Tíminn - 11.02.1947, Side 1

Tíminn - 11.02.1947, Side 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: PRAMSÓKNARFLOKKURINN Sfmaí' 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. 31. árj*. Rcykjavík, laugardaglim 8. fclir. 1947 ) RITSTJÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚoI. Llndargötu 9 Á ( \ Símar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: ; EDDUHÚSI, Lindargötu 9A \ Síml 2323 ( 27. blafí ERLENT YFIRLIT: BANDARÍKI EVRÚPU TILLAGA CHURCHILLS MÆTIR HARÐRI MÖTSPYRNU Fyrir nokkru síðan var skýrt frá því í útvarpsfréttum, að stofnuð hefði verið í London samtök manna, er vilja vinna að því, að komið verði upp Bandaríkjum Evrópu. Forseti þessara nýju samtaka var kjörinn Winston Churchills, en ritari þeirra var kjörinn Sandy, tengdasonur hans. Stofnendurnir voru ýms- ir áhrifaménn úr fiokki íhaldsmanna, Yerkamannaflokknum og frjálslynda flokknum. Nokkru síðar var tilkynnt, að verkamanna- l'lokkurinn hefði bannað þingmönnum sínum að taka þátt í þcssum samtökum. Verið að koma fyrir nýju vélunum í Flóabúið og mjólkurstöðina í Reykjavík .lflKK^TlRLÖIVMX F1ÚГ 06 MEISTARINM KJARVAL. ÞaÖ er eðlilegt, aö Winston Churchill sé forseti þessara riýju samtaka, þar sem hann er upp- hafsmaður þeírrar hugmyndar, sem hér um ræðir. Tillaga hans er sú, aö öll Evrópuríkin, að Rússlandi og Bretlandi undan- CHURCHILL. skildum, stofni með sér mjög náið bandalag, Bandaríki Ev- rópu. Hann hefir ennfremur lát- iö svo ummælt, að eðlilegt væri, ERLENDAR FRETTIR Friðarsamningarnir við banda- menn Þjóðverja voru undirrit- aðir í París í gær. Fyrst voru undirritaðir samningarnir við Ítalíu, en síðan við Búlgaríu, Finnland, Rúmeníu og Ung- verjaland. ítalir mótmæltu samningunum áður en þeir undirrituðu þá, Þingkosningar fóru fram í Sóvétríkjunum í fyrradag. í kjöri voru aðeins kommúnistar og utanflokkamenn. Þátttaka var mjög mikil. í Bretlandi var ekki unnið í gær í verksmiðjum, sem nota raforku. Stafaði þetta af kola- skortinym, sem samgönguvand- ræðin hafa valdið. Raforka til heimilisnota hefir enn verið takmörkuð. Fannkoma og kuld- ar Tialda enn áfram í Bretlandi og eru horfur taldar hinar í- skyggilegustu, ef slíku heldur á- fram. Óaldarflokkur Gyðinga i Palestinu hefir boðað aukinn skæruhernað gegn Bretum og heitið á liðsinni allra Gyðinga. Formaður demókrataflokksins í Bg,ndaríkjunum hefir lýst yfir því, að Trumann verði forsetar efni flokksins i næstu kosning- um. Marshall hefir sagt í blaða- viðtali, að Bandarikin muni ekki draga úr hernaðarmætti sínum fyrr en alþjóðlegt öryggi hafi verið tryggt. Hann sagði ennfremur, að ekki væri tíma- bært að ræða um afvopnun fyrr en gengið hefði verið frá friðar- samningunum til fullnustu. Fleiri útlendingar sóttu um landvistarleyfi i Bandarikjunum á síðastl. ári en nokkuru sinni áður. Talið er, að 12 milj. ítala myndu flytja þangað og ein milj. Grikkja, ef þeir fengju landvlstarleyfi. að Þjóðverjar og Frakkar veröi forustuþjóðir þessára ríkjasam- taka, og það sé eitt frumskil- yrði þeirra, að þessar tvær þjóð- ir sættist heilum sáttum. í ræð- um sínum hefir Churchill ekki farið dult með þá skoðun, að eitt hlutverk þessa nýja banda- lags sé að standa vörð um vest- ræna stjórnarhætti og menn- ingu gegn hinu austræna stjórnarfari, sem sé gegnsýrt af kommúnisma. Meðal kunnra áhrifamanna, sem hafa lýst sig meðmælta hugmyndinni um Bandaríki Ev- rópu er Smuts hershöfðingi, for- sætisráðherra Suður-Afriku. Hinir eru þó miklu fleiri, sem hafa tekiö tillögu Churchills mjög fálega eða andmælt henni. Yfirleitt virðist hún eiga litlu fylgi að fagna í þeim löndum, sem hún snertir mest, nema ef vera kynni í Þýzkalandi. Þjóö- irnar, sem Þjóðverjar hafa und- irokað, telja hana aðeins við- leitni til að endurreisa yfir- drottnun Þýzkalands, er brátt myndi verða sterkasta rikið i þéssum samtökum. Þá er og al- mennt óttast, að slík ríkjasam- steypa yrði frekar til að efla tortryggni og ófriðarhug en það gagnstæða. Sá, sem hefir ritað einna skarplegast gegn þessari hug- mynd Churchills, er Wallace, fyrrum varafórseti Bandaríkj- ánna og hefir ein af þessum greinum hans birzt nýlega í út- breiddasta blaði .enskra sam- vinnumanna „Reynolds News.“ Wallace leiðir þar rök að því, að þessi tillaga virðist einn þátt ur í styrjaldarfyrirætlunum Churchills gegn Sovétríkjunum. Churchill hafi fyrst sett fram hugmyndina um hernaðar- bandalag Breta og Bandaríkja- manna í Fultpnræðu sinni í marz í fyrra, og síðar hafi hann komið með hugmyndina um Bandaríki Evrópu. Fyrirætl- un hans sé bersýnilega sú, að Frakkar, Þjóðverjar og aðrar meginlandsþjóðir Evrópu eigi aó leggja fram mannaflann í væntanlegum átökum við Sovét- ríkin, en Bandaríkin og Bret- land, sem verði i sérbandalagi, eiga að leggja tii hergögnin og atómsprengj urnar. - Niðurstaða Wallace er sú, að ekki sé hægt að leysa hin alþjóðlegu vanda- mál og skapa varanlegan frið með stofnun fleiri eða færri ríkjasamtaka. Mál þess verði aö leysa með alþjóðlegu samkomu lagi. Markið sé að skapa einn heim og allsherjarfrið, en stefna Churchills leiði til þess að skapa tvo heima og styrjöld. Þess vegna megi menn ekki ganga til liðs við stefnu Churchills, þótt þeim misiíki margt við stefnu Rússa, eins og hún sé um þessar mund- ir. Henni verði sizt breytt til bóta með aðgeröum, sem auki á tortryggni og .viðsjár. Frjálslyndir Amerikumenn hafa yfirleitt tekið svipaða af stöðu og Wallace. Sennilega er afstaða brezka verkamanna flokksins nokkuð svipuð, þar sem hann hefir bannað þing mönnum sinum að vera í áður- nefndum samtökum. Meðal þekktra stjórnmála manna á Norðurlöndum, er rætt (Framhald á 4. síðu) QIS>r.jað að nola nýjja gcrilsucyðing'arvél, sem sett var til bráðabirgða í g’ömlu mjjólkur- stöðina. Viðtal við Árna ISenediktsson, forstjóra mjólkursainsölunnar. Danskir séifræðingar eru konmir hingað tij. lands til þess að setja saman hinar nýju vélar, sem verið hafa að koma í mjólk- urstöðina í Reykjavík og mjólkurbú Flóamanna síðustu mánuði. Þegar því verki er lokið, verða þessar tvær stofnanir að öllu leyti búnar nýjum vélakosti. Eru vonir til, að nýja mjólkurstöðin geti tekið tii starfa i sumar eða haust, þótt enn séu að vísu ó- komnar til landsins sumar þeirra véla og vélahiuta, sem til hennar þarf. Jóhannes S. Kjarval opnaði um helgina málverkasýningu í Listamanna- skálanum. Eru nú liðin tvö ár siðan liann hefir efnt til sýningar. Mun þessa atburðar hafa verið beðið af mikilli eftirvæntingu af öllum, sem legurð unna og grun höfðu um, hvað í vændum var. — Á sýningunni eru fjörutíu málverk og 16’ teikningar. Flestar eru myndir þessar úr hraun- um landsins — Þingvallahrauni, nágrenni Reykjavíkur, Norðurárdal, af Snæfellsnesi. Það eru „hrjósturlöndin fríð“, sem hér birtast, eins og þau hafa opinberazt skyggnu auga listamannsins. Um 900 manns munu hafa sóit sýninguna á sunnudaginn og einnig mikill fjöldi fólks í gær. Þótt ekki þurfi því að livetja fólk til þess að sækja sýninguna, vill Tíminn eindregið ráðleggja bæjarbúum og ferðafólki, sem hingað kann að koma meðan sýningin stendurf að verja stuttri stund til þess að njóta hinnar glæstu Iistar Kjarváls. — Myndin hér að ofan ér tekin í nágrenni Reykja- víkuv. Meistarinn er þar að festa sýnir sínar á léreftið. Sjö manns slasast viö árekst- ur á Suðurlandsbraut Efiílsljóriiin liggair onn í ö»j>viii. Á sunnudagskvöldió varð bifreiðaslys á Suðurlandsbraut. Tvær hifreiðar rákust á. Sjö menn slösuðust meira eða minna við á- reksturinn, þar af sex stúlkur, og annar bifreiðarstjórinn mjög iiættulega. Var hann ekki enn kominn til meðvitundar í gær- kvöldi. Slysið vildi til með þeim hætti, að fólksbifreiðin R 2265 ók aust- ur Suðurlandsbraut. í bifreið- inni voru, auk bifreiðarstjórans, i Sigurðar Jónssonar, sex stúlkur, sem vinna í elliheimilinu Grund í Reykjavík. Þegar fólksbifreið- in var komin á mót$ við Grens- ásveg, ók hún fram á flutninga- bifreið, sem dregin var af ann- arri. Skipti það engum togum, Eldleiftur sjást úr Mývatnssveit I»ó ckkl líkur til þcss að cldiii' sé uppi. Siðastliðið laugardagskvöld sáust leiftur mikil í suðri frá bæjuin í Mývatnssveit. Átti tið- indamaður Tímans í gær tal við séra Magnús Má Lárusson á Skútustöðum. Kvað hann leift- ur þessi hafa sézt við og við hátt á þriðja klukkutima. Var þá sunnanátt, talsverð gola, en himininn heiður þar nyrðra. Ekki telur þó séra Magnús Már, að þessi leiftur hafi stafað frá eldgosi, heldur hafi einung- is verið um eldingar og snæljós að ræða. Sé ekki fátítt, að slíkra fyrlrbæra verði vart. Á sunnudagsmorguninn var að fólksbifreiöin lenti undir pall aftari bifreiðarinnar og kastaðist út í skurð. Bifreiðin valt þó ekki um koll, en við 'á- reksturinn slösuðust ailir, sem í henni voru, enda var höggiö, sem hún hlaut viö áreksturinn, þungt og mikið. Lagðist mæla- borðið alveg aftur í fremra sæt- ið og sat bifreiðastjórinn þar fastur. Varð honum ekki náð burtu, fyrr en vélarhús bifreið- arinnar hafði verið losað frá. Var hann þá meðvitundarlaus. Var hann ekki ■ enn kominn ti! meðvitundar í gærkvöldi. Stúlkurnar meiddust allar, en misjafnlega mikið. Ein þeirra fékk snert af heilahristingi, og allar skárust þær, bæði á höfði og annars staðar. Meiðsli engrar þeirra eru þó talin mjög alvar- leg. Fer hér á. eftir frásögn Árha Benediktssonar, forstjóra Mjólk- ursamsölunnar, er fréttamaður Tímans átti tal við i gær. Vélarnar koma hver af annarri. — Það er verið að endurnýja allan vélakost Fíóabúsins og mjólkurstöðvarinnar hérna, — sagði Árni. Vélar hafa verið að koma smám saman i haust og í vetur og er nú allt komió til Flóabúsins. Megnið af vélum mjólkurstöðvarinnar er einnig komið, en þó vantar enn ýmis- legt, þar á meðal stærstu vélina —- flösku-uppþvotta- og.áfyll- ingarvél. En við vonum, að hún komi f vetur eöa vor, og svo og aðrar vélar og vélahlutar, sem enn vanta. Danskir sérfræðingar ganga frá vélunum, sem komnar eru. Þrír danskir sérfræðingar, einn verkfræðingur og tveir aðstoðarmenn hans, eru komnir hingað til lands til þess að koma vélunum þar fyrir, sem þær eiga aó verða, og ganga frá þeim. Settu þeir fyrst niður nýja ger- ilsneyðingarvél í gömlu mjólkur stöðina, er verður notuð þar til bráðabirgða, þar til nýja stöð- in getur tekið til starfa. Var byrjað að nota þessa nýju .gerilsneyöingarvél á laugardag- inn var. Áður voru í gömlu mjólkurstöðinni tvær ger- ilsneyðingarvélar, sem orðnar eru mjög slltnar. Þær hafa nú lokið hlutverki sínu. hinar nýju vélar þess. Eins og ég tók fram áðan verður allur vélakostur Fióabúsins endur- nýjaður, og er allt komið, sem til þarf. Fara austur að Selfossi í vikunni. Þessir dönsku menn fara aust- ur í mjólkurbú Flóamanna núna í vikunni til þess að setja saman veður skírt og jöklasýn frá Skútustöðum. Sást hvergi votta fyrir mekki yíir Vatnajökli. í gær v^r flogið yfir Kverk- fjöll og Grímsvötn. í þeirri för voru nokkrir kunnir náttúru- fræðingar, sem fýsti að svlpast að eldsummerkjum þarna á há- lendinu. Veður var gott og skyggni ágætt. Hvergi sáust nein merki um eldsumbrot, ekk- ert öskufall né nein merki um- brota. Arni Benediktssori. Það er vitanlega mikil vinna aö ganga frá svo miklum véla- kosti, sem hér er um að ræðá, en innan mjög skamms tima munu þó bændur á Suðurlandi sjá mjólkurbú sitt búið hinum nýjustu og fullkomnustu vélum, sem nú eru fáanlegar. Mjólkurstöðin í Reykjavík von- andi tiibúin i sumar eða haust. Þegar búið verður að ganga frá vélunum eystra, mun verða byrjað að koma fyrir vélakosti mjólkurstöðvarinnar nýju. Eru (Framhald á 4. síðu) Kosið í stjórn síldar- verksraiðjanna Kosning fimm manna í stjórn sildarverksmiðja ríkisins og jafn margra varamanna, allra til þriggja ára, fór fram á fundi í sameinuðu þingi. Aðalmenn voru kjörnir Ey- steinn Jónsson ráðherra, Er- lendur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri á Siglufirði, Þór- oddur Guðmundsson á Siglu- firöi, Sveinn Benediktsson fram- kvæmdastjóri og Júlíus Hav- steen sýslumaður. Varamenn voru kjörnir Jón Kjartansson, skrifstofustjóri á Siglufirði, Finnur Jónsson al- þingismaður, Haraldur Guð- mundsson, skipstjóri á ísafirði, Jón Þórðarson, framkvæmda- stjóri á Siglufirði og Elías Þor- steinsson, útgerðarm. í Kefla- vík. — Stjórnin kýs sér sjálf formann. Glæsileg sarakoma Framsóknarmanna í Reykjavík Ráðherrar Framsókn- arflokksins hylltir. Framsóknarfélögin í Reykja- vik boðuðu til skemmtisam- komu í samkomusal Mjólkur- stöðvarinnar síðastliðið föstu- dagskvöld. Þátttakendur voru svo margir sem húsrúm frekast leyfði, og var þó ekki nema vika liðin frá síðustu skemmtl- samkomu Framsóknarmanna. Byrjað var með því að spila í hina einkar vinsælu Framsókn- ‘ arvist. Að henni lokinni fluttu [ ráðherrarnir ^ Eysteinn Jónss/on jog Bjarni Ásgeirsson snjallar ! ræðtv"- Var þeim forkunnar vel ! tekið og nokkru seinna voru | þeir hylltir af öllum samkomu- gestujn með miklum fögnuði. Þátttakendur samkomunnar skemmtu sér hið bezta fram til íklukkan þrjú um nóttina við 'söng, spil, samræður og dans. j Allur blær samkomunnar var 1 með sérstökum ágætum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.