Tíminn - 10.06.1947, Síða 1

Tíminn - 10.06.1947, Síða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. ’ .ITSTJÓRASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A simar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Llndargöw 9 A Siml 2323 31. árg, Reykjavík, þriðjudagim 10. júní 1947 104. blað Fyrsta íþróttamót sumarsins gefur góðar vonir Frá íþróttamóti K.R. á sunnudaginn Fyrsta frjálsíþróttamótið í Reykjavík á þessu sumri var haldið á vegum K.R á sunnudaginn var. Árangrar urðu þar mjög góðir, þegar þess er gætt, að æfingar eru nýbyrjaðar. Margir árangrarnir gefa vonir um ný met og glæsileg afrek síðar á sumrinu. Tvö ný met, annað drengjamet, voru sett á mótinu. °Huseby sigraði Rretakeppnin: Fram stóð sig betur en úrvalsliðið Knattspyrnukeppnin milli Fram og Q.P.R. á föstudags- kvöldið var íslendingum mun hagstæðari en þegar úrvalsliðið keppti við Bretana. Samleikur Framara var ólíkt meiri og betri én hjá úrvalsliðinu, þótt yfir- burðir Bretanna reyndust hins vegar miklir og þó alveg sérstak- lega úthald þeirra. í fyrri hálfleik horfði lengi vel allsæmilega hjá Fram. Bretarn- ir skoruðu ekki fyrsta mark sitt fyr en eftir 25 mín. Skömmu síðar skoruðu Framarar mark Úr vítaspyrnu. Hálfleiknum lauk með Sigri Breta 2:1. í seinni hálfleik komu yfir- burðir Bretanna meira í ljós, einkum þegar leið á leikinn. Leikurinn lá þá oftast á Fram og Bretarnir skoruðu fjögur mörk, en mark þeirra komst sjaldan í teljandi hættu. Af liðsmönnum Fram mun áhorfendum hafa fundist einna mest til um Karl Guðmundsson, en fleiri þeirra stóðu sig ágæt- lega. Bretar unnu K.R. með 5:0 Queens Park Rangers háðu þriðja kappleik sinn hér í gær- kvöldi. Kepptu þeir þá við K.R. Úrslit urðu þau, að Bretar unnu með 5:0. K.R.-ingar stóðu sig mjög vel framan af leiknum og lauk fyrri hálfleik með 1:0. Þegar leið á seinni hálfleik fór þolið að segja til sín og settu Bretar 4 mörk 1 síðari hluta þess hálfleiks. Á þetta sínar eðlilegu orsakir, þar éem útiæfingar knattspyrnu- manna hér eru eðlilega fáar énn, svona snemma sumars. írlandsmeistarann. Mótið hófst kl. 2 e. h. og var þá komið margt áhorfenda á völlinn. Það mun hafa örvað aðsóknina, að írski meistarinn í kúluvarpi, David Guiney, hafði verið fenginn til að taka þátt í keppninni, en hann er nú einn af beztu kúluvörpurum í Evrópu. Hann kastaði kúlunni 15.41 m. á síðastl. sumri eða 28 cm. skemur en met Husebys er. Fýsti því marga að sjá viðureign þeirra. Úrslitin urðu þau, að Huseby sigraði glæsilega. Huse- by náði einnig góðum árangri í kringlukasti. Beztu árangrarnir. Beztu árangrarnir á mótinu urðu þessir: A-sveit ÍR bætti íslandsmet sitt í 4X200 metra boðhlaupi úr 1.33.2 mín í 1.32.7. í sveit- inni voru: Finnbjörn Þorvalds- son, Reynir Sigurðsson og bræð- urnir Haukur og Örn Clausen. Finnbjörn Þorvaldsson hljóp 100 m. á 11.0 sek, en íslandsmet hans er 10.8 sek. Virðist því mega vænta þess, að hann bæti met sitt á þessu ári. Skúli Guðmundsson stökk 1.90 m. í hástökkinu og munaði litlu, að hann færi yfir 1.93 m. Bezti árangur hans í fyrra, var 1.90 m. og má því vænta þess, að honum muni ganga betur í sumar. ís- landsmet hans er 1.94 m. Haukur Clausen hljóp á ís- landsmeti í 300 m. hlaupi, en það var sett í fyrra af Finnbirni Þorvaldssyni. Haukur er enn svo ungur, að árangur hans nú er nýtt drengjamet. í 100 m. náði hann einnig góðum árangri, 11.2 sek. Má vænta sér mikils af honum í framtíðinni. Þá er vert að geta þess, að 16 ára gamall Hafnfirðingur, Sig- urður Friðfinnsson, stökk 1.70 m. í hástökkinu. Er þar vafa- laust á ferðinni gott íþrótta- mannsefni. Úrslitin í einstökum íþróttagreinum. 100 m. hlaup: Finnbjörn Þor- valdssin (ÍR) 11.0, Haukur Clausen (ÍR), 11.2, Þorbjörn Pétursson (Á) 11.5. (Framhald á 4. síðu) Iþróttamótið í Vestmannaeyjum um síðustu helgi Mikill og vaxandi áhugi er fyrir íþróttum í Vestmannaeyjum, þótt fæstir íþróttamanna þeirra hafi mikinn tíma til æfinga. Um seinustu helgi var haldið' fyrsta frjálsíþróttamótið í Eyjum á þessu sumri og má telja árangur þar góðan, þegar tekið er tillit til að- stæðna. Mótið var háð hjá Hásteini og í Herjólfsdal. Úrslit í einstökum greinum urðu þau sem hér segir: 100 metra hlaup: Fyrstur varð Gunnar Stefánsson á 11.8 sek. 1500 metra hlaup: Fyrstur varð Eggert Sigurlásson á 4.41 mín. Kringlukast: Fyrstur varð Ingólfur Arnarson, kastaði 36,27. Spjótkast: Fyrstur varð Adólf Óskarsson, kastaði 55.00 m., hann er aðeins 17 ára gamall. Sleg^jukast: Fyrstur varð Símon Waagfjörð, kastaði 36.00 m. Kúluvarp: Fyrstur varð Ing- ólfur Arnarson, kastaði 12.09. Langstökk: Fyrstur varð Adólf Óskarsson, stökk 5.80 m. Stangarstökk: Fyrstur varð Guðjón Magnússon, stökk 3.40 metra. Boðhlaup 4X100 metra vann sveit Þórs á 50.5 sek. MINNINGARATHÖFNIN Á AKUREYRI Frá minningarathöfn um Sunnlendingana í Akureyrarkirkju 5. júní. Séra Pétur Sigurgeirsson í kór. Ww í Akureyrarkirkjugarði föstudaginn 6. júní. Prestarnir frá vinstri til hægri, Pétur Sigurgeirsson, Benjamín Kristjánsson og Sigurður Stefánsson. Verkfall Dagsbrúnar- manna heldur áfram Meirihlutfiin Iiafnaði tillögum sálta- nefndarinnar Meirihluti þeirra Dagsbrúnarmanna, sem tóku þátt í atkvæða- greiðslunni um miðlunartillögur sáttanefndar, höfnuðu þeim og mun verkfallið því halda áfram. Litlar horfur eru á samkomulagi fyTst um sinn. Atkvæðagreiðslan hófst kl. 3 á laugardaginn og hélt áfram á sunnudaginn fram tij miðnætt- is og var talið í fyrrinótt. Úr- slitin urðu þessi: Með tillögunni voru greidd 789 atkvæði, en 1341 voru á móti. 10 seðlar voru auðir, en 15 ógildir. Alls greiddu 2155 atkv., en í félaginu eru um 3000 manns. Miðlunartillaga sáttanefndar var í aðalatriðum sú, að kaup- taxtar skyldu verða óbreyttir, en nokkur breyting verða á skip- un manna í kaupflokka. Samkvæmt áðurgreindum úr- slitum mun verkfall Dagsbrún- armanna, sem hófst á laugar- daginn, halda áfram. Nánara er rætt um þessi úr- slit í forustugrein blaðsins í dag. Unglingar kveikja í timburhlöðum Síðastliðinn laugardag voru framdar tvær íkveikjur hér í bænum. Var í bæði skiptin kveikt i timburhlöðum og er talið líklegast að unglingar séu valdir að þessu ódæði þó að lög- reglunni hafi ekki ennþá tek- izt að hafa hendur í hári þeirra. Fyrri íkveikjan var um 5.30 á laugardag og hafði þá veriö kveikt í hlaða af mótatimbri við Víðimel 25. Tókst slökkviliðinu fljótlega að slökkva eldinn. Um klukkan 10.30 sama kvöld var kveikt í timburhlaða við áhalda- hús bæjarins í Njarðarstöð. Tókst slökkviliðinu einnig fljótt að slökkva eldinn í þetta sinn. Nokkyar skemmdir urðu á timbri á báðum stöðunum. Kommúnistar beittu hótunum við atkv.greiðsluna á Siglufirði Tillagn sáUaspinjara var eigi að síður samþykkt Kommúnistar á Siglúfirði létu ekki þar stað'ar numiff aff neita að bera upp mifflunartillögu sáttasemjara í kaupdeilu Þróttar viff ííkisverksmiffjurnar og synja honum síffan um afnot félagsmanna- skrár við' atkvæffagreiðslu, er hann hafði boffaff til. Þeir fullkomn- uffu þennan ofbeldisverknaff sinn meff því aff hafa sérstaka varff- menn við húsiff, þar sem atkvæffagreiffslan fór fram, og voru þeir látnir ógna mönnum, sem tóku þátt í atkvæffagreiffslunni og skrifa upp nöfn þeirra. Munu allmargir menn hafa hætt viff þátttöku i atkvæffagreiffslunni af þeirri ástæðu, aff þeir óttuðust hefndar- ráffstafanir kommúnista. Þá bönnuðu kommúnistar öllum flokks- mönnum sínum aff taka þátt í atkvæð'agreiffslunni. Þrátt fyrir öll þessi ofbeldis- verk kommúnista, fór atkvæða- greiðslan fram og var henni lokið á laugardagskvöldið. At- kvæði féllu þannig, að 164 voru samþykkir tillögu sáttasemjara, en 32 sögðu nei. Þrír seðlar voru auðir og einn ógildur. Alls tóku 200 menn þátt í atkvæðagreiðsl- unni. Þessi úrslit þýða það, að lög- um samkvæmt, er orðið bind- andi samkomulag milli Þróttar og ríkisverksmiðjanna, því að meirihluti verksmiðjustjórnar hafði samþykkt tillögurnar fyrir sitt leyti. Láti kommúnistar koma til vinnustöðvunar eftir sem áður, verður þar um ólög- mætt verkfall að ræða, og mun slíku máli vafalaust vísað til fé- lagsdóms. Sá misskilningur skal leiðrétt- ur, að þessi deila náði ekki til annarra atvinnurekenda á Siglufirði en ríkisverksmiðj- anna. Aðrir atvinnurekendur höfðu gert samning við Þrótt snemma í apríl, en samningar við verksmiðjurnar dregist ein- hverra atvika vegna. Marklaus atkvæffagreiðsla kommúnista. Eftir að atkvæðagreiðsla sáttasemjara var hafin, munu kommúnistar hafa séð afglöp sín, og Ijví ætlað að reyna að breiða yfir þau. Efndu þeir þá til fundar í Þrótti og ákváðu að láta fara fram atkvæðagreiðslu, er lýsti trausti á félagsstjórn- inni. Sú atkvæðagreiðsl> fór fram á laugardag og sunnudag, og lauk með því, að 245 greiddu atkvæði með traustsyfirlýsing- unni, en 169 á móti. Félagsmenn í Þrótti eru á sjötta hundrað. En vitanlega breytir sú atkvæða- greiðsla engu um áhrif fyrri at- kvæðagreiðslunnar, enda er þá spurt að verulegu leyti um allt annað en afstöðu manna til miðlunartillögu sáttasemj arans. Sjóður t'd mínningar um Þorgerði Þorvarðsdóttur Minningargjöfum um Þor- gerði Þorvarðsdóttur, hús- mæðrakennara, verður veitt móttaka hjá Guðrúnu Markús- dóttur, Sólvallagötu 6, Guðnýju Frímannsdóttur, Guðrúnargötu 5 og á afgreiðslu Tímans, Lind- argötu 9A. Gróöi Eimskipafélagsins nam 2,5 milj. kr. á síöastl. ári Gréðiim á leignskipunum nam j6.8 inilj. kr. Affalfundur Eimskipafélags íslands var haldinn síðastliffinn laugardag. Var þar gefiff yfirlit um afkomu og rekstur félagsins á síðastl. ári. Samkvæmt því nema nú skuldlausar eignir félagsins 48.8 milj. kr., en hreinn hagnaffur á árinu nam 2.5 milj. kr. Á síðastl. ári urðu brúttó- tekjur af leiguskipum félagsins rúml. 30 milj. kr., en nettóágóði 6.8 milj. kr., og er það lang- stærsti tekjuliður félagsþis á árinu. Nokkur tekjuhalli varð hins vegar á rekstri eigin skipa, og nam hann samtals kr. 1715 bús. Samþykkt var að greiða hluthöfum 4% arð. Hagnaður á árinu nam um 2.5 milj. kr. Árið 1946 sigldu 20 skip á veg- um félagsins, þar af 5 eigin skip. Alls fóru skip þessi 82 ferðir á árinu. Auk þess eitt skip frá MWT., er fór eina ferð. Til sam- anburðar má geta þess, að árið áður fóru eigin skip félagsins 24 ferðir og leiguskip 35 ferðir, alls 59 ferðir, og auk þess skip frá MWT. 20 ferðir. Af þessu sést, að ferðafjöldi eigin skipa félagsins og leigu- skipa hefir aukizt mjög mikið á síðastliðnu ári, eða úr 59 ferð- um í 82 ferðir með sama skipa- fjölda. Nokkrir mena áttu að ganga úr stjórn félagsins á fundinum, en voru allir endurkosnir. ERLENDAR FRÉTTIR Verkföll magnast stöðugt í Frakklandi og má heita að járn- brautirnar hafi alveg stöðvast. Herinn hefir verið Játinn ann- ast flutninga á matvælum til Parísar og fleiri stærri borga, en samt er víða farið að bera á matarskorti. Truman forseti hefir nýlega látið svo ummælt í ræðu, að heimsfriðurinn byggðist nú á því, að Bandaríkin hefðu öflug- ar hervarnir og héldu áfram hjálparstarfsemi sinni meðal nauðstaddra þjóða. Bandaríkjastjórn hefir undir- búið mótmælaorðsendingu til Rússa vegna stjórnarskiptanna í Ungverjalandi og er þar krafizt, að sérstök nefnd frá stórveld- unum rannsaki þessa atburði. Brezka stjórnin hefir fengið orðsendinguna til athugunar, ef hún vildi einnig standa að henni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.