Tíminn - 09.01.1947, Page 1
RITSTJÓRI: J
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI: \
FRAMSÓKNARFLOKKURINN |
Slmar 2353 og 4373 '
I'RENTSMIÐJAN EDDA h.f. \
K
RITST J ÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A
Sími 2323
31. árg.
Reykjavík, fimmtiidagiim 9. jamiar 1947
5. blaft
ERLENT YFIRLIT:
Veröa f jölförnustu leiðir framtíð-
arinnar yfir og undir Norðurpól?
Vísindamenn vinna stöðugt að því að auka hraða samgöngu-
tækjanna, einkum þó flugvélarinnar. Það má því segja, að sam-
gönguleiðirnar séu alltaf að styttast. Þetta þykir þó samt ekki
nóg, heldur er unnið að því að finna nýjar, styttri samgöngu-
leiðir. Sérstaklega gildir þetta norðurpólssvæðið, en ýmsir spá
því, að fjölförnustu samgönguleiðirnar muni liggja um það inn-
an fárra ára. Því hefir jafnvel verið spáð, bæði í gamni og al-
vöru, að næsta styrjöld verði háð um Norðurpólinn, vegna þýð-
ingar hans sem samgönguleiðar.
MONTGOMERY
í MOSKVU
Montgomery marskálkur dvel-
ur um þessar mundir í Moskvu
í boði Rauða hersins. Honum
hefir verið tekið þar með kost-
um og kynjum. T. d. hafa ræður
þær, sem hann hefir haldið þar,
verið birtár í blöðunum, en það
er ekki tltt um ræður útlend-
inga. í aðalræðu sinni hvatti
hann til aukinnar samvinnu
milli herj a Breta og Rússa. Hann
sagði, að styrjöldin hefði mætt
meira á Rússum en nokkurri
þjóð annarri.
LíWegt þykir, að'. för Mont-
gomery til Moskvu hafi bætandi
áhrif á sambúð Rússa og Breta.
Einkum munu ýms vinsamleg
skipti herja þeirra aukast.
ERLENDAR FRÉTTIR
Marshall hershöfðingi hefir
verið skipaður utanríkismála-
ráðherra Bandarikjanna. Byrnes
baðst lausnar vegna heilsubrests.
Marshall var yfirhershöfðingi
Bandaríkjanna árin 1939—45 og
er talinn víðsýnn og frjálslynd-
ur. Hann er 66 ára. Ráðherra-
skiptin eru ekki talin boða
neina stefnubreytingu.
Truman forseti birti þinginu í
gær fyrirætlanir stjórnar sinnar
í fjármálum. Stjórnin mun
leggja kapp á aukna framleiðslu.
Hún mun vinna að lækkunum á
vöruverði án þess að kaupgjald
þurfi að lækka. Komið getur til
greina, að stjórnin greiði nið-
ur verðlag landbúnaðarvara.
Stjórnin mun vinna að stór-
feldum byggingaframkvæmdum.
Bandaríkjastjórn hefir snúið
sér til stjórnar Bretlands og
Rússlands í tilefni af þingkosn-
ingunum í Póllandi 19. þ. m.
Telur hún, að pólska stjórnin
hafi beitt andstæðinga sina
margvíslegu ofbeldi og sé það
algert brot á Potsdamsáttmál-
anum.
Nehru, forsætisráðherra ind-
versku stjórnarinnar, hefir lýst
yfir samúð sinni með sjálfstæð-
ishreyftngunni í Indo-Kína.
• Ef menn virða fyrir sér hnött-
inn, komast þeir að raun um,
að það gildir einu með vega-
lengdina fyrir þá, sem búa við
miðbauginn, hvort þeir ferðast
i vestur, austur eða noður, ef
þeir ætla að komast til staðar,
sem er á sömu breiddargráðu
hinum megin á hnettinum.
Vegalengdin er jafn mikil, hver
stefnan, sem er valin. Þetta
br^ytist hins vegar, þegar komið
er norður fyrir miðbauginn.
Norðurleiðin verður stöðugt
styttri, er lengra dregur frá
miðbaugnum, unz náð er vissri
fjarlægð frá honum. Þá fer hún
smám saman að lengjast aftur.
Sé flogið frá Stokkhólmi í beina
stefn/i til tilsvarandi staðar hin-
um megin á hnettinum, verður
norðurleiðin um 3400 km. styttri
en austur- og vesturleiðin. Sé
miðað við Kairo, verður ávinn-
ingurinn við norðurleiðina enn
meiri eða 4110 km. Enn meiri
verður þó ávinningurinn, ef
miðað er við Róm ecSa aðra staði
á svipaðri breiddargráðu. Milli
30.—50. breiddargráðu verður
ávinningurinn alltaf um og yfir
4000 km. Á þessu svæði eru
allar mestu stórborgir heims-
ins, eins og New York, London,
Shanghai, Chicago, Moskva,
Tokio og San Fransisco. Þessar
tölur tala sinu máli um þýðingu
flugleiðarinnar yfir Norðurpól-
inn.
Um þessar mundir er unnið að
því með margvíslegum hætti að
gera reglubundnar flugferðir
kleifar yfir Norðurpólinn. Flug-
vélarnar verða stöðugt full-
komnari, og veðurathuganir
verða víðtækari og gleggri. Það
þykir ekki ólíkleg spá, að innan
fárra áratuga — jafnvel fárra
ára — verði flugleiðin yfir Norð-
urpólinn orðin mjög fjölfarin.
Með flugleiðinni yfir Norður-
pólinn verður þeim áfanga náð,
að hægt verður að flytja far-
þega og póst styztu leiðina.
Annað enn stærra viðfangsefni
verður hins vegar óleyst sem
áður, en það eru vöruflutning-
arnir. Þess vegna ryður sú hug-
mynd sér stöðugt meira og meira
til rúms, að vörur verði fluttar
norðurleiðina með kafbátum.
Það þótti mikil fásinna fyrir
nokkrum árum, þegar Wilkins
heimskautafari gerði tilraun
með að fara á kafbáti undir
heimskautaísinn. Nú þykir þetta
ekki nein fjarstæða lengur.
Rússar gerðu slíkar tilraunir
með góðum árangri fyrir styrj-
öldina og hafa haldið þeim á-
fram síðan. Bandaríkjamenn
byrjuðu á slíkum tilraunum
fyrir alvöru á stríðsárunum og
hefir orðið vel ágengt. Þeir
halda þeim áfram af miklu
kappi og var t. d. í sumar sagt
frá margra klst. ferð eins kaf-
báts þeirra undir heimskauta-
ísnum.
Einn af færustu kafbátasér-
fræðingum Bandaríkjanna,
Simon Lake, hefir nýlega skýrt
frá því, að auðvelt sé að búa til
kafbát, er geti flutt 8000 smál.
Jafnframt hefir hánn talið sig
geta fært sönnur á, að flutn-
ingar með slíkum kafbátum
(Framhald á 4. síðu)
Ölafur gafst upp og byrjaði svo aftur
Mynd þessi var nýlega tekin af Leon Blum, forsætisráðherra Frakka, og
dóttur hans. Blum hafði ekki ætlað sér að fara í stjórn aftur, þegar til
hans var leitað á dögunum um stjórnarforustu, enda hæði búinn að láta
af flokksforustu og þingmennsku. Hann varð samt við þrábeiðni þing-
manna, sem ekki töldu stjórnarmyndun geta tekizt, neíia undir forustu
utanþingsmanns. Stjórn Blums hefir þegar áorkað talsverðu í baráttunni
gegn verðbólgunni, sem nú er mesta þjóðarmein Frakka.
" **.
Skýrsla sakadómara um
nauðgunarmálið véfengd
■--------------------------------Q
FORSÆTISRÁÐIIERRA FRAKKLANDS
Frsísög'n Filippusar Bjjantasonar brunavarðar,
sem stúlkan fliiði tii efíir ofbeldisverkið
í tilefni af skýrslu frá sakadómara, Valdemar Stefápssyni, sem
send var sumum dagblaðanna í fyrradag, þar sem skýrt var frá
rannsókn amerískra yfirmanna á kærumálum þriggja íslenzkra
stúlkna, sem urðu fyrir árás amerískra hermanna á nýársnótt,
hefir tíðindamaður blaðsins snúið sér til manns þess, er stúlkan,
sem verst var leikin, flúði til, þegar liún slapp úr höndum her-
mannanna. .
Samkvæmt hinni úúsendu
skýrslu sakadómarans, telur
hlutaðeigandi hermaður sig
hafa haft mök við stúlkuna að
hennar eigin vilja. Stúlkan sjálf
heldur því gagnstæöíi fram og
segir, að. tveir menn’ hafi verið
að verki — annar haldið sér,
meðan hinn framdi verkðaðinn.
Maður sá, sem stúlkan flúði
til, var Filippus Bjarnason
slökkviliðsmaður Reynimel 38,
og telur hann ekki nokkurn
vafa á því, að sttí&an hafi ver-
ið beitt ofbeldi, eftir útliti henn-
ar og framkomu að dæma, er
hún kom til hans. Er frásögn
Filippusar á þessa leið,-
— Ég var nýkominn af vakt
í slökkvistöðinni á nýársnótt, er
ég og kona mín heyrðum ólæti
mikil og umgang úti á götunni.
Var klukkan þá að byrja að
gánga þrjú. Þetta var skammt
frá Camp Knox. Vorum við búin
að heyra þessi ólæti nokkra
stund, er ég fór út á tröppurnar
til að forvitnast um, hvað um
væri að vera. Sá ég brátt, hvar
stúlka hljóp í ofboði miklu aftur
og fram á gangstéttinni. Kveikti
ég þá lútidyraljósið og skipti það
engum toguin, að stúlkan kom
hlaupandi beint til mín, yfir
sig hrædd og skelfd. Var hún há-
grátandi, er hún kom til mín
upp á tröppurnar. Bað hún okk-
ur hjónin, eins og guð sér til
hjálpar að liðsinna sér, því að
hún hefði orðið fyrir árás.
Ég spurði þá, hvernig árásijf*
hefði verið.« Hún sagðist hafa
verið á balli í stöðvum ameríska
hersins í Camp Knox um kvöld-
ið. Fór hún þangað með vin-
stúlku sinni, sem er í „ástand-
inu,“ en er líða tók á ballið,
stakk vinstúlkan hana af og
sáust þær ekki síðan. Þegar ball-
inu lauk og hún- ætlaði að fara
heim, tóku tveir hermenn hana
með ofbeldi og fóru með hana
inn i einhvern bragga þarna í
grenndinni, íem mannlaus var,
nauðguðu þeir henni þar í fé-
lagi. Sagði hún, að annar her-
maðurinn hefði haldið sér, með-
an hinn framdi illvirkið. Hélt
hann fyrir munn henni, er hún
reyndi að gefa ti'á sér hljóð.
Stúlkan var mjög illa til reika,
er hún kom úr höndum her-
mannanna. Föt hennar voru illa
með farirr. Allar tölur voru rifn-
ar af kápunni, sem var fráflak-
andi, annar sokkurinn var rif-
inn niður og fram fyrir tær,
sokkaböndin slitin og sokkurinn
tajsvert rifinn að öðru leyti.
Andlit stúlkunnar ;bar þess enn-
fremur greinilegan vott, að hún
hafði verið Jiandleikin á ómild-
an hátt og ekki líkt því sem
elskendum er eiginlegt (saman-
ber skýrslu sakadómara), því
(Framhald á 4. síðu)
Verður Kollafjarðar-
síldin brædd nyrðra?
Stjórn Síldarverksmiðja rík-
isins hefir fengið heim-
ild atvinnumálaráðuneytisins til
kaupa á Kollafjarðarsíld á 30 kr.
pr. mál, 150 lítra, og láta flytja
síldina til Siglufjarðar til
bræðslu. Þetta verð miðast við
það, að flutningsgjald til Siglu-
fjarðar verði 15 krónur pr. mál,
en breytist til samræmis viö
flutningsgjaldið, ef það yrði
annað.
. Landssamband íslenzkra út-
vegsmanna hefir undanfarið
unnið að því að fá hentug skip
til flutninganna.
Mikil síld er enn á Kollafirði
og hafa bátar fengið þar góða
veiði seinustu dagana. í gær
veiddust þar 880 tn." sildar.
Hefir Morgunblaðið lengið umboð til
að svara fyrir Alþýðuflokkinu?
Þau tíffindi gerffust í fyrrakvöld á fundi nefndar þeirrar frá
Alþýffuflokknum og Sósíalistaflokknum, sem Ólafur Thors fékk
iil aff ræða viff sig um stjórnarmyndun, að Ólafur lýsti yfir því,
að hann gæfist upp viff stjórnarmyndunina, þar sem hann gæti
ekki komiff á samkomulagi. Nefndarmenn fóru síðan heim í
þeirri trú, aff þessari stjórnarmyndunartilraun væri lokið.
Ólafur hefir svo fengið aftur-
hvarf um nóttina, þegar hann
fór að hugsa um „stólinn sinn,“
því að strax i gærmorgun voru
erindrekar frá honum komnir á
stúfana. Einkum voru þeir send-
ir á fund Alþýðuflokksmanna og
látnir telja þeim trú um, að það
mj ndi vera saira og sjálfsmorð
fvrir Alþýðuflokkinn, ef Ólafur
yrðí að gefast upp!
Stjórnarmyndunartilraun Ól-
afs heldur því enn áfram og
verður ekki annað sagt en for-
seti landsins sýni honum meira
en litla þolinmæði. Tilraun Ól-
afs er nú búin að standa á
fjórðu viku. í öðrum þingræðis-
löndum tíðkast það ekki, að
sami maður geti eytt jafnlöng-
um tíma til stjórnarmyndunar.
í raun og veru er stjórnar-
myndunartilraun Ólafs búin að
standa miklu lengur eða allt
síðan, að þingið hófst. Ólafur
fékk forsetann til að skipa tólf-
mannanefndina í þeim tilgangi,
að honum ynnist frestur til að
vinna að stjórnarmyndun áður
en hann tæki hana formlega að
sér. Þess vegna gætti hann og
hjálparménn hans þess, að störf
tólfmannanefndarinnar yrðu
ekki annað en kák. Það sem hef-
ir staðið í vegi fyrir stjórnar-
myndun á þinginu er fremur
en nokkuð annað það, að Ólafur
hefir verið að reyna með öllum
ráðum að tryggja sér forsætis-
ráðherrastólinn aftur og notið
til þess fulltingis nokkurra Sjálf-
stæðis- og Alþýðuflokksmanna,
er haft hafa aðstöðu til að
hindra allar aðrar stjórnar-
myn^unartilraunir.
Á sama tíma og Ólafur hefir
þannig staðið í vegi fyrir stjórn-
armyndun í þinginu, hefir hann
látið blað sitt flytja hverja
ádeilugreinina eftir aðra á Al-
þingi fyrir seinaganginn í
st j órnarmyndunarmálinu! Það
er gott dæmi um heilindi og
sannleiksást þessa manns.
Það skal ósagt látið, hvort
Ólafi tekst með þessum vinnu-
brögðum að þreyta nógu marga
þingmenn til að veita honum
áfram stuðning til stjórnar-
myndunar. Ótrúlegt er, að ný
stjórn hans geti staðið lengi, en
þó kannske nógu lengi til þess,
að skap þjóðinni aukinn ófarn-
að.
Það fer ekki hjá því, að sú
aðstoð, sem ýmsir forustumenn
Alþýðuflokksins hafa veitt Ól-
afi í þessu stjórnarmyndunar-
brölti hans, veki mikla athygli
og þá fyrst og fremst meðal
flokksmanna þeirra. Svo virðist
líka á Morgunblaðinu, sem
Sjálfstæðismenn séu farnir að
eigna sér Alþýðuflokkinn og
treysti honum engu ver en sjálf-
um sér. í forustugreinum og
Reykjavíkurbréfum Mbl. er Al-
þýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins nú venjulega getið aö
(Framhald á 4. síöu)
Frægur skákmaður
kemur hingað
Skáksamband íslands heflr
boðið hinum kunna skákmeist-
ara Kanada, Yanovsky, sem nú
keppir á alþjóðaskákmótinu í
Hastings, hingað til lands.-Yan-
ovsky er væntanlegur kringum
10. febrúar næstkomandl.
Stjórn Skáksambandsins hefir
áformað, að Yanovsky tefli Jiér
fjölskákir í Reykjavik, Hafnar-
firði og ef til vill víðar hér í ná-
grenninu. Þá er og gert ráð fyrir
að hann taki þátt í 6 manna
keppni hér í Reykjavík, þar
sem auk hans keppa þeir: Ás-
mundur Ásgelrsson, Akákmeist-
ari íslands, Baldur Möller, Guð-
mundur S. Guðmundsson, Guð-
mundur Ágústsson og Árni
Snævarr.
T
Fyrsta tónlistarsýningin
hefst um miðjan mánuðinn
Fyrsta tónlistarsýning á íslandi verður opnuff í Reykjavík um
miðjan þennan mánuð. Tónskáldafélag íslands gengst fyrir sýn-
ingunni. Verður henni skipt í tvær deildir, íslenzka og erlenda,
sem skiptist eftir löndum.
Á sýningunni verða sýnd
hljóðfæri, hljómleikaflutningur,
myndir hljóðfæra, tónskálda
handrita og ýmislegt annað, er
snertir tónlist Er hugmyndin
að sýna mönnum ýmislegt, sem
ekki er enn hægt að láta hljóma
á íslandi. — Samtímis verða á
hverjum degi tónleikar, erindi
og upplestrar. —
í sýningarnefnd kaus félagið
síðastliðið haust Jón Leifs tón-
skáld, formann, Hallgrím Helga-
son og Karl Ó. Runólfsson, en
síðar var bætt við dr. Páli ísólfs-
syni og Jörundi Pálssyni, sem
var ráðinn framkvæmdarstjóri.
Fyrst var leitað til sendiráða
ýmissa landa hér um útvegun á
efni i sýninguna, en siðar var
Jón Leifs sendur til Bretlands,
Danmerkur og Svíþjóðar í sömu
erindum. Var málaleitun þessari
alls staðar vel tekið og er alls
konar efni þegar komið til
Reykjavíkur, þar á meðal æva-
gömul nótnahandrit úr skinni,
— lánuð af tónlistarsafninu í
Kaupmannahöfn. Þaðan hafa
einnig fengizt afsteypur af
dönsku lúðrunum frá eiröld og
eru lúðramenn i Reykjavík nú
að æfa sig í að þeyta þessa lúðra,
— segja hljóminn einhvern hinn
fegursta, sem hugsazt geti. Á
sýningunni verða lúðrarnir
þeyttir við sérstök tækifæri.
Einstakir dagar verða helg-
aðir sérstökum löndum eða tón-
skáldum, t. d. norrænu löndun-
um, Beethoven, Rússlandi,
Ameríku, Bretlandi, Frakklandi,
Póllandi o. s. frv. Fyrsti dagur-
inn verður íslenzkur dagur. Þau
lönd, sem hafa efni á sýning-
unni, verða sérstaklega heiðruð.