Tíminn - 12.06.1947, Side 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI;
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
I „ITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
Simar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A
Siml 2323
31. árjg.
Rcykjavlk, flmmtudaginn 12. júní 1947
106. blað
ERLENT YFIRLIT:
Flokksþing frjálslyndra í Bretlandi
Samvinnu við íhaldsflokkinn var hafnað
f lok aprílmánaðar síðastl. hélt frjálslyndi flokkurinn í Bret-
landi flokksþing, sem hafði verið beðið eftir með talsverðri eftir-
væntinu. Ástæðan var sú, að íhaldsmenn hafa mjög hvatt frjáls-
lynda fiokkinn til að sameinast sér gegn jafnaðarmönnum, og
lá fyrir þinginu að taka óbeint afstöðu til þeirrar málaleitunar.
Afstaðan, sem flokksþingið
tók til þessarar málaleitunar,
var mjög afdráttarlaus og sam-
þykkt nær einróma. Þingið lýsti
yfir því, að flokkurinn myndi
hvorki binda sig til hægri eða
vinstri, heldur koma fram sem
óháður aðili í næstu kosningum.
Það vakti annars sérstaka at-
hygli á þinginu, hve fjölmennt
það var og mikill sóknarhugur
ríkti meðal fulltrúanna. Full-
trúarnir voru um 1500 og er
þetta fjölsóttasta þing flokks-
ins síðan 1914. Flokksstarfsemin
hafði eflst mjög á síðastliðnu
starfsári og fjárhagur flokksins
var í bezta lagi og er hann nú
tiltölulega betri en hjá hinum
flokkunum. Sá, sem veitir
flokksstarfseminni forustu,
nefnist Fothergill og þykir hann
sérstaklega snjall skipuleggjari.
FormaðUr landssamtakanna var
kosinn Foot, sem oft hefir verið
þingmaður, en Clement Davis er
formaður þingflokksins.
Frjálslyndi flokkurinn byggir
nú vonir sínar mjög á því, að
jafnaðarmenn muni heldur tapa
í næstu kosningum, og mun mið-
stéttafylgið, sem þeir tapa, leita
til frjálsjynda flokksins. Ákveðið
er nú, að flokkurinn bjóði fram
í öllum kjördæmum landsins í
næstu kosningum, en 1945 hafði
hann ekki frambjóðendur nema
í 300 kjördæmum af um 600 alls.
Það er tvennt, sem hefir háð
frjálslynda flokknum að undan-
förnu. Annað er klofningurinn,
sem varð 1931, þegar nokkur
hluti flokksins gekk til sam-
vinnu við íhaldsflokkinn og Mac
Donald. Þetta flokksbrotið, sem
kallaði sig þjóðlega frjálslynda
er nú raunverulega runnið inn
í íhaldsflokkinn. Hitt er kjör-
dæmaskipunin, sem neyðir kjós-
endur til að skiptast aðallega í
tvo flokka, og leikur smáflokk-
ana mjög grálega með tilliti til
þingmannafjölda. Vegna kjör-
dæmaskipunarinnar fengu jafn-
aðarmenn meira en þrjátíu
sinnum fleiri þingmenn en
frjálslyndir í seinustu kosning-
um, enda þótt þeir hefðu ekki
nema fimm sinnum melra at-
kvæðamagn.
í seinustu kosningum, er fóru
fram 1945, fékk frjálslyndi
flokkurinn 2.2 milj. atkvæða,
eða 700 þús. fleiri en í næstu
kosningum á undan. sýndi það
mjög vaxandi fylgi meðal kjós-
endanna, þótt flokkurinn ynni
ekki þingsæti að sama skapi.
Nú þykir öruggt, að atkvæða-
tala flokksins muni mjög hækka
í næstu kosningum.
Stefnuskráin, sem samþykkt
var á flokksþinginu, er að ýmsu
leyti róttæk. Flokkurinn lýsir
sig fylgjandi áætlunarbúskap,
ERLENDAR FRÉTTIR
Fulltrúi Breta í öryggisráðinu
hefir lagt fram tillögu þess efn-
is, að aðþjóðalögreglu verði þeg-
ar komið á fót og gerð sé áætlun
um þann kostnað, sem hún
kann að hafa í för með sér.
í Frakklandi heldur járn-
brautarverkfallið áfram og er
þegar orðinn tilfinnanlegur
skortur á ýmsum vörum í borg-
unum, m. a. á kolum til iðnaðar.
Hins vegar hafa náðst sættir í
kaupdeilu starfsmanna við raf-
orkuver og gasstöðvar.
en krefst þess, að honum sé
komi^ þannig fyrir, að stjórn-
arkerfið verði sem óbrotnast og
skrifstofumennskan sem minnst.
Það lýsir sig fylgjandi þjóðnýt-
ingu þar, sem líklegt sé, að hún
reynist betur en einkaframtakið,
en annars eigi að láta einka-
framtakið _njóta sín sem bezt
innan ramma áætlunarbúskap-
arins. Þá leggur flokksþingið
áherzlu á, að launakerfinu verði
komið að meira eða minna leyti
í það horf, að launin fari eftir
afköstunum. Það sé einn vísasti
vegurinn til aukinnar fram-
leiðslu, Sem sé Bretum nú meira
nauðsynjamál en nokkuð annað.
Þingið gagnrýnir stjórn Attlees
mest fyrir það, að hún hagi
stjórnarframkvæmdum ekki
eftir neinni heildaráætlun,
heldur kafni flest hjá henni í
tilgangslausri skriffinnsku.
Þingið segir, að það sé eitt af
höfuðhlutverkum frjálslynda
flokksins að koma í veg fyrir,
að harðsvírað íhald taki við
stjórninni, eftir misheppnaða
stjórn jafnaðarmanna.
Eitt af blöðum jafnaðar-
manna, Observer, komst svo að
orði eftir þingið, að það hafi
skipað frjálslynda flokknum
mitt á milli íhaldsflokksins og
jafnaðarmanna, en þó heldur
meira til vinstri í utanríkismál-
um: Það vakti nokkra athygli, að
tillögu Beveridge um að hefja
baráttu fyrir aðskilnaði verka-
lýðssamtakanna og jafnaðar-
manna var fálega tekið og
margir ræðumenn bentu á, að
það væri nauðsynlegra verkefni
að vinna gegn áhrifum komm-
únista í verkalýðssamtökunum.
Allar tillögur um að minnka
réttindi verkalýðsfélaganna
voru kolfelldar.
Nokkru eftir að flokksþinginu
(Framhald á 4. stðu)
Útvarpsráðstefna
Norðurlanda
Verðnr koeuið upp
raddsafni mcrkra
manua
Þeir Jónas Þorbergsson, út-
varpsstjóri og Helgi Hjörvar,
skrifstofustjóri útvarpsráðs,
komu í gærkvöld úr utan-
för, en þeir sátu útvarpsráð-
stefnu Norðurlanda, sem
haldin var í Helsingfors dag-
ana 28.—31. maí.
Ráðstefnur þessar eru haldn-
ar árlega, til skiptis í löndunum,
en þar bera útvarpsmennirnir
saman reynslu sína, ræða
starfsaðferðir og samvinnu.
Finnarnir tóku gestunum ástúð-
lega og stórmannlega, þrátt fyr-
ir hina miklu örðugleika, sem
þeir eiga við að búa. Fulltrúar
ráðstefnunnar sátu boð Paasi-
kivis, Finnlandsforseta, Helsing-
forsbæjar og margar aðrar veizl-
ur, og útvarpsstjóri Finnlands,
Frú Hella Vuolijoki, hafði sér-
stakt boð inni fyrir útvarps-
stjórana. Þá fóru fulltrúarnir
allir i sérstakri járnbrautarlest
til Tammerfors, sem er stærsti
iðnaðarbær Finnlands, og skoð-
(Framhald á 4. síðu)
Landbúnaðarsýningin stærsta sýning, sem hald-
Mikil síld fyrir
Norðausturlandi
Happdrætti
um tuttugu
bifreiðar
in hefir verið hér
Sýningin verður opnuð
á landi
26. þ. m.
Samkvæmt fréttum frá tog-
aranum Júní, sem var í gær
staddur fyrir norðausturlandi,
sáu skipsmenn síldartorfur vaða
á þeim slóðum.
Togarinn símaði útgerðinni
þessa frétt í gær og taldi, að
þarna hefðu vaðið a. m. k. 20—
30 stórar síldartorfur. Þetta eru
fyrstu fréttir, sem berast af síld
á þessu sumri.
(JTANFOR ESJU
Ákveðið hefir verið að m.s.
Esja fari til Álaborgar n. k.
fimmtudag.
Skipið mun dvelja í Dan-
mörku þar til 20. þ. m. en þá er
ráðgert að viðgerð þeirri, sem
framkvæmd verður á skipinu
verði lokið. Það mun flytja far-
þega báðar leiðirnar og geta
menn keypt farseðla í skrifstofu
skipaútgerðarinnar fram til há-
degis í dag.
Samband íslenzkra berkla-
sjúklinga hefir fengið 20 fjög-
urra manna Renault-bifreiðar,
sem efnt verður til happdrættis
um. Dráttur mun fara fram
fjórum sinnum, um fimm bíla
í hvert skipti.
Fyrsti dráttur fer fram 15.
júlí, annar 15. nóvember, þriðji
15. febrúar 1948 og sá fjórði 15.
maí 1948.
Sömu miðarnir gilda, án end-
urnýjunar, fyrir alla drættina
og halda því verðmæti sínu til
loka happdrættisins í maí 1948.
í síðasta drættinum verður að
eins dregið úr númerum seldra
miða. ,
Framboðin í Vestur-
Skaftafellssýslu
Framboðsfrestur við auka-
kosninguna í Skaftafellssýslu
rann út í gærkvöld. Höfðu þá
borizt þessi framboð: Jón Gísla-
son bóndi, Norðurhjáleigu, fyrir
Framsóknarflokkinn, Jón Kjart-
ansson ritstjóri fyrir Sjálfstæð-
isflokjúnn og Runólfur Björns-
son fyrir Sósíalistaflokkinn.
Nýju tryggingalögin leggja
of þungar byrðar á útveginn
Frá aðaífundi L. f. tJ., sem lauk I gær
Auk þeirra tillagna, sem áður hafa verið birtar, samþykkti aðal-
fundur Landssambands ísl. útvegsmanna ályktanir um nýju al-
mannatryggingalögin, landhelgisfærslurnar, ráðstafanir vegna
aflabrests og saltfiskssölurnar. Þessar tillögur fara hér á eftir.
Krafizt breytinga
á tryggiy.galögunum.
„Aðalfundur L.Í.Ú samþykkir
að fela stjórninni að vinna að
því, að kvaðir þær, er nú hvíla
á útvegsmönnum, vegna veik-
inda og slysa skipverja, verði
komið yfir á almannatrygginga-
stofnun ríkisins, að því leyti sem
hægt er, en að öðru leyti falli
þær niðúr.“
Ráðstafanir vegna aflabrests.
Varðandi löggjöf um trygg-
ingar útvegsmanna vegna afla-
brests, var gerð þessi samþykkt:
„Aðalfundur L.Í.Ú. 1947 lýsir
því yfir, að hann telur það eitt
mesta hagsmunamál útvegs-
manna, að þeim sé með löggjöf
gert kleift að tryggja sig gegn
aflabresti.
Mál þetta hefir þegar verið
mjög gaumgæfilega athugað af
stjórnskipaðri nefnd haustið
1945, sem skilaði áliti og tillög-
um til atvinnumálaráðherra um
málið, ásamt frumvarpi til laga
um tryggingu vegna aflabrests.
Út af þessu vill aðalfundurinn
spyrjast fyrir um það hjá hæst-
virtri ríkisstjórn, hvað líði af-
greiðslu þessa þýðingarmikla
máls og skora jafnframt á Al-
þingi og ríkisstjórn að hraða
sem mest setningu slikra laga.“
Landhelg ismálin.
Þá var lýst yfir fylgi við eftir-
farandi tillögur, sem höfðu bor-
izt frá Útvegsbændafélagi Vest-
mannaeyja:
„Aðalfundur Útvegsbændafé-
lags Vestmannaeyja haldinn 31.
maí 1947, skorar á L.Í.Ú. að
vinna ötullega að því að land-
grunn íslands verði löghelgað
sem íslenzk eign.
Aðalfundur Útvegsbændafé-
lags Vestmannaeyja haldinn 31.
maí 1947 skorar á L.Í.Ú. að beita
sér fyrir því við ríkisstjórnina
að varin verði 4 mílna landhelgi
fyrir síldveiðum útlendinga."
Sala saltfisksins.
Ennfremur var lýst yfir 'stuðn-
ing við eftirfarandi tillögur frá
sama félagi:
„Aðalfundur Útvegfbændafé-
lags Vestmannaeyja haldinn 31.
maí 194/?, skorar á L.Í.Ú. að það
beiti sér fyrir því eftir mætti, að
saltfiskur sá, sem nú er liggj-
andi hér, verði hið fyrsta seldur
og greiddur, þar sem illmögulegt
er að verja hann skemmdum
heitustu sumarmánuðina.“
Stjórnarkosning.
í lok fundarins fór fram
stjórnarkosning 1 Landssam-
bandinu og var Sverrir Júliiísson
endurkjörinn formaður þess, en
varaformaður var kosinn Loft-
ur Bjarnason útgerðarmaður í
Hafnarfirði. Aðrir stjórnar-
nefndarmenn voru kosnir þeir:
Kjartan Thors, forstjóri
Reykjavík, Ásgeir G. Stefánsson,
forstjóri,. Hafnarfirði, Sveinn
Benediktsson, forstjóri, Reykja-
vík, Ólafur B. Björnsson, útgerð-
armaður, Akranesi, Ingvar Vií-
hjálmsson, útgerðarmaður,
Reykjavík, Finnbogi Guðmunds-
son, útgerðarmaður, Gerðum
Jóhann Þ. Jósefsson, fjármála-
ráðherra og Finnur Jónsson,
alþingismaður.
Landbúnaðarsýningin, sem verður stærsta sýning, sem haldin
hefir verið hér á Iandi, verður opnuð eftir réttan hálfan mánuð,
eða fimmtudaginn 26. júní kl. 2.30 e. h. Tíðindamaður blaðsins
sneri sér því til Kristjóns Kristjónssonar framkvæmdastjóra
sýningarinnar og spurðist fyrir um tilhögun íennar.
Landbúnaðarsýningin verður i
mörgum deildum og sýna yfir
100 fyrirtæki innlend og erlend
þar vörur sínar í sérstökum sýn-
ingarskápum og , sérstökum
byggingum. Sýning Sambands
ísl. samvinnufélaga verður
langsamlega stærst og hefir það
látið reisa stóran skála til að
sýna vörur sínar í, auk þess sem
bifreiðar og &tórar landbúnaðar-
vélar verða sýndar úti. Tvö önn-
ur fyrirtæki hafa einnig sér-
stök hús, sem þó eru miklu
minni, eru það Orka og heild-
verzlunin Hekla.
Aðalsýningarskálinn er 270
ferm. að stærð og er meginhluti
sýningarinnar í honum, skipt
niður í margar deildir.
Þegar komið er inn í sýningar-
skálann verður fyrst fyrir fólki
framhlið á nýtízku sveitabæ, en
síðan er gengið inn í breiðan
gang. Meðfram honum er komið
fyrir sýningarskápum ein-
stakra fyrirtækja og sýningar-
svæðin sjálf til hægri handar.
Verður þar margt fróðlegt að sjá
svo sem margs konar landbún-
aðartæki gömul og ný, teikning-
ar og myndir af sveitabæjum
í gömlum og nýjum stíl. Fyrir
gafli hins stóra sýningarskála
verður á stóru svæði komið fyr-
ir gróðri og sýnishorni af ís-
lenzku landslagi. Fellur foss
niður milli hamraveggja, sem
þarna hafa verið búnir til, og
rennur vatnsstraumurinn um
lækjarfarveg í stöðuvatn.
Á sýningunni verður m. a.
mjólkurbú og allar þær vélar,
sem tilheyra og er þegar búið að
koma þeim fyrir. Fjöldi línurita
og talna vprða á sýningunni
varðandi íslenzkan landbúnað
og myndskreytingar, sem þeir
Stefán Jónsson og Jörundur
Páfsson hafa aðallega gert.
Á sýningunni verða einnig ís-
lenzkar afurðir og sýningar-
gestum gefinn kostur á að
neyta þeirra. Verður hægt að fá
ýmis konar kjötrétti, grænmet-
isrétti og mjólk og mjólkun-étti.
Úti á sýningarsvæðinu, sem er
um 30 þús. ferm. að stærð, verða
gripasýningar. Hefir verið kom-
ið upp húsum yfir kýr, kindur,
hesta og refi, en auk þess verða
gripirnir að einhverju leyti til
sýnis úti á sérstöku svæði. Reist-
ur hefir verið stór skáli á sýn-
ingajisvæðinu, sem rúma mun
um 200 manns í sæti. Verða þeir
sýndar daglega kvikmyndir um
íslenzkaji og erlendan land-
búnað.
Eins og áður er sagt miðar
undirbúningi sýningarinnar vel
áfram, og er nú komið svo langt,
að verið er að koma fyrir miklu
af sýnjagarmununum.
Það er Búnaðarfélag íslands,
sem gengst fyrir því að Land-
búnaðarsýning þessi er haldin.
Var á síðastl. hausti skipað 24
manna sýningarráð og er Bjarni
Ásgeirsson landbúnaðarráð-
herra formaður ráðsins, en
Steingrímur Steinþórsson bún-
aðarmálastjóri er framkvæmda-
stjóri þess. Um seinustu áramót
var Kristjón Kristjónsson ráð-
inn framkvæmdastjóri sýning-
arinnar og hefir hann haft sér
til aðstoðar þá Svein Tryggvason
(Framhald á 4. síðu)
Íslandsglíman
veröur háð á
sunnudaginn
Íslandsglíman verður aust-
ur í Haukadal að þessu sinni.
Verður hún háð þar á sunnu-
daginn kemur og hefst kl. 2
síðdegis. Keppendur verða
tólf og kama þar fram allir
fræknustu glímumenn lands-
ins.
Kennpendur verða .þessir:
Guðmundur Ágústsson glímu-
kongur, Guðmundur Guð-
mundsson, Gunnlaugur Ingason,
Kristján Sigurðsson og Steinn
Guðmundsson (allir frá Ár-
manni), Sigurjón Guðmunds-
son, sem vann Ármannsskjöld-
inn í vetur (frá u. m. f. Vöku),
Ágúst Steindórsson, Aðalsteinn
Eríksson, Friðrik Guðmundsson,
Guðmundur J. Guðmundsson,
Davíð Hálfdánarson og Ólafur
Jónsson (állir frá K.R.).
Ef dærha má eftir skjaldar-
glímu Ármanns í vetur, verður
þetta einhver skemmtilegasta
og mest spennandi Íslandsglíma,
sem lengi hefir verið háð.
Knattspyrnumót
íslands
Knattspyrnumót íslands hefst
annað kvöld og taka Akurnes-
ingar þátt í því, auk Reykjavík-
urfélaganna fjögurra.
Fyrsti leikur mótsins verður
milli Fram og Víkings. Á sunnu-
daginn fer svo fram annar leik-
ur mótsins, og keppa þá Valur og
Akurnesingar.
Bretar sigruðu
úrvalsliöið
meö 6:1
Síðasti kappleikur Queens
Park Rangers fór fram í gær-
kvöldi á íþróttavellinum í
Reykjavík. Leiknum lauk með
sigri Bretanna, 6:1.
Fyrra hálfleik lauk með 3:0,
Bretum í vil. Snemma í seinni
hálfleik tókst úrvalsliðinu að
skora mark, og við það færðist
allmikið líf í liðið. Var leikur
þess mun þróttugri þann hálf-
leik.