Tíminn - 09.01.1947, Blaðsíða 4
FRAMSÓKNARMENN!
MuniB að koma í ftokksskrifstofuna
REYKJAVÍK
Skrifstofa Framsóknarftokksins er í
Edduhúsinu við Lindargötu Sími 6066
9. JÆN. 1947
5. blað
Ú t,
œnum
f dag:
Sólin kemur upp kl. 10.13. Sólarlag
kl. 14.57. Árdegisflóð kl. 7.05. Síðdegis-
flóð kl. 19.26.
í nótt:
Næturakstur annast Litla bílstöðin,
sími 1380. Næturlæknir er í lækna-
varðstofunni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030. Næturvörður er 1 Reykja-
víkur Apoteki, sími 1760.
Útvarpið í kvöld:
20.00 Préttir. 20.20 Útvarpshljóm-
sveitin (Þórarinn Guðmundss. stjórn-
ar): a) „Heilög jól,“ eftir Árna Björns-
son. b) Rímnadanslög eftir Jón Leifs.
20.45 Lestur -fornrita: Þættir úr Sturl-
ungu (Helgi Hjörvar). 21.15 Dagskrá
kvenna (Kvenfélagasamband fsl.):
Jól fyrir hálfri öld (frú Aðalbjörg Sig-
urðardóttir og frú Elín Thorarensen).
21.40 Prá útlöndum (Jón Magnússon).
22.00 Préttir. Auglýsingar. Létt lög
(plötur). 22.30 Dagskrárlok.
Drætti
í happdrætti Háskólans hefir verið
frestað til miðvikudagsins 15. þ. m.
Erlent yfirlit
(Framhald af 1. síöu)
verði miklu ódýrari en öðrum
farartækjum. Hann segir, að
siglingaleiðin frá New York til
Beringssunds um Panama-
skurðinn sé 7845 sjómíl-
ur, en sé farið norður með Kan-
ada, sé hún aðeins 4845 sjómíl-
ur. Plutningskostnaðivr á ofan-
sjávarskipi fyrir 8000 smál. af
vörum sé nú um 176 þús. doll-
arar á fyrrnefndu leiðinni, en
myndu ekki verða néma 34 þús.
dollarar með kafbát á 'síðari
leiðinni.
Það kann því að eiga skemmra
í land en margur hyg/ur, að ein
fjölfarnasta flugleið heimsins
verði yfir Norðurpólinn og ein
mesta vöruflutningaleiðin und-
ir honum! Fyrir Norðmenn og
Dani kynni þetta að geta þýtt
nokkurn landamissj* því að
Rússar virðast nú teygja arma
sína til Svalbarða, en Banda-
ríkin til Grænlands. Hins vegar
kann þetta að verða íslandi til
bjargar, því að styrjaldarhætt-
an færist þá norður fyrir það.
Skýrsla sakatlómara
(Framhald af 1. síðu)
háls og andlit var rautt og þrút-
ið eftir átök illvirkjanna.
Filippus lagði ríka áherzlu á
það, gagnstætt því, sem yfir-
menn hersins halda fram í
skýrslu sakadómara, að stúlkan
hafi alls ekki verið undir áhrif-
um áfengis, svo að merkjanlegt
væri, og hefði hvorki hann né
kona hans getað fundið neina
vinlykt af henni. Stúlkan var
langan tíma að jafna sig eftir
hræðsluna og var varla með
sjálfri sé«.-af þeim sökum fyrst
í stað. Filippus fór svo með hana
heim til vinkonu hennar, sem
átti heima þarna í grenndinni.
Er Filippus var^spurður að því
hvort hann hefði verið kallaður
sem vitni í rannsókn þeirri, sem
Valdemar Stefánsson sakadóm-
ari mun hafa með höndum í
þessu máli, svaraði hann, að
hann hefði ekki verið kvaddur
þar tjl frásagnar.
Ólafiir gafst upp . . .
(Framhald af 1. síðu)
jöfnu. Svo langt er komið,
að Mbl. er farið að svara fyrir
Alþýðuflokkinn tilmælum, sem
til hans hefir verið beint og
hann hefir átt ósvarað, sbr. for-
ustugrein Mbl. í gær.
Reynslan mun skera úr því,
hvort Alþýðuflokkurinn sættir
sig við að láta Mbl. svara fyrir
s^ijg og lætur svar þess vera
skuldbindandi fyrir sig. En vel
ættu foringjar Alþýðuflokksins
að athuga áður, hvort það er
ekki sjálfsmorðið, sem Mbl. tal-
ar um, ef þeir gera 'heildsala-
málgagnið að leiðarljósi sínu og
gera svör þess að sínum eigin
svörum.
E.s. Fjallfoss
fer. héðan þriðjudaginn 14. jan-
úar -ýfestur og norður kringum
land.
Viðkomustaðir:
Patreksfjörður,
Flateyri,
ísafjörður, ,
Siglufjörður,
Akureyri,
Húsavík,
Kópasker,
Seyðisfjörður,
Norðfjörður,
Eskifjörður,
Reyðarfjörður, .
Fáskrúðsfjörður,
Djúpivogur.
Vörumóttaka til laugardags.
H.f. Eimskipafélag
fslands.
HVAÐ ER MALTKO?
„ElfTE-
SHAMPOO44
er öruggt hárþvottaefnt. Preyð-
ir vel. Er fljótvirkt. Gerii' hárið
mjúkt og blæfagurt. Selt í 4. oz.
glösum í flestum lyfjabúðum og
verzlunum. Heildsölubirgðir hjá
i::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
Dánarmiiining
(Framhald af 3. siðu)
og varpaði gullnum roða yfir
döggvaða jörð klædda litskrúði
lifandi vors. Guðm. stóð að
venju á hlaðinu fyrir vestan
með sínu alúðlega brosi til að
bjóða þeim í bæinn, sem að
garði bar. Ég segi við Guðm. um
leið og ég heilsa honum, eitt-
hvað á þessa leið: „Já, satt er
það, fallegt er á Ferju á vorin“.
Guðm. brosti um leið og hann
svaraði: „Það hefir mér nú oft
fundizt".
Um leið leit hann leiftrandi
augum í vesturátt, þangað sem
sólin var að ganga til viðar. Ég
fann það á þessari stundu
hversu innilega Guðm. gladdist
yfir því, að augu gestsins skyldu
hrífast af þeirri fegurð, sem
hann hafði svo oft dáðst að,
frá því að fyrstu sporin lágu
þangað heim, þangað, sem hann
átti að lifa lífinu öllu. Ég held,
að ég hafi lesið það rétt út úr
svip Guðm. á þessari stundu í
vorheimi sólarlagsins, að hans
eigið sólarlag var ekki langt
undan að sjálfs hans dómi, sú
varð og raunin á.
Guðm. var jarðsettur að Ási
við hlið fóstra síns, að hans
eigin ósk, því að honum unni
hann mjög. Mikið fjölmenni var
samankomið við jarðarförina,
því margur kaus að votta hin-
um látria sína hinztu virðingu.
Og jörðin geymir jarðneskar
leifar þessa mæta. manns, en
sálin líður á svifléttum vængj-
um um eilífðargeiminn.
Ól. H. Guðmundsson,
KRAFTTALÍUR
fyrirliggjaudi í cftirfuraiidi stœrðum:
Fyrlr 1l/z tonn
-2
- 3
- 5
• * , •
Samband ísl. samvinnufálaga
» \
(jamta Síó
Appassionata ,
Ahrifamikil og snilldarlega vel
leikin sænsk kvikmynd.
Aðalhlutverkin leika:
Viveca Lindfors
Georg Rydeberg.
í myndinni eru leikin verk eftir
Beethoven, Chopin og Tsehai-
kowsky.
v
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Wijja Síc
(við Skúlaqötu )
•:•*
Fjaðraherfi
9 og 15 fjaðra
Samband ísl. samvinnufálaga
H.f. Akur
Timburverksmiðja
okkar er nú fullbyggð. Hún er búin fullkomnum
og fjölbreyttum vélum. í verksmiðjunni vinnur
fjöldi ágætra fagmanna.
Verksmiðjan
getur því afkastað fljótt og vel með tiltölulega
sanngjörnu verði, alls konar trésmíði.
»
Eldhúsinnréttingar
Hurðir
Gluggar
Húsgögn
INNRÉTTINGAR í skrifstofur og sölubúðir. Sjáum um
|
húsinnréttingar á íbúðarhúsum og öðrum bygg-
ingum.
VÉLAVINNA hvers konar afgreidd eftir pöntun.
Skrifstofan og verksmiðjan
SUfurtiini nr. 9 við Hafnarfjarðarveg.
H.f. Akur
Símar 1133. —9474.
Tímann
vantar tilfinnanlega börn til aS bera
blaðið út til kaupenda viðs vegar um
bæinn. Heltlð er á stuðningsmenn
blaðslns, að bregðast vel við og reyna
að aðstoða eftir megnl viS að útvega
ungiinga til þessa staría
KALDA permanentið kom-
ið! Hárgreiðslustofan Carmen,
Laugaveg 64, sími 3768, 3768.
Carmen!
TVÆR AGÆTAR BÆKUR
TIL TÆKIFÆRISG JAFA:
sólbrAð,
nýja ljóðabókin
eftir GUÐMUND INGA.
KVÆÐI,
ljósprentun á æskuljóðum
HULDU skáldkonu.
Gróður í gjósti.
(A Tree Grows in Brooklyn)
Áhrifamikil stórmynd.
Sýnd kl. 9.
Chaplin-syrpan.
(Chaplin Festival).
Pjórar af hinum alkunnu
stuttu skopmyndum, sem Char-
lie Chaplin iék í á árunum 1916-
18. Þær hafa nú verið gerðar að
tónmyndum og heita: „Inn-
flytjandinn", „Ævintýramaður-
inn“, „Við heilsubrunninn" og
„Chaplin sem lögregluþjónn".
Sýnd kl. 5 og 7.
7jarHarbíc
Lundónaborg
í lampaljjósi
(Fanny by Gaslight)
Spennandi ensk mynd.
Phyllis Calvert
James Mason
Wilfred Lawson
Stewart Granger
Jean Kent
Margaretta Soott
Sýning kl. 5, 7 og 9.
HAPPDRÆTTI HÁSKÚLA ÍSLANDS
Drætti í 1. flokki er
frestað till 5. ian.
Með því, að frestur til siilu happ-
drættismiða í 1. flwkki hefir reynzt
wf stuttur vegna hinna mörgu helgi-
daga og annríkis um áramótin, liefir
stjórn happdrættisins ákveðið, með
samþykki happdrættisráðs, að fresta
drætti í 1. flokki til 15. jamiar.
Dráttur í ölluin (iðruin flokkum fer
fram samkvæmt reglugerðiuni 10.
hvers mánaðar.
KAUPUM
fyrst um sinn aðeins
þriggja pela flöskur
venjulegar (sívalar)
Móttaka í Nýborg við Skúlagötu.
ÁFENGISVERZLUN RÍKISINS
LAUS STAÐA
Traustur, reglusamur maður, getur fengið vellaunað
skrifstofustarf hjá opinberri stofnun. Vinnutími kl. 9—6.
Umsóknir, auðkenndar „Opinber stofnun", verði lagðar
inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 12. þ. mán.
í umsóknum sé getið um aldur, nám, fyrri störf og
foreldri.