Tíminn - 11.07.1947, Page 1
\
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON
ÚTGEFANDI: \
FRAMSÓKNARFLOKKURINN >
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.I.
. .ITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
^rnur 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
siml 2323
31. árg.
Reykjavik, föstudaginn 11. júlí 1947
124. blað
Verðlagsnefnd landbúnaðarins
tekin til starfa
Nýja afurðaverðið verftur ákveðið fyrir
1. ágúst næstk.
Verðlagsnefnd landbúnaðarins, sem er skipuð samkvæmt hin-
um nýju lögum um framleiðsluráð o. fl., er nú tekin til starfa
og er ætlazt til, að hún hafi lokið þeim nokkru fyrir mánaða-
mót. Ef ekki næst samkomulag í nefndinni, gengur verðákvörð-
unin til úrskurðar gerðardóms, sem verður að hafa fellt dóm
>inn fyrir 1. ágúst næstk.
Rússar fara sínu fram
á Svalbarða
Ameríska blaðið New Jork
Post, sem er frjálslynt, skýrir
nýlega frá því, að Rússar fari
sínu fram á Svalbarða, þótt
norska þingið hafi neitað
þeim um herstöðvar þar.
Samkvæmt sérstökum samn-
ingi hafa Rússar rétt til kola-
vinnslu á nokkrum hluta Sval-
barða, en eigi að síður eiga að
gilda þar norsk lög og löggæzlan
á að vera í höndum Norðmanna.
Þetta síðarnefnda ákvæði samn
ingsins hafa Rússar ekki að
neinu, heldur hafa þarna sína
eigin lögreglu og leyfa yfirleitt
ekki Norðmönnum að fara inn
á kolavinnslusvæði sitt. M. a.
hafa þeir skotið á norsk seilveiði
skip, sem þeim hefir fundist
koma of nálægt ströndinni.
Svipaðar fréttir hafa einnig
borizt í Sænskum blöðum. Það
er jafnframt upplýst, að Rússar
hafa mikinn mannafla á Sval-
barða og þykir ólíklegt að hann
fáist allur við kolavinnslu.
ERLENDAR FRETTIR
Gríska stjórnin lét hefja fang-
elsun kommúnista í Aþenu og
grennd hennar í fyrradag.
Skipta þeir, sem fangelsaðir
hafa verið, nokkrum þúsundum.
Gríska stjórnin segir, að kom-
múnistar hafi haft uppreistar-
tilraun í undirbúningi til
hjálpar skæruliðunum í Norð-
ur-Grikklandi.
Trúlofun Elísabetar Englands-
prinsessu og Philips Grikkja-
prins var opinberlega tilkynnt í
fyrradag.
Verðlagsnefndin er þannig
skipuð:
Frá Stéttarsambandi bænda:
Sverrir Gíslason, Hvammi,
Steingrímur Steinþórsson, bún-
aðarmálastjóri og Sigurjón
Sigurðsson, Raftholti
Frá Sjómannafélagi Reykja-
víkur: Sæmundur Ólafsson,
f ramkvæmdastj óri.
Frá Alþýðusambandi íslands:
Ingóifur Gunnlaugsson, verk-
stjóri.
Frá Landssambandi iðnaðar-
manna: Einar Gíslason málara-
meistari.
Verðlagsnefndin er þannig
skipuð sex mönnum. Henni til
aðstoðar eru svo hagstofustjóri
og forstöðumaður búreikninga-
skrifstofunnar.
Verkefni nefndarinnar er að
ákveða verðlagið á landbúnaðar-
afurðum á þeim grundvelli, að
bændum séu tryggðar svipaðar
tekjur og öörum hliðstæðum
stéttum. Gerðardómurinn á
einnig að byggja úrskurð sinn
á sama grundvelli, ef verðá-
kvörðunin gengur til hans.
Ef ekki næst fullaðarsamn-
komu’ag í verðlagsnefndini, á-
kveður gerðardómurinn verðið
eins og áður segir. í honum eiga
sæti hagstofustjóri og einn full
trúi frá bændum og einn full-
trúi frá samtökum neytenda.
Verði horfið frá því. sviði, að
greiða niður verð á landbúnað-
arafurðunum, fellur gerðar-
dómurinn niður af sjálfum sér
og bændur ákveða þá einir verð-
ið, ef ekki næst samkomulag í
verðlagsnefndinni. Gerðardómur
inn er þvi ekki nema bráða-
birgðaráðstöfun. Framsóknar-
menn töldu hana óþarfa, en
hinir stjórnarflokkarnir tíldu
hættu á, að bændur kynnu að
freistast til að ákveða verðið
hærra en elia, þegar nokkur
hluti þess væri greiddur af rík-
issjóði og þeir væru því ekki
eins háðir \fn skilyrði að ákveða
verðið með tilliti til þess, að var-
an seldist. Stafar þessi skilning-
ur af vanþekkingu á skapferli
bænda, því að þeir eru manna
ólíklegastir til að misnota sér
slíka afstöðu.
IVýja framhaldssagan:
Gesíí’r í MiklagarbL
í dag hefst i Tímanum ný
framhaldssaga, „Gestir í Mikla-
garði“, eftir kunnan þýzkan rit-
höfund, Eric Kástner að naíci.
Þetta er gamansaga, sem gerist
að mestu leyti á vetrarhóteli í
Alpafjöllunum. Er atburðarás
sögunar harla spaugileg og
kemur oft á óvart. Má víst óhætt
fullyrða, að væntanlegir les-
endur eigi oft eftir að brosa að
þessari sögu, ef þeir þá geta
stillt sig um að hlæja upphátt.
Höfundur sögunnar er maður
kominn fast að fimmtugu,
fæddur árið 1899. Hann er kunn-
ur og vel metinn rithöfundur og
ljóðskáld. Almenningshylli sína
á hann fyrst og fremst að þakka
gaman§ögum sínum, en af þeim
mun saga sú, sem nú er að
hefjast hér í blaðinu, vera einna
kunnust og vinsælust.
j Sagan, sem Tíminn hefir birt
að undanförnu, Ráðskonan á
' Gn*nd, hefir átt miklum og al-
j mennum vinsældum að fagna
J og má gleðja aðdáendur hennar
, með því, að hún kemur út í bók-
arformi innan skamms. Og þeim
hinum sömu skal sagt það, að
enginn verður fyrir vonbrigðum
af Gestum í Miklagarði.
Sjö króna skattur á hvert síldarmál vegna ó-
stjórnar við byggingu nýju síldarverksmið janna
DÖNSKU KOiVl IVÖSIIJÖIVUV
Mynd þessi var tekin aí nýju dönsku konungshjónunum á fánahátíð,
sem Danmarkssamfundet hélt nýlega.
Verðlaun fyrir sauðfé á land-
búnaðarsýningunni
Sýndir voru átta ættstofnar, alls 46 kindur.
Dr. Halldór Pálsson ráðunautur hefir látið tíðindamanni blaðs-
ins í té upplýsingar og greinargerð fyrir verðlaunaveitingum og
sýningu á sauðfé á Landbúnaðarsýningunni. Verður að taka það
ril athugunar þegar rætt er um sauðféð sérstaklega, að þessi tími
árs er óheppilegasti tími, sem hægt er að fá til sýninga á því.
Sýndar voru alls 46 kindur, 23 af Kleifakyni og 23 af hyrndum
kynjum, og fjórir ættstofnar af hvoru kyni. Auk þess voru sýnd
sýnishorn af kynblendingum af íslenzkum og þremur skozkum
kynjum.
Síldarverksmiðjur ríkisins greiða kr.
40,30 fyrir síidarmálið
Það hefir nú verið ákveðið, að síldarverksmiðjur ríkisins greiði
kr. 40.30 fyrir síldarmálið að þessu sinni. Er það kr. 9.00 hærra
en í fyrra, en útflutningsverðið hefir hækkað um kr. 22.00—23.00.
Aðeins fjórar krónur af hverju síldarmáli munu renna í trygg-
ingarsjóð þann, sem er stofnaður samkv. fiskábyrgðarlögunum.
Rúmlega sjö krónur af máli fara til að borga niður hækkunina
á stofnkostnaði nýju síldarverksmiðjanna. „Nýsköpun“ Áka
verður þannig dýr útvegsmönnum og sjómönnum.
Heiðursdoktor
Sigurður Nordal prófesor hef-
ir nýlega verið gerður heið'urs-
doktor við háskólann í Aber-
deen, en áður hafði Leeds-há-
skólinn veitt honum sömu við-
urkenningu.
Veðrátta hamlar enn
síldveiðum
Lítil síldveiði var á miðunum
fyrir noðurlandi í gær. Bræla
var og veiðiveður því ekki gott.
Hefir sama veðráttan haldist
undanfarna daga, eða síðan um
helgi og veiði því verið treg. —
Hins vegar búast sjómenn við
því, að mikil veiði hrota> komi
þegar breytir til um veðráttu,
og veiði veður batnar.
Flestir bátar sem ætla að
stunda síldveiðar fyrir norður-
landi 1 sumar munu nú vera
komnir norður, en þó eru nokkr-
ir, sem ekki eru alveg tilbúnir
til veiða, og aðrir eru á leiðinni
norður.
Undanfarna daga hefir flot-
inn haldið sig að mestu leyti við
Skagafirði og Húnaflóa.
Síðasta sólarhringinn bárust
til Síldarverksmiðju rikisins á
Siglufirði 10 þúsund mál síldar.
Megin þorri þeirrar. síldar,
sem síldarverksmiðjur ríkisins á
Siglufirði hafa hingað til tekið á
móti hefir verið látið í nýju
verksmiðjuna S.R. 46. Átti hún
að hefja bræðslu í gær, en vegna
galla sem þá komu í ljós á verk-
smiðjunni reyndist það ekki
hægt.
Verksmiðjurnar SRP og SR 30
munu hefja bræðslu í dag. SRN
mun ekki fara af stað fyrr en
um helgina, þar sem verið er nú
að ljúka við að setja olíukynnta
þurrkara í verksmiðjuna. Verk-
smiðjan á Raufarhöfn er nú til-
búin að taka á móti síld, og verk
smiðjan á Skagaströnd mun
(Fravihald á 4. síðu)
Bezta féö ekki á sýningunni.
Eins og áður er sagt, er þessi
tími árs mjög óheppilegur til
sýninga á sauðféð. Nú er það’
hoidminnst, tvilembar ær
mjólka svo mikiö á vorin, að þær
safna ekki holdum. Auk þess
leggur féð af við langa flutn-
inga og hnjask við gæzlu, sem
það þolir sízt á þessum tíma ár.
Ekki er hægt að líta svo á,
að sauðfé sem sýnt var á land-
búnaðarsýningunni sé það bezta,
sem til er á landinu. Vegna
sauðfjárveikivarnanna var að-
eins hægt að sýna fé af mjög
takmörkuðum svæðum á land-
inu. Og svo óheppilega vildi til,
að einmitt þessi svæði hafa
orðið fyrir áfelli vegna ösku-
fallsins í vor og lítur féð því ver
út, heldur en ef allar aðstæður
hefðu verið eðlilegar.
Hér fer á eftir yfirlit um út-
hlutun verðlauna.
a. Ver&laun á Kleifafé.
Einn ættsofn Klefafjárins
hjaut fyrstu verðlaun. Sýn-
andi þess hóps var Rögnvaldur
Guðmundsson, í Ólafsdal í
Da'asýslu. Einstaklingar í þess-
um hóp hlutu þessi verðlaun:
Ættfaðirinn Smári þriggja
vetur hlaut 1 heiðursverðlaun,
sem bezti hrútur af Kleifakyni
á sýningunni. Sonur Smára,
Gaukur, tveggja vetra hlaut 1
verðlaun. Afasystir Smára, Síð-
k’æddí, þriggja vetra hlaut 1
heiðursverðlaUn, sem bezta ær
af Kleifakyni á sýningunni. —
Tvær dætur Smára, tveggja
vetra, hlutu önnur verðlaun og
ein þriðju íerðlaun. Ein dóttir
Smára, Sunna, dóttir Gauks,
gemlingur með lamtai, hlaut
önnur verðlaun. Tveir ættl-
stofnar aí Kleifakyni hlutu
önnur verðlaun.
(Framhald á 4. síðu)
*
Oglæsilegar tölur
í seinustu Hagtíðindum
birtust nokkrar niffurstöðu-
tölur úr reikningum bank-
anna í maílok. Sýna þær, að
stöffugt sígur meira á ógæfu-
hliff, innlög minnka, útlát
aukast og gjaldeyririnn eyð-
ist óðfluga.
Innlög i bönkunum minnkuðu
um 1.6 millj. kr. í maí og námu
í mánaðarlokin 527 millj. kr„ og
er það 66 millj. kr. minna en á
sama tíma í fyrra.
Útlán bankanna jukust um
12.6 millj. kr. í maí og námu alls
i mánaðarlokin 558 millj. kr. Er
það 160 millj. kr. meira en á
sama tíma í fyrra. Útlánin eru
nú orðin rúmum 30 millj. kr.
meiri en innlögin.
Gjaldeyrisinneign bankanna
var talin í maílok 92.8 mlllj. kr„
en var 386 millj. kr. á sama
tima i fyrra. En veitt gjaldeyris-
leyfi nema þegar margfaldri
þeirri upphæð, sem bankarnir
eru taldir eiga erlendis.
Fjölgað skrifstofu
stjórunum
Nýlega hefir verið bætt við
tveimur nýjum skrifstofustjóra-
embættum í stjórnarráðinu, og
eru þá skrifstofustjóraembættin
þar orðin sjö.
Hinir nýju skrifstofustjórar
eru í ráðuneyti forsætisráð-
herra, en þar var enginn skrif-
stofustjóri áður, og í samgöngu-
málaráðuneytinu, sem áður
heyrði undir atvinnumálaráðu-
neytið.
Skrifstofustjóri í forsætis-
ráðuneytinu verður Birgir Thor-
lacius, en í samgöngumálaráðu-
neytinu Páll Pálmason.
Núverandi ríkisstjórn virðist
ekki ætla að verða eftirbátur í
því að fjölga nýjum mbættum.
Vegna hækkandi útflutnings-
verðs er búizt við, að um kr.
73.88 fáist fyrir afurðir úr hverju
síldarmáli. Til samanburðar má
geta þess, að í fyrra fengust 51
—52 kr. fyrir málið. Samkvæmt
því fást því nú kr. 22—23 meira
fyrir málið en í fyrra.
Þessi hækkun á útflutnings-
verðinu er notuð til þess að
mæta hækkuðum útgjöldum á
eftirtöldum liðum: Greiddar
verða kr. 9.30 af hverju máli
vegna hækkunar á bræðslusíld,
þá kr. 7,22 vegna hækkunar á
stofnkostnaði hinna nýju síldar-
verksmiðja ríkisins á Siglufirði
og Skagaströnd, vegna hækkun-
ar á vinnulaunum, launum
fastra starfsmanna og viðhalds-
kostnaði kr. 1,42, ennfremur
vegna verðhækkunar á kolum,
salti og pokum . s. frv. kr. 0,73.
Þessir liðir eru samtals kr. 18.67.
Auk þessa verða lagðar kr. 4.00 í
tryggingarsjóðinn, sem ákveð-
inn var með ábyrgöarlögunum.
Samtals kr. 22.67.
Er þá allt upp étið’,, sem nú
fæst fyrir fullunnið mál umfram
það, sem fékkst í fyrra.
Eins og nú horfir um sölu
þorskafurðanna eru litlar líkur
til þess, að tryggingasjóðurinn,
sem áður er nefndur, nægi til
þess að borga halla af ábyrgð-
arverðin.u, Engin von er því til
þess, að nokkur hluti hans verði
aftur endurgreiddur útvegs-
mönnum og sjómönnum, eins og
gert var ráð fyrir, ef ekki þyrfti
að nota allan sjóðinn til að
greiða halla á fiskverðinu.
Sendiherra gengur
á konungsfund
Gísli Sveinsson sendiherra af-
henti Hákoni konungi embættis-
skilríki sín í fyrradag í kon-
ungshöllinni í Oslo. Flutti sendi-
(Framhald á 4. síðu)
Verður haldin hér stór iðnaðar-
sýning eftir tvö ár?
Frá níunda iðnþing'i Íslendinga.
Þing Landssambands iðnaffarmanna var aff þessu sinni haldið
í Vestmannaeyjum dagana 23.—26. f. m. Á þinginu voru sam-
þykktar ýmsar athyglisverffar tillögur, m. a. um iðnsýningu 1949
og stofnun sérstaks iðnbanka.
Svohljóðandi ályktun var
samþykkt um iðnsýningarmálið:
„Níunda Iðnþing íslendinga
telur æskilegt, að á árinu 1949
verði komið á fót allsherjariðn-
sýningu á framleiðslu iðnaðar
og iðju i landinu, og felur sam-
bandsstjórninni að leita sam-
vinnu við ríkisstjórnina og al-
þingi, og samtök iðjuframleið-
enda og heimilisiðnaðar.“
' Um iðnbankamálið var gerð
eftirfarandi ályktun:
1 „Níunda Iðnþing íslendinga
skorar eindregið á alþingi, að
stofnaður.verði sjálfstæður iðn-
banki með minnst 5 milljóna kr.
(Framhald á 4. síðu)