Tíminn - 21.03.1947, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
\
(
RITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚ8I. Llndargötu 9 A
Slmar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
Síml 2323
31. árg.
Reykjavík, föstudaglnn 21. marz 1947
56. blað
Ávextir dýrtíðariimar:
é
Fjárveítinganefnd skilar fjárlaga-
frumvarpinu með 30 miljóna
reksturshalla
Tíu miljónir horfnar í verðbólguhítina síðan
frumvarpið kom fram í haust
Fjárveitinganefnd leggur til að útgjöld fjárlaganna hækki um
51,7 milj. kr. en tekjuhliðin um rúmlega 30 milj. kr. og rekstrar-
kafi, nema kjölurinn einn, er hjálpin barst. Þrfr voru komnir á
finnast að þetta sé þungur og alvarlegur boðskapur, sem þjóðinni
sæmi þó ekki að loka augunum fyrir. Það er fyrst og fremst dýr-
tíðin, sem segir til sín á þennan hátt.
Oðrum Grumman-flugbáti hlekkist á
Flugbáturinn, sem hvolfdi í gær
°Hvolfir í lendingu á >'orðfirði,' eii mennirnir
fimm lijargast nauðulega
Rétt um hádegisbilið í gær vildi það ^j;s til, að Grumman-flug-
bát frá Flugfélagi íslands hlekktist á í lendingu á Norðfirði.
Steyptist hann fram yfir sig, og varð mönnunum, fjórum far-
þegum og flugmanninum, nauðulega bjargað fyrir snarræði manna
í Neskaupstað. Hékk einn þeirra á flugvélinni, er öll marraði í
kafi, nema kjölurinn einn er hjálpin barst, þrír voru komnir á
sund og héldu þeim fjórða uppi, er ósyndur var. Orsök slyssins
er talin undiralda á firðinum.
Mennirnir eru lítt eða ekki Því miður virðist allt benda
meiddir, en voru sumir þjak- ! til, að hér hafi enn verið höggvið
aðir af volkinu, er þeir komu á skarð í hinn íslenzka flugvéla-
Þessi mynd er af flugbátnum, sem hlekktist á á Norðfirði í gær. Var
hann keyptur hingað til lands frá Bandaríkjunum 1945 og var þá nýr.
Hann er einasti Grumman-flugbáturinn, sem Flugfélag íslands á og hefir
verið notaður á flestum flugleiðum félagsins meira og minna.
Fjárveitinganefnd Alþingis
hefir nú skilað áliti um fjár-
lagafrtpmvarpið. Hefir nefndin
gert allverulegar breytingar á
frumvarpinu og hækkað það að
mun, bæði tekju og gjaldalið.
Tekjuhliðina hefir nefndin
hækkað um fullar 30 milj króna.
Þar af eru 11.9 milj. kr. vegna
hækkaðs áfengisverðs og 6.9 milj
kr. vegna verðhækkunar á tó-
baki. Þetta er í samræmi við
það, sem ákveðið hefir verið um
verðlag á þessum vörum.
Þá eru 3.5 milj kr. áætluð
hækkun á brúttótekjum lands-
símans og 0.8 milj. kr. á brúttó-
tekjum póstsjóðs. Um þetta segir
nefndin m. a. s: „En með því að
sérstakri nefnd hefir verið falið
að athuga þessi mál og koma
fram með tillögur til úrbóta og
þegar hafa verið gerðar raun-
hæfar ráðstafanir til frekari
tekjuöflunar, þótti fjárveitinga-
nefnd rétt að áætla rekstur þess
ara stofnana hallalausan, enda
ber að stefna að því, að halli
verði ekki á þessum rekstri“.
Ennfremur hefir svo fjárveit-
inganefnd áætlað verðtoll 50
milj. kr. í stað 42 milj. kr. og
er það gert með hliðsjón af því,
að verðtollur ársins 1946 reynd-
ist rúmlega 62 milj. kr.
Gjaldahlið fjárlaganna hefir
nefndin hækkað um 51.7 miij.
kr. * Þar er fyrst að nefna 35
milj. kr. til dýrtiðarráðstafana.
Þó er þess að gæta, að það er
gert ráðfyrir, ,,að af þeirri upp-
hæð muni þurfa 10 milj. kr. til
að greiða mismun á verðlags-
vísitölu 290 eins og alls
staðar er reiknað með í fjár-
lagafrumvarpinu, og þeirri með-
alverðlagsvísitölu, sem kann að
verða á árinu“. Það eru því 25
milj. kr. sem raunverulega eru
áætlaðar til niðurgreiðslu.
Þá leggur nefndin til að fram-
lög til nýrra vega hækki um 2.27
milj. kr., til brúa um 1 milj. kr..
til hafnar- og lendingarbóta
um 3 milj. kr. Annars koma
hækkunartillögur nefndarinnar
víða við.
Með breytingartillögum fjár-
veitinganefndar eru niðurstöðu-
tölur á rekstrai’yfirliti þessar:
Félag járniðnaðar-
nema 20 ára
Félag járniðnaðarnema í
Reykjavík mun vera elzta
iðnnemafélag, sem starfandi er
á íslandi. Félagið er stofnað
20. marz 1947. Að stofnun fé-
lagsins stóðu nokkrir járniðn-
aðarnemar. Nú munu vera \ fé-
laginu um 140 nemendur. Fyrsti
formaður félagsins var Guðjón
Friðbjörnsson, núverandi for-
maður er Jón Einarsson.
Afmælis félagsins • verður
minnzt með hófi að Þórscafé
föstudaginn 21. marz.
Tilgangur félagsins hefir frá
(Framhald á 4. slðu)
Tekjur: ....... kr. 167.039.679.00
Gjöld: ........kr. 197.879.591.60
Rekstrarhalli kr. 30.838.912.60
Sjóðsyfirlit yrði' svo:
Útborganir: .. kr. 216.608.419.60
Innborganir: . . kr. 170.936.179.00
Greiðsluhalli kr. 45.672.240.60
Þó að flestum muni þykja nóg
um er þeir athuga þessar tölur,
ber þó að gæta, að frestað hefir
verið til 3. umræðu að taka fulln
aðarákvörðun um ýmsa liði, sem
verulegu máli skipta, og auk
þess eru nú í frumvarpinu ýms
framlög mun lægri en undan-
farin ár og. mun ýmsum sárna
ef svo verður endanlega frá
gengið.
Hitt talar og sínu máli að
almenn hækkun á vísitölunni
frá því að frumvarpið var lagt
fram í haust kostar rikissjóðinn
10 milj. kr„ sem beinlínis hverfa
í hít dýrtíðarinnar, án þess að
þeirra sjái nokkurn stað.
andi lófataki.
Aðalframsöguræðu á fundin-
um flutti Eysteinn Jónsson
menntamálaráðherra. Var ræða
hans löng og ýtarleg. Ræddi
hann um viðhorfið í stjórnmál-
um þjóðarinnar, þegar núver-
andi ríkisstjórn tók við, stjórn-
arsamninginn og þau málefni,
sem ríkfgstjórnini hefir undir-
búið, eins og frumvarpið um
fjárhagsráðið og önnur, sem eru
í undii’búningi, t. d. löggjöf um
afurðasölu landbúnaðarins, flug-
velli ríkisins o. fl. Þá væddi
hann um fjárlagaafgreiðsluna
og leiðir þær, sem farnar eru til
fjáröflunar, en hallinn er nú
áætlaður um 30 milj. á fjárlaga-
frumvarpinu. Þá ræddi hann
að lokum um dýrtíðarmálin og
sölu sjávarafurða, sem nú væri
allt í óvissu með, þar sem óvíst
væri enn um árangur af störf-
um sendiiiefndanna í Bretlandi
og Rússlandi. En þrátt fyrir allt,
væri augljóst, að framleiðslu-
kostnaðurinn yrði að lækka ef
keppa ætti við nágrannaþjóðir
okkar á fiskmarkaðinum. Mestu
máli skipti þó, að þjóðin gerði
sér þegar ljóst, hvernig nú væri
ástatt, þvl fyrr væri hún ekki
viðbúin að gangast undir marg-
víslegar ráðstafanir, sem
kynnu að vera nauðsynlegar,
þegar gj aldeyririnn væri þrot-
inn og tekjur ríkisins stór-
minnkuðu, ef illa tækist til með
Gæftir í sjö vik-
ur óslitið
Undanfarið hafa verið stanz-.
lausar gæftir og góður afli hjá
öllum bátum, sem gerðir eru út
við Faxaflóa, og einnig í Höfn
í Hornafirði og Vestmannaeyj-
um. Má heita að stanzlausar
•gæftir hafa verið alla vertíðina,
það sem af er. Yfirleitt var afli
(Framhald á 4. slðu
afurðasöluna og aðra viðskipta-
samninga.
Ræðu ráðherrans var ágæt-
lega tekið, og hófust almennar
umræður á eftir. Þessir tóku til
máls: Guðlaugur Rósinkranz,
Jón ívar.sson, Guðbrandur
Magnússon, Friðgeir Sveinsson
og Sigurður Baldvinsson. Ræddu
þeir um ýmsa þætti í ræðu ráð-
herrans.
*Fundinum lauk kl. 11.30.
Það vakti að vonúm mikla
athygli, að 70 menn gengu í
félagið, og er það hlutfallslega
mjög stór hópur miðað við fé-
lagatöluna. En hér má ekki láta
staðar numið. Margir menn
fylgja flokknum hér í bse, en
hafa ekki komið því í verk að
ganga í iélagið. Nú þarf sóknin
að halda áfram og enn fleiri að
ganga í félagið á næsta fundi,
sem verður í apríl. Þá ættu
ungir menn að fjölmenna í
Félag ungra Framsóknarmanna
og konur í Félag Framsóknar-
kvenna í Reykjavík. Skrifstofa
Framsókx^arflokksins í Eddu-
húsinu við Lindargötu (sími:
6066) tekur á móti nýjum fé-
lagsmönnum.
Framsóknarmenn! Gangið í
Framsóknarfélög Reyjí j avíkur og
vinnið á annan hátt að eflingu
þeirra. Hafið samband við skrif-
stofuna um, þessi mál, einkum
kl. 4—7 dagiega.
Nýtt tímarit byrjað
að koma út
Ætlað til skemmti-
lestnrs
í dag hefur nýtt tímarit göngu
sína í Reykjavík. Nefnist það
„Bergmál,“ og er Guðni Þórðar-
son ritstjóri þess. Á það að koma
GUÐNI ÞÓRÐARSON,
ritstjóri Bergmáls.
út mánaðarlega og ftytja sögur,
greinar og frásagnir til
skemmtil£sturs. Auk þess flytur
það mikið af góðum myndum,
og er sérstaklega ei» í þessu
fyrsta hefti, er margir munu
hafa gaman af. Heitir hún „Séð
gegnum skráargat.“ Framvegis
mun ritið flytja nokkuð af úr-
vals myiidum eftir íslenzka ljós-
myndará og greinar um ljós-
myndatækni fyrir almenning.
Er það efni alger nýjung í ís-
lenzkum tímaritum.
Aðaláherzla verður þó lögð á
að ritið flytji skemmtilegar
greinar og sögur.
Fyrsta greinin í þessu hefti,
auk ávarps ritstjórans, er
frásaga um Kleópötru. Þá er
einnig í heftinu frásagg, um
yfirmann þýzka njósnarkerfis-
ins í heimsstyrjöldinni, grein
um hjónabönd og ágreinings-
efni hjóna, tvær smásögur, önn-
ur þeirra fræg saga eftir
Giovanni Verga, margar myndir
af Hollywoodleikurujji, ásamt
greinum um þá, og loks ýms-
ai’ hnittnar gamansögur og
skrítlur.
Ritið er snotui’lega úr garði
gert.
land.
Flugvélin er mjög piikiff
skemmd, sérstaklega að framan.
Þar er hún öll beygluð og brengl-
uð. Var hún dregin upp í slipp
í Neskaupstað seinni hluta dags
í gær.
— Flugvélin kom úr Reykja-
vík, sagði Níels, og voru í henni
fjórir farþegar, þrír ísfirðingar,
Símon Helgason skipstjóri, Jón
Sigurðsson __ og Steingrímur
Kristmundsson, tíg einn Reyk-
víkingur, Einar Sigurðsson
stýrimaður, allt sjómenn, sem
voru að sækja vélskipið Gróttu,
eign Björgvins Björnssonar út-
gei’ðarmanns á ísafirði. Hefir
það verið hér í slipp frá því í
nóvember, en var nú búið til
brottfarar.
Flugmaður var Gunnar Fred-
eriksen.
Flugbátnum hvolfir í Iendingu.
Veður varð hið bezta hér
eystra, stillt og bjart, aðeins ör-
lítið vestangróð. Flugvélin lækk-
aði nú flugið og virtist lendingin
tak?r>t vel í fyrstu. Renndi hún
út fjörðinn, nokkru utar en
venja er, að flugvélar lendi. En
allt í einu tók hún snögga dýfu
í og hó.fst upp að aftán, unz stélið
stóð beint upp í loftið. Síðan 1
valt hún yfir sig og lagðist á
bakið.
Skjót björgun.
Við bræðurnir, Björn og ég,
þrifum þegar skekktu, sero var
inni í húsi, og hrundum henni
á flot. Rerum við lífróður út að
flugvélinni, er þá þegar var
sokkin svo djúpt í sjó, að aðeins
kjölurinn stóð upp úr. í sömu
andrá og við bræðurnir komum
skekktu okkar á flot, var tveim-
ur árabátum öðrum hrundið
fram. Var á öðrum Sigurður
Hinriksson útgerðarmaður, en í
hinum Ingi Sveinsson vélsmiður,
og menn með þeim.
Við komum allir að flugvél-
inni í sama mund. Björguðum
við Björn manni, er stóð á öðr-
um flugvélarvængnum og hélt
sér í stellið. Tók sjórinn honum
í höku, er okkur bar að. Þetta
var Jón Sigurðsson frá ísafirði.
Hinir björguðu hinum mönn-
unum fjórum. Voru þeir allir
komnir í sjóinn, og héldu þrir
þeirra er syndir voru, hinum
fjórða, Einari Sigurðssyni stýri-
manni, xi©pi.
Þegar við höfðum bjargað öll-
Undiraldan orsök slyssins.
Tíðindamaður Tímans talaði
einnig við flugmannip«, Gunnar
Frederiksen, er hann hafði jafn-
að sig eftir slysið. Vildi hann
fátt láta uppi að svo stöddu um
þennan atburð, en sagði þó, að
undiraldan á firðinum myndi
hafa verið orsök slyssins. Henn-
ar hefði ekki gætt úr lofti og
flota.
Tíðindamaður Tímans átti í
gær símtal við einn af sjónar-
vottunum að slysinu, Níels Ing-
varsson framkvæmdastjóra, er
var einn meðal þeirra fyrstu, er
kom á slysstaðinn.
um mönnunum, komum við fest-
um í flugVélina. Bar þá einnig
að vélbátinn Sleipni, er tók við
flugvélinni og dró hana upp að
landi.
Þegar við komum að landi
með mennina, var klukkan ná-
kvæmlega hálf þrjú, og voru þá
tuttugu minútur frá því að slys-
ið varð.
Enginn teljandi meiddur.
Enginn þeirra, sem í flugvél-
inni var, meiddist svo að telj-
andi væri. Símon Helgason
skipstjóri hlaut þó rispu á nefið,
og blæddi nokkuð úr. Sumir
voru talsvert þjakaðir eftir volk-
ið, og þurfti að styðja einn upp
úr bátnum. Fengu þeir hjúkrun
í landi, en sumir sjómannanna
fóru beint í bátinn, sem þeir
voru að sækja, enda virtust þeir
vei-a hinir hraustustu og harð-
gerðustu menn.
Veffur var gott.
Ég skal ekkert fúllyrða um
orsakir slyssins, en getum er hér
leitt að því, að golan og undir-
aldan hafi ef tii vill átt ein-
hvern þátt í því. Flugvélin lenti
undan vindinum, en þótt lygnt
væri og undiraldan ekki þung,
getur þetta nokkru hafa valdið.
Flugvélin er mikið skemmd.
Var hún fyrst lögð við festar
uppi undir fjörusteinum og
sneri kjölurinn upp, þó í sjó að
mestu leyti. En síðar um daginn
átti að draga hana upp í slipp.
Að vonum hefir verið mikið
um þetta slys talað hér eystra,
þar sem svo skammt er um liðið
síðan Grumman-flugbáturinn
fórst á Hvammsfirði með þeim
hryggilegu atburðum, er þar
urðu.
Forffaffi meiffslum, aff mennirnir
voru allir bundnir í stólana.
Níels Ingvarsson átti t»l við
Símon Helgáson skipstjóra í
gær. Lét Símon meðal annars
svo um mælt, að það hefði áreið-
anlega fqrðað stórmeiðslum, að
mennirnir voru allir buncþiir í
.stólana, þegar flugvélin steypt-
ist.
sjór virzt mjög sléttur.
Héldu, aff flygvélin myndi
sökkva þá og þegar.
Þeir félagar komust allir
greiðlega út úr flugvélinni, þeg-
ar eftir kollsteypuna. En hún
seig mjög fljótt í sjó, svo að þeir
þrír, sem syndir voru, töldu
ráðlegast að leggast til sunds.
(Framhald á 4. slöu)
Glæsilegur fundur Fram
sóknarféi Reykjavikur
\
Sjötíu nienn gengu í félagið
Framsóknarfélag Reykjavíkur hélt félagsfund í Kaupþings-
salnum í fyrrakvöld. Hófst hann kl. 8.30, og var fundarsalurinn
troðfullur. Fundarstjóri var Ólafur H. Sveinsson, og lýsti hann
í fundarbyrjun inntökubeiffnum frá 70 mönnum, er höfðu óskaff
eftir að gerast félagsmenn. Voru þær allar samþykktar meö dynj-
Frásögn Melsar Ingvarssonar frainkvsemda
stjóra í Neskaupstað
Frásögn Gunnars Frederiksen, flugmannsinS
á Griimman-bátnuin