Tíminn - 21.02.1947, Side 1
RITSTJÓRI: S
\
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
)
ÚTGEPANDI: )
PRAMSÓKNARFLOKKURINN \
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. \
v }
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A (
Símar 2353 og 4373 \
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: \
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A ;
Síml 2323 !
------_____________________... S
31. árg.
Reykjavík, föstudagiiui 21. febr. 1947
36. blaS
ERLENT YFIRLIT:
Norömenn og friðarsamningarnir
IVorðmeun viljja láta banna Þjóðverjum að
endurnýja kaupskipastóllnn og togaraflotann
Olíustööin í Hvalfirði f ullnægir þörfum landsmanna
lyrst í staö
SORGLEGAR HIAJAR |]M VOFEIFLEGA ATBLRÐI
Síðan um áramót hafa fulltrúar utanríkisráðherranna, sem
koma saman í Moskvu í næsta mánuði til að semja þýzku friðar-
samningana, setið á ráðstfefnu í London og tekið á móti kröfum,
er smáþjóðirnar, sem áttu í styrjöld við Þjóðverja, vilja koma
fram í sambandi við friðarsamningana. Bæði Norðmenn og Danir
hafa þegar lagt fram kröfur sínar og verður hér á eftir lýst aðal-
atriðunum í kröfum og greinargerð Norðmanna.
í upphafi norsku greinargerð-
arinnar er lögð megináherzla
á það, að frilðarsamningarnir
komi í veg fyrir, að Þjóðverjar
geti hafið árásarstyrjöld. Til
þess að tryggja það, verði óhjá-
kvæmilegt að hafa eftirlit með
stjójn Þýzkalands og atvinnu-
rekstri, einkum þó járn- og
EINAR GERHARDSEN,
forsætisráðherra Noregs.
stáliðnaðinum í Ruhrhéruðun-
um. Þetta eftirlit má þó ekki
vera svo langvinnt, að það verði
andlegri viðreisn þýzku þjóðar-
innar fjötur um fót og eyðileggi
trú hennar á frelsi og lýðræði.
Þess vegna þarf að setja því
tímatakmark, svo að þýzka
þjóðin geti horft fram til þess
tíma, er hún öðlast aftur fullt
frelsi og verður fullgildur aðili
í samfélagi þjóðanna, ef hún
heldur þær skuldbindingar, sem
friðarsamningarnir leggja henni
á herðar. Það er talið sjálfsagt,
að Þjóðverjum verði bannaður
allur herútbúnaður og öll hern-
aðarleg þjálfun.
Næsti kaf-li norsku greinar-
gerðarinnar fjallar um stjórn
Þýzkalands. Þar er lýst þeirri
skoðun, að ekki sé ráðlegt að
skipta Þýzkalandi í smáríki, ef
það sé gert gegn vilja Þjóðverja
sjálfra. Slík valdbeiting sigur-
vegaranna muni þá aðeins efla
þýzku þjóðernisstefnuna, en
ekki draga úr henni. Auk þess
muni það gerá fjárhagslega við-
reisn Þýzkalands erfiðari. Öll
ERLENDAR FRÉTTIR
Mountbatten lávarður hefir
verið skipaður varakonungur
Indlands í stað Wavelles, sem
hefir verið Ipraddur heim og
sæmdur jarlstign. í sambandi
við þessi mannaskipti, hefir
Attlee tilkynnt, að yfirráðum
Breta á Indlandi muni ljúka
formlega í júlímánuði 1948.
Frakkar og Pólverjar hafa
gert með sér vináttusamning
til 5 ára.
Vandenberg öldungadeildar-
maður í Bandarikjunum hefir
lagt til, að kosningarréttur verði
færður niður I 18 ára aldur.
Horfur fara nú sibatnandi í
kolamálunum i Bretlandi og er
vinna nú hafin i mörgum verk-
smiðjum, sem varð að loka á
dögunum.
rök mæla með því, að Þýzka-
landi verði áfram ein polítisk og
efnaleg heild, en hins vegar geti
verið hyggilegt að auka sjálf-
stjórn einstakra hluta, því að
þannig geti Þjóðverjar betur
vanist stjórnarháttum lýðræðis-
ins. Sérstakar ráðstafanir verði
að gera til hindrunar því, að
hringar og auðfélög komist á
fót, þar sem slík fyrirtæki geti
orðið gróðrarstíur fyrir hernað-
arstefnuna. Sérstakar ráðstaf-
anir þurfi einnig að gera til að
hnekkja yfirráðum Prússa pg
skipti þar ekki minnstu að
breyta hinum efnahagslegu og
þjóðfélagslegu aðstæðum, m. a.
með skiptingu stórra jarðeigna
aðalsins, þar sem Prússar hafi
verið höfuðkjarni hernaðar-
stefnunnar.
Þriðja greinin fjallar um rétt-
indi þýzkra borgara. Þar er lögð
áherzla á, að ríkjandi verði fullt
málfrelsi og ritfrelsi í landinu
og komið í veg fyrir, að skólar
eða aðrar menntastofnanir verði
áróðurstæki nýrrar þjóðernis-
stefnu. Þá verður að tryggja það
að dómsvaldinu og lögregluvald-
inu verði beitt réttlátlega og
allir verði jafnir fyrir lögunum.—
Tryggja verður rétt allra þjóð-
ernislegra minnihluta. Þá ber að
greiða fyrir því, að þýzkir flótta
menn komizt sem fyrst heim til
Þýzkalands.
í næstu köflum er fjallað um
skaðabótágreiðslur Þjóðverja
og skipun þýzks atvinnulífs. í
friðarsamningunum verður að
skylda Þjóðverja tii að greiða
það tjón, sem þeir hafa valdið
öðrum þjóðum. Endurskipun
þýzks atvinnulífs verður að miða
við það, að Þjóðverjum verði
kleift að greiða þessar skaða-
bætur, en jafnframt verður að
tryggja, að iðnaði þeirra verði
þannig háttað, að ekki verði
hægt að breyta honum í her-
gagnaiðnað á skammri stundu.
Þessu takmarki má að ein-
hverju leyti ná með takmörkun
iðnaðarins, en slík takmörkun
má þó ekki ganga svo langt, að
Þjóðverjar búi við lakari lífs-
kjör ' en aðrar þjóðir og geti
ekki framleitt vörur, sem aðrar
þjóðir vanhagar um. Slíkt myndi
ekki aðeins bitna á Þjóðverjum,
heldur einnig hinum fyrri við-
skiptaþjóðum þeirra, og auk
þess skapa háskasamlegt pólí-
tiskt viðhorf i Þýzkalandi.
í greinargerð Norðmanna er
lögð sérstök áherzla á, að Þjóð-
verjar fái ekki að endurnýja
verzlunarskipastól sinn fyrst
um sinn, þar sem það hafi sýnt
(Framhald á 4. síSu)
Vísitalan greidd niður
fyrir 1. marz
Kauplagsnefnd og Hagstofan
hafa lokið útreikningi vísitöl-
unnar fjyrir febrúarmánuð og
reyndist hún 316 stig eða 6 stig-
um hærri en í janúarmánuði.
í tilefni af þessu hefir ríkis-
stjórnin sent blaðinu tilkynn-
ingu, þar sem hún óskar að taka
fram eftirfarandi:
Hækkun þessi stafar af vöru-
Viðtal við Sigurð Jón-
asson, forstjóra Olíu-
félagsins
í tilefni af umræðum
þeim, sem hafa orðið uin
olíustöðina í Hvalfirði, hefir
Tíminn átt viðtal við Sigurð
Jónasson forstjóra, sem hefir
verið ráðinn forstjóri Olíufé-
lagsins h.f., sem stofnað var
á siðastl. ári af S.Í.S., ýmsum
kaupfélögum og samtökum
útvegsmanna víða um land.
Markmið félagsins er að gera
oiíuverzlunina innlenda og
ódýrari og hefir félagið í því
skyni staðið í samningum um
að fá Hvalfjarðarstöðina
keypta.
Viðtalið við Sigurð Jónas-
son fer hér á eftir:
Bifreiðaslysin í Reykjavík, og raunar víðar liér á landi, þykja að vonum geigvænleg. Á hverju ári bíður hér fjöldi
fólks bana í bifreiðaslysum, einkum þó börn og ungt fólk, vaxtarbroddur þjóðarinnar. Ennþá fleiri verða fyrir
meiðslum, sem valda einstaklingum og þjóðinni miklu tjóni og sumir biða þeirra aldrei bætur. Þar að auki eru
svo skemmdirnar, sem verða á bifrelðum í árekstrum og útafkeyrsium — þær nema mörgum hundruðum þúsunda
í krónutali á hverju einasta ári. Umferðaslysin eru því mjög alvarlegt mál fyrir okkur, frá hvaða sjónarmiði,
sem á þau' er litið, og mikið í húfi, ef viðleitni góðra og áhugasamra manna til þess að draga úr þeim ber
ekki verulegan árangur. — En það er víðar en hór á landi, sem ökuslysin eru mönnum áhyggjuefni. 1 Banda-
ríkjunum deyja til dæmis árlega af völdum umferðaslysa eins margir menn og falla mundu í grimmilegri styrj-
öld. Svipaða sögu er að segja úr mörgum öðrum löndum. — Á myndinni, sem fylgir þessum línum, sést árangur-
inn af jólaferðum ógætinna og lítt hæfra bifreiðastjóra í einu nágrannalandinu
Gönguskarðsárvirkjuninni á að
vera iokið árið 1948
Fyrir alþingi liggcsr tillaga nm, að Göngn-
Kkarðsstöðin verði ríkisrafveiía, er grann-
sveitir Sauðárkróks fái rafniagn frá
Á síðastliðnu sumri hófst vinna við virkj.un Gönguskarðsár í
Skagafirði. Er sú virkjun gerð fyrir Sauðárkróksþorp og ef til vill
nærliggjandi sveitir,e f alþingi ákveður, að Gönguskarðsveitan
verði ríkisrafveita. Tíðindamaður' blaðsins átti í gær viðtal við
Guðmund Sveinsson á Sauðárkróki um virkjunina)
Rafmagn hefir lengi verið af
skornum skammti á Sauðárkróki
og hefir rafmagnsskorturinn
verið all tilfinnanlegur í þorp-
inu að undanförnu. Notast hefir
verið við litla vatnsaflsstöð og
aðra litla mótorrafstöð.
Sprengt fyrir stíflunni í sumar.
Framkvæmdir við byggingu
hinnar nýju stöðvar hófust í
ágúst í fyrrasumar og hefir
hreppsneíndin á Sauðárkröki
yfirumsjón og stjórn verksins
með höndum. Almenna bygg-
ingarfélagið hefir annazt fram-
kvæmdir verksins í einstökum
atriðum. % fyrrasumar og fram
á haust var unnið að ýmsum
undirbúningi og að mestu lokið
hækkun í janúarmánuði, og þar
sem ráðstafanir til lækkunar
höfðu ekki verið gerðar í þeim
mánuði, en fyrrv. stjórn sat þá
að völdum, hlaut þessi hækkun
að koma fram nú.
Ríkisstjórnin hefir ákveðið, í
samræmi við málefniasamning,
sem lagður var til grundvallar
við st j órnarmyndupina, að
greiða niður vöruverð fyrir
næstu mánaðamót, þannig að
vísitalan færist niður í það, sem
hún var í janúarmánuði, 310
stig.
við að sprengja fyrir stíflunni,
sem verður allmikið mannvirki.
Er það Gönguskarðsgil svo
nefnt, sem stíflað verður, og
vatnið síðan leitt ofan frá stífl-
unni í trépípum alla leið ofan í
þorpið, þar sem rafstöðin á að
standa. Þangað er um 2 km. leið
frá stíflunni. Unnu að staðaldri
20—30 menn við virkjunina í
sumar sem leið.
Byrjað að byggja stíflugarðinn
á vori komanda.
í vor verður aftur hafizt
handa um framkvæmd verksins
bg þá byrjað á sjálfri stíflunni,
en efni til hennar er nú fengið.
Vatnspípurnar verða úr tré, og
verða þær sennilega fluttar frá
Noregi. En vélarnar í sjálfa
stöðina verða sennilega keyptar
frá Englandi. En áætlað er, að
stöðin verði 1500 hestöfl. Búizt
er við, að rafmagnið verði nóg
til ljósa, suðu og jafnvel að ein-
hverju leyti til hitunar.
Áætlað kostnaðarverð stöðv-
arinnar er tæpar 3 milj. króna,
og á hún að verða tilbúin ein-
hvern tíma á árinu 1948.
Fyrir alþingi liggur nú tillaga
um það, að Göngusk^rðsárstöð-
in verði ríkisrafveita, og ef það
nær fram að ganga, fá sveitirn-
ar inn af Sauðárkrók einnig raf-
magn frá stöðinni, allt fram að
Varmahlíð.
Útsvörin hækka
um hálfa sjöundu
1 frumvarpi til fjárhagsáætl-
unar Reykjavíkurbæjar árið
1947 er gert ráð fyrir, að útsvör
Reykvíkinga á þessu ári nemi
44384200 krónum.
Þau eiga því að hækka um
nálega sex og hálfa milj., því að
þau námu í fyrra um 38 milj.
krónum.
Forráðamönnum Reykjavík-
urbæjar miðar þannig drjúgum
áfram í áttina til aukinna
álagna, enda þarf mikils við,
þegar lítillar ráðdeildar og hygg-
inda er gætt um bæjarbúskap-
inn.
Framsóknarvist
Skemmtun Framsóknarmanna
í samkomusal Mjólkurstöðvar-
innar í kvöld byrjar með Fram-
sóknarvist klukkan 8,30 stund-
víslega. Þegar verðlaununum
hefir verið úthlutað ttl sigurveg-
aranna í spilunum, flytur Her-
mann Jónasson ávarp, Skúli
Guðmundsson sjálfvalið efni og
Kjartan Ó. Bjarnason sýnir ís-
lenzkar kvikmyndir, þar á meðal
myndina, sem hann tók eitt
sinn af FramsóknarvÁst í Listá-
mannaskálanum. Loks v^rður
sungið og dansað fram á nótt.
Aðgöngumiðar sækist fyrir
klukkan fjögur í dag í inn-
heimtustofu Tímans, Edduhús-
inu við Lindargötu.
Ef einhverjir aðgöngumiðar
verða ósóttir eða óráðstafaðir
eftir klukkan fjögur verðn, þeir
seldir við innganginn klukkan
a—8,30.
— Hver er stærð o$ gerð oliu-
stöðvarinnar í Hvalfirði?
— Olíustöðin i Hvalfirði, sem
er byggð af Bandaríkjamönnum
að ráðum beztu sérfræðinga,
tekur um 90 þús. smál. af bens-
íni og olíum. Stöðiri er í tvennu
lagi. Annar hlutinn eru átta
geymar, sem taka 35.000 tn. hver
eða samtals ca. 40 þús smál. af
bensíni og olíum. Þeir hafa verið
notaðir fyrir bensín,' en einnig
mætti nota þá fyrir ljósaolíu og
gasolíu (hráolíu). Hinn hlutinn
eru 41 geymir, sem taka 10 þús.
tn. hver eða samtals rúmar 50
þús. smál. Sex þessara geyma
hafa verið notaðir undir gas-
olíu, en allir hinir hafa verið
notaðir undir brennsluolíu til
skipa (fuel oil). Geymar þessir
eru með hitunartækjum, þar sem
hita þarf þessa oliu upp í kuld-
um, þega* hún er afgreidd. Að
öllum þessum geymum liggja
leiðslur fram frá 1200 feta langri
olíubryggju, en þegar olíunni
er dælt í land úr stærstu olíu-
flutningaskipum verður einnig
að nota flotleiðslu. Bryggjan er
fremur veikbyggð og einkum
ætluð til að bera leiðslurnar, en
þó má afgreiða þar skip, sem eru
allt að þúsund smál.
— Er stöðin í nothæfu
ástandi?
— Flestiillar leiðslurnar, vél-
arnar og einnig geymarnir eru
nú í því lagi, að nota mætti
stöðina, án verulegra viðgerða.
Olíugeymarnir, sem þarna eru,
eru yfirleitt aðeins nothæfir
þarna á staðnum. Stóru geym-
ana, sem eru logsoðnir, er alls
ekki hægt að hreyfa, nema með
því að skera þá í sundur, en það
myndi verða mjög dýrt og ekki
undir neinum kringurristæðum
svara kostnaði. Minni geymana,
sem eru skrúfaðir saman, mættí
flytja, en þó verður ýmsum
vandkvæðum bundið að setja þá
saman aftur, svo að öruggt sé,
og ekki er hægt að nota þá,
nema undir þykkari tegundir af
olíu.
— Hvert er álit þitt á þeim
kröfum, að stöðin verði rifin
niður?
— Ég álíV það hreina fjar-
stæðu, eins og nú er ástatt. Eins
og ég hefi þegar gert grein fyrir,
verður stöðin ekki rifin pieð það
fyrir augum að flytja hana ann-
að, nema þá að litlu leyti.
Kostnaðurinn við að rífa stöð-
ina myndi alltaf verða á aðra
milj. kr. og væri þeim fjármun-
um kastað á glæ. Hins vegar
getur stöðin orðið íslenlingum
að miklu gagni þar sem hún er
nú, ef ekki væri spilt fyrir fullri
notkun hennar. Innflutningur
(Framhald á 4. síðu)