Tíminn - 23.05.1947, Page 1

Tíminn - 23.05.1947, Page 1
/ RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Símar 2353 og 4373 ! PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. .ITST JÓRASKRIFSTOFUR: J EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A Slmar 2353 og -4373 } AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9A Siml 2323 31. árg. Reykjavík, föstudaglnn, 33. maí 1947 93. blatS Eignakönnunm: Tilkynning og skráning handhafaveröbréfa Fimmti kaflinn í stjórnarfrumvarpinu um eignakönnun fjallar um tilkynningu handhafaverðbréfa og skráningu þeirra. Verður þessi kafli frumvarpsins birtur hér á eftir og hefir þá allt efni frumvarpsins verið birt hér í blaðnu. Tilkynningarskyldan. Öll innlend handhafaverð- bréf, sem út hafa verið gefin fyrir framtalsdag og þann dag eru í umferð, innanlands eða utan, skal tilkynna til sérstakr- ar skráningar. Erlend hand- hafaverðbréf, sem eru eign inn- lendra aðila á framtalsdegi, er skylt að tilkynna á sama hátt. Til innlendra handhafabréfa tiljast öll skuldabréf og vaxta- bréf, sem gefin eru út til hand- hafa af ríkissjóði eða ríkisstofn- unum, bæjar- eða sveitar- og sýslufélögum, opinberum stofn- unum éða fyrirtækjum, bönk- um og öðrum lánsstofnunum svo og skuldabréf, sem gefin hafa verið út eða framseld til handhafa af einstaklingum eða félögum, og hlutabréf eða stofn- bréf í félögum eða fyrirtækjum, sem ekki eru skráð á nafn. Innlend verðbréf, sem geymd eru hér á landi, skal tilkynna til skattanefndar eða skattstjóra í því skattumdæmi, þar sem eig- endi verðbréfanna er heimilis- fastur. Heimilt er þó að tilkynna verðbréf til annarrar skatta- nefndar eða skattstofu, ef hent- ara þykir, svo sem ef eigandi þeirra dvelst utan lögheimilis síns eða bréfin eru ekki á heim- ili hans. Stofnanir og fyrirtæki, sem hafa mikla verðbréfaeign undir höndum geta krafizt þess, að skráning fari fram á geymslustað bréfanna. Tilkynningarskyld verðbréf í eigu einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja, sem heimilisfesti hafa erlendis, svo og erlend verðbréf skal tilkynna beint til framtalsnefndar. Framtalsnefnd getur falið fleiri aðilum en að framan greinir að veita tilkynningum viðtöku. Tilkynningarskyldan hvílir á eigendum bréfanna. Tilkynningarskyldan hvílir á eigendum verðbréfanna. Dvelj- ist eigandi erlendis, hvíiir skyldan á umboðsmanni hans liér, enda leggi hann fram um- boð til þess. Ef verðbréf er í sameign tveggja aðila eða fleiri, hvílir tilkynningarskyldan á þeim aðilanum, sem bréfin geymir. Annist enginn þeirra geymslu bréfanna, er hverjum þeirra um sig skylt að sjá um, að tilkynning fari fram. Ef ekki er vitað um eiganda, hvílir skyldan á þeim, sem hefir vörzlu bréfanna. Skiptaráðandi til- kynnir verðbréf þrotabúa og dánarbúa, sem eru undir opin- berum skiptum. Tilkynningar- skylda hvílir á eiganda, þó að bréfið sé sem handveð eða til tryggingar hjá þriðja manni. Bréf ófjárráða manna tilkynna fjárhaldsmenn eða framfærslu- menn. Ef vafi þykir leika á um til- kynningarskyldu, skal um hana fara eftir úrskurði framtals- nefndar. Tilkynningar um verðbréf skulu undirritaðar af þeim, sem tilkynningarskylda hvílir á, og gilda að öðru leyti um undir- skrift sömu reglur sem áður segir um innlausnarskýrslur og innstæðuyfirlýsingar, m. a. um (Framtiald á 4. síðu) Eignakönnunarfrv. stjórnarinnar veröur sennilega að lögum í dag Sósíallstár nppvisir að einstæðn ábyrgðar- - leysi og loddaraskap Frumvarp ríkisstjórnarinnar um eignakönnun verður sennilega afgreitt frá efri deild í dag, sem lög frá Alþingi. Var frum- varpiff til umræffu í neffri deild í fyrradag, en í efri deild í gær. Þingiff gerffi enga efnisbreytngu á frumvarpinu affra en þá, að skuldabréfin eiga aff vera til sölu á tímabilinu 1. júlí til 15. ágúst. Sósíalistar héldu uppi ádeil- um á frumvarpið og vildu láta visa þvi frá, en hins vegar báru þeir ekki fram neinar tillögur um endurbætur á því. Aðalá- deila þeirra var sú, að eigna- könnunin næði til alltof margra, því að það ætti að sleppa þeim alveg, sem hefðu svikið lítið undan sköttum. Ekki gátu þeir þó gert grein fyrir því, hvernig ætti að vita það fyrirfram, hvort menn væru lítið eða mik- ið brotlegir, og eftir hvaða regl- um ætti því að sleppa mönnum undan eignakönnun eða ekki. Ekki gátu þeir heldur gert grein fy-rir því, hvernig hægt væri að framkvæma eignakönnun að gagni, ef fleiri eða færri skatt- þegnum væri sleppt undan henni. Loks gátu þeir ekki fært nein rök fyrir þvi, að rétt væri að láta þá sleppa alveg, sem lít- ið hefðu gerst brotlegir, með til- liti til hinna, sem alltaf hefðu talið rétt fram og greitt fulla skatta. Öll málfærzla Sósíalista hafði þannig þau einkenni, að þeir hefðu ekki minnsta áhuga fyrir réttmætri eignakönnun, heldur vildu þeir reyna að nota málið til að afla sér fylgis þeirra, sem gerzt hafa brotlegir við skattalöggjöfina. í umræðunum í neðri deild var það upplýst af Finni Jóns- syni, að Brynjólfur Bjarnason hefði lagt það til í fyrv. ríkis- stjórn, að skattsvikurum væri gefnar upp sakir, ef þeir keyptu skuldabréf af ríkinu. Það vakti líka athygli, að þingmenn Sósí- alista sátu hjá við atkvæða- greiðsluna, um skuldabréfakafla frv., sem er varhugaverðasti kafli þess, þótt þeir greiddu hins vegar atkvæði gegn frv. í heild. (Framhald á 4. síöu) Frumvarpið um fjárhagsráð orðið að lögum Ánægður fjármálaraðkerra Fjárhagsráð tekur sennilega til starfa í næsta mánuði í fyrrinótt var frumvarp ríkisstjórnarinnar um fjárhagsráff, innflutningsverzlun og verfflagseftirlit afgreitt frá neffri deild sem lög frá Alþingi. Samkvæmt þessum nýju lögum verður ný- byggingarráff og viðskiptaráff lagt niffur, þegar ríkisstjórnin akveffur þaff, — en þaff verffur sennilega í næsta mánuði — og falla störf þeirra undir fjárhagsráff. Ennfremur fær fjárhagsráff stóraukiff verkefni, þar sem því er ætlaff aff ákveða allar höfuff- framkvæmdir í landinu næstu árin. Má ekki ráffast í neinar stærri íramkvæmdir án samþykkis ráffsins. — Þessi nýju Iög eru í fjórum ! köflum, sem f jalla um fjárhagsráff og fjárfestingu, um innflutn- ing og gjaldeyrismeffferff, um verfflag og um almenn ákvæði. Helztu nýmæli frv. eru í fyrsta kaflanum og verða þau rakin hér á eftir. Mynd þessi var tekin af Dalton, fjármálaráðherra Breta, þegar hann lagöi fjárlögin fyrir þingið í vetur. Það er venja að ráðherrann komi með þau í gyltri tösku, sem hefir verið notuð lengi í því augnamiði. Á mynd- inni sést hann hampa henni framan í þingmenn, enda er þaff í fyrsta skipti í langan tíma, sem tekjuhallalaus fjárlög eru lögð fyrir brezka þingið. Vélar mjólkursamlagsins í Borg- arnesi endurnýjaðar á þessu ári Frá aðalfuudi Kaupfélags Borgfirðinga Affalfundur Kaupfélags Borgfirffinga var haldinn í Borgarnesi snemma í þessum mánuffi. Hagur félagsins er góffur og nam vöru- sala þess á seinasta ári samtals rúmum fimm miljónum króna. Til ráffstöfunar á affalfundi komu 232 þús. krónur af hagnaffi félagsins. Kaupfélag Borgfirðinga hefir fjölþættan rekstur með hönd- um eins og kunnugt er. Auk þess, sem það rekur verzlun með útlendar og innlendar vör- ur, starfrækir það einnig brauðgerð, frystihús og bifreiða- stöð. Keypti það fyrir nokkrum árum bifreiðastöð Finnboga Guðlaugssonar, sem annaðist ferðir á öllum helztu leiðum um Borgarfjörð og mjólkurflutn- inga. Hefir félagið haldið þeim rekstri áfram, eftir því sem bif- reiðakostur og aðrar ástæður hafa leyft. Afkoma félagsins á seinasta ári varð mjög góð. Sjóðir fé- lagsmanna hafa aukizt allveru- lega á ' árinu og eins afkoma þeirra gagnvar-t félaginu. Vöru- salan, sem nam um fimm mil- jónum á árinu, hafði aukizt um nærri eina miljón króna. Tala félagsmanna er nú um 850. Af framkvæmdum sem félagið hafði með höndum á árinu, eru þessar helztar: Tekið var á leigu nokkurt landssvæði á Hurðarbaki, vest- an þjóðvegarins við Kláffossbrú, og þar byggt sláturhús og íbúð- arhús fyrir starfsfólk það, er vinnur við sláturhúsið. Nokkur hitavatnsréttindi fylgja með í landleigunni, eða um 2 sekúndu- lítrar. Hitalögnin er ekki kom- in á, en vonir standa til þess að það geti orðið í ár. Bygging- arframkvæmdir þessar kostuðu 156 þúsund krónur. Nýbygging- in var starfrækt s.l. haust. Á árinu keypti félagið hinn svokallaða „Veitingaskála í Brákarey.“ F,r hann talinn í fasteignum félagsins ásamt lóða réttinum á kr. 23.000.00. Síðast- liðið sumar og ennþá, hefir byggingin verið notuð fyrir i- búðir og geymslu. Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að endurnýja allar eða nær allar vélar i Mjólkursam- laginu og eru líkur fyrir, að flestar vélarna,r komi siðari hluta þessa árs. Eru það mun afkastameiri vélar en nú eru i samlaginu. Vélakaup þessi, sem gerð eru í Danmörku og Sví- þjóð, munu kosta 3—400 þús. krónur. Framundan eru miklar og dýr- ar byggingarframkvæmdir, sem í verður að ráðast svo fljótt sem unnt er. Auk verzlunarhúss er aðkallandi að byggja fyrir brauðgerðina og nýja kjötbúð. Þá þarf að leysa á einn eða annan hátt húsnæðisvandræði sumra starfsmanna félagsins. í lok s.l. árs gaf félagiö út skuldabréfalán að upphæð ein miljón krónur. Sala bréfanna hófst ekki fyrr en á þessu ári, en hefir gengið allvel. íbúðarhús ,að Egils- stöðum í Villinga- holtshreppi brann í gær Síðdegis í gær brann annað íbúðarhúsið að Egilsstöðum í Villingaholtshreppi til kaldra kola. Þegar blaðið var að fara í prentun í gærkvöldi símaði Helgi Ágústsson fulltrúi á Sel- fossi þær fréttir til bláðsins, að annað íbúðarhúsið að Egilsstöð- um í Villingaholtshreppi hafi brunnið síðdegis í gær. Um klukkan fimm í gær var símað að Selfossi og sagt að kviknað hefði í íbúðarhúsi að Egilsstöðum, sem tilheyrir þeim hluta jarðarinnar er Guðmund- urEiríksson býr á. Var slökkvi- liðið beðið að koma til aðstoðar frá Selfossi. Brá það skjótt og vel við og var komið austur að (Framhald á 4. síð'u) Starfsgrundvöllur fjárhagsráffs. Ríkisstjórnin'skipar 5 manna nefnd, er nefnist fjárhagsráð. Hlutverk þess er að samræma framkvæmdir einstaklinga og almannavaldsins, meðan hinar miklu framkvæmdir í íslenzku atvinnulífi standa yfir, þannig að þær verði gerðar eftir fyrir- fram saminni áætlun fjárhags- ráðs, er ríkisstjórnin staðfestir. Fjárhagsráð miði störf sín við eftirfarandi: 1. Að öll framleiðslugeta sé haguýtt til fulls og öllum verk- færum mönnum tryggð næg og örugg atvinna. 2. Að öllum vinnandi mönn- um, og þó sérstaklega þeim, er stunda framleiðsluvinnu til .sjávar og sveita, séu tryggðar réttlátar tekjur fyrir vinnu sína, en komið í veg fyrir óeðlileg sér- réttindi og spákaupmennsku. 3. Að neytendur eigi kost á að kaupa neyzluvörur sinar og framleiðendur rekstrarvörur sínar á hagkvæmasta hátt og vörukaup til landsins og vöru- dreyfing innanlands gerð eins ódýr og hagkvæm og frekast er unnt. 4. Að áframhald verði á öflun nýrra cj£ fullkominna fram- leiðslutækja til landsins, eftir því sem gjaldeyrisástæður og vinnuafl leyfir frekast, enda verði tryggt fé til framkvæmd- anna jafnóðum. 5. Að byggðar verði verksmiðj- ur og iðjuver til þess að vinna sem mest og bezt úr öllum fram- leiðsluvörum til lands og sjávar, þannig að þær séu seldar úr landi eins fullkomnar og frekast er kostur og við staðsetningu verksmiðjanna verði tekið tillit til hvors tveggja í senn, fram- leiðsluskilyrða og atvinnuþarfa einstakra byggðarlaga. 6. Að bæta starfsskilyrði iðju- vera sem framleiða vörur, er spara þjóðinni gjaldeyri. 7. Að atvinnuvegir lands- manna verði reknir á sem hag- kværpastan hátt á arðbærum grundvelli og stöðvist ekki vegna verðbólgu og dýrtíðar. 8. Að húsnæðisskorti og heilu- spillandi íbúðum, hvar sem er á landinu, verði útrýmt með bygg- ingu hagkvæmra íbúðarhúsa. Áætlanir um framkvæmdir. Fjárhagsráð semur fyrirfram fyrir ár hvert áætlun um heild- arframkvæmdir. Fyrir yfir- standandi ár semur ráðið áætlun þessa svo fljótt sem auðið er og að svo miklu leyti sem við verð- ur komið. í áætlun þessari skal gerð grein fyrir kostnaði við allar stærri fi-amkvæmdir, svo og með hverjáim hætti fjár skuli aflað, enda skal kveða á um það, í hverri röð framkvæmdir skuli verða, svo að vinnuafl og fjár- magn hagnýtist þannig, að sem mest not verði að. Ennfremur semur fjárhags- ráð fyrir ár hvert heildaráætlun um útflutning og innflutning þess árs, magn og verðmæti. Skal áætlun þessi miðast við það að hagnýta sem bezt markaðs- möguleika og fullnægja sem hagkvæmast innflutningsþörf iandsmanna. Fjárhagsráð leitar samvinnu um samning heildaráætlunar við opinberar stofnanir, félög og einstaklinga, sem framleiðslu, yorzlun, iðnað eða annan at- vinnurekstur hafa með hönd- um, er fjárfestingu þarf til. Skulu þessir aðilar senda fjár- hagsráði fyrir þann tíma, er það ákveður, áætlun um stofnfjár- þörf sína, lánsfjárþörf, gjald- eyrisþörf og vinnuaflsþörf. Ennfremur skal fjárhagsráð hafa samvinnu við lánsstofnan- ir í landjnu um samningu og framkvæmd fjárfestingaráætl- unar, og ber þeim að skýrp, fjár- hagsráði frá fjármagni því, er þær hafa yfir að ráða. Nú telur fjárhagsráð eigi nægdlega séð fyrir fjárþörf fyrirtækja, er það telur nauðsyn til að stofnsetja, og skal það þá leita samvinnu við ríkisstjórn, lánsstofnanir og aðra aðila, er hlut gætu átt að máli, um fjáröflun til þessara fyrirtækja. Janfhliða því sem fjárhagsráð semur áætlun þá um hcildar- framkvæmdir, er áður greinir, skal það og gera sérstaka áætl- un um framkvæmdir ríkisins áður en fjárlög eru samin ár hvert, og sé við samningu þeirr- ar áætlupar, er ríkisstjórnin og Alþingi geti haft hliðsjóm af, stefnt að því að tryggja lands- mönnum öllum næga atvinnu, en koma jafnframt í veg fyrir ofþenslu. Fjárfestingarleyfi. Til hvers konar fjárfestingar einstaklinga, félag^ og opin- berra aðila, hvort sem er til stofnunar nýs atvinnurekstrar, til aukningar á þeim, sem fyrir er, húsbygginga eða annarra mannvirkja, þarf leyfi fjárhags- ráðs, og gildir þetta einnig um framhald þeirra framkvæmda, sem þegar eru hafnar. Þó sk»4 ákveðið í reglugerð, að tilteknar minni háttar fram- kvæmdir séu heimilar án fjár- festingaleyfis. Nánari ákvæði um fjárfestingaleyfi séu sett í reglugerð. Fjárhiagsráð skal beita sér fyrir samvinnu atvinnurekenda og verkamanna um bætta að- stöðu verkafólks á vinnustöð- um betri hagnýtingu vinnuafls og aukin vinnuafköst. Fjárhagsráði er heimilt að leggja fy^ir vinnumiðlunarskrif- stofur landsins að láta fara fram skrásetningu verkafólks almennt eða í einstökum stafs- greinum á þeim tíma og eftir þeim reglum, er fjárhagsráð á- kveður. Ríkisstjórnin í heild hefir yf- (Frfimhald á 4. síðu)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.