Tíminn - 19.07.1947, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
PRAMSÓKNARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
I .ITSTJÓRASBaREPSTOPUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
APGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOPA:
EDDUHÚSI, Llndargöw 9A
Siml 2323
31. árU,.
Iteykjavík, laugardagiim 19. júlí 1947
130. blað
verður út ítarleg
bók um Landbúnaðar-
sýninguna
Rætt um sýninguna við framkvæmdastjóra
hennar, Kristjón Kristjónsson.
Landbúnaðarsýningunni er nú lokið, eins og kunnugt er, og
er um þessar mundir verið að vinna að því að rífa niður þau
mannvirki, sem komið var upp á sýningarsvæðinu til bráða-
birgða. Tíðindamaður blaðsins hitti Kristjón Kristjónsson fram-
kvæmdastjóra sýningarinnar í gær suður á sýningarsvæðinu,
sem búið er nú að taka á sig nýjan svip annríkis og brottflutn
inga.
Langferðaflugvélar sex félaga hafa
daglega viðkomu á Keflavíkurflug-
*
Armenningar
komnir heim
Ferðiu var þeim til
sóma.
Fimleikaflökkur Ármanns,
er sótti íþróttahátíðina í
Finnlandi, kom hingað í
fyrrakvöld með Skymaster-
flugvélinni „Heklu“.
Fimleikamennirnir, sem komu
eru 7, en 7 urðu eftir í Svíþjóð,
þar sem þeir sækja íþrótta-
kennaranámskeið. Héðan fóru
fimleikamennirnir loftleiðis í
tveim hópum 23. og 25. júní s. 1.
Til Helsinki komu þeir 28.
júní og tóku þar þátt í stór-
kostlegri íþróttahátíð, er stóð í
fjóra daga. Sýndu Ármenning-
arnir fjórtán sinnum á þessum
fjórum dögum við hinar ágæt-
ustu undirtektir. ' Ennfremur
sýndu þeir íslenzka glimu og
vakti hún feykilega hrifningu.
Þá höfðu þeir einnig sýningar i '
finnsku borgunum Virumáki'
og Heinola, svo og á „Skans-
|hum“, hinum kunna úti-
skemmtistað í Stokkhólmi. —
Ármenningarnir róma mjög
rausnarlegar viðtökur í Finn-
landj og alúðlegt viiðmót, er
þeir hittu fyrir.
Jón Þorsteinsson íþrótakenn-
ari stjórnaði fimleikunum, en
fararstjóri var Jens Guðbjörns-
son, formaður Ármanns.
ERLENDAR FRETTIR
Opinberir starfsmenn í Frakk-
landi hafa nú aflýst verkfalli
því, sem þeir höfðu auglýst, þar
sem gengið hefir verið til móts
við kröfur þeirra.
Brezka stjórnin hefir nýlega
birt skýrslur, þar sem sýnt er
fram á, að góður árangur hafi
náðst af fimm daga vinnuvik-
unni í kolanámunum.
Kristjón er ánægður með það,
hvernig tókst til með sýning-
una, enda fór aðsóknin fram úr
öllum vonum þeirra bjartsýn-
ustu. Enginn mun hafa þorað að
láta sér detta í hug, að aðsókn-
in færi fram úr 30—40 þús-
undum, enda hefði það verið al
gert met um sýningaraðsókn
hér á landi. Hitt, að aðsóknin
yrði yfir 60 þúsund, lét víst eng
inn sér koma til hugar. Við
þessa tölu ber það vitanlega að
athuga, að margir hafa séð sýn-
inguna oftar en einu sinni. Það
mun þó ekki ofætlað að um 5C
þúsund manns hafi séð sýning
una og af því mun a. m. k.
þriðjungur hafa verið úr sveit-
um lándsins.
— Hvað telur þú markverð-
astan tilgang sýningarinnar,
spyr tíðindamaðurinn Kristjón?
— Ég tel að tilgangurinn
með sýningunni hafi aðallega
verið tvenns konar, i fyrsta lagi
að sýna þróun landbúnaðarins
og vinnutækninnar, þannig, að
bændur gætu séð nokkurn veg-
inn hvar þeir eru staddir á því
sviði, hvaða verkefni biðu óleyst
á næstu árum, og hverra véla
væri von.
Það er eftirtektarvert, að
þegar fyrsti vísir að landbún-
aðarsýningu var haldinn hér á
landi fyrir 26 árum, sást hylla
undir nýja tækni við landbún-
áðarstörfin, vélarnar voru að
byrja að koma til sögunnar
Hvað gerzt hefir á þessu tíma-
bili, er öllum landslýð ljóst
ræktunarland hefir aukizt um
helming á þessu tímábili.
Annan megintilgang sýning-
arinnar tel ég vera að auka
skilning bæjarbúa fyrir sveit-
unum og þeim þýðingarmikla
þætti þjóðarbúskaparins, sem
þar fer fram. Er ég þeirrar
skoðunar, að sýningin hafi þeg-
ar haft nokkur áhrif i þá átt að
auka skilning neytenda á land-
búnaðarframleiðslunni.
— yar erlendum fulltrúum
ekki boðið á sýninguna?
— Jú, boðsbréf voru send til
landbúnaðarráðuneytanna
öllum hinum Norðurlöndunum
(Framhald á 4. slðu)
Islenzka ríkinu gefnar 14 myndir
eftir norska málarann Edv. Munch
Vcgleg 8‘jöf frá ónafngreindum manni.
Eftirfarandi fréttatilkynning barst í gær frá menntamála
ráðuneytinu um veglega gjöf, sem íslenzka ríkinu hefði nýlega
borizt frá ónafngreindum manni. Eru það myndir eftir norska
málarann Edv. Munch.
Fyrir nokkrum árum kom til
íslands einn af vinum norska
listmálarans Edv. Munch’s. Eft-
ir heimkomuna hvatti hann
Munch til þess að gefa íslandi
sýnishorn af myndum sínum,
með það fyrir augum, að þær
yrðu geymdar í háskólabygg-
ingunni eða á safni. Munch gazt
vel að hugmyndinni, en sakir
styrjaldarinnar og sjúkleika
Munchs, er þá bar að höndum
varð eigi úr framkvæmdum
enda lézt Munch skömmu síðar
En vinur hans, sem eigi vill
láta nafns sins getið, hefir nú
afhent Vilhjálmi sendiherra
Finsen 14 myndir eftir Munch
sem „morgungjöf" frá sér til
(Framhald á 4. síðu)
SNORRASTYTTAN
vellinum
Starfslið vallarins er nú um 600 manns
Eins og lesendum Tímans mun kunnugt var flugvöllurinn á
Reykjanesi, er Bandaríkjamenn byggðu styrjaldarárin, afhentur
islenzka ríkinu til eignar og yfirráða þann 7. október f. á. Sam-
tímis var flugvöllurinn leigður stjórn Bandaríkjanna með sér-
stökum samningi, er gerður var milli ríkisstjórnar íslands og
Bandaríkjanna til nokkurra ára.
Snorrahátíðin í Reykholti veröur
sótt af miklum fjölda manns
Norsku gestirnir vicnlanlegir í dag.
Mikið fjölmenni mun verða saman komið í Reykholti á sunnu-
daginn kemur, þegar afhjúpun Snorrastyttunnar fer fram. —
HéÖan mun fara. fjöldi manna, bæði á vegum Ferðaskrifstof-
unnar og ýmsra félaga, auk þess sem menn fara á eigin farar-
tækjum. Víðsvegar á landinu hafa jafnframt verið undinbúnar
hópferðir til Reykholts þennan dag. Má telja víst, að mörg þús-
and manna verði viðstatt hina merkilegu athöfn þar.
Norðmennirnir, sem sækja'
hátíðina, eru væntanlegir fyrir
hádegi í dag. Klukkan rúmlega
10 f. h. leggja norsku herskip-
in, „Oslo“, „Stavanger“ og
„Trondheim" að bryggju í
Reykjavík ep með þeira kemur
Ólafur ríkisarfi Norðmanna og
fylgdarlið hans. Ennfremur
kemur „Ijyra“ um líkt leyti, og
er Snorranefndin með henni.
Móttökuathöfn verður við
höfnina, þegar skipin koma.
Móttökuathöfnin hefst kl.
10.30 með því að Ólafur Thors,
fyrrverandi forsætúsráðherra,
býður norsku gestina velkomna
fyrir hönd islenzku Snorra-
nefndarinnar. Þá leikur Lúðra-
sveit Reykjavíkur undir stjórn
Alberts Klahn þjó’ðsöngva
Norðpianna og íslendinga.
Klukkan 19 i dag hefir rik-
isstjórn íslands boð inni að
Hótel Borg fyrir Norðmennina
og fleiri gesti.
Á morgun fara hinir norsku
gestir, ásamt fleiri boðsgestum
Snorranefndarinnar, með Esju
til A/iraness og verður lagt af
stað héðan kl. 8 árdegis. Þaðan
(Framhald á 4. síðu)
Hátíð Borgfirðinga-
félagsins í Reykjavík
Borgfirðingafélagið í Reykja-
vík efnir til skemmtifarar að
Reykholti í sambandi við
Snorrahátiðina á sunnudaginn.
Þegar dagskrá hátíðarnefndar
er lokið á sunnudaginn, heldur
hátiðin afram i Reykholti á
vegum félagsins. Verður þar til
skeramtunar söngur, hljóðfæra-
sláttur og dans. Veitingar verða
seldar á staönum.
Borgfirðingafélagið hefir gef-
ið út merki, Snorramerki, í
sambandi við hátíðina. Verða
þau seld á sunnudag í Reykja-
vík, Akranesi, Borgarnesi og
Reykholti.
Allur ágóði af skemmtun fé-
lagsins í Reykholti er ákveðið
að Tenni til íþróttavallarsjóðs
Ungmennasambands Borgar-
fjarðar, en ágóði af merkjasölu
á að renna til byggðasafns í
Borgar f j arðarhéraði.
Af hálfu íslendinga var það
skilyrði sett, að allt herlið
Ban(daríkjamanna skildi farið
af vellinum innan sex mánaða
frá því, að þessi samningur
gekk í gildi, og völlurinn starf-
ræktur upp frá því með venju- '
legu flugvallarstarfsliði ein-
göngu. Sajnkvæmt þessum
samningi milli íslands og
Bandaríkjanna var síðasti her-
maðurinn fluttur burt af flug-
vellinum — og um leið hinn síð-
asti, er dvaldi á íslenzkri grund,
— í byrjun april síðastl. Um
sama leyti var rekstri vallarins
komið í það horf, sem venjulegt
er um starfrækslu slíkra mann-
virkja á friðartímum.
I.A.C. og A.O.A.
Um það leyti, er samningar
tókust milli ríkisstjórna ís-
lands og Bandaríkjanna um
leigu á Keflavíkurflugvellinum
til Bandaríkjamanna um visst
árabil, náðust samningar milli
ríkisstjórnarinnar í Washing-
ton D.C. og flugfélagsins Amer-
ican Overseas Airlines þess efn-
is, að flugfélagið annaðist
rekstur flugvallarins leigutíma-
bilið út. Flugfélag þetta er deild
úr American Airlines, sem er
stærsta flugfélag Bandaríkj-
anna. American Overseas Air-
lines (skammstafað A.O.A.)
stofnaðA síðan sérstakt félag til
að annast rekstur flugvallarins
og var það kallað Iceland Air-
port Corporation (I.A.C.) Tók
það félag raunverulega við
rekstri vallarins um leið og her-
inn hvarf þaðan á brott.
Umferðin um völlinn.
Keflavíkurflugvöllurinn er
löngu viðurkenndur sem eins-
konar allsherjar vegamót á
flugleiðunum yfir Norður- At-
landshafið, en það hefir þó
aldrei komið eins berlega í ljós
hversu mikla þýðingu völlurinn
hefir fyrir alþjóðaflugsamgöng-
ur og þá mánuði, -sem liðnir eru
síðan herliðið hvarf algerlega
af vellinum og rekstri hans
hefir verýð hagað með farþega-
flug eitt fyrir augum.
ísland hefir tekið þátt- í öll-
um alþjóðaráðstefnum, er
haldnar hafa verið til að undir-
búa og koma á stofn traustu og
gagnkvæmu samstarfi þjóð-
anna um millilandaflug. í sam-
bandi við alþjóðasamþykktir
um flugmál hefir íslenzka rikið
gert gagnkvæma samninga um
flugþjónustu við ýms lönd. Flest
þeirra landa, er slíka samninga
hafa, eru nú þegar farin að
reka fastar áætlunarferðir
yfir norðanvert Atlandshai
Fyrst i stað var nokkuð um
það deilt hér innanlands, hvort
gera mætti ráð fyrir, að h;n er-
lendu flugfélög myndu geta
notað flughöfnina við Reykja-
vík, sem viðkomustað hér á
landi. En reynzlan var f]jét að
skera úr um það, að hin eriendu
flugfélög kusu öll að nota held-
ur flughöfnina við Keflavík í
sambandi við þessar áætlunar-
ferðir.
Flugfélögin, sem nota völlinn.
American Overseas Airlines
(Framhald á 4. siðu)
Minnisvarði ura
norska hermenn
Ólafur rikisarfi Noregs, mun
afhjúpa mininsvarða i Fossvogs-
kirkjugarðinum, um norska
hermenn, sem hér létu lífið á
styrj aldarárunum.
Athöfnin mun fara fram n. k.
mánudag, eða daginn eftj*
Snorrahátíðina í Reykholti. Það
voru alls 35 hei'menn, sem hér
biðu bana á styrjaldarárunum.
Um 90 íslenzkir skátar sækja
alþjóðamótið í París
Fyrsta alheimsmót skáta
eftir stríðið verður haldið i
París 7.—21. ágúst næstkom-
andi, og er gert ráð fyrir, að
þátttakendurnir verði 45 þús.
frá 43 löndum. Héðan fara 88
skátar á mótið.
Skátarnir, sem fara héðan,
skiptast þannig eftir búsetu:
Akranes 1, Akureyri 8, Bolung-
arvík 1, Hafnarfjörður 7, ísa-
fjörður 8, Keflavík 16, Laugar-
vatn 2, Patreksfjörður 1, Reykja
vík 37, Sauðárkrókur 1, Selfoss 1,
Stokkseyri 1, Siglufjörður 1,
Vestmannaeyjar 4. Þátttakend-
ur eru allflestir ungir, og hafa
mjög fáir þeirra komið til út-
landa áður.
Islenzku skátarnir ætla sér að
halda uppi landkynningu á mót-
inu, m. a. með því að æfa glímu,
vikivaka og kórsöng. Þá ætla
þeir að hafa vandað hlið fyrir
tjaldbúðum sínum, eins og títt
er á slíkum mótum, og sýna þar
m. a. Geysi og Heklu, ásamt
myndum af landinu og frásögn-
um úr sögu þjóðarinnar. Þá hafa
þeir meðferðis allmikið af kvik-
myndum. Eftir Parísarmótið er
ætlun isl„ skátanna að dvelja
8—10 daga með enskum skátum
í Lopdon.
Skátarnir hafa fengið gjald-
eyrisleyfi, sem svarar 500 kr. á
mann. Flugvélin Hekla mun
flytja þá báðar leiðirnar.