Tíminn - 08.07.1947, Side 1

Tíminn - 08.07.1947, Side 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: PRAMSÓKNARFLOKKURINN Simar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. RITSTJÓR ASKRIPSTOFUR: EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A Símar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Llndargötu 8A Sími 2323 31. á*g. Reykjavík, þriðjudaginn 8. júlí 1947 131. blað Sláttur tiafinn um land allt Grasspretta er með meira móti Samkvæmt fregnum, sem Tíminn hefir fengið mun sláttur nú yfirleitt hafinn um land allt. Á Suðurlandi og Vestfjörðum mun hann hafa byrjað um mánaðamótin, en óhagstætt tíðarfar hamlað víða að gengið væri að honum af fullu kappi. Víða á Fljótsdalshéraði og í Eyjafirði hófst sláttur upp úr miðjum júní, en nokkru seinna í Þingeyjarsýslum. Á þessum stöðum munu bændur vera bún- ir að hirða allmikið af töðu. Einn bóndi, Ólafur Jónsson, for- stjóri Ræktunarfélags Norður- lands, hefir þegar Ipkið fyrsta slætti og alhirt alla töðuna. Grasspretta mun yfirleitt vera með meira móti um allt land En víða veldur það nokkrum ugg, að fólk er með allra fæsta mótf, og getur það haft alvar- legar afleiðingar, ef tíðin reynist óhagstæð. Óvenjulegt ofviðri um helgina f fyrradag og alla fyrri nótt geisaði ofviðri mikið um land allt, sem algerlega er etins dæmi á þessum tíma árs, eftir því sem veðurstofan tjáði blaðinu í gær. Mest var veðurhæðin hér á ‘Súðuirlandi og á Austurlancfi. Stóð það af norðri og norð- austri. í gærmorgun var veður- hæðin 9 vindstig hér í Reykja- vík, en 10 vindstig á Þingvöllum. Fylgdi veðurofsa þessum úrhell- isrigning. Norðanlands og á Vestfjörð- um var veðurhæðin minni, en þokubræla var við norður- ströndina. Eins og áður er sagt, telur veðurstofan þetta veður, bæði vindhraða og rigninguna, eins dæmi hér sunnanlands í norðan- átt. Tjón af völdum ofveðursins mun nokkúrt, en ekki hefir enn frétzt um neina meiriháttar skaða af völdum þess. Hér í Reykjavík var ofviðrið svo mikið, að skip gátu ekki komizt að bryggju. ERLENDAR FRETTIR Flokksþing j afnaðarmanna í Frakklandi var haldið um helg- ina. Þingið samþykkti með 5/e atkvæða að styðja stjórn Rama- diers. Allmörg ríki hafa nú þegið boð Frakka og Breta um þátt- töku í Parísarfundinum. Utan- ríkisráðherrar Dana, Norð- manna og Svía munu koma sam- an til að ráðgast um afstöðu Norðurlanda. í fyrradag hófust í Indlandi atkvæðagreiðslur í þeim héruð- um, sem eiga að velja á milli Hindustan og Pakistan. í brezka þinginu er nú til umræðu stjórnarfrv. þess efnis, að sjálf- stæði Indlands verði lýst yfir 15. ágúst næstk. og þarf stofnun áðurnefndra ríkja að vera lokið fyrii’ þann tíma. Birt hefir verið skýrsla þess efnis, að kornuppskera í Evrópu verði 10% meiri í ár en i fyrra. A SYNINGARDEILD S.I.S. LAUSN KAUPDEILANNA: Kommúnistar féllu frá öllum kröfum sínum í verksmiðju- deilunni af ótta við úrskurð Félagsdóms Verkamenn þar fengu verkföllin ekki bætt aö neinu leyti. - Dagsbrúnarmenn veröa hálft annaö ár aö vinna upp verk- fallstapiö. - Kommúnistar hafa aldrei veriö fjær því marki sínu en nú, að fella stjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar Samkomulag náðist í öllum kaupdeilumálunum um helgina og réði þar mestu, að kommúnistar vildu flest til vinna, að úrskurður Félagsdóms f Siglufjarðardeilunni yrði ekki opinber, jafnframt og þeir fundu, að verkamenn voru mjög teknir að þreytast á verkföllunum. Kommúnistar unnu það því til að ganga að öllu leyti inn á tillögur þær, sem Þorsteinn M. Jónsson bar fram í byrjun júnímánaðar og fékk þá samþykktar, en kommúnistar höfðu ákveðið að hafa það ekki að neinu og knýja fram miklu meiri hækkanir. Þessar tillögur Þorsteins M. Jónssonar gilda nú sem samn- tngar um kaup og kjör við ríkisverksmiðjurnar, eins og verksmiðjustjórnin hafði jafnan boðið, en kommúnistar ekki viljað fallast á. Hafa kommúnistar ekki um langt skeið beðið eins fullkominn ósigur og í þessu máli. Kommúnistar fengu hins vegar nokkrar sárabætur í Dagsbrúnardeilunni, þar sem fallizt var á 15 aura grunnkaupshækkun á klst. Þær bætur hrökkva þó engan veginn til að bæta verkfalls- tap verkamanna, þar sem það mun taka þá 1% ár að vinna það upp með grunnkaupshækkuninni, en fyrir þann tíma hefir dýrtíðaraukningin og atvinnurýrnunin, sem hlýzt af henni, fyrir löngu komið til sögunnar. Kommúnistar óttuðust Félagsdóm. Það kom strax í ljós, eftir að Félagsdómur fékk Siglufjarðar- málið til meðferðar, að komm- únistar óttuðust mjög niður- stöður dómsins. Lögleysur þær og ofbeldi, sem þeir höfðu fram- ið, var líka svo augljóst, að vit- anlegt var, að verkfallið yrði ekki aðeins dæmt ölöglegt, held- ur myndi stjórn Þróttar og aðrir þeir, sem hér höfðu verið að verki, hljóta stórsektir. Daginn ájður en von var á dómnum sneri Alþýðusambandsstjórnin sér líka til Vinnuveitendafélags- ins og óskaði eftir viðræðum um allar kaupdeilurnar. Kom þar strax fram, að það sem hún setti fyrst og fremst á oddinn, var að úrskurður Félagsdóms yrði ekki kveðinn upp. Alþýðusambandsstjórnin mun í fyrstu hafa gert sér vonir um, að hún gæti fengið nokkra hækk- un umfram það, sem var í tillög- um Þorsteins M. Jónssonar. Henni var þá gert ljóst, að úr- skurður Félagsdóms myndi þá halda sinn gang. Hún vann það þá til að falla frá öllum slíkum kröfum og ganga að tillögum Þorsteins M. Jónssonar óbreytt- um gegn því að úrskurðurinn yrði ekki kveðinn upp. Ósigur kommúnista. Öllu meiri ósigur en þennan ósigur kommúnista er ekki hægt að hugsa sér. Það, sem fólst i til- lögum Þorsteins M. Jónssonar, stóð Þrótti strax til boða í lok aprílmánaðar siðastl. Kommún- istar hindruðu, að þetta væri borið undir verkamenn. Þor- steinn M. Jónsson tók þá þessar jtillögur upp og bar þær undir atkvæðagreiðslu í félaginu sam- kvæmt ákvæðum vinnulöggjaf- arinnar. Kommúnistar reyndu að hindra atkvæðagreiðsluna og |hugðust að telja hana ólöglega, jþegar hún gekk á móti þeim. í !skjóli þess efndu þeir til verk- jfalls, sem stóð í rúman hálfan ' níánuð, og ætluðu þannig að lómerkja lögmætar gerðir sátta- semjarans og knýja fram meiri kauphækkun. Þegar þeir sáu hins vegar fram á, að úrskurður meirihluta Félagsdóms myndi ganga á móti' þeim, hlupu þeir frá öllu saman. Með því játuðu Kosningarnar á Sauðárkróki Fyrstu bæjarstjórnarkosning- arnar á Sauðárkróki fóru fram síðastl. sunnudag. Úrslit kosninganna urðu þau að listi Sjálfstæðismanna hlaut 190 atkvæði og 3 menn kjörna. Jafnaðarmenn fengu 144 at- kvæði og einnig 3 menn kjörna. Listi Framsóknarmanna fékk 84 atkvæði og 1' mann kjörinn. Kommúnistar fengu 47 atkvæði og engan mann kjörinn. í í hreppsnefndarkosningunum seinustu var fulltrúatala flokk- anna hin sama, nema hvað Al- þfl. hefir unnið fulltrúann > af kommúnistum. þeir lögleysur sínar og ofbeldi, jeins fullkomlega og verða mátti. j J afnframt viðurkenndu þeir jlögmæti allra aðgerða sátta- !semjarans, enda hefir Þorsteinn M. Jónsson unnið af sömu sam- j jVizkusemi og lægni í þessu máli |Og jafnan hefir einkennt sátta- j semjarastarf hans. Þar sem kommúnistar gengu! að öllu leyti inn á tillögur Þor- steins, þótti rétt að fallazt á, að úrskurður Félagsdóms yrði ekki kveðinn upp, þar sem venja er að gefa eftir allar sakir, þegar samningsít1 nást. En með því að fallast á tillögur Þorsteins, ját- uðu kommúnistar ólögmæti og rangindi gerða sinna, eins og áður er sýnt fram á. I ' V , /: I Verkamenn að snúast geg-n kommúnistum. Annað, sem réði miklu um, að kommúnistar treystust ekki til að halda kröfum sínum og ofbeldisfyrirætlunum til streitu, var vaxandi andstaða verka- (Framhald á 4. siöu) Mynd þessi er frá sýningardeild S. í S. á Landbúnaðarsýningunni. Á stóru íslandskorti á veggnum eru merkt öll kaupfélög á Iandinu með tölustöfum, en nöfn þeirra fýrir neðan á veggnum. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri, Eysteinn Jónsson menntamálaráðherra, Vilhjálmur Þór for- stjóri S. í. S. og Bjarni Ásgeirsson atvinnumálaráðherra. (Ljósm.: Guðni Þórðarson). Landbúnaðarsýningin verður opin til næstu helgar FJorutíu þús. luauns Iiafa sótt sýuinguna í gærdag voru búnir aff skoffa Landbúnaffarsýninguna um 40 þúsund manns. Er sú aðsókn algert einsdæmi um nokkra sýn- ingu hér á landi. Fleiri skip munu stunda sildveið- ar i sumar en nokkru sinni fyrr €y Óveður hamlaði veiðum um helgina Sennilega verffa fleiri bátar gerðir út á síldveiffar nú en nokkru sinni fyrr, Mikill hluti flotans er þegar kominn á veiffar, þó enn séu margir bátar ókomnir norffur. í gær var slæmt veffur úti fyrir Norffurlandi og var allur flotinn í vari undir ströndinni, effa inni á höfnum. Sennilega verður sýningin ekki opin nema til næsta sunnu- dagskvölds og eftirleiðis verður hún aðeins opin kl. 2—11 dag- lega. Búpeningurinn, sem sýndur var, er nú að mestu farinn af sýningunni sakir slæmrar veðr- áttu, en öðru hvoru er til sýnis happdrættishestur sýningarinn- ar, sem er gæðingur mikill, son- ur Skugga, borgfirzka hestsins, sem híaut heiðursverðlaun sýn- ingarinnar, hinn forkunnar |fagra Sleipnisbikar. Aðrir munii happdrættinu eru Jeppabíll o§ Farmall-dráttarvél. Nú er merki sýningarinnai komið frá Svíþjóð og er það ti sölu fyrir sýningargesti á sýn- ingunni. Það er falleg silfur- næla, með burstabæ í gömlun stíl innan í skeifumerki. Lítils háttar skemmdir urðu i sýningunni í ofviðrinu í fyrr nótt, en þær hafa nú verið lag- færðar. Síldar hafði nokkuð orðið vart fyrir helgina, svo að vonir eru til, að síldin fari að veiðast strax og veður skánar. í vikulokin hafði Djúpavíkur- verksmiðjan tekið á móti 4315 málum í bræðslu, en verksmiðj- an á Ingólfsfirði hafði tekið á mófc 2016 málum. Mestan afla |hefir Jökull frá Hafnarfirði fengið, eða 1385 mál, en Dagriý i (Framhald á 4. síöu) Greitt fyrir ferða- lögum til Bretlands Frá 1. júlí mega íslenzkir þegnar fara til Bretlands með gild íslenzk vegabréf, án brezkr- ar áritunar. Hið sama gildir um brezka þegna, er fara vilja til íslands. Hátíð Framsóknar- manna að Hrafnagili | Þrátt fyrir dæmafátt illviðri fór héraðshátíð Framsóknar- manna í Eyjafirði fram áð Hrafnagili í fyrradag. Eins og arjnars stlðar á land- , inu var foráttuveður í Eyjafirði, en hátiðin var vel sótt þi-átt fyrir það. Ræður fluttu þeir Bernharð Stefánsson alþm., séra Sigurður Stefánsson á Möðruvöllum og Árni Björnsson kennari. Ýms fleiri skemmtiatriði voru og fór hátíðin hið bezta fram. íslendingar taka þátt í Parísar- fundinum Ríkisstjórn íslands hefir á- kveðið að taka boði ríkisstjórna Bretlands og Frakklands um að senda fulltrúa á hina fyrirhug- uðu ráðstefnu í París um við- reisn Evrópu. Utanríkisráðherra hefir tilkynnt sendiherrum Breta og Frakka þessa ákvörðun.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.