Tíminn - 05.03.1947, Side 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON
ÚTGEPANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
RITSTJÓRA8KRIPSTOFUR;
EDDUHÚ3I. Llndargðtu 9 A
Sfmar 2353 qg 4373
APGREIÐSLA, INNHEIMTA >
OG AUGLÝSINGASKRIPSTOPA: '
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
Siml 2323
31. árg.
Reykjavík, niiðvikudagiim 5. marz 1947
44. blað
ERLENT YFIRUT:
Gátu bandamenn tekið Frakk-
land sumarið 1943?
Smám saman koma í Ijós heimildir um gang málanna bak viff
tjöldin á stríffsárunum. Nú hefir amerískur ritstjóri skýrt frá
því, aff landar hans hafi viljaff gera innrás í Frakkland áriff 1943,
og telur hann aff Churchill hafi lengt styrjöldina um heilt ár,
meff því aff afstýra þeim affgerffum.
Leitað að olíu á kafsbotriL
Utanríkismálaritstjóri Satur-
day Evening Post í New York,
Martin Sommers að nafni, hefir
nýlega skrlfað i ritið athyglis-
verða grein um ráðagerðir
bandamanna um styrj aldar-
framkvæmdir sumarið 1943.
Sommers heldur því fram að
árið 1942 hafi herforingjar
CURCHILL.
Bandaríkjamanna haft tilbúna
ráðagerð um innrás í Frakkland
vorið eftir. Hugöu þeir til land-
göngu á Gherbourgskaga. Ætl-
uðust þeir til þess, að mjög yrði
dregið úr aðgerðum í Kyrrahafs-
styrjöldinni á meðan Þjóðverjar
væru brotnir á bak aftur.
Englendingar lögðust gegn
þessari ráðagerð. Mountbatten
lávarður kom vestur um haf 1
júni 1942 og Churchill sjálfur
litlu síðar.
Tillögur Churchills um styrj-
aldarreksturinn voru þær, að því
er Sommers segir, að ráðast á
andstæðingana við Miðjarðar-
haf og 1 I£orður-Afríku árið 1942.
Síðan væru eyjar Miðjarðar-
hafsins hreinsaðar og innrás
gerð i Suður-Ítalíu. Jafnframt
væri svo hafin sókn á Balkan-
skaga. Ræddi hann þessar til-
lögur við helztu herforingja
Bandaríkjanna kvöld eitt heima
hjá Roosevelt forseta. Hélt
Churchill því fram, að innrás í
Frakkland 1943 væri glæfraleg,
og gæti haft hinar alvarlegustu
afleiðingar að ráðast 'i slíkt,
meðan viðnámsþróttur Þjóð-
verja væri ólamaður. Það gæti
dregið styrjöldina á langinn um
ófyrirsjáanlegan tíma.
Sommers segir, að ýmsir telji
ERLENDAR FRETTIR
Bandalagssáttmáli Breta og
Frakka var undirritaður I Dun-
kirk i gær. Það voru þeir Bevin
og Bidault, sem undirskrifuðu
samninginn og á hann að vera
í gildi í 50 ár.
Gríska stjórnln hefh látið
handsama 500 kommúnista og
samherja þeirra^ sem sakaðir
eru um að standa að uppreisn-
inni í Makedóníu.
Truman forseti er nú í heim-
sókn i Mexíkó.
Öldungadelld Bandaríkjaþings
hefir lækkað fjárlagafrumvarp
forsetans um 3000 miljónir
dollara. Áður hafði fulltrúa-
deildin lækkað frumvarpið um
6000 miljónir dollara. Munurinn
á tlllögum deildanna mun aðal-
lega iiggja i þvi, að öldunga-
delldin ætlar meira tll hermála.
að Churchill hafi aldrei,beitt sér
meir né flutt mál sitt sköru-
legar en í þetta sinn. Hann lýsti
því hventig sigursæll hernaður
Engilsaxa við Miðjarðarhaf úti-
J lokaöi áhrif Rússa á þeim slóð-
I um.
i Ráðagerð Marshalls var hins
| vegar sú, sem fyrr er lýst. Hann
lét aðstoðarmann sinn, sem
Widemeyer heitir, hafa orð fyrir
þeim félögum á þessum kvöld-
fundi. Widemeyer hélt þvi fram,
að ef bandamenn tækju sér
hvíld í Kyrrahafsstyrjöldinni,
hefðu þeir gnægð flutninga-
skipa, flugvéla, hergagna og liðs
til að gera innrás í Frakkland
1943.
| Niðurstaðan varð nú samt sú,
að með áhrifum sínum á Roose-
velt tókst Churchill að afstýra
öllum ráðagerðum um land-
göngu á Frakkland svo fljótt.
Samt varð heldur ekki neitt úr
tillögunum um innrás á Balkan-
skaga, og var það m. a. vegna
þess, að Rússar tóku þeim hug-
myndum illa.
Þannig segist Sommers frá.
Svo bætir hann því við, að
reynslan hafi sýnt, að innrásin
í Norður-Aríku og Ítalíustríðið
hafi verið Óþarfur þáttur í
styrjöldinni. Sameinaður her
Breta og Bandaríkjamanna
myndi hafa brotizt gegn um
varnir Þjóðverja í Frakklandi,
og síðan flætt yfir allt Frakk-
land, Þýzkaland og langt austur
i Pólland, Tékkóslóvakíu og
Austurríki og liannig mætt
rauða hernum miklu austar en
raun varð á. Þannig hefðu Bret-
ar og Bandaríkjamenn tryggt
MARSHALL.
sér yfírráð á þeim hluta Þýzka-
lands, sem nú er hernámssvæði
Rúsj*i. Árið 1943 hafi Þjóðverj-
ai' ekki haft nema 29 herfylki
til að verja vesturströnd Evrópu
en þau voru 59, þegar innrásin
endanlega var gerð.
Þó að gengið sé út frá að hér
sé rétt skýrt frá ágreiningi ojf
tillögum, sem sennilega er, verð-
ur erfitt að dæma um hvort
ályktun Sommers, sú, að Churc-
hill hafi hér orðiö til þess, að
lengja styrjöldina um eitt ár og
stækka áhrifasvæði Rússa, sé
rétt. Þess verður að minnast, að
bandamönnum gekk hægt að
sækja fram í Kyrrahafsstyrjöld-
inni, enda þótt þeir mlnnkuðu
ekki liðskost sinn og vígbúnað
þar til mikilla muna. Eins mun
margur hneigjast til að trúa þvi,
að Churchill hafi verið hinn
framsýni maður, þegar hann
(Framhald á 4. sUSu)
Landburður af f iski
í Vestmannaeyjum
Eh aflinn liggur undir skemmdum sökum
fólkseklu og skorts á salti
í Vestmannaeyjum hefir aff undanförnu verið uppgripa afli
hjá öllum bátum, sem þaffan ganga á þorskveiðar. Berast nú
daglega á' land 300—500 smál. af fiski. Miklum erfiðleikum hefir
þaff valdiff í Eyjum á þessari vertíff, hve vinnuafl er þar af skorn-
um skammti og liggur viff borff, aff ekki sé unnt aff bjarga öllum
fiskinum undan, sem á land berst. Frystihúsin geta .ekki teklð
á móti nema um þriffjung aflans, hitt verffur að salta, en bæffi
er skortur á salti og mannafla til að vinna viff söltunina. Tíff-
indamaffur blaffsins átti í gær tal við fréttaritara þess í Vest-
mannaeyjum, og lýsir hann ástandi þannig.
Olíufélagið Esso hefir nýlega gert út olíuleiðangur niikinn til Bahama-
eyja. Er þar leitað að olíulindum á hafsbotni. Leiðangursmenn hafa í fór-
um sínum öll fullkomnustu tæki til þessara rannsókna. Hjálmi miklum er
sökkt niður á hafsbotninni, og er hann búinn öllum hinum nýjustu tækj-
um, sem að gagni geta komið, meðal annars raföldusjá. Úr þessum hjálmi
er svo hafsbotninn rannsakaður.
Slys á Siglufirði
í fyrradag varð sviplegt slys
í hinni nýju síldarverksmiðju á
Siglufirði. Ragnar Guðjónsson
verkstjóri lenti með hægri
hendi i vél og brotnuðu bæði
framhandleggsbeinin nokkru
fyrir ofan úlnlið.
Árshátíð Framsókn-
arkvenna í Reykjavík
Fimm alþiugisiuenn
þakka koiiiiiiuin
félagsstarfið
Árshátíð Félags Framsóknar-
kvenna í Reykjavík fór fram í
Tjarnarkaffi í fyrrakvöld. 'Srú
Steinunn Bjarmarz setti hófið
og stjórnaði því. Því næst skýrði
Rannveig Þorsteinsdóttir frá
starfi félagsins og stefnu, en
5 a^þingismenn þökkuðu með
ræðum. Voru það þeir Hermann
Jónasson, Bjarni Ásgeirsson,
Eysteinn Jónsson, Bernharð
Stefánsson og Skúli Guðmunds-
son, er jafnframt skemmti með
kveðskap. Síðan var dansað
fram eftir nóttu.
Iðnskólafrumv.
Herm. Jónassonar
vísað frá
Efrl delld alþingis felldi i gær
frumvarp Hermanns Jónassonar
um Iðnskóla í svelt, með því að
samþykkja rökstudda dagskrá
frá meirihluta iðnaðarnefndar.
Móti dagskránni greiddu at-
kvæði Framsóknarmennlrnlr
fjórir og Hannibal Vaidimars-
son. Allir deildarmenn aðrir
greiddu atkvæði með dag-
skránni, nema Ásmundur Sig-
urðsson og Þorsteinn Þorsteins-
son, sem sátu hjá.
Þaunig tókst afturhaldinu í
þetta sinn að vernda mlðalda-
skipulagið, meistaraviðhorfin og
steinrunnin stéttarsjónarmið.
Frábærlega góffur afli.
Frá því að róðrar hófust á
þessari vertíð má heita að upp-
gripaafli hafi verið með öllum
veiðarfærum. Hafa bátar fiskað
upp í 20 smál. í vörpu yfir nótt-
ina, og er það með einsdæmum
gott. Afli línubáta er líka með
hreinum ágætum, en netaveiðar
eru ennþá ekki hafnar.
i
10—20 bátar
liggja affgerffalausir.
j Mikill og tilfinnanlegur skort-
ur er hins vegar á mannafla til
að vinna að nýtingu aflans, og
horfir það til vandræða. Þá fást
ekki einu sinni menn á alla
báta, þótt slíkur uppgripaafli sé,
ig liggja milli 10 og 20 bátar að-
gerðalausir og komast ekki út
á veiðar.
Auglýst eftir fólki.
Það hefir vakið mikla athygli,
að bæjarstjórnin í Eyjum hefir
gripið til þess ráðs, að auglýsa
í útvarpinu eFtir fólki til fram-
leiðslustarfanna, en heima í
Eyjum er litið svo á, að þessar
auglýsingar geri ekki mikið
gagn eða séu jafnvel með öllu
þýðingarlausar. Hafa menn þar
látið þau orð falla, að bæjar-
stjórnin ætti sjálf að hafa for-
ustu í þessu máli, og er í því
sambandi talað um, að það
myndi þykja gott fordæmi til
eftirbreytni í Eyjum, ef auka
bæjarstjórlnn þar, en þeir eru
tveir, færi að vinna að fram-
leiðslustörfunum, að minnsta
kostl yfir þann tíma, sem mest-
ur skortur er á mannafla við
þau störf. Hitt er fyrir löngu
vitað og veit hvert mannsbarn
í Eyjum, að ekki verður veru-
lega aukið við mannafla til
Norðmenn hafna sam-
eiginlegum hervörn-
um við Rússa á Sval-
barða
Norska þingiff hefir fellt meff
101 atkvæffi gegn 11 tillögu um
aff semja viff Rússa um sameig-
inle^ar hervarnir Rússa og
Norffmanna á Svalbarffa. Þaff
voru þingmenn kommúnista,
sem greiddu atkvæffi meff sam-
eiginlegum landvörnum.
Hins vegar hefir þinglff sam-
þykkt aff semja viff Rússa um
atvinnumál á Svalbarffa.
Landbúnaðarsýningin
verður opnuð 26. júní
Verið að skipuleggja sýningarsvieðið og’
innrétla sýnmgarskálaiia
Tíðindamaffur Tímans átti í gær tal viff Kristjón Kristjónsson
affalframkvæmdastjóra landbúnaffarsýningarinna, sem fyrirhuguff
er í Reykjavík í vor.
vinnu við fiskinn, af því fólki,
sem fyrir er í Eyjum, enda hafa
Vestmannaeyingar alltaf dregið
sig til bjargar og ekki-þurft að
hvetja þá til þess. Muntr Eyjarn-
ar vera með þeim útgerðarstöð-
um landsins, þar sem mest er
unnið s£ framleiðslunni og
minnst sofið, þótt víða sé vel
að verið.
Saltleysi veldur miklum
áhyggjum.
Saltleysi veldur sjómönnum
og útgerðarmönnum í Vest-
mannaeyjum miklum áhyggj-
um, enda er ekki útlit fyrir
annað en fiskurinn skemmist,
ef salt berst ekki von bráðar
að ráði til Eyjanna. Allt salt,
sem til var þar, er fyrir nokkru
búið, en að undanförnu hefir
verið notazt við salt, sem sótt
hefir verið smátt og smátt til
annarra verstöðva. Kenna sjó-
menn óstjórn Áka Jakobssonar
á þessum málum um saltleysið,
þar sem hann kom þýí til leiðar,
að bönnuð yrðu öll viðskipti við
Spán. En þar hefði verið hægt
að fá nóg salt, og íslenzkir sjó-
menn þá ekki þurft að láta afla
sinn, sem þeir hafa með ærnum
erfiðismunum sótt í greipar
Ægis, liggja undir skemmdum.
Er ekki líklegt, að það hefði haft
mikil áhrif á heimsstjórnmálln
Francó til framdráttar, þótt
nokkrir saltfarmar hefðu verið
fluttir hingað til lands frá
Spáni.
Von á salti — sem ef tll vill
kemur of seint.
Nú er að vísu eltthvað af salti
á leiðinni til landsins frá Frakk-
landi og Ítalíu, en óvíst er, að
það komi nógu snemma til að
forða því, að kasta verði aflan-
um, ef sami landburðurinn helzt.
Hraðfrystihúsin geta ekkl
tekið á móti nema litlum hluta
aflans, og veldur því margt, —
fyrst þó og aðallega það, að
frystihúsin eru of lítll. Auk þess
vantar fólk til þess, að þau geti
aukið afköst sín upp i það, sem
hægt væri. En við þetta tvennt
bætist svo það, að skortur er á
(Frámhald á 4. slOu)
Það hefir nú verið ákveðið,
að sýningi skuli opnuð fimmtu-
daginn 26. júní. Þótt ýmsum
kunni að þykja þaö nokkuð
seint, ef tíð verður góð og gras-
spretta í sæmilegu meðallagi, þá
hefir margra ástæðna vegna
ekki þótt fært að opna hana
fyrr.
Nú er verið að skiputeggja
sýningarsvæðið og ákveða þær
breytingar og lagfæringar, er
þar þarf að gera. Einnig er verið
að ganga frá innréttingu skála-
anna, sem þar eru, og undirbúa
nýjar byggingar, að svo miklu
leyti, sem þeirra þarf við.
Sérstakt merki hefir verið
ákveðið. Er það skeifa og innan
i henni mynd af íslenzkum bæ
í burstastil.
Þá er verið að ganga frá happ-
drætti, er efna á til í sambandi
við sýninguna.
Fjölskák Yanofskys
í Hafnarfirði
Yanofsky tefldi fjöltefli i
Hafnarfirði í fyrrakvöld. Teflt
var á 29 borðum. Vann Yan-
ofsky ýý, tapaði tveimur, en 5
urðu jafntefli. Hafnfirðingarnir,
sem unnu, voru dr. Bjarni Aðal-
bjarnarson og Sigurður P. Sig-
urðsson.
Ráðskonan á
Grundkveðurdyra
Ráðskonan á Grund, hin nýja
framhaldssaga Tímans eftir Svf-
ann Gunnar Widegren, hefst i
blaðinu í dag. Þetta er, eins og
áffur hefir veriS skýrt frá, fyrst
og fremst skemmtisaga. Þar
segir frá sérkennilegu fólki, sem
ef til vill er talsvert fært í stfl-
inn, en flestlr munu þó kannast
við fólk, er svipar til þelrra
manngerða, sem þar eru leiddar
fram.
Forráðamenn blaðsins vona,
að einhverjir hafi yndi af þess-
ari nýju sögu, og sú ósk er ftrek-
uð, að lesendurnir látl biaSið
vita, hvernig þeim geðjast aS
henni, þegar þelr eru búnir aS
flnna bragSiS aS hennl.