-
York.
Sovjet-Rússland, sem hefin sigr-
ast á innri óvinum, óskar ekki
eftir að blanda sér í einkamál
annara landa. f*að er ósk vor, þar
eð innrásir og hafnbann gegn oss
hefir algerlega mishepnast, að oss
verði leyt að lifa í friði við önnur
lönd.“
Hvar sem fulltrúar Rússa koma
fram, segja þeir þetta sama, enda
hafa þeir fyllilega sannað það í
verkinu. Því eru þær ofsóknir,
sem þeir hafa orðið fyrir, skamm-
arlegar, enda þótt þær séu vel
samboðnar auðvaldinu og leppa-
lúðum þess.
Morgunbladið reynir ennþá að
næra menn á upptuggum úr ensk-
um blöðum, t. d. Times og Dailg
Mail, sero sennilega munu vera
einu heimildir þess, þar sem það
annars hefir nokkrar. Gífuryrði
þess um Rússa hafa til skamms
tíma fallið í góðan jarðveg vegna
þess, að hingað bárust fáar fréttir
aðrar en hinar velkomnu brezku. —
Moggi hefir fgr nærst á kapla-
mjólk — en nú sýna fréttir þær,
sem koma frá hlutlausum mönnum
dálítið annað, en Mbl. heldur samt
áfram!
Video meliora proboque, deteri-
ora seqaor1). H.
„Landnám“.
Svar við svari Morgunblaðsins.
(Nt)
Vitanlegu eru stofnuð hér „troll-
arafélög**. Hvert stórskipið á fætur
öðru leggur út á íslenzk fiskitnið
og útlendi veiðiflotinn eykst. Afli
tekur sjálfsagt bráðum að þverra.
Takmörkun á veiðifrelsi myndi
valda tapi á útgerðinni. Síst royndi
Mb!. viija óslca þess. Þá er eng-
inn annar vegur en að leita á
önnur mið eða hætta útgerðinni
að öðrum kosti. Eg er f engum
vafa um hvor leiðin verður farin.
Geti Mbl. með gildum rökum
dregið aðrar ályktanir af vísinda-
ritum um Grænland, og þá nátt-
úrlega þær að það sé ekki vel
byggilegt íslendingum né gott
undir bú, þá skora eg á það að
gera það, því annars trúir því
enginn. Að öðrum kosti játar það
með þögninni að það hafi enga
þekkingu á Grænlandi og nenni
ekki að kynna sér málið.
ítarlegar tilraunir um búskap á
Grænlandi geta engir gert nema
1) Eg sé hið betra, og reyni
það (með sjálfum mér), en fylgi
hinu lakara.
H.
íslendingar. Þeir einir kunna þann
búskapinn er væri hentastur og er
það íslenzkur búskapur.
Engar kindur grfp eg fegins
hendi, eins og Mbl. segir þó, og
allra síst þær, sem eru norður á
Grænlandi. Danska stjórnin hefir
betra álit á búskap þar en Mbl.,
þegar hún kaupir háu verði fé af
íslandi til fjárræktunar á Græn-
landi. Féð var flutt til bygða, það
vissi eg vel. Á Austur-Grænlandi
og Vestur Grænlandi' er milcill
munur, það vissi eg líka og hefi
Iýst því í grein um Grænland í
Mbl. Menn vita líka, að ekki hefir
komið til mála að farið yrðt
þangað, sem ekki er vissa fyrir
að vel mætti þrífast búskapurinn.
— „Hitt kemur málinu ekki við,
hverjir vinna þau,“ stendur í Mbl.
Á það við kolin á Grænlandi. Nú
gæti eg hrópað eins og Mbl.
„Heyr undur mikið." Kemur það
ekki málinu við, hvort við brjót-
um sjálfir kol þar, sern við erum
frjálsir að þvf, eða kaupum þau
dýru verði af öðrum f Þetta segir
þjóðmálamaður, að „eigin fmynd
að minsta kosti," í alvöru Slíkar
eru Skoðanir stærsta blaðsins á
tslandi.
Landbúnaður hér þarf fyrst fjár
svo kemur fólkið aftur upp í sveit-
irnar enda þarf þá færra því að
vélayinna mun þá takast. Féð þarf
ríkið að leggja fram og ýms dýr
hlunnindt, annars hepnast ekki
framfarirnar. Til að standa straum
af því þarf ríkissjóður miklar tekj-
ur. Til þess eru skattar lagðir á
arðvænleg fyrirtæki og tekjur, og
lendir það mest á sjávarútveg og
gróðafyrirtækjum, sem fljótlega
gefa mikið í aðra hönd. Eg end-
urtek það að slfk fyrirtæki þurfa
íslendingar nauðsynlega að eiga,
og eitt slíkt fyrirtæki væri land-
nám og veiðar við Grænlands-
strönd. Ef slíkt tækist mætti segja
um Grænland líkt og sagt er f
Skagafirði um Drangey, að það
væri mjólkurkýriníslendinga. „Full-
veðja" segi eg þetta í fullri alvöru.
Mbl. má hlaða að því svo mörg-
um upphrópunarmerkjum sem það
vill, eg læt mér það í léttu rúmi
Hggja.
Síðast í greininni talar Mbl. um
að sem betur fari hafi Jón „afneit-
að sinni fyrri stefnu í málinu".
Eg trúi því ekki, en rangt mun
haft eftir Jóni í útlendu blöðunum-