Tíminn - 25.03.1947, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚ3I. Lindargötu 9 A
Simar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A
Síml 2323
31. árg. Reykjavík, þriðjudaginn 25. marz 1947 58. blað
ERLENT YFIRLIT: Verður Þýzkaland gert að^ >akið á nýja mjölgeymsluhúsinu á Sigl ufirð hrundi
sambandsríki? Tillögiii* Bevins á utanríKisráðherra- - h SUNDHÖLLIN TÍU ÁRA ífyi rrinótt
fundiuum í Moskvu.
Athygli manna beinist um þessar mundir mjög að utanrík-
isráðherrafundinum í Moskvu, enda geta ákvarðanir þær, sem
þar kunna að verða teknar, orðið örlagaríkar fyrir heiminn.
Það mál, sem mest er rætt nú, eru tillögur Bevins um stofnun
þýzks lýðveldis og ríkjasambands.
Eins og kunnugt er, sitja ut-
anrikismálaráðherrar Breta,
Bandaríkjamanna, Rússa og
Frakka á fundum í Moskvu um
þessar mundir og ræða meðal
annars um friðarsamning-
ana við Þjóðverja. Eru greinir
miklar með þeim eins og við
mátti búast, því að hverjum
sýnist sitt, og hefír ekki enn
náðzt samkomulag um neitt,
þótt nokkuð kunni að hafa
þokazt í áttina.
Eitt þeirra mála, sem rætt er,
er framtíöarskipun Þýzkalands.
Hafa utanrikismálaráðherrarnir
látið í ljós skoðanir sínar um
það, og ákveðnar tillögur verið
bornar fram.
Bandamenn urðu á sínum
tíma ásáttir um það, aö Þýzka-
land yrði sameinað efnahags-
lega. Af þessu hefir þó ekki orð-
iö enn, og kenna Bretar og
Bandaríkjamenn Rússum um
þaö. Nú hefir Bevin, utanríkis-
málaráðherra Breta, lagt fram
ákveðnar tillögur um framtíð-
arskipulag Þýzkalands. Vill
hann að Þýzkaland verði sam-
bandslýöveldi. Skal forseti lýð-
veldisins verða æðsti maður rík-
isins og þingi þess skipt í tvær
deildir, og sé önnur þeirra val-
in af héruðunum og hafi neit-
unarvald í stjórnlagamálum.
Forseti ríkisins á þó að vera
valdalítill maður, samkvæmt
tillögum Bevins, en hin einstöku
ríki innan þýzka lýðveldisins fá
þess meiri völd í sínar hendur.
Með þessu vill Bevin stemma
stigu fyrir því, að sú saga geti
endurtekiö sig,1 að einn hrifsi
til sín völdin í landinu og brjóti
andstöðu frjálshuga manna á
bak aftur með harðri hendi.
Þessu skipulagi hugsar Bevin
sér að komið verði á smátt og
smátt. Fyrst verði sett stjórn-
skipunarlög til bráðabirgða,
kosningar látnar fara fram og
bráðabirgðastjórn sett á lagg-
irnar. Þjóðinni verði jafnframt
þegar veitt prentfrelsi, mál-
frelsi og trúarbragðafrelsi, með
þeim takmörkunum einum, sem
eftirlitsráð Bandamanna í Berlín
kynni að setja. Þegar séð yrði,
hvernig bráðabirgðastjórnar.
skráin reyndist, yrði svo sett
stjórnarskrá til frambúðar.
Ýms mál vill Bevin þó, að
verði enn um hríð í höndum
ráðs Bandamanna, svo sem
utanríkismál, gjaldeyrismál,
skaðabótamál, afvopnun og út-
rýming nazismans. _
Marshall, utanríkismálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefir tek-
ið þessum tillögum vel. Molo-
tov hefir hins vegar lýst sig
andvígan hugmyndinni um
sambandsríki, en aftur á móti
væru Rússar hlynntir því, aö
stofnuö yrði allsterk miðstjórn
í Þýzkalandi. Bidault, utanrík-
isráðherra Frakka, má helzt
ekki heyra sameiningu ,Þýzka-
lands nefnda. Stendur Frökk-
um mikil ógn af Þýzkalandi, og
er þeim þaö vorkunnarmál, eft-
ir það sem gerzt hefir. Leggja
þeir og mikið kapp á að ná
undir sig, eða koma að minnsta
kosti í sem nánust tengsli við
Frákkland, ýmsum suðvestur-
héruðum Þýzkalands.
Drengur á þriðja ari
kafnar í reyk
Síðastl. laugardag villi það
hörmulega slys til að Höfða í
Grunnavíkurhreppi, að drengur
á þriðja ári kafnaði af reyk, í
eldhúsinu.
Húsmóðirin að Höfða, Sigríð-
ur Pálsdóttir, var ein heima með
tveim litlum drengjum er slys-
ið varð. Hafði hún farið' i fjós-
ið og orðiö að skilja drengina
eftir í bænum. Er hún kom aft-
ur inn úr fjósinu var eldhúsið
fullt af reyk. Fann Sigríður
drengina báða liggjandi á eld-
húsgólfinu og var annar þeirra,
Gunnar, drengur á þriðja ári,
örendur. — Hinn drengurinn,
Páll að nafni, var mjög illa
haldinn vegna reykjarsvælunn-
ar. Hann jafnaði sig þó brátt
Slysið virðist hafa viljað til
með þeim hætti, að annar
drengurinn hafi lagt gúmmískó
á eldavélina. Hefir svo kviknað
í skónum og eldhúsið fyllst af
reyk og svælu.
Svíar hætta flugferöum til
Islands um stundarsakir
%
Sænska flugfélagið SILA hefir ákveðið að hætta um
stundarsakir flugferðum þeim, sem það hefir haldið uppi
að undanförnu milli Stokkhólms og Reykjavíkur með við-
komu á Sóla við Stafangur. Fór sænska flugvélin héðan
til Stokkhólms í nótt, og veröur það síðasta flugferðin
milli íslands og Skandinavíu á vegum SILA nú um sinn.
Hins vegar ætlar flugfélagið að hefja þessar flugferðir að
nýju í janúarmánuði næsta ár.
Þessi ákvörðun er ekki tekin vegna þeirrar samkeppni,
sem hafin er nú um flugferðir á þessari leið af ameríska
flugfélaginu AOA. Ástæðan er sú eina, að SILA skortir
svo stórar flugvélar, sem nauðsynlegar eru ti^slíks lang-
flugs, svo að það verður að taka flugvél þá, sem hér hefir
verið í förum, til nota annars staðar.
i Þakvlðir |»ess voru allt
t gær voru tíu ár liðin frá því, að sundhöll Reykjavíkur tók til starfa. Á þessum tíu árum hafa komið þang-
að 2,194,172 baðgestir. Einn maður hefir sótt hana á hvcrjum degi, sem hún hefir verið opin, frá því hún tók
til starfa. Maður þessi er Sverrir Fougner Johansson bókbindari. Gaf hann í gær nokkra fjárhæð í minningar-
sjóð Ólafs Þorvarðssonar, fyrrverandi sundhallarforstjóra, en þann sjóð hefir Sverrir sjálfur stofnað. — Fjórir
menn hafa veitt sundhöllinni forstöðu þessi tíu ár. Eru það Ólafur Þorvarðsson, Erlingur Pálsson, Sigríður Sig-
urjónsdóttir og Þorgeir Sveinbjarnarson, núverandi forstjóri sundhallarinnar. Sundhöliin er enn í dag eitt
þeirra mannvirkja í höfuðstað landsins, sem við teljum okkar sóma að sýna erlendum gestum, sem að garði
ber. — Eins og kunnugt er, var sundhöllin byggð að frumkvæði og atbeina Framsóknarmanna, er þeir komust
fyrst í stjórnaraðstöðu hér á landi. Eftir að smíði hennar var lokið, stóð hún ónotuð árum saman, því að ráða-
mönnum bæjarins var þá ekki enn orðið ljóst, hvaöa menningarstofnun hér var í uppsiglingu. En nú mun
enginn viija við það kannast óneyddur, að hann hafi barizt gegn sundhöllinni eða tafið framgang málsins.
— Myndin hér að ofan er af sundhöllinni eins og hún var á árunum áður en starfræksla hennar hófst. —
of veikir og gisnir og
hiirðarmagn því inikln
minna envcra þurfti.
Báöir Strandamennirnir báru sig-
ur úr býtum í skíðagöngunni
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir frá Siglufirði
sigraði hæði I bruui og svigi kveuna.
Skíðalandsmót íslands átti að hefjast uppi í Borgarfirði síð-
astliðinn föstudag. Af því gat þó ekki orðið vegna snjókomu og
ófærðar, og var mótinu frestað til laugardagsins. Varð úr, að
það yrði að öllu leyti háð að Kolviðarhóii, og hófst það þar ár-
degis á laugardaginn. Mótinu er enn ekki lokið.
A laugardaginn fór fram
keppni í skíðagöngu karla,
tveir flokkar, sveitakeppni í
göngu, göngukeppni unglinga,
17—19 ára, keppni í bruni
kvenna, tveir flokkar, og svigi
kvenna, tveir flokkar.
Úrslitin urðu þau, að Jóhann
Jónsson, Strandamaður, vann
skíðagönguna, unglingagpng-
una vann Ingibjörn Hallbjörns-
son, einnig Strandamaður, og í
bruni og svigi kvenna sigraði
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir frá
Siglufirði. — í B-flokkum urðu
úrslitin þau, að Þorsteinn Sveins
son sigraði í göngunni, Alfa Sig-
urjónsdóttir frá Siglufirði í
bruni kvenna og Helga R. Júní-
usdóttir frá Akureyri í svigi
kvenna.
Það vekuy athygli, að þeii'
tveir Strandamenn, er sóttu
skíðamótið að þessu sinni, báru
þeir báðir sigur úr býtum, hvor
í sínum flokki. — Jóhann Jóns-
son, sem sigraði í skíðagöngu í
A-flokki karla með mjög glæsi-
legum hætti, er frá Kaldrana-
nesi í Kaldrananeshreppi, 25
ára gamall. — Ingibjörn Hall-
björnsson, sigurvegarinn í ungl-
ingagöngunni, er frá Veiðileysu
í Árneshreppi, seytján eða átján
ára. Má sannarlega vænta af-
reka af hans hálfu í framtíð-
jinni.
| Nánar tilgreint urðu úrslitin í
þeim keppnum, sem fóru fram á
laugardaginn, eins og hér segir:
!
Ganga.
j A-flokkur: ísl.m.: Jóhann
, Jónsson ÍSS (íþróttasamband
,Strandamanna) 62:51,0 mín. 2.
Valtýr Jónasson SKS (Skíða-
ráð Siglufjarðar) 66:07,0 mín. 3.
Gísli Kristjánsson SKR (Skíða-
ráð Reykjavíkur) 67:24,0 mín.
B-flokkur: 1. Þorsteinn Sveins
son SKR 70:13,0 mín. 2. Sig-
(Framhald á 4. slðu)
Framsóknarvist
á föstudaginn
Vegna fjölda áskorana hafa
Framsóknarfélögin ákveðið að
hafa Framsóknarvist, föstudag-
inn 28. þ. m., í samkomusal
Mjólkurstöðvarinnar, hefst hún
kl. 8,30 e. h. stundvíslega. Auk
vistarinnar verður flutt ræða,
en síðan syngja þeir Egill
Bjarnason og Jón Kjartansson
„gluntarna“. Að lokum verður
svo dansað. Þeir félagar, Egill
og Jón hafa nú í vetur gert
nokkuö að því að syngja í sam-
kvæmum, hafa þeir með söng
sínum skapað sér miklar vin-
sældir og aðdáun.
Af hinum stöðugu áskorun-
um sem berast, má ráða, hversu
geysimiklum vinsældum skemmt
anir Framsóknarfélaganna eiga
að fagna hér i bæ.
Það má því búast við miklu
fjölmenni á samkomuna. Er
Framsóknarmönnum því bent á
að draga ekki að tryggja sér að-
göngumiða.
Pantanir eru afgreiddar í inn-
heimtu Tímans, sími 2323.
Þrjú snjóflóð sópa
burt húsura við
ísafjörð
Fólki, biisettu í ná-
gi'enniim, skifialS að
flytja til ísafjarðar
vegna áframhaldandi
hættu.
Þrjú snjóflóð féllu úr Eyrar-
fjalli við ísafjörð í fyrradag og
í gær. Sópuðu þau burt húsum
og mannvirkjum, og bárst kona
langar leiðir með einu húsinu,
en slapp þó lítt meidd. Hætta er
á fleiri snjóflóðum á þessum
slóðum, og hefir lögreglan á fsa-
firði óskað þess, að fólk það,
sem býr á svæðinu, flytti burt
þaðan um stundarsakir.
Fyrsta snjóflóðið féll í fyrra-
dag. Tók það með sér fjóra
sumarbústaði og hlöðu á Selja-
landi.
Húsið að Karlsá sópast burt.
í gær féll önnur snjóskriða,
200 metra breið og sópaði hún
íbúðarhúsinu á nýbýlinu Karlsá
að mestuleyti fram í sjó. Bónd-
inn að Karlsá, Eggert Halldórs-
son, var við vinnu á ísafirði, er
þetta gerðist. Börnin á heimil-
inu höfðu farið að heiman til
þess að virða fyrir sér vegsum-
merkin eftir snjóskriðuna, er
féll daginn áður. Var kona
Eggerts því ein heima.
Húsið að Karlsá var „lítið
timburhús, járnvarið, með fjór-
um herbergjum og eldhúsi. —
Hreif snjóskriðan það með sér
og sundraði því í þrennt. Fór
surnt af því í sjó fram. Konan
var í þeim hluta hússins, er
fyrst staðnæmdist, og slapp hún
nokkuð meidd.
Síðar í gær féll þriðja skriðán
(Framhald á 4. síöuj
Viðgerðarkostnaður*
iioi niun nema mörg-
um hundruðum þús-
unda króna.
Fyrir nokkru var frá því skýrt
hér í blaðinu, að hætta væri tal-
in á því, að þak hins nýja mjöl-
geymsluhúss síldarverksmiðj-
anna á Siglufirði kynni þá og
þegar að brotna. Væri það tekið
mjög að svigna undan snjólagi,
sem á því hvíldi. Nú er komið
á daginn, að þessi ótti var ekki
ástæðulaus. Helmingurinn af
þaki hússins féll niður í fyrri-
nótt, stafna á milli, eftir að blot-
að hafði á Siglufirði, og er á-
ætlað, að viðgerðin á þessu
mikla þaki muni kosta mörg
hundruð þúsundir króna.
Stærsta hús á íslandi
að gólffleti.
— Mjölgeymsluhúsið var
byggt síðastliðið sumar, sagði
fréttaritari Tímans á Siglufirði
í símtali við blaðið í gær. Það
er að gólffleti mesta hús á ís-
landi, um 6600 fermetrar, og á
að taka um 15 þúsund smálestir
mjöls. Á því voru tvenn ris,
sem þó mun ekki hafa verið
hentugt byggingarlag, því að
snjór safnaðist á þakið milli
risanna. Komust fróðir menn að
þeirri niðurstöðu, að um 2000
smálestir af blautum snjó rúm-
uðust þar. í þokkabót var svo
þakið mjög veikviðað, til dæmis
voru langbönd öll bæði grönn
og gisin og sperrur sömuleiðis.
Snjóþyngslin ekki í líkingu við
það, er þau geta mest orðið.
Afleiðing af þessu varð svo sú,
að þakið hrundi nú þegar á
fyrsta vetri. Hafði allmikill snjór
hvílt á þakinu síðustu vikur, og
var það fyrir löngu tekið að
svigna allmikið, og hina síðustu
daga þótti sýnt, að þáð hlyti að
brotna. Ekki voru þó snjóþyngsl-
(Framhald á 4. slðu)
Maður drukknar
Beitóný Gíslason, há-
seti á vélb. „Muninn“
frá Sandgerði.
Aðfaranótt s.l. föstudags vildi
það sviplega slys til, að háseta
á vélbátnum „Muninn“ frá
Sandgerði tók út og varð honum
ekki bjargað. Var það Benóný
Gíslason til heimilis að Set-
bergi í Miðneshreppi.
Skipverjar á „Muninn“ voru
búnir að leggja línuna, er slys-
ið varð. Voru þeir að lagfæi'a
ýmislegt á þilfarinu, er brot-
sjór reið allt í einu yfir bátinn
og tók Benóný heitinn út. Þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir tókst
ekki að bjarga honum.
Benóný heitinn var 20 ára
að aldri.