Tíminn - 26.02.1947, Page 1

Tíminn - 26.02.1947, Page 1
0 RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: | FRAMSÓKNARFLOKKURINN } Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. RITSTJÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚ3I. Llndargötu 9 A Simar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A Síml 2323 31. árg. Reykjavík, miðvikudaginii 26. febr. 1947 ERLENT YFIRLIT: Friðarsamningarnir við Þýzkaland Bnizt við miklum ágreiningi á Meskvu- fundinum Þann 10. marz næstkomandi hefst í Moskvu fundur utanríkis- málaráðherra stórveldanna fjögurra, Bretlands, Frakklands, Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Verkefni fundarins er að undir- búa og ákveða í aðalatriðum friðarsamningana við Austurríki og Þýzkaland. Er hér um að ræða vandasamasta og örlagaríkasta viðfangsefnið, sem fulltrúar stórveldanna hafa fengið tjl úr- lausnar síðan styrjöldinni lauk. Margar mikilvægar framkvæmdir á Siglufirði A þessu stigi verður lítið um það sagt, hvernig samningagerð þessi muni ganga, en horfur eru á því, að ágreiningur verði um mörg mikilvæg atriði. Það hefir t. d. þegar komið íram, að stórveldin éru ósam- mála um ýms atriði friðarsamn- ingsins við Austurríki. Vestur- MARSHALL, sem mætir í fyrsta slnn á utanríkis- . ráöherrafundi í Moskvu. veldin vilja láta Austurríki fá söjnu landamæri og 1938, en Rússar vilja, að Jugoslavar fái Karntenhéraðið. Þá munu Rúss- ar vilja hafa Austurríki her- numið um nokkurt skeið enn, en vesturveldin munu vilja flytja herinn burtu, þegar geng- ið hefir verið frá friðarsamning- unum. Rússar gera einnig stór- um meiri skaðabótakröfur en vesturveldin. Aðalágreiningurinn á Moskvu- funöinum mun þó verða um Þýzkaland og óttast margir, að hann kunni að rekja rætur til þess, að stórveldin vilji koma sér í mjúkinn við Þjóðverja og vinna hylli þeirra í framtiðinni. Það virðist þegar komið fram, að austurlandamæri Þýzkalands muni valda ágreiningi. Pólverjar halda fast fram þeirri kröfu, að þýzku héruðin austan fljót- anna Oder og Neisse verði sam- ERLENDAR FRÉTTIR Harðar deilur hafa verið i öryggisráðinu um kæru Breta á hendur Albönum. Rússar hafa dregið taum Albana, en Ástral- íumenn og _ Bandaríkjaýmenn taum Breta. Ástralíumenn hafa lagt til, að skipuð verð sérstök rannsóknarnefnd, en Pólverjar leggja til, að málinu sé vísað til alþ j óðadómstólsins. í síðastliðinni viku varð kola- framleiðslan meiri í Bretlandi en nokkru sinni eru dæmi til á svo skömmum tíma. Yfirmaður ameríska hersins í Kóreu hefir haldið því fram, að Rússar láti innfædda menn á hernámshluta sínum stunda heræfingar. Rússnesku fjárlögin hafa ver- ið lögð fvrir þingið. Framlög til hermála eru stórlækkuð, en framlög til atvinnuveganna aukin. einuð Póllandi. Rússar munu telja sig skuldbundna til að standa með Pólverjum í þessu máli. Hins vegar hafa bæði Bretar og Bandaríkjamenn lýst yfir því, að þeir telji ranglátt að taka svo mikið land af Þjóð- verj um. Næsta ágreiningsefnið ve.rð- ur um þaö, hvernig framtíðar- stjórn Þýzkalands eigi að vera háttað. Frakkar hafa gert kröfu til þess, að Þýzkalandi verði skipt í. mörg smáríki. Bretar hafa lýst sig fylgjandi því, að Þýzkalandi verði skipt í sam- bandsríki, sem hafi víðtæka sjálfstjórn, en höíuðmálin heyrj þó undir sameiginlega mið- stjórn. Rússar hafa hins vegar lýst sig algerlega mótfallna sér- hverri skiptingu Þýzkalands í smáríki, Þjóðverjar munu yfir- leitt mótfailnir smáríkjafyrir- komulaginu og er ekki ólíklegt. að Rússar ætli með þessu að vinna sér hylli þeirra og bæta fyrir þær óvinsældir, sem stuðn- ingur þeirra við landakröfur Pólverja mun baka þeim í Þýzkalandi. Þriðja stóra ágreiningsefnið verður skipun atvinnulífsins í Þýzkaiandi. Fyrst eftir stríðs lokin hölluðust margir Banda- ríkjamenn og Rússar að þvi, að þýzki iðnaðurinn ætti að leggj- ast niður að miklu leyti og Þjóðverjar ættu fyrst og fremst að verða landbúnaðarþjóð. Frakkar voru þessu og yfirleitt fylgjandi, Bretar mölduðu hins vegar í móinn og bentu á, að Þjóðverjar gætu ekki skapað sér sambærileg lífskjör við aðrar þjóðir, ef þeir væru sviptir iðn aði sínum, og myndi það ekki hollt fyrir friðinn í álfunni að gera þá að slíkum olnbogabörn- um. Einnig yrði það bagalegt mörgum öðrum þjóðum, ef kaup geta Þjóðverja yrði óeðlilega mikið skert og ekki væri hægt að fá iðnaðarvörur frá Þýzka- landi. Á Potsdamfundinum urðu þessi sjónarmið Breta aö láta í minnipokann og eru nú flestir sammála um, að iðnaði Þjóð- verja hafi verið sniðinn of þröng ur stakkur i Potsdamsamþykkt- unum. Ýmsir gizka á, áð Rúss- ar muni nú sýna meiri tilhliðr- un við Þjóðverja 1 þessum efnum en vesturveldin, til þess að koma sér i mjúkinn hjá þeim Ágreiningur getur hlotist um mörg önnur atriði, t. d. hve lengi hernámið skuli vara og hve miklu skaðabótagreiðslurn- ar skuli nema, en það er ein- mitt líklegt til að valda veru- legum ágreiningi. Óútkljáð er hvaða aðili eigi að undirrita samningana fyrir hönd Þjóðverja, þar sem engin þýzk ríkisstjórn er nú til. Einn af hleztu stjórnmálaleiðtogum Þjóðverja hefir lagt til, að þjóðaratkvæðagreiðsla veyði lát in fara fram um samníngana en ólíklegt er, að sigurvegar- arnir fallist á það. Pétur Hoffmann fiskikaupmaður varö fimmtugur gær. Pétur er kunnur maður hér bænum, enda atgerftsmaður á margan hátt, rammur að afli, minnugur og sögufróður, svo sem hann á ætt til. Hann býr nú í Selsvör. 39. blllð ÞETTA ER I ADEN Borgin Aden og landssvæðið umhverfis hana, syðst á Arabíu, þar sem Rauðahafið og Adenflói mætast, er einn þeirra mörgu staða, er Bretar hafa slegið eign sinni á. Þar er flotastöð og verzlunarmiðstöð mikil. En annar svipur er þar yfir flestu en á Vesturlöndum. Hér á myndinn sést Arabi koma akandi eftir götu í Adenborg á leið til markaðsins. Dráttar- dýrið er úlfaldi. Fáheyrt óþokkaverk Jónas Jónsson breiðir út rógsögu. ura „svartan lista”, sem hann eða sara- verkamenn hans hafa sjálfir húið til Jónas Jónsson hefir nú, í hinni hatursfullu baráttu sinni gegn Framsóknarflokknum, gripið til ráðs, sem einstakt má telja. Hann hefir dreift út sögum þess efnis, að Framsóknarflokkurinn hafi iátið búa til eins konar „svartan lista“ um ýmsa flokksmenn, þar sem þeim séu ýmist valin svívirðileg uppnefni eða bornar ósæmi- legar getsakir á brýn. Tilgangurinn með þessu svívirðilega tiltæki J. J. er vitanlega sá að reyna að skapa sundurlyndi og tortryggni meðal Framsóknarmanna, þar sem önnur viðleitni hans í þá átt hefir misheppnast. Öryggisleysið í fisksölumálunum olli stórkostlegu tjóni í vetur Viðtal við Jón Kjartansson skrii'stofustjóra Jón Kjartansson skrifstofusjóri i Siglufirði hefir verið hér í Reykjavík undanfarinn hálfan mánuð. Tíðindamaður Tímans hitti hann að máli í fyrradag og spurðist frétt að norðan. Vakti Jón athygli tíðhidamannsins á ýmsum framfaramálum Siglfirð- inga og raunar alþjóðar, og fer samtalið liér á eftir. — Hvernig heí'ir verðráttan við það skapazt mikil átvinna verið nyrðra? síðustu tvo mánuði. —Það sem af er vetrar og allt Því segja, að upp á síð- fram undir miðjan þennan ^astið hafi atvinnulíf Siglfirð- mánuð hefir verið á Siglufirði j gott tíðarfar — svo jafnvel ein- stakt má telja. Frosthörkur hafa litlar verið, marga daga hlýja höfum við fengið — hiti einstöku sinnum allt að 11 stig. i Nokkru áður en ég fór að heiman fyrir hálfum mánuði, varð ég var við, að blóm sprungu út í görðum þar, en í símtali, sem ég átti við Siglufjörð í fyrradag var mér sagt, að nú væri þar hríðarveður og allmik- ill snjór. i Fyrir nokkru siðan fóru þær sögur að kvisast um bæinn, að Jónas Jónsson þættist hafa i fórum sínum einskonar „svart- an lista,“ sem Framsóknar- flokkurinn hefði látið gera yfir ýmsa flokksmenn sína. Af J. J. sjálfum og nánustu samverka- mönnum hans hefir verið lagt sérstakt kapp á að koma þess- um rógi til þeirra manna, sem eru sagðir vera á listanum. Þeir, sem einhvern trúnað kunna að hafa lagt á þennan söguburð, munu hafa vænst þess, að J. J. birti nánari grein- argerð í seinasta Ófeigshefti, en þvi er síður en svo að heilsa. J. J. forðast að minnazt þar á þennan slefburð sinn öðru vísi en með mjög óljósu og lo'ðnu orðalagi. Hann segir þar, að slíkur listi „hafi nýlega verið á kreiki í höfuðstaðnum," en gæt- ir vandlega að eigna hann hvorki flokknum né einstökum mönnum i honum og er það ber- sýnilega gert til að reyna að komast hjá málsókn. Orðalag- inu reynir hann hins vegar að haga svo, aö grunurinn falli á flokksstj órnina. Frásögnin er þannig öll með Leytisgróu sniði. Það hefir svo gerst næst í þessu máli, að Mbl. birtir for- ustugrein í gær xim þennan slef. burð J. J. í Ófeigi, þar sem reynt er að taka þessa Gróu- sögu hans sem góða og gilda vöru. Það er raunar óþarfi að taka fram, að allur söguburður um, að stj órn Framsóknarflokksins eða einstakir forrráðamenn hans hafi búið til „svartan lista,“ er uppspuni frá rótum. Jónas Atvinnumál og byggingar. I Jónsson eða aðrir, sem halda slíku fram, eru hér með Iýstir vísvitandi ósannindamenn að öllum slíkum söguburði, og munu verða stimplaðir það af almenningi, ef þeir birta ekki tafarlaust þennan lista, sem þeir eru að glósa um. Það tnun ásannast, a$ slíkt munu þeir ekki gera, því að sé þessi listi tii og væri sýndur, myndi koma í ljós, að hann er annað hvort verk J. J. sjálfs eða einhverra andstæðinga Framsóknarflokks- ins, sem þekkja hið blinda hatur J. J. til flokksins óg hafa hann að ginningarfífli. Talsverðar líkur benda til, að hér sé að ræða um samstarf milíi J. J. og spilltustu aflanna í Sjálfstæðis- flokknum. T: d. er samspilið milli Ófeigs og Mbl. greinilegt. Það er líka táknrænt, að þessar sögur virðast hafa komizt nokk- um veginn jafii snemma á kreik í Reykjavík og Austur-Húna- vatnssýslu. Það sýpir m. a. veL hug Mbl. til þess stjórnarsamstarfs, sem nýlega er hafið, að það skuli reyna að nota annan eins róg- burð til að ófrægja stjórn Fram- sóknarflokksins, er báðir ráð- herrar flokksins eiga sætý i, og þessa síðustu „sagnritun“ Jón- asar Jónssonar. KlukkuimS flýlt Klukkunni verður ffýtt um næstu helgi, eða aðfaranótt sunnud. 2. marz n. k. Það hefir verið venja frá því að sumar- tími var tekinn upp hér á landi, að flýta klukkunni fyrstu helgi í marzmánuði. - Hvernig er háttað um at- vinnu á Siglufirði nú? * - Atvinnumáium Siglfirð- inga hefir um íangan aldur ver- ið þannig háttað, að sumar- annríki hefir verið mikið, en minna um vetraratvinnu. Má til hins siðarnefnda rekja það, að; Siglufjörður er ekki fólksfleiri en hann er, eða um 3000 íbúar. j Fyrri part vetrar var frekar ; lítið um atvinnu. Þó var nokkur atvinna við útskipun síldar og sildarmjöls og ýms önnur skipa- ! vinna. Einnig var hægt, vegna ’ hins góða tíðarfars, að vinna við ; byggingar, sem eru með meira rnóti nú. í smíðum eru verka- mannabústaðir — 3 byggingar með 32 ibúðum. — Munu þeir verða íbúðarhæfir í vor. Þá er í smíðurn hjá Útvegsbanka ís- lands glæsileg byggíng — skrif- stofuhús við Aðalgötu, sem mun sennilega verða fullgert í vor. — Mörg íbúðarhús eru i' smíðum og byggist bærinn mjög ört i suðurátt. Þrátt fyrir þessar byggingar er húsnæðisekla á Siglufirði nú, þó eitthvað muni úr rætast næsta vor. Eiíis og þér er kunnugt stend- ur nú yfir vinnsla á sunnlenzku síldinni. Er hún unnin i S. R. P.- verksmiðjunni. En í ráði er að byrja einnig vinnslu í nýjustu verksmiðjunni, sem byggð var á Siglufirði s. 1. sumaj- og sjá hvernig verksmiöjan reynfst. — Til Siglufjar.ðar munu nú vera kornin eða á leið til Siglufjarðar samtals um 48 þús. mál af síld, og þar af búið að vinna úr um 30 þús. málum. Okkur þótti all- skrítið að finna „bræðslulyktina“ í þorrabyrjun því slíku erum við ekki vanir, en við köllum þessa lykt peningalykt, enda reyndist svo. Hún færði fjölda heimila vinnu og peninga. — Hvernig verður útkoman af vinnslunni hjá áíldarverk- smiðjunum? — Hvernig endanleg niður- staða verður hjá S. R. ef þessari vinnslu vil ég ekki sp/L, en koma síldarinnar til okkar íslendinga á þessum tíma árs held ég, að geti verið öllum fagnaðarefni. — Þiö hafið miðlað miklu af kolum? — Víða á landinu hefir verið kolapkortur, það sem af er vetr- ar. Á Siglufirði voru til meiri kol en víða annars staðar í haust, og hefir óspart verið miölað af þeim til annarra staða. Hefir yón Kiartansíson. inga mótazt aí pví tvennu, að meðtaka hráefni og gera úr því útflutningsvöru og miðla tii annarra kolum, þegar kuldinn sótti á. Bæði eru hlutskiptin góð. Tunnuverksmiðja ríkisins . — Hvernig miðar tunnuverk- smiðjunni áfram? — Bygging tunnuverksmiðju ríkisins er í undirbúningi. Að visu bólar ennþá lítið á fram- kvæmdum, en stjórn hefir verið skipuð og framkvæmdastjóri ráðinn. Ætlunin er, að bygg- ingar verksmiðjunnar verði við Þormóðsgötu sunnanverða og ofan Lækjargötu. Það er von allra, að vel takist með fram- kvæmdir þessar, og við fáum jafn góðar tunnur með ekki verra verði, en keyptar eru er- lendis frá og í þriðja lagi að við með þessum framkvæmdum verðum ekki eins háðir öðrum þjóðum með sildarsöltunina i framtíðinni, þvi að oft hafa út- lendingar sett þau skilyrði um tunnusöluna, að þeir sætu fyrir um kaup á sildinni. Lýsisherzlustöðin. — En hvað er að segja um (Framhald d 4. síðu) Maður verður fyrir bíl í gær laust fyrir kl. 5 varð maður fyrir biíreið á Lauganes- vegi skammt íyrir innan vega- mót Laugarnesvegar og Miðtúns. Hlaut hann mikil rneiðsli á höf- uðkúpu og i andliti. Maðurinn heitir Runólfur Bjarnason, tll heimilis að Drápuhlíð 5. Slysíð vildi til með þeim hætti, að Runólfur var á gangi vestur Laugarnesveg og gékk á vinstra vegarkanti er bifreiðin R 1182 sem er fólksbifreið, ekur á hann. Var hún einnig á leið vestur Laugarnesveg. Við árekst- urinn féll Runólfur á götuna og hlaut all mikil meiðsl eins og áður er sagt. Ekki er vitað ná- kvæmar um orsök slyssins og er málið í rannsókn. Lögreglunni var tilkynnt um slysið og fór hún á vettvang með sjúkrabil. Var maðurinn fluttur á Landsspitalann og leið honum vel eftir atvikum í gær.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.