Tíminn - 06.05.1947, Blaðsíða 1
31. árg.
ERLENT YFIRLIT:
Afvopnunin og atomsprengjan
Litlar horfur á samkomulagi milli stór-
veldanna um þessi mál.
Á þingi sameinuðu þjóðanna í vetur, þóttu nokkrar líkur til
þess, að samkomulag gæti náðst milli stórveldanna um afvopn-
unarmálin og meðferð atomsprengjunnar. Vonir þessar voru m.
a. byggðar á því, að Rússar höfðu látið á þinginu eins og þeir
hefðu mikinn áhuga fyrir slíku samkomulagi. Síðan hafa þess-
ar vonir veikzt mikið. Flest, sem hefir gerzt síðan þinginu lauk,
bendir til þess, að samkomulag
svo að ekki sé meira sagt.
Fyrir fáum dögum síðan hefir
nefnd sérfræðinga frá stórveld-
unum, er átti að undirbúa frum-
tillögur um tilhögun afvopnun-
arinnar og stofnun alþjóðahers
sameinuðu þjóðanna, skilað til-
lögum sínum klofin. Rússar
eru þar annars vegar, en Bapda-
ríkjamenn, Bretar og Frakkar
hins vegar.
Ágreiningsefni nefndarhlut-
anna eru margs konar. Banda-
menn vilja ekki hefjast handa
um almenna afvopnun fyrr en
alþjóðahernum hafi verið kom-
ið á fót og vilja því láta hraða
stofnun hans sem mest. Rússar
vilja, að strax sé hafizt handa
Frumleg tillaga um
sættir stórveldanna
Mynd þessi er af Elliot, syni Roose-
velts forseta. Hann er einn af helztu
gagnrýnendum Trumans forseta vegna
stefnu hans í utanríkismálúm. Elliot
var fyrir nokkru í Moskvu og átti þar
viðtal við Stalin og fékk yfirleitt höfð-
inglegar móttökur. Annars hefir hann
vakið einna mesta athygli á sér fyrir
þá tillögu, að Stalin, Truman og Att-
lee verði lokaðir inni í sama klefanum
og verði ekki sleppt út aftur fyrr en
þeir séu búnir að koma sér saman
um ágreiningsmál stórveldanna.
ERLENDAR FRÉTTIR
Traustsyfirlýsing til stjórnar
Ramadiers var samþykkt í
franska þinginu á sunnudaginn
með atkvæðum jafnaðarmanna,
katólskra framsóknarmanna og
radikala. Kommúnistar greiddu
atkvæði á móti, en hægri menn
sátu hjá. Ráðherrar kommún-
ista eru farnir úr stjórninni, en
líkleyt þykir, að hún sitji áfram.
Gandhi hefir látið svo um-
mælt, að svo geti farið, að Ind-
verjar jmrfi að biðja Breta að
vera lengur í Indlandi, ef ekki
dragi úr óspektum og æsingum
í landinu.
Brezk iðnaðarsýning, sem mik-
ið er látið af, var opnuð um
helgina. Um 3000 iðnaðarfyrir-
tæki taka þátt í henni.
um þessi mál eigi langt í land,
um afvopnunina og megi eins
semja um stofnun og skipun al-
þjóðahersins síðar. Bandamenn
vilja, að alþjóðaherinn sé mynd-
aður þannig, að hver hinna sam-
einuðu þjóða leggi fram mann-
afla í isamræmi við fólksfjölda
sinn, og síðan verði herinn lát-
inn hafa bækistöðvar, þar sem
hans sé álitin mest þörf og hann
sé bezt settur. Rússar vilja, að
alþjóðaherinn verði eingöngu
skipaður herliði frá stórveldún-
um og hafi það bækistöðvar i
heimalöndum sínum, þegar ekk-
ert sérstakt sé um að vera.
Hér er um svo mikinn skoð-
anamun að ræða, að ekki er lík-
legt, að samkomulag náist um
afvopnunarmálin fyrst um sinn.
Ágreiningurinn um meðferð
kjarnorkusprengjunnar er engu
minni. Rússar krefjast, að allar
þjóðir fái að vita, hvernig fram-
leiðslu sprengjanna sé háttað,
en síðan verði framleiðsla þeirra
bönnuð og allar slíkar sprengjur
ónýttar. Bandaríkin segjast ekki
geta fallizt .á þesar tillögur
Rússa, nema áður hafi verið
komið á svo ströngu alþjóðaeft-
irliti, að tryggt sé, að framleiðsla
þeirra geti hvergi átt sér stað.
Rússar neita að fallast á slíkt
eftirlit. Nýlega neitaði t. d.
Gromiko, þegar þetta mál var
rætt í öryggisráðinu, að fallast
á, að flugvélar frá sameinuðu
þjóðunum fengju að fljúga ó-
hindrað yfir löndin í slíku eftir-
litsskyni. Hann kvað Rússa ekki
geta leyft slíkt, því að þannig
mætti koma við ýmsum njósn-
um. Meðan Rússar vilja ekki
fallast á slíkt eftirlit, hindra
þeir samkomulag um þessi mál.
H.f. Shell eignast nýtt
olíuflutningaskip
Hluta félagið Shell á íslandi
hefir fest kaup á nýju olíuflutn-
| ipgaskipi, sem kom hingað til
jlands í gærmorgun. Er þetta
, annað olíuflutningaskipið, sem
íslendingar eignast.
, Þetta nýja olíuflutningaskip
ber 300 smálestir olíu, og á það
fyrst um sinn að heita Skelj-
ungur I. Gamli Skeljungur, sem
einnig er eign Shell, verður hins ;
vegar seldur úr landi.
I Nýi Skeljungur er þriggja ára'
gamall, smíðaður í Englandi, en 1
lenti í eig'u Norðmanna, og af
þeim var hann keyptur hingað.
Segja skipverjar, að hann sé
sjóskip gott. Enda þótt hann
sé helmingi stærri en gamli
Skeljungur, er áhöfnin hin
sama, tólf manns. Gerði for-
stjóri Shell ráð fyrir því, er
blaðamennirnir áttu tal við
hann, að þetta skip myndi lang-
drægt fullnægja olíuflutninga-
þörfinni, svo að ekki þyrfti að fá
leiguskip, nema þá mánuði árs-
l ins, þegar allra mest er að gera.
Skipstjóri á nýja Skeljungi
iverður Brynjólfur Kjartansson,
sem áður var skipstjóri á gamla
Skeljungi. Hefir hann verið við
olíuflutninga hér við land síð-
ustu fjórtán ár. |
Reykjavík, þriðjudagiim 6. maí 1947
Þarna var morðLð framið
83. blað
Þessa mynd tók lögreglan inni í skálanum, þar sem hinn vitstola maöur myrti telpuna, Kristínu Kjartansdóttur.
Lík hennar lá á bekknum, sem sést á myndinni, þegar komið var að. — Blóðflekkirnir sjást á gólfinu. —
Fáheyrt illræðisverk drýgt
á laugardagskvöldið var
Vitstola mallur myrðir tveggja ára telpu og
særir móður liennar og systur.
Tvísýnt um líf mæðgnanna, er eftir lifa.
Síðastliðið laugardagskvöld vildi sá hryllilegi atburður til í
Reykjavík, að brjálaður maður, Ingólfur Einarsson að nafni,
myrti lítið stúlkubarn með hníf og særði auk þess móður þess
og systur miklum sárum. Þessi sorglegi atburður gerðist kl. 8.40
um kvöldið í bragga við Háteigsveg. *
Tíðindamaður blaðsins átti í
gær tal við Kjartan Friðberg
Jónsson, sem er eiginmaður
konunnar, sem varð fyrir árás-
inni, Aðalheiðar Georgsdóttur.
Kvað hann árásarmanninn hafa
áður gert tilraun til að ráðast á
fólk, og hefði hann orðið til
þess a#bjarga tveimur mönnum
úr klóm hans. Öðrum þeirra
hjálpaði hann á slysavarðstof-
una eftir tilræðið. Ekki varð úr
því í það skipti, að árásin væri
kærð. — Ingólfur bjó í báru-
járnsskúr skammt frá skála
þeim, er þau hjónin Kjartan og
Aðalheiður, bjuggu í.
Annars hefir Ingólfur alla tíð
verið öðru vísi í framkomu en
fólk er flest og nokkuð drykk-
felldur. En fullvíst er nú talið,
að þegar ódæmið var framið,
hafi hann ekki verið undir á-
hrifum víns.
Eftir því, sem bezt verður
vitað, vildi atburðurinn til með
þessum hætti:
Aðalheiður Georgsdóttir var
stödd í þvottahúsi, sem er 8
metra frá skáladyrum hennar,
og var að þvo þvott, þegar eldri
telpan hennar, Sigríður, kemur
til hennar, hlaupandi og alblóð-
ug og getur ekki komið upp
neinu orði. Hleypur konan þá
strax út úr þvottahúsinu og ætl-
ar inn í skálann, sem hún býr í.
En í ganginum ræðst hinn
brjálaði maður að henni, án
þess ajð það skipti nokkrum tog-
um. Þegar hún reyndi að kom-
ast framhjá manninum inn í
herbergið, þar sem yngri dóttir
hennar, Kristín, var, tókst á-
rásarmanninum að særa hana,
og þá hljóp hún út til að ná í
hjálp.
Rannsóknarlögreglan hóf þeg-
ar rannsókn í málinu og yfir-
heyrði Ingólf þá um nóttina.
Fer hér á eftir útdráttur úr
framburði hans:
í framburði sínum skýrir
Ingólfur Einarsson frá því, að
hann hafi ekki verið undir á-
hrifum áfengis, er hann framdi
Sænsku blöðin leið-
rétta viðtalið við
Stefán Jóhann
Stefán Jóhann Stefánsson
forsætisráðherra skýrði frá því
utan dagskrár í neðri deild í
gær, að öll sænsku blöðin, sem
hefðu rangfært viðtal við hann
og kommúnistar hefðu gert mik-
ið veður út af, hefðu nú birt
greinar, þar sem ranghermin
væru leiðrétt. Ráðherrann hafði
fengið sendiherra Svía hér og
sendiherra íslands í Stokkhólmi
til þess að koma leiðréttingun-
um 'á framfæri. /
Það, sem blöðin höfðu rangt
eftir forsætisráðherranum, var
einkum það, að hann hefði átt
að segja, að Rússar myndu hafa
reynt að tryggja sér flugrétt-
indi hér, ef flugvallarsámning-
urinn hefði ekki verið gerður
við Bandaríkin. Einnig létu sum
þeirra hann segja, að samning-
urinn skerti sjálfstæði íslands.
Blöð þau, sem hér áttu hlut að
máli, voru Dagens Nyheter,
Stockhloms-Tidningen og
Svenska Dagbladét.
Þetta eru telpurnar, sem urðu fyrir árásinni. Vinstra megin er Kristín,
tveggja ára hœgra megin Sigríður, átta ára.
ódæðisverkið. Hins vegar. hafi
hann á föstudaginn bragðað lít-
ilsháttar vín og á laugardaginn
kvaðst hann hafa verið illa fyr-
irkallaður, enda ekki sofið vel
um nóttina.
Síðla dags á laugardaginn, eða
á tímabilinu milli kl. 19.00 og
20.00 lá hann á legubekk heima
hjá sér. Allt í einu hefði gripið
sig æði_ hann sprottið upp af
bekknum, farið í jakka og tekið
borðsax, sem hann geymdi í
skúffu hjá sér. Síðan hefði hann
hlaupið út úr skúrnum ákveð-
inn í að far í bragga nr. 1 við
Háteigsveg, sem var þar rétt
hjá, og stinga það fólk með sax-
inu, sem þar kynni að vera.
Ingólfur segist hafa verið með
æði allan tímann meðan á árás-
inni stóð. Hann sagði, að tvö
börn hefðu verið inni í bragg-
anum og þau hefði hann bæði
stungið með sveðjunni. Meðan
hann var að þessu, hefði móðir
barnanna komið inn í skálann.
Hfenn réðst strax á hana og
stakk hana nokkrar stungur.
Síðan segir hann, að konan hafi
hlaupið út úr bragganum, en
börnin hafi legið eftir (þetta er
þó ekki rétt, því að eldri stúlk-
an komst út úr bragganum),
svo hafi fólk safnazt að bragg-
anum, hann hafi verið hand-
tekinn og fluttur á lögreglu-
stöðina. j
Framburður Jóns Tryggva
, Valentínussonar, j árnsmíða- 1
nema, Hverfisgötu 82, er svo-1
hljóðandi: j
„í kvöld var ég gestkomandi |
i bragga nr. 3 við Háteigsveg, j
Ég var þar hjá unnustu minni.
Páhnu Þorleifsdóttur. Kl. 20.00
til 21.00 kom kona inn í dyrnar
á bragganum og bað um hjálp
og hrópaði um, að einhver mað-
um, sem ég man ekki hvaö hún
nefndi, væri að drepa börnin
sín. Inni í bragganum var einn-
ig Þorleifur Þorleifsson og hlup
um við báðir út, er konan kall-
aði.
Ég veit ekki um nafn á kon-
unni, en hún leit út fyrir að
vera mikið særð og sá ég, að
blóð rann úr sári eða sárum,
sem hún hafði á brjóstinu og
einnig á bakinu. Líka var hún
(Framhald á 4. síðu)
IVý llstgrein:
Steingerður Guð-
mundsdóttir sýnir
„einleik”
Innan fárra daga mun ung
listakona kynna íslendingum
nýja listgrein, sem nefnd er
mono-drama, er 1 rauninni er
eins manns leikur. Þessi unga
listakona er Steingerður Guð-
mundsdóttir. ,
Steingerður Guðmundsdóttir
stundaði nám í leikskóla Lárus-
ar Pálssonar 1941—1943 og lék
Önnu í „Orðinu“ eftir Kaj Munk.
Haustið 1943 hélt hún til Ame-
ríku og innritaðist á American
Academy of Dramatic Art í New
York og hlaut þar ókeypis
kennslu um skeið. Samhliða því
námi sótti hún tíma hjá Mikhail
Mordkim balletmeistara og nam
(Framhald á 4. síöu)
'
Aðalheiður Georgsdóttir.
Kjartan Friðberg Jónsson.