Tíminn - 21.05.1947, Síða 2
TÍMINJV, niiðvikuclagiiui 21. maí 1947
01. bláð
VETTVflNGUR ÆSKUNNflR
• *
M4LGAGi\ SAMBANDS l\GKA FRAMSÓMAItMAMA. — RITSTJÓRI: JÓ\ DJALTASON.
Dýrtíbin og námsfólk'Lð
Myndin hér að ofan er af Menntaskólanum á Akureyri. Þar er nú í
smíðum mjög myndarlegt heimavistarhús fyrir nemendur, skammt frá
skójanum.
Nokkur orð um nýsköpun
Miðv.duyur 21. maí
Eignakönminin
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um eignakönnun, er lengi hefir
verið beðið eftir, hefir nú verið
lagt fram. Mun Alþingi hafa það
til meðferðar næstu daga, en
sennilega verður afgreiðslu þess
lokið fyrir mánaðamótin.
Það kemur ekki á óvart, þótt
frv. þetta hljóti ýmsa misjafna
dóma, því að ráðstafanir eins
og þessar njóta aldrei almennra
vinsælda. Þær koma alltaf nokk-
uð hart við einhverja og fyrir
það verður aldrei að' fullu girt,
að einn sleppi betur en annar.
Möguleikarnir til að ala á tor-
tryggni gegn slíkum lögum eru
því talsverðir, enda verða þeir
vafalaust notaðir til hins ítrasta
af andstæðingum þeirra.
Við nánari athugun munu
þó flestir komast að þeirri nið-
urstöðu, að þessar ráðstafanir
eru nauðsynlegrar. Það er vitan-
legt, að fé hefir verið dregið
undan sköttum í stórum stíl.
Þetta hefir skapað hið full-
komnasta ranglæti gagnvart
þeim mörgu skattgreiðendum,
er talið hafa rétt fram, þar sem
þeir hafa orðið að greiða hærri
skatta og útsvör en ella. Ef slíkt
ástand væri látið haldast áfram,
væri öllum réttargrundvelli
kippt undan skattalöggjöfinni í
framtíðinni. Þess vegna er ó-
hjákvæmilegt að ráðast I að-
gerðir til þess að reyna að koma
þes<um málum á heilbrigðari
grundvöll til frambúðar. Al-
menn eignakönnun er fyrsta
sporið í þá átt.
Það leiðir af sjálfu sér, að
eignakönnunarfrv. ber þess svip,
að það er samkomulag ólíkra
flokka. Frá sjónarmiði Fram-
sóknarmanna er það næsta
hæpið, að menn geti keypt sér
eins konar syndakvittunarbréf,
^eins og á miðöldunum, er njóti
skattfríðinda og ekki séu fram-
talsskyld. Þetta er ekki heldur
gert fyrir þá smáu, því að þeir
hafa ekki bolmagn til að festa
fé sitt í eins langan tíma og hér
er gert ráð fyrir. Bót er það i
máli, að skattfríðindin falla
niður eftir 5 ár og bréfin verða
framtalsskyld, ef lagður verður
á sérstakur eignaskattur, sem
mörgum mun þykja eðlileg dýr-
tíðarráðstöfun, ef afurðaverð og
kaupgjald verður lækkað. Frá
sjónarmiði Framsóknarmanna
var sú leið álitin réttmætari að
taka vægt á smærri yfirsjónum,
sem flestar eru þannig tilkomn-
ar, að', menn hafa talið fram
fullar tekjur, en vanrækt að
telja fram állar eignir. Inn á
þetta sjónarmið hefir líka verið
gengið, þar sem 15 þús. kr. van-
talin eign verður ekki skatt-
skyld, og tiltölulega lágar
greiðslur þangað til vantaldar
eignir hafa komizt yfir 45 þús.
kr. Fyrir þá smáu er það áreið-
anlega miklu heppilegra að nota
sér þessa leið en bréfaleiðina.
Fyrir þá, sem kunna að telja
frv. ekki nógu strangt og ræki-
legt, er vert að gera sér ljóst,
að ekki hefði betur til tekizt,
ef sósíalistar hefðu verið með í
ráðum. Áki Jakobsson lýsti því
yfir við 1. umr. frumvarpsins í
neðri deild, að hann væri mót-
fallinn almennri eignaköryiun.
Það hefði ekki átt að láta hana
ná til launþega og annara, sem
ekki þættu líklegir til að vera
stórsekir. Hver og einn getur séð,
að slík eignakönnun, sem aðeins
hefði náð til nokkurs hluta af
skattþegnunum, hefði ekki orðið
Laun kvenna
Löngum hefir verið litið á
konur sem óæðri þjóðfélags-
þegna. Þróunin hefir þó gengið
í þá átt á allra síðustu öldum,
að þær hlytu jafnrétti á við
karla sem þjóðfélagsþegnar.
Áður fyrr var þeim með öllu
meinað að taka þátt í lagasetn-
ingu. íslendingar eiga heiður-
inn af því að vera með fyrstu
þjóðum heims, sem viðuiikenndu
rétt þeirra til þess. Hér fengu
konur kosningarétt og kjörgengi
til alþingis árið 1915.
Þó að þróunin hafi hér orðið
mjög hagstæð konum í þessu
efni fer þó víðs fjarri, að þær
hafi hlotið jafnrétti á við karla
á öllum þeim sviðum, sem sann-
girni mælir með því, að þjer eigi
rétt á. Vitanlega eru þeir ann-
markar ' á, frá náttúrunnar
hendi, að konur geta aldrei náð
jafnrétti við karla í öllu. Hins
vegar vil ég drepa hér á átriði,
sem ég tel sjálfsagt að tekið
verði til jákvæðrar úrlausnar af
stjórnarvöldum landsins. Eru
það launamál kvenna.
Víðast hvar um heim fá kon-
ur miklum mun minni laun en
karlaf, þó að um gersamlega
hliðstæða vinnu sé að ræða. Hið
sama hefir einnig verið hér á
landi fram á þenna dag. Ekki
stafar þetta þó af því að kohur
séu afkastaminni eöa óvand-
virkari en karlar yfirleitt. Til
dæmis er það undarlegt, að
stúlka, sem vinnur á skrifstofu
við hlið karlmanns, er vinnur
nákvæmlega sams konar vinnu,
skuli fá mun minna kaup. Ekki
stafar þetta af því, að skrif-
stofustúlkur skorti á hæfni til
starfans, því að viðurkennt er,
að eigi séu þær síður liprar til
þessa starfa en karlar. Hér ríkja
því önnur sjónarmið en tillit til
afkasta eða vandvirkni
Þetta annarlega sjónarmið
ríkir víðar en aðeins þegar um
skrifstofufólk ræðir. Tökum til
dæmis fiskvinnu, pökkun á
fiski. Víða eru stúlkur fengnar
til þess. Hvað er eðlilegra en að
þeim sé greitt sama kaup og
körlum? Ef engar stúlkur fengj-
ust til þess myndu karlar verða
að vinna þetta verk. Ekki fá þeir
(Framhald á 4. síðu)
annað en kák og glundroði, með
allar smugur opnar til þess að
koma eignum undan. En gott
dæmi er þetta um réttarfars-
hugmyndir Áka og flokksbræðra
hans að vilja láta lögin ná til
manna eftir því, hvernig þeir
skiptast i stéttir og flokka, en
ekki að láta þau ná jafnt til
allra.
Annars verður það ekki dæmt
af lögunum fyrst og fremst,
hvernig eignakönnunin fer úr
hendi. Reglugerðarákvæði og
val trúnaðarmanna munu ráða
öllu meira. Takizt þetta vel get-
ur það bætt úr ýmsum ágöllum,
sem á lögunum kunna að verða.
Eigi eignakönnunin líka að
koma að notum, þurfa að fylgja
á eftir fleiri ráðstafanir til að
tryggja rétt framtöl og koma í
veg fyrir skattsvik í framtíðinni.
Ríkisstjórnin mun líka þegar
hafa undirbúið endurskoðun
skattalaganna með þetta fyrir
augum og ættu tillögur um
nauðsynlegar endurbætur á
þeim að geta legið fyrir næsta
þingi.
Þegar stjórn Ólafs Thors og
sósíalista hóf feril sinn, var
áferðarfalleg stefnuskrá samin
um framfara- og þjóðnytja-
mál. Dugði ekki minna en skíra
framkvæmdirnar fyrirfram og
kalla nýsköpun atvinnulífsins.
Nú átti að tryggja atvinnu-
vegina. Aldrei framar skyldi at-
vinnuleysi vofa yfir. Alls staðar
skyldu koma fullkomnustu tæki
til að vinna úr auðlindum
landsins. Stríðsgróðanum — þá-
verandi 500 miljónunum, skyldi
óskipt varið í nýsköpunina.
Vissulega snotur stefnuskrá, ef
hún hefði verið framkvæmd.
Ekki byggði „nýsköpunarstjórn-
in“ stefnu sína á traustu bergi.
Hvergi var minnzt á aðgerðir
gegn vaxandi dýrtíð í landinu.
Blöð stjórnarinnar rituðu þá,
miklar lofgreinar um ágæti dýr-
tíðar. Það var kallað versta aft-
urhald, að vilja reisa alhliða
framfarir í atvinnulífi á traust-
um fjárhagsgrundvelli innan-
lands.
Nú er sopið seyðið af dýrtíð-
arstefnunni, *
Hvernig gekk svo nýsköp-
unin? Stjórnin gekkst fyrir
nokkrum skipakaupum. Nýju
togararnir virðast prýðilegir, en
örlagarík mistök urðu á Sví-
þjóðarbátunum. Stærsta ný-
sköpunarhúsið var svo óvand>-
lega smíðað, að þakið hrynur
undan nokkrum snjó fyrsta
veturinn, sem það stendur. Ekki
fara sögur af því, að nokkur
íslenzkur kotbóndi hafi verið
svo óforsjáll að reisa ekki
skemmu sína fokhelda eða svo
trausta, að þakið þyldi snjó-
þunga.
Þeir voru engir búmenn í
„nýsköpunarstj órninni“.
Hagfræðingarnir skiluðu áliti
um dýrtíðarstefnuna og öng-
þveitið, sem af henni hefir leitt.
Þeir sýndu þar fram á, að þorrin
væri 500 milj. innstæðan, sem
nota átti til endursköpunar at-
vinnulífsins. Þeir sýndu þar, aö
litlum hluta hennar hafi vérið
varið til nýsköpunar. Hitt fór í
súginn á ýmsan annan hátt, án
þess, að þjóðin hefði gagn af,
en oflangt er hér að rekja. Hag-
fræðingaálitið ber því sannastan
vott. Slík hefir stefnan verið í
reynd.
í landbúnaði átti einnig að
gæta nýsköpunar. Stór orð voru
um það höfð, en minna varð úr
framkvæmdum. Nokkuð var
flutt inn af heyvinnuvélum eins
og áður. Jeppar voru fluttir inn.
Fyrst var hreppabúnaðarfélög-
um fengin úthlútun þeirra,
Nýbyggingarráð tók hana þó
brátt í síriar hendur. Eitthvað
er gruggugt við þaö. Nú eru
hundruð landbúnaðarjeppa
skrásettir í Reykjavík og notaðir
til skemmtiferða ríkisfólks. Virð
ist lítil nýsköpun í því fyrir
landbúnaðinn. Með þeim jepp-
um, sem komizt hafa til bænda,
vantar fylgihluti, svo að mjög
skortir á, að fullkomin not fáist
af þeim ennþá. Á þessu þarf
bót-að ráðast.
Höfuðskilyrði þess, að aukin
ræktun verði er, að nægilegur á-
burður fáist. Á stríðsárunum og
fram að þessu hefir áburður
flutzt mjög af skornum skammti
Af þessu hefir leitt, að kyrkingur
hefir'komið í ræktun alla. Það
hefir enga þýðingu að leggja fé
í stórfellda ræktun, þó að rækt-
unarvélar séu góðar, ef ekki
fæst áburður til að ávöxtur
spretti af starfinu. Eigi nýbrotið
land að veröa tún, þarf mikinn
áburð. Eigi það að verða kál-
garður þarf meiri áburð.
Það er langt síðan fyrst har
á góma að reisa íslenzka á-
burðarverksmiðju. Ef við hefð-
um vélar í verksmiðjuna, ætti
okkur engin skotaskuld að verða
úr því að vinna áburðarefnin.
Einu sinni meðan „nýsköpun-
arstjórnin" sat að völdum kom
til umræðu á Alþingi, frumvarp
um innlenda áburðarverksmiðju-
Þá var nýsköpunaráhuginn ekki
meiri en svo, að stjórnin 461101
frumvarpið. Treysti hún sér
virkisgarð til að verjast bak við.
Kvað hún áburð, sem hér væri
hægt að framleiða hættulegt
sprengiefni. Ekki fara n^inar
sögur um sprengingar af völd-
um þessarar áburðartegundar.
Nokkrir sekkir hafa á síðustu
árum flutzt til bænda og gefizt
afburða vel.
Röksemdir stjórnarinnar fyrr-
verandi eru því úr lausu lofti
gripnar í þessu efni.
Með því að koma á fót áburð-
arverksmiðju hér á landi spar-
ast bæði erlendur gjaldeyrir og
lestarrúm flutningaskipa, en af
hvorugu höfum við gnægtir.
Bændur gætu haldið áfram að
yrkja jörðina, slétta móa, ræsa
mýrar, öruggir um að nýrækt-
in falli ekki í órækt vegna á-
burðareklu. íslendingar geta
orðið og eiga að verða sjálfum
sér nógir á flestum sviðum.
Með því að fella frumvarp um
áburðarverksmiðju, kippti „ný-
sköpunarstjórnin" fótunum und
an nýsköpun landbúnaðarins.
Við þörfnumst stórstígra fram-
(Framhald á 4. síöu)
gumir þeirra, sem réttlæta
vilja verðbólgustefnu síðustu
ára, hafa haldið því fram, að
verkamenn græddu á vexti dýr-
tíðar. Þetta er raunverulega
mesta firra. Á gengistíma verð-
bólgustefnunnar héldust kaup-
gjald og verðlag að mestu í
hendur. Verkamenn fengu að
\
vísu aukna krónutölu fyrir
vinnu sína, en þurftu ekki síður
aukinn krónufjölda fyrir nauð-
synjar sínar. Þeir græddu ekki
á verðbólgunni.
Það voru aðrir sem græddu á
verðbólgunni. Það voru ekki
þeir, sem unnu með afli handa
sinna. Það voru braskararnir,
þeir sem ávöxtuðu fé — stund-
um eigið, en stundum lán — í
alls konar gróðavænlegum fyrir-
tækjum, — oft heildsölu. Nú
segir almannarómur, að 80
miljónerar séu í Reykjavik einni.
Það væri fróðlegt að vita, hverj-
ir þeirra hafi grætt það á hand-
afli sínu!!
Það eru fleiri en verkamenn,
sem ekki hafa grætt á verð-
bólgunni. Það er ekki hægt að
kalla það stétt manna, en það
er allríflegur hópur æskunnar í
landinu, skólariemendur.
Tökum til dæmis stúdenta,
sem nám stunda við Háskólann.
Þeir greiða 450 kr. í fæði á mán-
uði hverjum, þó að þeir hafi
meö sér mötuneyti og reiknað sé
með kostnaðarverði. Þá greiða
þeir 125 kr. í húsaleigu, sem fá
vist á stúdentagörðunum. Þeir,
sem ekki hljóta vist þar, þurfa
sumir að búa við okurleigu úti
í bæ. Ennfremur greiða þeir 75
kr. á mánuði í þjónustugjald.
Hér eru fastir liðir teknir í lág-
marki. Lægsta fastagjald á
mánuði hverjum er því 650 kr.
Þeíta er samtals 5200 kr. yfir 8
mánuði ársins. Auk þessa þurfa
þeir að leggja sér til fatnað all-
an og námsbækur að minnsta
kosti. Föt kosta nú 6—700 kr.,
skór 80—90 kr., námsbækur og
víaindabækur í náonsgreininni
allt að 1000 kr. og þar yfir, ým-
islegt annað, svo sem skyrtur
(30—40 kr. stk.), bindi (15 kr.),
frakki (500 kr.) o. fl. fer upp I
1500 hjá þeim, sem engan mun-
að veitir sér, svo sem kvikmynd-
ir, dansleiki eða þess háttar.
Stúdent, sem fær sér náms-
Henry Wallace, fyrrum vara-
forseti Roosevelts Bandaríkja-
forseta, hefir nýlega lokið ferða-
lagi í Evrópu. Heimsótti hann
meðal annars Bretland og Norð-
urlönd. Hélt hann víða fyrir-
lestra um utanríkismál. Gagn-
rýndi hann I ræðum sínum þá
öldu tortryggni, sem risið hefir
milli Rússlands og Bandaríkj-
anna nú eftir styrjöldina, og
virðist magnast því lengra sem
líður. Brýndi hann fyrir mönn-
um, hvert stefndi, ef svo væri
fram haldið. En ekki taldi hann
styrjöld óumflýjanlega, en horf-
ur versnandi meðan slík tor-
tryggni efldist milli voldugra
stórvelda. Kvað hann þessa tor-
tryggni ekki öðrum aðilja að
kenna einungis. Rússar væru að
vísu yfirgangssamir, en Banda-
ríkin beittu ekki réttri stefnu
til mótvægis. Kvað hann þau
bækur, ein föt, frakka og skyrt-
ur og mat til að seðja hungur sitt,
en veitir sér engan munað, get-
ur þannig ekki komizt af með
minna en 10000 kr. yfir náms-
tímann. Fæstir eiga völ á svo
drjúgum sumartekjúm, að þær
hrökkvi nærri fyrir þessum
föstu gjöldum. Helzt hefir verið
leitað á síldarmiðin. Þau eru
stopul og hafa brugðizt hrapa-
lega nú síðustu 2 ár. Margir hafa
komið nálega slyppir eftir
tveggja mánaða vinnu. Hina 2
mánuðina vinna þelr verka-
mannavinnu, sem ekki gefur of
fjár í aðra hönd nettó. Oft hafa
stúdentar þannig aðeins 4—5
þúsund krónur eða minna eftir
sumarið. Hrekkur það vart fyrir
helmingi lágmarksútgjalda. Þó
að sumir fái styrk nokkurn frá
ríkinu er þó óhjákvæmilegt að
leita lána eða vinna með nám-
inu, sem eðlilega lengdi það að
mun. Flestir velja fyrri kostinn,
ef nokkurs staðar er lán að fá.
Treysta þeir þá á ríflegar tekjur
að námi loknu. En þær geta
brugðist til beggja vona, að
minnsta kosti fyrst í stað. Það
er ekki heldur glæsilegt að
stofna til gífurlegra skulda á
verðbólgutímum.
Þó að hér sé dæmi tekið af
stúdentum gildir það hliðstætt
um aðra skólanemendur, t. d. í
menntaskóla, gagnfræðaskóla,
samvinnuskóla og hverjum
öðrum hliðstæðum skóla. Á
meðan vísitalan var á hraðri
uppleið, urðu stúdentar að afla
sér fjár að sumri til við lægri
vísitölu en var inn veturinn,
þegar fénu var eytt. Þannig hef-
ir þessi hópur æskumanna orðið
enn harðar úti en t. d. verka-
menn, sem gátu unnið ársins
hring.
Ríkisstjórn sú, sem nú situr,
hefir gefið allfögur fyrirheit um
ákveðna og markvissa stefnu
gegn vaxandi dýrtíð. Nú má
heita að vísitalan standi 1 stað.
Það er gott, ef ríkisstjórninni
tekst að halda henni í skefjum.
Betra væri þó, ef henni miðaði
smám saman niður á við, vegna
erlenda markaðarins. Bezt væri
þó, að henni lánaðist að koma
fjárhag þjóðarbúsins í heild í
farsælt horf.
hafa horfið frá stefnu þeirri, er
Roosevelt hélt fram, en það var
stefna, sem byggði á gagn-
kvæmu trausti stórveldanna.
Með þeirri stefnu var mörkuð
leiðin til friðar. í anda þeirrar
stefnu er bandalag sameinuðu
þjóðanna stofnað.
Sumir þingmenn í Bandaríkj-
unum urðu svo reiðir, er þeir
heyrðu gagnrýnda stefnuna, að
þeir báru upp þingsályktun um
að höfða mál á hendur Wallace
fyrir landráð. Ekki mun hún þó
hafa hlotið fylgi.
Eftir að Wallace kom heim
til Bandaríkjanna hefir hann
haft við orð að stofna nýjan,
frjálslyndan flokk, ef sér tæk-
ist ekki að sveigja utanríkis-
stefnu demókrataflokksins í það
horf, sem hún var, þegar Roose-
velt var forseti.
J. Hj.
Fyrirlestraferð Wallace