Tíminn - 08.01.1947, Síða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
FRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A
Sími 2323
31. árg.
Reykjavík, miðv.dag'mn 8. janúar 1947
4. blað
Rafmagniö hefir gerbreytt bú-
skap bænda í Bandaríkjunum
Eðvarð Friðriksson mjólkuriðnfræðingur
segir fréttir vestan urn haf
Nýlega var þess getið í Tímanum að Eðvarð Friðriksson frá
Borgarnesi væri nýkominn heim frá námi í mjólkuriðnaði rvestur
í Ameríku. Fréttamaður Tímans hefir nú hitt hann að máli.
Þegkr blaðamaðurinn hittir
Eðvarð er hann ekki einn fyrir,
heldur er þar hjá honum kona
han§, en henni kynntist hann
vestra. Hún heilsar komumanni
alúðlega. Blaðamaðurinn heyrir
á mæli frúarinnar, að hún muni
vera útlend og hugsar að Eðvarð
muni hafa átt meira erindi til
Vesturheims en það eitt að læra
mjólkurfræðin.
— Hvað er nú langt síðan þú
fórst vestur?
— Það var í okfcríber 1941 en
áður hafði ég verið fjögur og
hálft ár hjá Mjólkursamlagi
Borgfirðinga og stundað þar
verklegt nám.
— Á hverju byrjaðirðu svo
vestra?
— Fyrsta árið vann ég hjá
sambandi samvinnumjólkurbúa.
(Land o’ Lakes). Þar Vann ég
aö ostagerð. En haustið 1942 hóf
ég nám við háskólann í Minnea-
polis og lauk því nú í haust. En
i fríum mínum vann ég að mjólk-
uriðnaði. T. d. var ég í Wisconsin
sumarið 1945 og vann að þurr-
mjólkurvinnslu á því mjólkur-
búi, sem talið er einna bezt í
Bandaríkj unum.
— Er ekki mjólkin góð þarna?
— Jú, hún er það, — mjög góð,
enda strangt eftirlit með með-
ferð hennar. Það er litið eftir
hreinlæti á mönnum og skepn-
um og fjósum, kælingu o. s. frv.
Mjólkurbúin', sem yfirleitt eru
samvinnufyrirtæki bændanna
eins og hér, hafa eftirlitsmenn
í þjónustu sinni, en þeir eru
jafníramt ráðunautar bænd-
anna. Þeif koma af og til á bæ-
ina, ef til vill hálfsmánaðarlega,
eftirlíta og leiðbeina.
Sé mjólkin undir vissu gæða-
magíji, er hún ekki tekin til
neyzlu og fer þá í vinnslubú
fyrir lægra verð.
Þú hefir komið á marga bæi
þarna?
ERLENDAR FRETTIR
Truman forseti ávarpaði
Bandaríkjaþing í fyrradag. Hann
hvatti flokkana til samheldni.
Hann taldi framundan góðæri í
landinu, ef því væri ekki spillt
með óeiningu og óhyggilegri
stjórnarstefnu/ Hann kvað
Bandaríkin ekki geta notið sín
í utanríkismálunum, nema at-
vinnulíf þeirra væri traust Hann
kvað Bandaríkin verða að hafa
góðar hervarnir, því að afvopn-
un gæti ekki hafizt almenn fyrr
en þjóðabandalagið væri orðið
nógu traust. Hann sagði, að 1.
júlí 1947 myndu 1.070 þús manns
vera í landhernum og 561 þús. í
flotanum. Helmingur landhers-
ins myndi þá vera við gæzlu-
störf í hernumdu löndunum.
Hann kvað nauðsynlegt að
greiða fyrir innflutningi flótta-
manna til Bandaríkjanna með
bættri innflytjendalöggjöf.
Stjórnin í Kína hefir bannað
mótmælafundi og kröfugöngur,
er beinast gegn Bandaríkjunum,
en nokkuð hefir borið á þeim
undanfarið. Hersveitir stjórn
arinnar og kommúnista eiga nú
viða í bardögum og virðist
kommúnistum sums staðar veita
betur.
Óeirðasamt er nú víða í Ítalíu
og veldur því skortur hjá al-
menningi. /‘ .
— Já. Sumarið, sem ég var í
Wisconsin — 1945, kom ég því
þannig fyrir, að á frídögum mín-
um, en þaö voru miðvikudag-
arnir, fór ég með eftirlitsmann-
inum ú% um sveitirnar.
— Hvernig er búskapurinn
þarna?
— Aðallega er stunduð kvik-
fjárrækt. Af nautgripum eru til
bæði holdakyn og mjólkurkyn.
Annars er þarna svínarækt og
alifugla og auk þess akuryrkja;
aðallega hveitirækt.
— Eru ekki búin stór?
— Það eru svona 20—30 kýr
á meðalbúi og það er höfuð-
þáttur búskaparins.
— Svo er náttúrlega vélyrkja
og kannske lítið um hesta til
dráttar?
— Vélyrkja er mikil, en bænd-
ur hafa dráttarhesta jafnframt
og ekki eru líkur til, að það
breytist bráðlega. En á síðustu
árum hefir rafmagn mjög breiðst
út um sveitirnar. Það er sam-
vinnufélagsskapur (R.E.A.), sem
nýtur styrks frá ríkjasamband-
inu, er vinnur að því. Sá fé-
lagsskapur starfar u'm öll
Bandaríkin. Rafmagnið hefir
gjörbreytt búnaðarháttum, inn-
an húss og utan.
Nú leggur frúin orð í belg og
segir:
— Það fyrsta, sem bóndinn
kaupir, eftir að hann fær raf-
magnið, er mjaltavélar.
— Þá er líklega ekki að því
að spyrja að kúakynið sé gott?
— Það eru til góðir stofnar, en
meðaltalið þurfum við ekkert
að dásamv Það er talsvert af lé-
legum kúm í Minnisotaríki. Og
skýrslur um það, hvað kýr af
einstökum mjólkurkynjum gefi
af sér, ber vitanlega að taka
varlega, því að þó aö þær séu
réttar, ber á þaðsað líta, að'eig
endurnir leggja alla áherzlu á
að fá sem mesta mjólk, án til
lits til fóðurkostnaðar og end-
ingar, og gæta þess að láta af
bragðskú ekki lifa svo lengi, að
hagstæð meðalársnyt spillist
þess vegna. Og einhvern veginn
hefir.það gen'gið hægt að út
breiða þessi góðu kyn.
— Það er máske dálítill aug-
lýsingabragur á þessu? En verða
nú ekki kynbæturnar örari?
Nota þeir ekki tæknifrjóvgun
þarna?
— Það eru í' Minnisotaríki
eitthvað um 30 nautgripakyn-
bótafélög sem reka tæknifrjóvg-
un. Hún þykir jafn örugg og
gamla aðferðin, en fyrirtækin
bera sig misjafnlega. Algengur
nautstollur hjá þeim er 5 doll-
arar, en þegar nautin þykja góð
fer tollurinn sundum upp í 20
dollara. Eitt naut var selt í haust
á 125 þús. dollara, en það er
enginn búskapur. Ríkismenn
leggja stundum slíkt kapp á
gripakaup til að hafa heiðurinn
(FramhaldL á 4. síðu)
Mikill rekstrarhalli á Korpúlfsstaðabúskapnum
\ÝKOMI\ IIEIM TIL fSLANDS
^Tekjjuhallinn iialn 50 þus. kr. á árinu 1945
og’ vorti þó ekkf greiddar neiiiar rentur,
afborganir né fyrningar
Þegar stjórnarflokkarnir bundust samkomulagi um það í bæj-
arstjórn Reykjavíkur, að kaupa Korpúlfsstaði af Thor Jensen, var
því þráfaldlega haldið fram í blöðum þeirra, að nú skyldi sýnt,
að mjólkurframleiðslan gæti verið miklu ódýrari en hún væri hjá
bændum. Það mun meira að segja hafa verið ymprað á því nokkru
síðar í Morgunblaðinu, að bændur skyldu hafa hægt um sig og
vera hógyerir í kröfum sínum, því að annars myndi Reykjavíkur-
bær setja upp 10 bú eins og Korpúlfsstaðabúið og framleiða nóga
mjólk handa Reykvíkingum! c
Myndir þessar eru af þeim Barböru og Eðvarð Friðrikssyni mjólkurfræð-
ingi, sem eru nýlega komin hingað frá Ameríku og birt er viðtal við á
öðrum stað í blaðinu.
Áramótaróstur á Skagaströnd
og Sauðárkróki
Eins og áður hefir verið sagt frá hér í blaðinu voru allmikil ærsl
höfð í frammi hér í Reykjavík á gamlaárskvöld, svo að vart hefir
verið ófriðlegra hér annað gamlaárskvöld um langt skeið. Svo
virðist sem víðar hafi orðið nokkrar róstur, þegar menn voru að
kveðja gamla árið. Þannig voru menn barðir og rúður brotnar
á Skagaströnd og rúður brotnar og fleiri ósþektir framdar á Sauð-
árkróki. Fregnir, sem birtar hafa verið um þetta hér syðra, virðast
þó að verulegu leyti ýktar.
Rósturnar á Skagaströnd.
Ldi
Svíar kaupa Kolla-
fjarðarsíld
Svíum hafa verið seldar 1800
tn. af Kollafjarðarsíld, er veidd-
ist síðari hluta desembermán-
aðar. Söluverðir er 180 þús.
sænskar krónur. Um 1200 tn.
voru sendar héðan með Lagar-
fossi.
Rósturnar á Skagaströnd urðu
á nýársnótt. Elías Ingimarsson
verksmiðjustjóri hafði efnt til
samkvæmis í skála, sem er á-
fastur við íbúð'hans, og var þar
um 40 manns. En þegar minnst
varði komu óboðnir gestir, all-
drukknir. Köstuðu þeir púður-
bombu inn í fordyri skálans, réð-
ust á þá menn, sem voru úti við,
er þá bar að, og slógu fjóra eða
fimm niður. Hlutu margir tals-
verðar skrámur í þessari viður-
eign, og einn starfsmaður við
síidarverksmiðj urnar, Þórðuir
Jónsson úr Reykjavík, rifbeins-
brotnaði.
í þessum róstum voru einnig
brotnar rúður í íbúðarskála
verksmiðjustjórans. Einnig var
púðurkerJingu eða þvílíku fleygt
inn í ljósastöð verksmiðjanna.
Náði eldur frá þessari sendingu
að læsa sig í laust rusl, en varð-
maðurinn slökkti hann strax og
hann varð hans var. — Enn
voru brotnar perur í götuljós-
kerum.
Sýslumaður Húnvetninga hef-
ir framkvæmt rannsókn vegna
þessara atburða.
Upphlaup á Sauárkróki.
Á Sauðárkróki varð upphlaup
kvöldið næst fyrir gamlársdag.
Gerðu unglingar aðsúg að húsi
mjólkursamlagsins og brutu tíu
rúður. Kom Sólberg Þorsteinsson
mjólkufbússtjóri á vettvang, en
hann er karlmenni mikið, og
urðu átök milli hans og upp-
hlaupsmanna. Hlaut mjólkur-
bússtjórinn í þeirri hríð nokkur
meiðsl, en ekki eru þau talin
alvarleg.
Talsvert bar á því, að ungling-
arnir, sem ærslunum héldu uppi,
hrifsuðu ýmislegt lauslegt og
hlæðu því saman á götunum.
Bitnaði þetta mest á bátum og
öðru, sem óvarið lá utan húss.
En iwn stórkostlegar skemmdir
var ekki að ræða.
Sýslumaður Skagfirðinga hefir
enga rannsókn framkæmt
vegna þessara atburða.
I n n b r o t
aö
Aðfaranótt síðastl. laugardags
brutúst þjófar inn í verzlunina
að Ferjukoti í Borgarfirði, en
hún er áföst við íbúðarhúsið og
alveg við veginn. íbúar hússins
urðu þjófanna varir og sáu á
eftir bíl þeirra yfir Hvitárbrú.
Sýslumanninum í Borgarnesi
var þegar gert aðvart um inn-
brotið. Við eftirgrennslan kom
í ljós, að menn þessir höfðu
keypt bensín í Ferjukoti kvöldið
áður og gefið upp rangt númer
á bifreiðinni. Sögðust þeir vera
á leið norður í land. Síðar um
kvöldið voru þeir á ferð í Borg-
arnesi, en hafa svo farið til
Reykjavkur um nóttina.
Lögreglunni í Reykjavík hefir
nú tekizt að handsama þessa
innbrptsþjófa og hafa tveir
þeirra játað sekt sína þ. e. bif-
reiðarstjórinn og annar til. Það
hefir ennfremur upplýzt, að
menn þessir hafa báðir verið
oft á ferð á þessum slóðum í
sumar, en jafnan gefið upp
rangt númer á bifreiðinni.
í Ferjukoti stálu þeir um 300
krónum í peningum. Þá hafa
sömu menn ennfremur játað að
hafa brotist inn í sumarbústað
við Lazá í Kjós og stolið þar út-
varpi, olíuvél og fleiru. Rann-
sókn er enn ekki lokið í þessu
máli.
Bæjarbruni
Húslð Laufás í Miðneshreppi
brann til kaldra kola síðastl.
sunnudagskvöld. í húsinu bjó
Jón Bjarnason og varð hann
fyrir mjög tilfinnanlegu tjóni,
því litlu var bjargað af innan-
stokksmunum, er voru óvá-
tryggðir, en húsið mjög lágt virt.
Því hefir nokkrum sinnumK
verið lýst hér í blaðinu, hvernig
þessi Korpúlfsstaðabúskapur
hefir gengið. Flest hús eru þar
i mestu niðurníðslu, túnin hafa
verið leigð til hagagöngu fyrir
reiðhesta í Reykjavík og bú-
stofninn er allt að tíu sinnum
minni en í tíð Thor Jensen.
Nýkomnir reikningar Reykja-
víkurbæjar fyrir árið 1945 gefa
líka nokkra hugmynd um Korp-
úlfsstaðabúskap stjórnarflokk-
anna.
Samkvæmt rekstrarreikningi
Korpúlfsstaðabúsins, sem þar er
birtur, hefir rekstrarhallinn á
árinu numið kr. 48.573.82.
Þegar nánar er að gæ.tt, sést
þó að raunverulegur halli á bú-
rekstrinum hefir verið miklu
meiri.
í g'jaldareikningnum er t. d.
hvergi færðar neinar rentur né
afborganir af kaupverðinu. Þar
er engu varið til afskrifta Þar
er engu varið til endurnýjunar
á vélum né til ræktunar. Eina
framkvæmdin, sem ráðist hefir
verið í, virgist sú, að keypt hefir
verið naut fyrir 1310 kr.
Sé reikrjað með eðlilegum af
borgunum og afskriftum, mun
ekki ofsagt, að rekstrarhallinn
sé margfallt meiri en búreikn-
ingurinn sýnir, hvað þá heldur,
ef reiknað væri með vélakaup-
um og ræktun, er svarði þó ekki
til meira en meðaltalsiins- af
siíkum framkvæmdum hjá
bændum.
Ef búskapur bænda hefði al-
mennt verið rekinn með’siíkum
hætti og bæj arbúskapurinn á
Korpúlfsstööum, hefði rekstrar-
halli landbúnaðarins á árinu
1945 skipt mörgum tugum milj.
kr. Afleiðingin af slíku, hefði
verið stóy hækkun mjólkur-
verðsýns. Ef við þett» hefði svo
bætzt svipaður samdráttur á
mjólkurframleiðslunni hjá
bændum og átt hefir sér stað á
KorpúlfsstöSum, hefði stórfelld-
ur mjólkurskortur hækkað
verðið til viðbótar. Niðurstaðan
hefði því orðið sú, að mjólkur-
verðið myndi vera nú margfallt
hærra en það er.
Sem betúr fer hefir búskapur
bænda ekki verið með þessum
hætti. Þeir hafa haldið bústofn-
inum vel i horfinu og þeir hafa
með stórfelldum vélakaupum og
lyæktunarframkvæmdum búið í
haginn fyrir komandi tíma. Það
er ekkert ómaklegra og óeðli-
legra en að þeir menn, sem
stamýa að Korpúlfsstaðabú-
skapnum, séu að kasta steini að'
bændum og óvirða búskap
þeirra. Þá ættu þeir líka að
leggja niður með öihi að ógna
bændum með Korpúlfsstaða-
búskapnum.
En neytendur geta bezt á þessu
séð, að heppilegasta lausnin fyr-
ir þá, er aukinn og efldur bú-
skapur bænda. Hann mun
tryggja þeim ódýrastar og bezt-
ar afurðir. Þess vegna er það
líka þeirra mál, að það opinbera
leggi nú rösklega hönd á plóg-
inn og hjálpi bændum til að
geta notfært sér sem fyrst stór
Frh. á 4. síðu.
Vertíðin hafin
á Akranesi
Róðrar eru nú hafnir frá
Akranesi og fór fyrsti báturinn
á sjó í fyrradag. Var hann með
stutta línu, en aflaði þó sæmi-
lega, eftir ástæðum, eða 3 smál.
miðað við hausaðan og slægðan
fisk.
í gær voru 10 bátar á sjó frá
Akranesi og létu þeir vel yfir
aflabrögðum. Annars eru bátar
nú sem óðast að útbúa sig til
veiðanna og verða gerðir út 22,
eða 23 bátar frá Akranesi í vetur.
í fyrra gengu þaðan 19 bátar á
línuveiðar. Bátarnir, sem bætzt
hafa við, eru nýir og hafa verið
keyptir á seinasta ári frá Svíþjóð
og Danmörku.
Fjöldi manns víðs vegar að
af landinu, eru nú sem óðast að
koma í verið á Akranesi. Út-
gerðarskilyrði hafa mikið batn-
áð á Akranesi við hinar auknu
hafnarframkvæmdir. Þó að ekki
sé búið að koma nema einu af
hinum miklu steinsteypukerum
fyrir varanlega, mynda hin þrjú
bráðabirgðahöfn, sem kemur að
miklu gagni.
MÆNUVEIKIN
AUSTANFJALLS
Sökum mænuveikifaraldurs
hefir samkomubanni verið lýst
í Árnessýslu.
Mænuveiki fór að verða vart
þar eystra i desember síðastl. og
byrjaði hún í Hveragerði. Varð
þar vart fjögurra tilfella, en þau
voru öll frekar væg.
Einnig hefir veikinnar orðið
vart í Ölfusi og fyrir austan
Ölfusá, en öll hafa tilfellin ver-
ið væg og engin alvarleg löm-
un komið í ljós. Alls munu 12
tilfelli hafa komið fram í Sel-
fosslæknishéraði.
Veikinnar hefir einnig orðið
varA í Rangárvallasýslu.
Hermenn stálu
byssunnm
Um jólin var stolið 48 skam-
byssum á Keflavíkurflugvell-
inum og hefir rannsóknarlög-
reglunni nú tekist að upplýsa
þennan þjófnað að verulegu
leyti. Hefir lögreglan handtekið
nokkra menn í sambandi við
þetta mál og þykir fullsannað,
að amerískir hermenn séu sjálf-
ir sekir um þjófnað þennan.
Annars er rannsókn málsins enn
ekki að fullu lokið.