Tíminn - 03.05.1947, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Stmar 2353 og 4373
; PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
: .ITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
simur 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu ÖA
Slmi 2323
31. árg.
Reykjavík, laugardagiim 3. maí 1947
81. blað
ERLENT YFIRLIT:
ERFIÐLEIKAR RAMADIERS
Fjórða lýðveldinu er talið hætt, ef
Ramadier misheppnast stjórnar-
forustan
Ný stjórnarkreppa er nú talin yfirvofandi í Frakklandi. Til-
efni hennar eru nýjar kaupkröfur verkamanna. Kommúnistar
hafa lýst yfir stuðningi sínum við þær, en hinir stjórnarflokk-
arnir telja þær óaðgengilegar. Ramadier forsætisráðherra hefir
látið svo ummælt, að allt viðnám gegn dýrtíðinni sé úr sögunni,
ef kaupið sé hækkað á nýjan leik, og .það myndi reynast verka-
mönnum sjálfum verst.
Mál þessi urðu fyrst aharlegt
ágreiningsefni innan ríkis-
stjórnarinnar fyrir fáum dög-
um, þegar 20 þús. verkamenn
í París gerðu verkfall í bifreiða-
verksmiðjum ríkisins (Renault-
verksmiðjunum). Fulltrúar
kommúnista í ríkisstjórninni
lýstu sig strax fylgjandi kröfum
verkfallsmanna, og á útifundi
verkamanna 1. maí lýsti Thores
varaforsætisráðherra, en hann
Ramadier.
er aðalleiðtogi kommúnista, því
yfir, að hann væri fylgjandi al-
mennum kauphækkunum. í til-
efni af þessu hefir Ramadier
ákveðið að 4eita eftir trausts-
yfirlýsingu þingsins og fá þann-
ig stuðning þess við stefnu
meirihluta ríkisstjrfrnarinnar í
kaupgjaldsmálum. Ef kommún-
istar greiða atkvæði á móti eða
setja hjá, má búast við stjórnar-
skiptum.
Þetta er í annað sinn, sem
stjórnarkreppa vofir yfir Frakk-
landi síðan stjórn Ramadiers
kom til valda um miðjan janúar
síðastl. Seint í roárzmánuði
neituðu kommúnistar að styðja
fjárveitingu til franska hersins
í Indó-Kína. Ramadiar hótaði þá
afsögn. Kommúnistar slökuðu
þá þannig til, að ráðherrar
þeirra greiddu atkvæði með
fjárveitingunni, en aðrir þing-
menn þeirra sátu hjá.
Paul Ramadier hefir mjög
aukið álit sitt síðan hann varð
forsætisráðherra, því að kostir
þeir, sem áður höfðu aflað hon-
ERLENDÁR FRETTIR
Á aukaþingi sameinuðu þjóð-
anna hefir meðferð Palestínu-
málsins verið rædd á nefndar-
fundum undft.ij.farna daga. Lik-
legt þykir, að sú stefna verði
ofan á, að málið verði ekki rætt
endanlega nú, heldur falið
nefnd til athugunar, er leggi
tillögur sínar fyrir þingið í
haust. Egiptar hafa ákveðið að
leggja þá tillögu fyrir þingið, að
Palestína verði þegar sjálfstætt
ríki og umboðsstjórn Breta
hætti af sjálfu sér, en vafasamt
er, að sú tillaga komi til at-
kvæða að þessu sinni..
Það einkenndi víðast 1. maí-
hátöðahöld verkamanna að
þessu sinni, að kommúnistar
reyndu að nota þau til flokks-
legs áróðurs fyrir sig.
Fjórir BirkibeirLar á 20. öld
um viðurkenningar, hafa komið
enn betur í ljós. Takist honum
ekki að halda um stjórnvöl
Frakklands á þessum tíma, þyk-
ir ólíklegt að öðrum takist það,
nema þá að til stærri tíðinda
dragi.
Ramadier verður 59 ára gam-
all í þessum mánuði. Hann er
lögfræðingur að menntun og var
um skeið málafærslumaður við
yfirréttinn í París. Árið 1928 var
hann kosinn borgarstjóri í
Decazeville, sem er iðnaðarborg
í Aveyron. Hann var kjörinn
þingmaður sama ár og hefir
verið endurkosinn jainan síðan.
Hann var fyrst í jafnaðar-
mannaflokknum, en gekk úr
honum 1933 og myndaði þá
nýjan flokk með Poul Boncour,
ásamt ýmsum öðrum, er töldu
jafnaðarmannaflokkinn of rót-
tækan. Flokkur þessi tók þó þátt
í alþýðufylkingarstjórn Leon
Blums og var Ramadier aðstoð-
arráðherra í henni. Heyrðu
samgöngur og verklegar fram-
kvæmdir undir ráðuneyti hans.
Þegar Chautemps myndaði
stjórn í janúar 1938 varð Rama-
dier félagsmálaráðþerra og
gegndi einnig þvi embætti í
stjórn Daladiers, unz hún lét
af völdum í marz 1940. Hann
þótti sína mikinn dugnað í
þessu starfi. Þeim Daladier
kom yfirleitt vel saman að und-
anskildu því, að Ramadier var
mótfallinn banninu á kommún-
istaflokknum.
Ramadier var einn þeirra
þingmanna, sem greiddu at-
kvæði gegn vopnahléssamningn-
um og einveldi Petains. Það var
líka eitt fyrsta verk Vichy-
stjórnarinnar að svipta hann
borgarstjóraembætti sínu.
Ramadier tók fljótlega virkan
þátt í mótstöðuhreyfingunni og
hófst þá samvinna milli hans og
Blum og Auriol, sem leiddi m. a.
til þess^ að hann gekk í jafnað-
armannaflokkinn aftur. Vetur-
inn 1944 var svo komið, að hann
varð að flýja land og komst
hann til Norður-Afríku. Þar tók
hann sæti á bráðabirgðaþingi
de Gaulle og varð síðar birgða-
málaráðherra í fyrstu stjórn
hans. Hann þótti leysa það erf-
iða starf vel af hendi og fór de
Gaulle mjög lofsamlegum orð-
um um hann, þegar manna-
skipti urðu í þessu embætti í
maí 1945.
Ramadier hefir frá fyrstu tíð
verið einlægur samvinnumaður
og tekið mikinn þátt í sam-
vinnustarfinu. Hann hefir gegnt
margvíslegum trúnaðarstörfum
innan frönsku samvinnuhreyf-
ingarinnar og m. a. átt sæti
í miðstjórn Alþjóðasambands
samvinnumanna. Kynni hans af
samvinnuhreyfingunni munu
hafa átt sinn þátt í því, að hann
taldi jafnaðarmannaflokkinn of
þjóðnýtingarsinnaðan, er hann
gekk úr honum 1933. Honum var
ljóst, að úrræði samvinnunnar
voru enn betri en úrræði þjóð
nýtingarinnar. Samvinnuhreyf-
ingin mun og hafa kennt hon-
um, að verkamenn tryggja sér
betri kjarabætur með hag-
kvæmri verzlun og lækkun
(Framhald á 4. síðu)
Norömenn liafa látið gera kvikmynd, sem nefnist Englandsfararnir, til
minningar um baráttu Norðmanna gegn nazistum á hernámsárunum. Þessi
mynd kvað spegla vel og glæsilega hina hetjulegu baráttu Norðmanna
á þeim mannraunaárum. — Hér að ofan sjást fjórir skæruliðar, sem
koma fram í myndinni. Nöfn þeirra cru, talið frá vinstri: Jörn Ording,
Ola Isene, Knut Wigert og Laurits Falk.
Aðalfundu.r Búnaðar-
sambands Yestfjarha
Guðimmdur Ingi kosinn formaður sambaitdsins
Aðalfundur Búnaffarsambands Vestfjarffa var haldinn á ísafirffi
dagana 26.—28. maí. Fundinn sátu 19 fulltrúar af félagssvæðinu,
auk formanns og gjaldkera sem eru sjálfkjörnir á fundinn. Rætt
var um ýms sérmál sambandsins og málefni búnaðarins almennt.
Á fundinum voru samþykktar ýmsar athyglisverðar tiillöguT.
Tíffindamaffur blaffsins átti í gær tal við Jón H. Fjalldal, vara-
ícrmann sambandsins, sem er staddur hér í bænum um þessar
mundir og spurffi hann frétta af fundinum.
Fáliðaðar
hópgöngur
1. maí
Á Akureyri aðeins
hálfl annað hundrað
niaims
Hátíðahöld verkalýðsfélag-
anna fóru svipað fram og verið
hefir undanfarin ár, þó voru
hópgöngurnar miklu fámennari
en undanfarin ár, að minnsta
kosti bæði í Reykjavík og á Ak-
eureyri. Á Akureyri tók til dæm-
is aðeins hálft annað hundrað
manns þátt í hópgöngunni, þar
með talin börn og unglingar.
í Reykjavík var hópurinn
stórum þunnskipaðri en verið
hefir og stórum fámennara en
oftast áður við ræðuhöldin á
Lækjartorgi.
Dagskrá útvarpsins í fyrra-
kvöld var að mestu leyti helguð
Alþýðusambandinu, og voru
meðal annars flutt skemmtileg
viðtöl við ýmsa aldraða braut-
ryðjendur innan verkalýðssam-
takanna og leiknir kaflar úr
Sölku Völku eftir Halldór Kiljan
Laxness.
Jón Rafnsson, framkvæmda-
stjóri Alþýðusambandsins, flutti
einnig ræðu. Er hún með þeim
hætti, að ekki er vítalaust. Hann
notaði aðstöðu sína til harðsvír-
aðs flokksáróðurs, svo að ekki
gaf eftir svæsnustu Þjóðvilja-
greinum. Slík framkoma hlýtur
að vera verkalýðshreyfingunni
til óþurftar. Innan verkalýðs-
samtakanna er fólk úr öllum
flokkum og fólk, sem engum
flokkum er háð, þótt svo vilji
til, að kommúnlstar hafi meiri-
hluta í stjórn Alþýðusamþands-
ins sem stendur. Þetta fólk á
mörg sameiginleg baráttumál og
nauðsynjamál, sem pru alls ó-
skyld flokkshagsmunum komm-
únista, og það eru þau, sem
verkalýðurinn á íslandi ætlast
til að sé rætt um á þessum
degi, þegar útvarpsráð sýnir þá
velvild að lána útvarpið 1. mai.
finnst viö
Síðdegis í fyrradag fannst lík
Gunnars Rasmussens, sem hvarf
af Suðurlandsbraut síðastl.
haust í námunda við Geitháls.
Hafði hann yfirgefið bilaðan bíl
og var undir áhrifum áfengis.
Var hans leitað mikið, en sú leit
bar engan árangur þá. í fyrra-
dag fannst líkið svo loks tveggja
kílómetra veg frá Reynisvatni.
Þegar Gunnar hvarf í haust,
hafði hann farið að kvöldi hins
1. okt. upp að Geithálsi ásamt
félaga sínum og voru þeir báðir
undir áhrifum víns, einkum þó
Gunnar og ók hann sjálfur bif-
reiðinni. Þegar þeir héldu heim,
tóku þeir hermann og stúlku í
bílinn og óku svo út af veginum
skammt frá afleggjaranum
heim að Hólmi.
Bifreið sem bar þar að fór með
farþegana til bæjarins. Lög-
(Framhald á 4. siðu)
Tekjur sambandsins voru á-
ætlaðar 166.372,07. Hæsti gjalda-
liður er til vélakaupa vegna
jarðræktarsamþykktar sam-
band ins kr. 140.000,00, enda
hefir sambandið nú einbeitt
starfskröftum sínum að því að
útvega j arðræktarsamþykktar-
svæðum sínum nægan vélakost,
samkv. skuldbindingum jarð-
ræktarsamþykktarinnar, til hins
mikla átaks að koma upp vél-
tækum túnum til fóðuröflunar
öllu búfé á hverri jörð á sam-
bandssvæðinu. Hefir sambandið
því orðið að leggja önnur verk-
efni sin á hilluna, í bili, en
nauðsynlega starfrækslu sam-
bandsins.
Á þessu ári eru liðin 40 ár
síðan sambandið var stofnað.
Var afmælisins minnst með
samsæti fundarmanna og nokk-
urra stuðningsmanna sambands
ins, sem gesta, á Uppsölum,
sunnudaginn 27. apríl, en sam-
bandið var stofnað 2. maí 1907.
Formaður sambandsins Krist-
inn Guðlaugsson var eini fund-
armaðurinn sem mættur var á
stofnfundinum fyrir 40 árum.
Var hann varaformaður sam-
bandsins tvö fyrstu starfsár
þess, síðan stjórnarnefndar-
maður til 1919, en þá var hann
kosinn formaður þess og hefir
verið það óslitið síðan.
Stýröi hann hófi þessu og
flutti aðalræðuna fyrir minni
sambandsins og skýrði einkum
Norrænafélagið gengst fyrir
móti norrænna verzlunarmanna
í Danmörku
Islenzku námsineimiriiir láta vel af sér
i Svíþjóð
Gufflaugur Rósinkranz, ritari Norrænafélagsins skýrffi tíffinda-
manni blaffsins frá því í gær, aff íslenzku nemendurnir sem boffin
var ókeypis skólavist í Svíþjóð síffastl. vetur, láti hiff bezta af
sér í sænsku skólunum. M. a. skýrffi Gufflaugur frá þvf, aff 12
íslenzkum verzlunarmönnum hefffi veriff boffin þátttaka í móti
norrænna verzlunarmanna sem halda á í Danmörku í sumar.
frá tildrögum sambandsstofn-
unarinnar og starfsemi þess.
Margar ræður voru fluttar í
hófinu.
Kristinn Guðlaugsson baðst
undan endurkosningu. í stað
hans var Guðmundur Ingi
Kristjánsson skáld að Kirkju-
bóli kosinn formaður.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt um almannatrygging-
arnar:
„Það er þegar komið í ljós, að
mjög mörg ákvæði hinna nýju
laga um almannatryggingar eru
lítt viðráðanleg fjárhagslega
fyrir gjaldendur og mörg á-
kvæði þeirra ranglát og lítt
framkvæmanleg í því formi, sem
þau eru.
Fyrir því skorar aðalfundur
Búnaðarsambands Vestfjarða á
Alþingi, ríkisstjórn og trygging-
arráð að hefja nú þegar ræki-
lega endurskoðun laganna og
færa þau í það form, að þau
verði fjárhagslega viðráðanleg,
vil! í því sambandi benda á eft-
irfarandi atrVði meðal annars:
1. Að aldurstakmark þeirra,
sem iðgjaldsskyldir eru til sjóðs-
ins, verði fært upp í 18 ára
aldur.
2. Að gjöldum atvinnurekenda
samkv. 112 gr. verði með öllu
létt af atvinnurekendum, en
hver kaupi sér sjálfur þá trygg-
ingu.
3. Að fjölskyldubætur verði
eigi greiddar til efnaðra for-
eldra.
4. Að fæðingarstyrkur sé jafn
til allra mæðra.
5. Að sýslunefndir kjósi trygg-
inganefndir".
Eftirfarandi tillaga var sam7
þykkt um skrásetningu eyði-
jarða:
„Aðalfundur Búnaðarsam-
bands Vestfjarða skorar á Bún-
aðarfélag íslands að láta skrá-
setja eyðijarðir þær, er fallið
hafa úr ábúð á s.l. 10 árum. Gef-
in sé lýsing á eyðijörðunum,
(Framhald á 4. síðu)
Á síðastliðnu hausti var 6 ís-
lenzkum nemendum boðin ó-
keypis dvöl í einn vetur við
sænska lýðháskóla. Norræna fé-
laginu sænska hafði tekist að
fá styrk frá ríkinu til þess að
Þetta væri gott, að forráða- . geta vem þessa styrki. Þessir
menn Alþýðusambandsins hefðu: ísienzku nemendur hafa nú
í huga framvegis.
Bílstjóri fékk happ-
drættisbílinn
í fyrradag fór fram dráttur
í happdrætti því sem bifreiða-
stjórafélagið Hreyfill hafði efnt
til. Bifreiðin kom upp á nr.
29.419 en hinn vinningurinn,
sem var tíu daga ferð meö
(Framhald^á 4. siðu)
dvalið í skólanum í vetur og láta
mjög vel yfir sér. Talið er víst
að sænska ríkið veiti styrkinn
áfram á þessu ári og gefst þá,6
íslenzkum lýðháskólanemendum
kostur á að dvelja ókeypis við
sænska lýðháskóla næsta vetur
einnig. Þeir sem hefðu hug á
slíkri skólavist, geta sent um-
sóknir sínar til Norræna félags-
ins á íslandi fyrir 15. ágúst, en
umsóknunum þurfa að fylgja
meðmæli skólastjóra þess skóla,
er nemandinn hefir numjð við
en hann þarf að hafa verið
minnst einn vetur í héraðs-
skóla hér heima, til þess að geta
komið til greina, sem umsækj-
andi um þessa ókeypis skólavist.
Mót norrænna verzlunarmanna,
er Norræna félagið í Dan-
mörku gengst fyrir, verður háð
á Hindsgavl dagana 1.—10. júni.
Tólf íslenzkum verzlunarmönn-
um er boðið að taka þátt í mót-
inu sem gestum Norræna fé-
lagsins í Danmörku allan tím-
ann, sem dvalið verður á Hind-
gavl. Mót þetta verður með svip-
uðum hætti og þau mót fyrir
verzlunarmenn, sem félagið
gekkst fyrir fyrir striðið. Ýmsir
þekktustu forvigismenn Dana
innan viðskiptalífsins og fram-
leiðslunnar halda þarna fyrir-
lestra, mörg af stærri fyrirtækj-
(Framhald á 4. siðu)
Lætur sér ekki allt
fyrir brjósti brenna
Það vakti alheimsathygli,
þegar itölsk kona myrti í vetur
enska hershöfðingjann de Wint-
on. Þessi framtakssama kona
heitir signorita Pasquinelli, og
hér á myndinni sést hún fyrir
dómstóli Bandamanna í Trieste.