Tíminn - 07.03.1947, Síða 1

Tíminn - 07.03.1947, Síða 1
! RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON \ \ tfTGEPANDI: ( ! FRAMSÓKNARFLOKKURINN ! Símar 2353 og 4373 'í PRENTSMIÐJAN EDDA hi. \ S ' | RITST JÓRASKRIPSTOFOR: ; EDDUHÚSI. Llndargðtu 9 A \ Símar 2353 og 4373 V APGREIÐSLA, INNHEIMTA J \ OG AUGLÝSINGASKRIPSTOPA: \ í EDDUHÚSI, Llndargötu ÖA í Síml 2323 ! 31. árg. ERLENT YPIRLIT: Reykjavík, föstudag'iuu 7. marz 1947 46. bla5 BÚNAÐARÞINGSFULLTRÚARNIR 7947, Óvenjulegt fannkyngi Er hún raunverulega átök milli Rnssa / / STYRJOLDiN I MANSJURIU og Bandaríkjamanna? • Öðru hvoru berast fréttir um orustur í Mansjúríu, þar sem kínverski stjórnarherinn og kínverskir kommúnistar eigast við. í raun og veru er hér um styrjöld að ræða, er hófst fyrir nokkrum mánuðum síðan, og enn er ekki séð fyrir endann á. í fyrstu virtist stjórnarhernum veita betur, en síðustu mánuðina hefir hann orðið að láta síga undan. Úrslit þessarar styrjaldar geta orðið þýðingarmikil, því að hér er barizt um eitt mesta framtíðarland Asiu. Það var árið 1931, er Japanir gerðu innrás í Mansjúríu og lögðu hana undir sig. Mansjúría hafði þá' talizt kínverskt land um langt skeið, menning var á lágu stigi og hin miklu auðæfi landsins voru sáralítið nýtt. Japanir hófust þar strax handa um miklar framkvæmdir og er þar nú ejtt fullkomnasta járn- brautarkerfi Austur-Asíu. Jafn- framt reistu þeir þar mikil iðju- ver og hófu námarekstur í Hér getur aS líta Pú Jiú, leppkeisara Japana i Mansjúriu. Hann sat aS völd- um allt þar til Rússar brutust inn í landiS. stórum stíl. Einnig unnu þeir að þvi að breyta landbúnaðinum, sem var aðalatvinnuvegur lands- ins, í nýtízku horf. Japanir töldu, að innan skamms tíma gætu 100 mllj. ítyúa lifað góðu lífi í Mansjúríu, en þeir voru ekki nema 35 milj., er Japanir komu þangað. Eins og enn er í fersku minni, sögðu Rússar Japönum stríð á hendur rétt áður en þeir gáfust upp fyrir Bandamönnum. Rússar notuðu síðan tækifærið til að hernema Mansjúríu, en sam- komulag varð um, að þeir skyldu flytja her sinn þaðan innan fárra mánaða. Það loforð efndu Rússar þó ekki, heldur höfðu her sinn þar helmingi lengri tíma en umsamið var. Þennan tima tíma notuðu þeir m. a. til þess að flytja á braut með sér allar þær vélar og ta\ki, sem komizt varð á brott með, og má því allur iðnaður i Mansjúríu heita i kalda koli. Eftir að rússneski herinn var farinn í burtu og kínverski stjórnarherinn átti að taka við, mætti hann hvarvetna harð- snúinni ^jiótspyrnu. Þessi mót- spyrna stafaði þó ekkl frá íbú- unum sjálfum, heldur frá her- sveitum kommúnista, er ráðið hafa stórum hluta Norður-Kína seinustu árin. Þeir höfðu ber- sýnllega komið sér fyrir i skjóli rússneska hersins og fengið þau hergögn, sem Japanir urðu að láta af hendi við uppgjöfina. ■I Þessi viðureign kínverska stjórnarheijsins og kommúnista- hersips hefir nú staðið í marga mánuði og virðist tvísýnt um úrslitin. Ýmsir nákunnugir menn telja, að hér sé um meira að ræða en innbyrðisbaráttu Kínverja sjálfra, heldur standi mestu stórveldi heimsins, Bandarikin og Sovétríkin, að baki deiluaÆilanna. Átökin séu því raunverulega mllli þeirra. Bæði þessi stórveldl reyna þó að dylja þessi afskipti sín. Það er þó eigi að síður staðreynd, að (Framhald. á 4. slðu) Fremri röð frá vinstri til hægri: Friðrik Arnbjarnarson á Ósi, Jón Sigurðsson á Reynistað, Sigurður Jónsson á Stafafelli, Bjarni Ásgeirsson á Reykjum, Guðmundur Erlendsson á Núpi, Jón Hannesson í Deildartungu, Svelnn Jónsson á Egilsstöðum og Ólafur Jónsson á Akureyri. — Aftari röð: Baldur Baldvinsson á Ófeigsstöðum, Guðmundur Jónsson á Hvítárbakká, Þorsteinn Sigfússon á Sandbrekku, Guðjón Jónsson í Ási, Hafsteinn Pét- ursson á Gunnsteinsstöðum, Þorsteinn Þorsteinsson sýslumaður, Helgi Kristjánsson í Leirhöfn, Páll Pálsson á Þúfum, Einar Ólafsson í Lækjarlivammi, Bjarni Bjarnason á Laugarvatni, Gunnar Þórðarson í Grænumýrar- tungu, Þorsteinn Sigurðsson á Vatnsleysu, Hólmgeir Þorsteinsson á Hrafnagiii, Sigurjón Sigurðsson í Raftholtl, Jóhannes Daviðsson í Neðri-Hjarðardal, Kristinn Guðmundsson á Mosfelli, Guðbjartur Kristjánsson á Hjarðar- felii og Gísli Magnússon í Eyhildarholti. Aðalfundur B. S. B.: Vaxandi starf húsageröar- og jaröræktardeiida Margar samþykktir gerðar um nauðsyiija- mál húnvetnskra bænda Aðalfundur Búnaðarsambands Húnavatnssýslu var haldinn á Blönduósi 21.—-22. febrúar. 25 fulltrúar áttu sæti á fundinum. Var þar skýrt frá störfum sambandsins og framkvæmdum þess á liðnu ári og gerðar ýmsar samþykktir um mál, sem varða bændastétt- ina og héraðtð. Varahlutir í vélar. Þessar samþykktir voru meðal annars gerðar: Fundurinn felur búnaðarþings fulltrúa sambandsins að vinna að . því, að Búnaðarþing hlutist til um það að S.Í.S. og kaupfé- lögin hafi fyrirliggjandi nægi- legt af nauðsynlegum varahlut- um í heyvinnu og jarðyrkjuvélar Rafmagns krafizt. Fundurinn skorar á stjórn rafveitumálanna og alþingis- Þessl mynd er einnig frá mektardögum Japana. Hér sést eitt af stærstu herskipum Japana á lelð til Mansjúríu með óvígar hersveitlr. . mann kjördæmisins aö hraða meira en undanfarið undirbún- ingi þess, að sem flest byggð býll í sýslunni eígi kost á raf- rnagni á næstu árum við hæfi- legu verð.. Lýst ánægju yfir Stéttarsambandinu. Aðalfundur B. S. H. lýsir á- nægju sinni yfir happasælli stofnun stéttarsambands bænda og heitir þeim fjárhagsstuðn- ingi, er það hefir farið fram á. Viðgerðaverkstæði. Aðalfundur B.S.H. skorar á stjórn sambandsins að vinna að því, að samvinnufélögin á sam- bandssvæinu komi á fót við- gerðarverkstæði á búvélum. Nægan gjaldeyri til búvélakaupa. Aðalfundur B.S.H. skorar á Búnaðarþing að hlutast til um við væntanlegt fjárhagsráð, að það úthluti S.Í.S. nægilegum gjaldeyri til innkaupa á bú- vélum. Fuli^ sex-mannanefndar-vcrð. Þar sem Alþingi það, sem nú situr hefir tekið ábyrgð á lág- ■ marksyerði.fisks, skorar fundur- inn á Búnaðarþing, að það hlut- ist til um það við landbúnaðar- ráðherra, að bændum verði tryggt fiillt sexmannanefndar- verð fyrir afurðir sínar. I Slysatryggingargj aldinu mótmælt. Aðalfundur B.S.H. mótmæiir hínu ósvífna slysatryggingjar- gjaldi, sem nú hefir verið dembt, (á bændur í algeru ósamræmi við t (Framhald á 4. síSu) Framsóknarvist á föstudaginn kernur Vegna fjölda fyrirspurna um spilakvöld hjá Framsóknarfé- lögum Reykjavíkur, hefir verið ákveðið að efna til slíkrar skemmtunar föstudaglnn 14. þ. m. 1 samkomusal mjólkurstöðv- arinnar. Eins og fyrr er fólki bent á að draga ekki að panta aðgöngumiða að skemmtuninni, þar eð sýnt er að aðsóknin verð- ur mikil. Pöntun aðgöngumiða er veitt móttaka í síma 2323. - Síðar verður auglýst nánar um skemmtiatriði og hvenær sækja skuli pantaða aðgöngumiða. — Dragiö ekki að tryggja ykkur miða að skemmtuninni. Góður síldar og þorsk- afli Norðmanna Samkvæmt skeyti sem fiski- málastjórinn i Bergen hefir sent Fiskifélagi íslands, er heildar- afll Norðmanna nú orðinn miklu meiri en í fyrra, bæði af þorski og sild. Vetrarsíldveiðar Norð- manna voru 1. þ. m. samtals 4492513 hektólítrar. Af þvl hafði verið flutt út nýtt 842476 hektó- lítrar. Saltað hafði verið 996169 hektólítrar. 137783 hektíittrar fóru í niðusuðu og 2378414 hektó lítar í bræðslu Á sama tíma voru þorskveið- arnar samtals orðnar 82470 smáiestir. Af því hafði verið hert 10792 smál., 50128 smálestir voru saltaðar og 21550 smál. voru fluttar út af nýjum fiski. Fjárhagsáætlunin Fjárhagsáætiun -Reykjavlkur- bæjar var til umræSu á bæj- arstjómarfundi í gærkvöldi, og munu þær umræður hafa enzt langt fram á nótt. Var þeim ekki nærri lokiS, er blaðlð fór í prentun i gærkvöldi. Margar breytingartiUögur lágu fyrir, meðal annars frá Sjálf- stæðismeirihlutanum sjálfum, þar sem'teknar voru að nokkru leyti til greina breytingartUlög- ur annarra, svo sem tillaga Framsóknarflokkslns um auklð fé til friðunar á Heiðmörk. Einnig láffi fyrlr margar breyt- ingartillögur frá ððrum flokk- um og einstökum fuUtrflum. norðan lands Jiiíuvcl íí'öásirítaí* á Akwreyri ói'serar l»ii‘rei5uiii Mikið íannkyngi er nú vlöa norðanlands og bætist lieldur við þessa síðustu daga. Einkum er l'annfergi í Eyjafirði. Veglr allir eru ófærir bifreiðum, og í gær kom enginn mjólkurblll til Akureyrar. Öll mjólk, sem þangað kom, var flutt á bátum og sleðum. Nóg mjólk var þó i bænum, og gat mjólkursamlagið sent Sigl- firðingum mjólk sjóleiðis. Göturnar á Akureyri eru ófærar bifreiðum nema stærstu og sterkustu tegunda, og bif- reiöastöðvarnar lokaðar. Flugvöllurlnn á Melgerðismel- um er kaflnn snjó, en byrjað var að moká hann í gær. Þessi snjóalög valda þvi veru- legri truflun á eðlilegum hátt- um, bæðl í bænum og héraðinu. Er svo víðar norðan lands. Telpa hrapar niður af húsþaki Hörmulegt skeytingar- leysi orsök slyssins Um þrjúleytið í fyrradag varð slys við timburverzlun Árna Jónssonar á Hverfisgötu. Fjög- urra ára telpa, Guðbjörg Reyn- isdóttir_, til heimilis að Lauga- vegi 42, féll ofan af þaki tlmb- urgeymslunnar niður í port, um tveggja hæða fall. Var telpan þegar flutt í sjúkrahús, og telja læknar að höfuðkúpan hafi brotnað. Þó leið hennl sæmilega í gær, eftir þvi sem við var að búast. Svo háttar til þarna sem slys- ið varð, að akbraut er inn á þak timburgeymslunnar frá Lauga- vegi. Er daglega fjöldi barna að leikum þarna í portinu, því að barnaleikvöllur er enginn á þessum slóðum, en á þakbrún- inn er ekkert annað til varnar en lágur steypukantur. Verður slíkur frágangur á þessum stað að áteljast harðlega, þvi hér er engu líkara en verið sé að bjóða slysunum heim. Þá kröfu verður að gera, aö úr þessu verðí bætt tafarlaust, svo að fleirl slys verði þarna ekkl sökum ófull- nægjandi frágangs. Brotizt inn í her- mannaskála í fyrrinótt var brotlzt inn í Camp Knox. Bærlnn keypti eins og kunnugt er þessar herbúðir með öllu saman (nema hermönn- unum), og ætlar þær fyrir hús- næðislaust fólk. — Að undan- förnu hefir verlð unnið að þvl, að reyna að lagfæra þessa her- mannaskála, áður en fólkið- flytti i þá. Hefir allmikið af ýmis konar varningi sem fylgdi i kaupunum verið látið í elnn skálann, og var það í þennan skála, sem brotizt var lnn i l fyrrinótt. Þjófurinn hafði brotið upp huröina, en ekki er ennþá vitað hvort nokkru hefir verið stolið. Verðir frá bænum, sem vöktu yfir þessum verðmætum og skálahverflnu, munu ekki hafa orðið þjófanna varir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.