Tíminn - 20.06.1947, Qupperneq 1
í RITSTJÓRI:
’ ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
(
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
31. árg.
Reykjavík, föstudaglim 20. júnfi 1947
I „ITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚ3I. Lindargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, LlndargÖt j 9 A
Simi 2323
111. blað
ERLENT YFIRLIT:
Bandaríkin og endurreisn Evrópu
Reyna Rússar að koma í veg fyrir, að Banda-
ríkin veiti Evrópuþjóðimum aukna aðstoð?
Það alþjóðamál, sem nú er einna efst á baugi, er yfirlýslng
Marshalls utanríkismálaráðherra um framlag Bandaríkjanna til
endurreisnarinnar í Evrópu. í ræðu, sem Marshall hélt nýlega í
Harvardháskóla, lýsti hann yfir því, að Bandaríkin væru fús til
þess að leggja stórum meira af mörkum til endurreisnarinnar
í Evrópu, en þeir hafa gert hingað til. Hann hefir síðan endurtek-
ið þessa yfirlýsingu sína, en bætt því við, að Evrópuþjóðirnar
þyrftu að ákveða það sem mest sjálfar, hvernig aðstoð Banda-
ríkjanna skyldi háttað, og tryggja það þannig, að hún kæmi að
sem mestum notum.
í Bandaríkjunum hefir þess-
ari yfirlýsingu Marslralls yfir-
leitt verið vel tekið. Flest blöðin
hafa lýst fylgi sínu við hana
og foringi republikana í utan-
ríkismálum, Vandenberg öld-
MARSHALL
utanríkismálaráðh. Bandaríkjanna.
ungadeildarmaður, hefir tjáð
henni fylgi sitt. Sú skoðun
ryður sér til rúms í Banda-
rikjunum, að lýðræðisstefnan sé
í mikilli hættu í Evrópu, ef ekki
takist fljótlega að rétta við fjár-
haginn og atvinnuvegina, en
hvort tveggja er þar víðast í
kaldakoli eftir styrjöldina. —
Einkum séu Frakkland og Ítalía
í mikilli hættu í þessum efnum.
Fari svo, að lýðræðisskipulagið
r resti í þessum löndum, getur
að skapað aukna stríðshættu
c ~ kostað Bandaríkin miklu
r 'iri útgjöld síðar en sú aðstoð
’ -ndi kosta, sem þarf til að
: tta við efnahag þessara landa.
: að séu þvi ekki síður hags-
ERLENDAR FRÉTTIR
Palistínunefnd Sameinuðu
þjóðanna hefir byrjað starf sitt.
Æðsta ráð Araba í Palestínu
hefir neitað allri samvinnu við
nefndina og fyrirskipað sólar-
hrings verkfall til að mótmæla
henni, þegar hún hóf starf sitt.
Telja Arabar, að ofmikið tillit
hafi verið tekið til Gyðinga við
skipun nefndarinnar.
Sjómannaverkfalinu, sem
hófst 1 Bandaríkjunum fyrir
nokkru, er nýlokið. Var samið
um nokkura kauphækkun.
Truman forseti hefir neitað
að staðfesta lög, sem þingið
samþykkti nýlega, um skatta-
lækkun.
Nicola, forseti Ítalíu, hefir á-
kveðið að biðjast lausnar.
ítalska þingið hefir nýlega
samþykkt að fresta þingkosn-
ingum, sem áttu að fara fram
i haust, til næsta árs.
Mikil vatnsflóð í miðfylkjum
Bandaríkjanna hafa valdið
miklum skemmdum á uppskeru.
Tvö stór flugslys urðu í Banda-
ríkjunum um seinustu helgi.
Farþegaflugvél með fimmtiu
manns rakst á fjall og fórust
allir. Risaflugvirki fórst með 12
manna áhöfn.
munir Bandaríkjanna sjálfra en
þessara landa, að þeim sé veitt
hjálp til að koma fjármálum
sínum á réttan kjöl.
Það kann og að ráða afstöðu
sumra Bandaríkjamanna, að
framleiðsla þeirra er orðin svo
mikil í ýmsum greinum, að
heimamarkaðurinn nægir þeim
ekki lengur, en Evrópuþjóðirn-
ar, sem vildu kaupa þessar vör-
ur geta ekki keypt þær vegna
gjaldeyrisskorts. Aðstoð Banda-
ríkjanna við þessar þjóðir myndi
greiða fyrir aukinni sölu á
amerískum vörum í Evrópu.
L'íklegt þykir, að það hafi ýtt
undir yfirlýsingu Marshalls, að
eitt af forsetaefnum republik-
ana, Stassen, bar fram þá til-
lögu eftir Evrópuferð sína í
vetur, a'ð Bandaríkin lánuðu
öðrum þjóðum til viðreisnar-
starfseminnar upphæð, er svar-
aði til 10% af þjóðartekjum
þeirra næstu árin. Þessi lán
yrðu endurgreidd á löngum tíma
og að meira eða minna leyti
með vörum.
í Evrópu hefir yfirlýsingu
Marshalls yfirleitt verið vel tek-
ið. Einkum hafa Bretar fagnað
henni og hafið undirbúning
þess, að Evrópuþjóðirnar gerðu
tillögur um, hvernig aðstoð
Bandarikjanna skyldi háttað.
Bevin fór í þessum erindagerð-
um til Parísar í byrjun þessarar
viku og ræddi þar við Bidault
um þessi mál. Er talið að þeim
hafi komið saman um að senda
Rússum orðsendingu þess efnis,
að Bretar, Frakkar og Rússar
boðuðu sameinglega til ráð-
stefnu, þar sem þessi mál væru
rædd.
í rússneskum blöðum hefir
yfirlýsingu Marshalls verið tek-
ið með allmikilli tortryggni.
Óttast ýmsir, að Rússar muni
reyna að spilla fyrir því, að
Evrópuþjóðirnar þiggi þessa að-
stoð. Bretar og Frakkar munu
þó telja rétt að gefa Rússum
kost á því að vera með í ráðum,
svo að þeir geti ekki kennt því
um síðar, að þeir hafi verið
sniðgengnir. En óliklegt er, að
Rússum verði sýndir miklir
eftirgangsmunir, og Bandaríkin
muni þá binda aðstoð sína vlð
Vestur-Evrópu, ef Rússar reyna
að koma einhverjum brögðum
við til að hindra heildarráð-
stafanir, sem nái til Evrópu
allrar. Ótti Rússa virðist einkum
stafa af því, að aukist sam-
bönd Bandaríkjamanna við
þjóðir Austur-Evrópu, kunni það
aö draga úr áhrifum þeirra
sjálfra þar.
Nýr togari
Fyrir nokkrum dögum kom
til landsins einn af þeim nýju
togurum, sem smíðaðir eru fyrir
íslendinga í Englandi. Heitir
hann Egill Skallagrímsson, og
er eign Kveldúlfs. Hann er af
sömu gerð og Kaldbakur, sem
síðast kom, nema hvað innrétt-
ing á hásetaklefa er nokkuð með
öðru sniði.
Á næstunni eru væntanleglr
Tilraunir kommúnista til aö koma á samúð-
arverkföllum hafa misheppnast að mestu
FYRSTA ISLETVZKA SKYMA STERFLL G\ÉLL\
Mynd þessi var tekin af Heklu, Skymasterflugvél Loftleiða, rétt eftir að
hún settist á Reykjavíkurflugvöllinn í fyrsta sinn síðastl. sunnudag. —
Hekla fór fyrstu ferð sína til Kaupmannahafnar á þriðjudaginn og kom
heim aftur í fyrradag. Hún var sjö klst. á leiðinni til Kaupmannahafnar.
Hún mun fara aðra Kaupmannahafnarför sína í dag.
(Ljósm.: Guðni Þórðarson).
Bygging Hallveigarstaða
verður hafin bráðlega
Byggingarnefnd Hallveigarstaða kallaði blaðamenn á fund
sinn í gær, sýndi þeim og skýrði fyrir þeim uppdrætti að Hall-
veigarstöðum. Eru uppdrættir nú fullgerðir, og hyggst nefndin
að hefja framkvæmdir svo fljótt sem kostur er á.
Minnisvarði um Stef-
meistara
° Eins og kunnugt er, eiga ís
lenzkar konur hina ágætu lóð-
við Túngötu, Garðastræti og
Öldugötu, hér í bæ, og hið glæsi-
An Annnnn olrÁlr. lega hús verður sannnefnd bæj-
dll iJlcIdllSSOIl SKOId- , arprjsði, þegar það er komið upp.
Að teikningum hafa unnið
þeir húsameistararnir Sig-
mundur Halldórsson og Sig-
valdi Thordarson. Eru konurnar
mjög ánægðar með fyrirkomu-
lag hússins og útlit. Skal nú
húsinu lýst í aðaldráttum: Sam-
komu- og veitingasalir eru á
tveim hæðum neðsV Túngötu-
megin, en eldhús Hallveigar-
staða og brauðgerðarherbergi
eru á baklóð vestanverðri. Verðá
þar, meðal annars, útbúnir ým-
isskonar réttir matar, nestis-
pakkar og kaffibrauð til sölu í
frambúri, er snýr að Garða-
stræti. Þar verður og hið ilmandi
„Hallveigarstaðakaffi" fram-
reitt, seint og snemma.
Við Garðastræti og Öldugötu
verða nokkrar leigubúðir, og er
vissara að tryggia sér þær í
tíma, því að staðurinn er góður,
svona nærri almennri umferð.
Á annarri hæð eru félaga-
heimilin og upplýsingarstöð
kvennaheimilisins. Þarna mun
Kvenfélagasamband íslands,
Kv*enréttindafélagið, Mæðra-
styrksnefndin og Lestrarfélag
kvenna hafa bækistöð sína. í
norðurálmunni, út að Öldugötu
og Garðastræti verðuf bókasafn
og lestrarsalur, en litil barna-
lesstofa í norðvesturhlutanum
með sérinngangi frá Öldugötu.
(Framhald á 4. síðu)
Nokkrir gamlir nemendur
Stefáns heitins Stefánssonar
skólameistara hafa nýlega
gengizt fyrir þvf, að reist
verði líkneski af honum í
skólagarðinum á Akureyri,
fyrir framan menntaskólann.
Áttu þeir Pálmi Hannesson
og Fritz Bentsen, sem kosnir
hafa verið í nefnd í þessu
skyni, viðtal við blaðamenn í
gær.
í haust eru liðin 60 ár frá því
að Stefán hóf kennslu við
' Möðruvallaskólann og munu
! fjölmargir nemendur hans, sem
1 dreifðir eru viðs vegar um land-
!ið, gjarnan vilja minnast hinn-
! ar haldgóðu leiðsagnar hans
með þvi að leggja eitthvað af
mörkum til að reisa þetta
minnismerki.
; Sigurjón Ólafsson myndhöggv-
ari hefir gert myndina, sem af
kunnugum er talin mjög lik og
vel gerð. Er nú verið að gera af-
steypu af henni í Kaupmanna-
höfn, og er hún væntanleg hing-
að til lands seint í sumar. Er
ætlunin að reyna að koma
myndinni upp fyrir skólasetn-
inguna í haust.
Þeir gamlir nemendur Stef-
áns skólameistara, er styðja
vildu að þessu máli, eru vin-
samlega beðnir að setja sig í
samband við einhvern þeirra,
sem í nefndinni eru, en það eru
Pálmi Hannesson, rektor, Fritz
Bentsen, kaupmaður, Sveinbjörn
Jónsson, byggingameistari, Helgi
H. Eiríksson, skólastjóri, Jó-
hanna Knudsen, frú, Einar Þor-
grímsson og Sigurður Sigurðs-
son, berklayfirlæknir.
togari Norðfirðinga, sem á að
heita Eiríkur rauði og togari
Vestmannaeyja, sem heita á
Elliðaey.
Fram vann Akurnes-
inga með 2:1
Fjórði leikur knattspymu-
móts íslands fór fram á íþrótta-
vellinum í gær. Kepptu þá Fram
og Akurnesingar. Leikar fóru
þannig, að Fram vann með 2
mörkum gegn 1. Segja má að
leikurinn hafi yfirleitt verið
nokkuð jafn. Eiga Akurnesingar
nokkra efnilega knattspyrnu-
menn, sem myndu verða góðir,
ef þeir fengju meiri æfingu.
Stærsti ósigur þeirra síðan þeir náðu
völdum í Alþýðusambandinu
Þann 4. þ. m. sendi stjórn Alþýðusambands íslands þau tilmæli
til allra verkalýðsfélaga á landinu, að „félagið boði Vinnuveit-
cndafélagi íslands, Skipaútgerð ríkisins, olíufélögunum og
Reykjavíkurbæ nú þegar samúðarvinnustöðvun eftir því, sem til-
efni gæfist til, frá og með 14. júní n. k., ef þá hafa eigi tekizt
samningar (þ. e. við Dagsbrún)“. Áður í þessari orðsendingu
Alþýðusambandsstjórnarinnar hafði verið mælzt til þess við fé-
lögin, að þau „sjái um, að á félagssvæðinu verði ekki afgreiddar
vörur eða flutningatæki í banni Dagsbrúnar", en siíkt teist ekki
samúðarvinnustöðvun. Það eitt telst samúðarvinnustöðvun, þeg-
ar vinna er alveg lögð niður, eins og járnsmiðir í Reykjavík hafa
nú gert.
Reynt að breiða yfir ósigurinn.
Svo litlar undirtektir hafa
þe&si tilmæli fengið, að stjórn
Alþýðusambandsins reynir nú að
halda því fram ,að hún hafi ekki
farið fram á, að félögin gerðu
samúðarverkfall. Birtist yfirklór
þess efnis frá henni í blöðunum
í gær. Yfirklór þetta er hins veg-
ar fyllsta markleysa, eins og
gleggst sést á því orðalagi úr til-
mælum hennar til félaganna,
sem greint er hér á undan.
Þessar undirtektir verkalýðs-
félaganna sýnir bezt, hve lltils
fylgis verkfallsbrölt kommún-
ista nýtur meðal verkamanna
landsins, og hve vaxandi sá
skilningur þeirra er, að kaup-
hækkun nú myndi aðeins hafa
aukna dýrtíð og atvinnuleysi í
för með sér.
Félögin, sem hafa boðað
samúðarverkfall.
Þau verkamannafélög, sem
hafa orðið við tilmælum Alþýðu-
sambandsstjórnarinnar og til-
kynnt Vinnuveitandafélagi ís-
lands samúðarverkfall, eru
þessi:
Félag járnsmiða i Reykjavík,
sem boðaði samúðarverkfall frá
16. þ. m. og hefir verið í verk-
falli síðan.
Félag vörubílstjóra í Reykja-
vík, sem boðaði samúðarverkfall
frá 18. þ. m. og hefir haldið uppi
verkfalli frá þeim tíma.
Félag bifvélavirkja í Reykja-
vík, sem hefir boðað samúðar-
verkfall frá Ag með 20. þ. m.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Miðnesshrepps, sem hefir boðað
samúðarverkfall frá og með 20.
þ. m. ‘
Verkamannafélag Akureyrar,
sem hefir boðað samúðarverk-
fall frá og með 20. þ. m.
Verkamannafélag Glæsibæj-
arhrepps, sem hefir boðað sam-
úðarverkfall frá og með 20. þ.
mán.
Verkamannafélag Raufarhafn-
ar, sem boðaði samúðarverkfall
frá og með 17. þ. m., en hefir
ekki látið það koma til fram-
kvæmda.
Verkamannafélagið Þróttur á
Siglufirði, sem boðaði samúðar-
verkfall frá og með 17. þ. m.,
en hefir ekki látið það koma til
framkvæmda.
Þá hafði eitt félag, Verka-
mannafélag Patreksf j arðar, boð-
að samúðarverkfall, en breytti
því síðar í það að afgreiða ekki
vörur, sem eru í banni Dags-
brúnar. Þó eru undanþegnar
banninu þær vörur, sem ejga að
fara tíl Patreksfjarðar, svo að
arverkfall. Meira að segja félög,
ist heldur haldlítil.
Þá hafði stjórn verkamanna-
félagsins i Borgarnesi tilkynnt
samúðarverkfall frá 17. þ. m.,
en verkamenn þar tóku slðar
völdin af stjórninni, eins og
kunnugt er.
Önnur félög hafa ekki orðið
við þeirri áskorun Alþýðusam-
bandsstjórnarinnar að tilkynna
Vinnuveitendafélaginu samúð-
arstöðvun. Meira að segja félög,
þar sem kommúnistar hafa ráð-
ið lögum og lofum, eins og Hlíf
í Hafnarfirði og Verkalýðsfélag
(Framhald á 4. siðu)
Verkföll hjá síldveiðiflotanum
og síldarverksmiðjum ríkisins
f nótt hófst verkfall, sem sjö verkalýffs- og sjómannafé
Iög höfffu boffaff á síldveiðiflotanum. Verkfall þetta er haf
iff aff frumkvæffi kommúnista í stjórn Alþýffusambandsins
Láta mun nærri, aff verkfalliff nái til % hluta síldveiðiflot
ans.
Á síðastl. vetri reyndu kom-
múnistar að fá sjómannafélögin
til að segja upp síldveiðisamn-
ingum. Þessu var hafnað af öll-
um félögunum, nema þeim, sem
kommúnistar veita forstöðu.
Þau félög hafa nú efnt til
|verkfalls eftir að samningaum-
leitanir hafa reynzt árangurs-
'lausar. Þessi félög eru: Sjó-
' mannafélagið Jötunn, Vest-
mannaeyjum, Verkalýðs- og
sjómannafélag Gerða- og Mið-
neshrepps, Verkalýðsfélag Borg-
arness, Verkamannafélagið
Þróttur, Siglufirði, Sjómanna-
félag Akureyrar, Verkalýðsfélag
Norðfirðinga, Neskaupstað og
Vélstjórafélagið Gerpir, Nes-
kaupstað.
Þá hefst og í dag verkfall við
Síldarverksmiðjur ríkisjns á
Skagaströnd og Raufarhöfn,
sem verkamannafélögin á þess-
um stöðum hafa boðað til vegna
ágreinings um kaupsamninga.
Loks á svo að hefjast í dag
hið ólöglega verkfall Þróttar við
Ríkisverksmiðjurnar á Siglu-
firði. Stjórn ríkisverksmiðjanna
hefir vísað því máli til úrskurð-
ar Félagsdóms, sem mun taka
það til meðferðar eftir helgina.