Tíminn - 14.01.1947, Síða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og' 4373
ERENTSMIÐJAN EDDA h.í.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
’ EDDUHÚSI, Lindargötu 9A
Simi 2323
31. árg.
Reykjavík, þriðjutlaginn 14. janúar 1947
8. blað
Tveir keppinautar á þingi
sameinuðu þjóöanna
Eins og rakið er í grein Ólaís Jóhannessonar í blaðinu í dag urðu deii-
ur milli Mrs. Fandit og Smuts liershöfðingja um réttindi Indverja í Suð-
ur-Afríku. — Á efri myndinni er Smuts að taia við Carlos Romulo,
herforingja, fulltrúa Filippseyja. Á neðri myndinni er Mrs. Pandit og einn
félagi hennar að rœða við fulltrúa frá Argentínu. —
Nýtt hvalveiðafélag stofnað
með 1,5 milj. kr. hlutafé
Laugardaginn 11. janúar 1947 var stofnað hér í bænum hluta-
félagið „Hvalfjörður“, og er aðaltilgangur félagsins að reka
hvalveiðar og vinnzlu hvers konar hvalafurða hér á landi. Hluta-
féð er ákveðið 1.5 milj. kr., en á stofnfundi félagsins voru þegar
skráð loforð fyrir 900 þús. kr., og heldur hlutafjársöfnun áfram.
í stjórn félagsins voru kosnir
þessir menn: Loftur Bjarnason,
útgerðarmaður, formaður, Guð-
mundur Kristjánsson, skipa-
miðlari, varaformaður, Kristján
Guðlaugsson, hæstar.l., ritari,
Egill Vilhjálmsson, forstjóri, og
Othar Ellingsen, verzlunarstj.
í varastjórn voru kosnir: Bene-
dikt Gröndal, forstjóri, Geir
Zoéga, útgerðarmaður, Kol-
beinn Sigurðsson, skipstjóri,
Vilhjálmur Árnason, skipstjóri
og Þorlákur Björnsson, fulltrúi.
Þeir, sem að félagsstofnun
þessari standa telja nú ein-
stakt tækifæri tii að koma
hvalveiðum íslendinga á fjár-
hagslega öruggan grundvöll,
fyrst og fremst sökum þess, að
gera má ráð fyrir þvl, að hlð
háa verðlag, sem nú er á hval
afurðum, haldist enn um hrið.
Hvalveiðar eru nú einn aðalat-
vinnuvegur Norðmanna og hafa
um margra áratuga skeið verið
einn öruggasti tekjustofn þeirra.
Á vegum áðurnefndra manna
kom einn af færustu sérfræð
ingum Norðmanna hingað til
landsins i nóvembermánuði s.l
og athugaði hér staðhætti. Sið-
an hefir hann gengið úr skugga
um að unnt yrði að fá keyptar
nauðsynlegar vélar og önnur
tæki, og að hægt væri að fá
hentugt hvalveiðiskip.
Eftir vandlega athugun kom
i ljós, að heppilegast er að
byggja hvalvinnslustöðina
landi Litlasands eða Miðsands
(Framhald á 4. sUSu)
Stefán Jóhann vinnur að myndun ríkis-
stjórnar þriggja stjórnmálaflokka
Sósíalistar hófu samninga við Ólaf
Thors, meðan þeir þóttust veita
Kjartani Ólafssyni stuðning
Eins og skýrt var frá í seinasta blaði, sneri Stefán Jóhann
Stefánsson sér til allra þingflokkanna á föstudaginn var og ósk-
aði eftir, að þeir kysu nefnd til viðræðna við hann um stjórn-
armyndun. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn
urðu strax við þessum tilmælum, en Sósíalistaflokkurinn neit-
aði að ræða um stjórnarmyndun undir forustu Stefáns. Stefán
hefur síðan, ásamt fulltrúum frá Alþýðuflokknum, rætt við full-
trúa frá Framsóknarfiokknum og Sjálfstæðisflokknum um sam-
stjórn þessara þriggja flokka. Á þessu stigi verður engu spáð um
mðurstöður þeirra viðræðna.
Hví fól forsetinn Stefáni
Jóhanni stjórnarmyndun?
Manna á milli hefir sú aðferð
forseta íslands nokkuð vrarið
gagnrýnd, að hann skyldi snúa
sér strax til formanns minnsta
þingflokksins, þegar Ólafur
Thors gafst upp, en ekki snúa
sér fyrst til Framsóknarflokks-
ins og Sósíalistaflokksins. í til-
efni af þessu þykir rétt að skýra
frá því, að forsendur forsetans
fyrir þessu eru þær, að sam-
kvæmt kosningaúrslitum í vor
sé þeim flokkum, sem stóðu að
ríkisstj., skyldast að standa fyrir
stjórnarmyndun. — Að vísu
sé einn flokkurinn, Sósalista-
flokkurinn, genginn úr skaftinu,
en það komi þó ekki að sök, þar
sem hinir tveir, sem eftir eru,
Sjálfstæðisflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn, hafi þing-
meirihluta að þaki sér. Þessum
flokkum sé því skylt að reyna
fyrst, og þar eð Sjálfstæðisflokk
urinn hafi gefizt upp, sé röðin
komin að Alþýðuflokknum.
Þetta voru skýringar þær, sem
forsetinn 'gaf formanni Fram-
sóknarflokksins á þeirri á-
kvörðun sinni að íela formanni
Alþýðuflokksins að reyna stjórn-
armyndun næst á eftir Ólafi
Thors.
Þáttur Kjartans Ólafssonar.
í blöðum Sósialistaflokksins
og Alþýðuflokksins hefir það
verið rætt að undanförnu, að
allmikið þingfylgi hafi verið
fyrir því, að Kjartan Ólafsson í
Hafnarfirði beitti sér fyrir
stjórnarmyndun. t Mbl. hefir
einnig verið rætt um þetta og
það í þeim furðulega tón, að
þetta hafi átt að vera gildra
fyrir Alþýðuflokkinn og myndi
hafa leitt til sjálfsmorðs hans,
ef hann hefði fallizt á það.
f tilefni af þesu þykir rétt að
upplýsa, að farið hafa fram
óformlegar viðræður milli Al-
þýðuflokksins, Framsóknar-
flokksins og SósialSstaflokks-
ins um möguleika fyrir því, að
þessir flokkar mynduðu stjórn
saman. Af hálfu Framsóknar-
manna tóku Hermann Jónasson
og Steipgrímur Steinþórsson
þátt í þeim viðræðum. Viðræður
þessar komust aldrei nema á
byrjunarstig og var einkum rætt
um, að flokkarnir kæmu sér
fyrst saman um mann, er hafa
skyldi forgöngu um sameigin-
lega stjórnarmyndun þeirra. Til-
lögu þess efnis, að Framsókn-
armaður hepði forgöngu um til-
raun þessa, var fálega tekið
af Alþýðuflokknum, og lýstu
Framsóknarmenn þá yfir, að
þeir gerðu það ekki að neinu
skilyrði, heldur myndu fallast
á hvern annan, sem samkomu-
lag yrði um. Við nánari athug-
un kom í ljós, að sósíalistar
töldu sig geta sætt sig vfð
Kjartan Ólafsson í Hafnarfirði.
Hann virtist einnig líklegur til
að hafa mikið fylgi Alþýðu-
flokksmanna. Þeir Steingrímur
og Hermann lýstu því þess vegna
yfir við Kjartan, að þeir myndu
styðja hann til stjórnarmynd-
unar og vinna að því innan
Framsóknarflokksins, að flokk-
urinn veitti honum stuðning.
Þetta var þó vitanlega bundið
því skilyrði, að samkomulag
næðist um málefni.
Kjartan mun hafa verið mjög
tregur til að taka þetta verk að
sér, en þó fallizt á að reyna það,
ef það yrði til að greiða fyrir
stjórnarmyndun, og flokkur
han^ veitti honum stuðning
sinn. Þann stuðning hefir Al-
þýðuflokkurinn skorazt undan
að veita honum.
Af hálfu Framsóknarmanna
hefir það jafnan legið fyrir, að
þótt þeir lýstu yfir áðurnefnd-
um stuðningi við Kjartan Ól-
afsson, væru þeir fúsir til að
ræða um stjórnarmyndun undir
forustu fleiri Alþýðuflokks-
manna, ef það gæti greltt fyrir
heílbrigðri stjórnarmyndun.
Einn þeirra, sem vitanlega
hefir komið þar til greina, er
formaður flokksins, Stefán Jó-
hann Stefánsson.
„Umhyggja“ Mbl. fyrir
Alþýðuflokknum.
í tilefni af þeim ummælum
Mbl., að það hefði verið gert af
óheilindum við Alþýðuflokkinn
að benda á Kjartan Ólafsson
til stjórnarmyndunar, þykir rétt
að bæta við nokkrum orðum.
Kjartan Ólafsson er einn reynd-
asti og vinsælasti leiðtogi Al-
þýðuflokksins. Hann hefir öðr-
um fremur rutt flokknum braut
í Hafnarfirði og byggt hann
þar upp, en þar hefir flokk-
urinn nú traustast fylgi á öllu
landinu. Kjartan hefir, ásamt
Emil Jónssyni, haft forgöngu
um flest hin merkilegu verk,
sem flokkurinn hefir unnið þar.
Hann er maður gerkunnugur at-
vinnumálum, viðskiptamálum
og fjármálum landsmanna, enda
átt lengi sæti í gjaldeyris-
nefnd og útflutningsnefnd og
á nú sæti í bankaráði Lands-
bankans.
Álit Kjartans má og vel marka
á því, að hann var einn þeirra
manna, sem fyrst var reynt að
fá í utanþingstjórnina 1942, en
hann neitaði því í samráði við
flokk sinn.
Það er því vissulega síður en
svo, að það hafi stafað af nokkr
um brellum við Alþýðuflokkinn,
að bent var á Kjartan Ólafsson
til stjórnarmyndunar. Það var
af fullum heilindum gert, enda
munu fáir eða engir hafa reynst
Alþýðuflokknum heilli og betri,
þegar mest hefir reynt á, en
Kjartan. Það kemur líka úr
i hörðustu átt, að bendla hann
| við kommúnistadekur, því að
fáir hafa verið kommúnistum
| óþarfari, eins og fylgi Alþýðu-
I flokksins í Hafnarfirði sýnir
j bezt.
i Óheilindi sósialista.
! *
í Þjóöviljanum er fárast mikið
| yfir tvi seinustu dagana, að
i ekkert skuli hafa orðið úr
j stjórnarmyndun Kjartans Ólafs
Isonar. Þjóðviljanum væri þó
sæmst að tala sem minnst um
það mál, því að ekki sýndi
flokkur hans meiri heilþndi i
því máli, en svo, að tveimur
| dögum eftir aö hann hafði bent
á Kjartan, kaus hann tvo menn
til að tala við Ólaf Thors um
stjórnarmyndun undir forustu
hans. Flokkur, sem telur sig
reiðubúinn til að fara í stjþrn
undir forustu Ólafs Thors, sem
Þjóðviljinn kallar nú réttilega
„verst^i afturhaldið í landinu",
ætti að tala um allt frekar en
1 áhuga sinn fyrir heilbrigðri
•„vinstri stjórn".
| Þjóðviljinn ætti líka að gera
sér þess grein, að það er ekki
til að greiða fyrir slíkri stjórn,
(Framhald á 4. síðu)
Tvö dánardægur
.. Magnús Björnsson náttúru-
fræðingur andaðist hér í bæn-
um 10. þessa mánaðar. Bana-
mein hans var heilablóðfall.
Fséddur var Magnús að Gils-
stöðum í Vatnsdal 3. maí 1885
og varð því rúrnlega sextugur.
Hann varð stúdent 1908 og lagði
stund á náttúrufræði. Fékkst
hann við kennslu um skeið og
var alllengi starfsmaður við
Náttúrugripasafnið. Vann hann
mikið að fuglamerkingu og
skrifaði margt um fuglalíf hér
á landi.
Árið 1916 kvæntist Magnús
Valborgu Þorkelsdóttur, en hún
andaðist árið 1930.
Eyjólfur Kolbeins lézt að
heimili sínu að Kolbeinstöðum
11. þ. m.
Eyjólfur fæddist að Staðar-
bakka í Miðfirði 24. jan. 1894,
sonur Eyjólfs Kolbeins Kol-
beinssonar prests og konu hans
Þóreyjar Bjarnadóttur frá
Reykhólum.
Árið 1912 fluttist Eyjólfur
suður á Seltjarnarnes, en faðir
hans var þá látinn. Gerðist Eyj-
ólfur ráðsmaður hjá móður
sinni og rak stórt kúabú um
langt skeið. fyrst að Lamba-
stöðum, síðar að Bygggarði og
Kolbeinstöðum
Er styrjöldin skall á geröist
Eyjðlfur starfsmaður í skömmt-
unarskrifstofu ríkisins, en varö
að hætta þar störfum sökum
vanheilsu fyrir tæpum tveim
árum.
Kona Eyjólfs er Ásta Helga-
dóttir og lifir hún mann sinn
ásamt fimm börnum þeirra.
Öskubifreið Hafnfirð-
inga skemmist
Hafnarfjarðarbær festi fyrir
nokkru kaup á sérstakri ösku-
bifreið af sömu gerð og notuð
hefir verið í Reykjavik undan-
farin ár og þótt gefast vel. —
Var bifreiðin flutt til landsins
fyrir nokkru af Orku h. .f en í
gær áttu Hafnfirðingar að taka
við bifreiðinni. Hún hafði ekki
verið í lagi en viðgerð var nú
lokið.
Bæjarstjórinn i Hafnarfirði
sendi mann eftir hádegið í gær,
(Framhald á 4. siðu)
Leikfélag Reykjavíkur minnist
fimmtíu ára afmælis síns
Leikfélag Reykjavikur hélt
fund síðastl. laugardag, þar sem
minnst var 50 ára afmælis fé-
lagsins. Á fundinum var sér-
staklega minnst brautryðjenda |
félagsins og leiklistarinnar hér i
bænum og tveir þeirra, Eufemía
Waage og Brynjólfur Þorláks-
son, gerðir heiðursfélagar. Eftir
fundinn voru lagðir blómsveig-
ir á leiði látinna forvígismanna
félagsins.
Félaginu bárust margar
heillaóskir og gjafir í tilefni af
afmælinu og formaður félags-
ins, Brynjólfur Jóhannesson,
var sæmdur Fálkaorðunni.
A sunnudaginn hélt félagið
sérstaka hátíðasýningu, þar sem
sýndir voru þættir úr Nýárs-
nóttinni eftir Indriða Einars
son, Fjalla-Eyvindi eftir Jó-
hann Sigurjónsson og Gullna
hliðinu eftir Davíð Stefánsson.
Undan sýningunni var leikinn
forleikur eftir dr. Pál ísólfsson
og Soffía Guðlaugsdóttir flutti
kvæði, sem Tómas Guðmunds-
son hafði orkt í þessu tilefni.
Á sunnudagskveldið hélt fé-
lagið samsæti i Oddfellowhús-
inu. — Vandað afmælisrit um
félagið kom út á laugardaginn,
útgefandi þess er Leíftur h.f.
ERLENDAR FRÉTTiR
Rússar hafa farið þess á leit
við Norðmenn, að endurskoð-
aðlr verði samnángarnir, sem
ýms ríki gerðu við þá 1920 um
yfirráð þeirra á Svalbarða.
Sögusagnir herma, að Rússar
krefjist þar herstöðva.
Brezka stjóimin lætur nú her-
menn annast flutninga í Lond-
on vegna verkfalls flutninga-
verkamanna þar.
Qi’yggisráðið hefir gengið frá
stjórnarskrá fyrir Triestefrí-
ríkið.
Brezki sendiherrann í Var-
sjá hefir verið kvaddur heiip.
Pólska stjórnin ásakar hann
um undirróðursstarfsemi.