Tíminn - 23.07.1947, Side 1

Tíminn - 23.07.1947, Side 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: PRAMSÓKN ARFLOKKURINN Simax 2353 og 4373 PRENTSMEÐJAN EDDA h.í. , _____________ «0 ; I vITSTJÓRASK3HPSTOFDII: > EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A j Slmar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: ' EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A Siml 2328 31. árg, Reykjavík, iniðvikudaginn 23. jjúlí 1947 132. lilað Landskeppni Norömanna og íslendinga verður á morgun ! : j Norðinenn senda hingað sterkasta lið sitt Landskeppni Norðmanna og íslendinga fer fram á íþrótta- | vellinum annað kvöld. Norska landsliðið, sem talið er það sterk- asta, er Norðmenn hafa nú á að skipa, kom hingað með Heklu i gærkvöldi. Með liðinu kom fararstjóri þess, Reidar Dahl, for- seti norska knattspyrnusambandsins, og fleiri af helztu for- ustumönnum sambandsins. Valdir hafa verið þrettám menn í.norska landsliðið. Nöfn þeirra, sem í liðinu eru, fara hér á eftir. Torgeir Torgersen, mark- vörður, Tom Blohm, markvörð- ur, Erik Holmberg hægri bak- vörður, Egil Jevanord, vinstri bakvörður, Egil Lærum, hægri framvörður,, Thorbiörn Svensen miðframvörður, Harry Boye- Karlsen, vinstri framvörður, Trygve Arnesen, hægri útherji, Gunnar Thoresen, hægri út- eða innherji, Knut Brynildsen, miðframherji eða innherji, Björn Spydevold, framvörður eða innherji, Paul Sæthrang, vinstri útherji, og Odd Wang Sörensen, inn- eða útherji. íslenzka liðið hefir einnig verið valið og er það skipað þessum mönnum: Hermann Hermannsson (V) markvörður, Karl Guðmundss. (F) h. bakv., Sigurður Ólafsson (V) v. bakv. Sæmundur Gísla- son (F), h. framv., Birgir Guð- jónsson (KR) miðframv., Guð- laugur Lárusson (Vík), v. fram- vörður, Richard Jónsson (F), h. útherji, Haukur Óskarsson (Vík) h. innframherji, Albert Guðmundsson (V), miðframh., Sveinn Helgason (V), v. inn- framherji, Ellert Sölvason (V), h. útframherji. Varamenn eru: Anton Sigurðsson, Hafsteinn Guðmundsson, Kristján Ólafs- (Framhald á 4. síðu) Góðar gjafir frá Norðmönnum I»aer voru tilkynntar í liúfiim Iijá norska soiidihcrraniiin í j*icr- kvöldi í boði, sem norski sendiherr- ann, F. Anderssen-Rysst, hélt í gærkveldi fyrir norsku fulltrú- ana á Snorrahátíðinni og ýmsa íslendinga, var af hálfu Norff- manna skýrt frá veglegum gjöf um, sem þeir ætla aff færa ís- lendingum. Söfnin í Noregi hafa komiff sér saman um aff gefa forngripi, er myndi sérstaka norska deild í Þjóffminjasafn- inu ftér. Þá gefur dómkirkjan í þrándheimi veglegan minja- grip. Þaff var prófessor Böe við þjóffminjasafniff í Noregi, er skýrff'i frá framangreiindti á- kvörffun norsku siafnanna, en Fjær dómprófastur við dóm- kirkjuna í Þrándheimi skýrffi frá gjöfinni, sem kirkjan gefur. Ætlast er til, aff b*nir norsku gripir, sem þannig verða gefnir, geti myndaff sjálfstæffa deild í Þjóðminjasafniu hér. Þá talaði einnig Hövik stór- (Framhald á 4. síðu) Mikil síld við Langanes en þoka hamlar veiðum Fjögur skip liafa strandað af völduin þokuiinar Síðan um helgi hefir veriff mikil síldveiði viff Langanes, en óvenjulega svört þoka hefir oftast hamlaff veiffum á þessum slóðum. Þó var bjart í fyrradag og fengu ýms skip þá góffan afla og komu með hann til Raufarhafnar og Hjalteyrar í gær og fyrra- dag. í fyrrakvöld syrti aftur og hélzt þokan um miffjan dag í gær. ERLENDAR FRÉTTIR Hollenzki herinn hóf hernað- araðgerðir víða á Jövu á mánu- öagsmorguninn og hefir hol- lenzki flugherinn haldið uppi árásum á bækistöðvar indo- nisiska hersins síðan. — Her Indonesiumanna hejfir hörfað víða og eyðileggur allt, sem hann getur, á undanhaldinu. Hollendingar afsaka þessar hernaðaraðgerðir mgð griðrof- um, sem þeir telja Indonesíu- menn hafa unnið, en almenn- ingsálitið í heiminum telur að hér sé eingöngu um ofbeldi og nýlendukúgun að ræða. 1 höfuffborg Burma gerðist sá atburður á laugardaginn var að fimm menn brutust inn á stjórn ^rfund, vopnaðir vélbyssum, og drápu sex ráðherra, þar á með- ai forsætisráðherrann og særðu tvo. Illræðismennirnir komust undan. Á vestursvæðinu hefir lítið orðið síldar vart seinustu daga og hefir mestallur flotinn farið á Langanesmiðin. Sára lítil síld hefir borizt til Siglufjarðar. Það var á sunnudaginn, er fyrstu síldarfréttirnar bárust frá Langanesi, og byrjaði flot- inn þá strax að faca þangað. Þoka var þá niðdimm, svo að skipunum miðaði seint áfram, og tvö þeirra strönduðu á Mel- rakkasléttu aðfaranótt mánu- dagsins. Voru það Hvítá frá Borgarnesi og Hagbarður frá Húsavík. Sjór var ládauður og sakaði því skipin ekki og voru taldar góðar horfur á því í gær, að Ægi tækist að ná þeim út, en hann var þá kominn á strand staðinn. Um hádegið í fyrradag, létti til og fengu þá ýms skip góðan afla. Virtist þá nóg síld beggja megin Langaness. í fyrrakvöld syrti að aftur, og strandaði þá eitt skipið, Bris frá Akureyri, við Kolbeinstanga við Vopna- (Framhald á 4. síðu) Krafist íslenzkra handrita og forngripa úr dönskum söfnum Ályktanir landsfunclar stúdcnta Landsfundi íslenzkra stúdenta, sem hófst á laugardaginn, var lokiff í fyrradag. Affalmál fundarins var handritamáliff og hafði Ólafur Lárusson prófessor framsögu í því. Umræffur um máliff urðu allmiklar og voru ræffumenn allir einhuga um endurheimt handritanna. -í Fundurinn samþykkti svo- hljóðandi tillögur, sem þeir Ól- afur Lárusson, Sigurður Norð- dal og JJýiar Ól. Sveinsson voru flutningsmenn að: „Landsmót islenzkra stúdenta 1947 skorar á ríkiSstjórnina að halda öfluglega fram kröfurn sínum um afhendingu íslenzkra handrita úr dönskum söfnum hingað til lands og skorar á alla íslendinga að fylkja sér sem einn maður um þær kröf- ur. Jafnframt skorar landsmótið á íslenzk stjórnarvöld að efna nú þegar til sem umfangsmestr ar útgáfu íslenzkra handrita, sem nú eru geymd í dönskum söfnum“, „Landsmót islenzkra stúdenta 1947 skorar á íslenzk stjórnar- völd að halda fast á rétti ís- lendinga til endurheimtar ís- lenzkra þjóðminjagripa úr dönskum söfnum“. Báðar tillögurnar voru sam- þykktar með samhljóða atkvæð um. Valdimar Eylands kominn Séra Valdimar J. Eylands prestur í Winnipeg er kominn hingað til bæjarins ásamt konu sinni og þremur börnum þeirra hjóna. Þau komu flugleiðis að vestan. Eins q" áður hefir verið sagt frá, hefir séra Valdimar og Eiríkur Brynjólfsson að Útskál- um skipst á prestakalli um eins árs skeið. Séra Eiríkur er fyrir uokkru kominn vestur til Winni I peg. Síldaraflinn svipaður og í fyrra Á miðnætti aðfaranótt sunnudagsins, var bræðslusíld- araflinn á öllu landinu orðinn 418,151 hektólítri. Á sama tíma í fyrra, var hann 427,190 hl. Á laugardagskvöld nam söltunin á öllu landinu 9.587 tunnum síldar og er þp,ð 1412 tunnum meira en á sama tíma árið 1946. Nú taka þátt í síldveiðunum 235 skip alls, þar af eru 9 tví- lembingar, Stórt olíuskip komið til Hvalfjarðar Stærsto skip. sein Iief- ir koniið Iiiii$*'aÚ á veg- iiin íslendingn í gær kom til olíustöðvarinn- ar í Hvalfirffi stærsta olíuflutn- ingaskip, sem hingað hefir kom ið á vegum íslendinga. Flytur þaff hingað um 14.800 smál. af olíu. Síldarverksmiffjur ríkis- ins á Siglufirði munu fá um 4 þúa smál. af farminum. Góffar vonir eru til þess, aff olían verffi ódýrari, þegar hún er flutt inn í svo stórum skip- um. Kauji Olíufélagsins á Hval- fjarffarstöffinni hafa þannig skapaff möguleika fyrir því, að olíuverzlunin geti orffið ódýr- arL IVIynd þessi var tckin af forseta íslands og Óiafi krónprins, er þeir voru að skoða kirkjugarðinn í Reykholti. Þeir eru að ræði við norskan liðsforingja. Krónprinsinn op forseti í fteykholti Oþurkarnir hafa torveldað heyskap á Suðvesturlandi Norðanlands heflr verið j»óð lieyskapartíú Breyting sú, sem varð á veffráttunni um seinustu helgi, kom sér vel fyrir bændur á Suðvesturlandi, því að þeir hafa getað notaff þrjá seinustu dagana til að þurrka heyin, sem voru farin aff hrekjast. Horfffi orffiff mjög illa með heyskapinn þar. Þingvallaför Norðmanna 1 í gær bauff bæjarstjórn Reykjavíkur Ólafi ríkisarfa, norsku gestunum og fleirum til Þingvalla. Var snæddur þar há- degisverffur, en á leiffinni voru mannvirki hitaveitunnar aff Reykjum skoffuff. Lagt var af stað í för þessa frá gamla hafnarbakkanum kl. rúmlega 9 í gærmorgun. Tók borgarstjóri, Gunnar Thorodd- sen, á móti Ólafi ríkisarfa á bryggjunni og var síðan ekið af stað upp að Reykjum. Þar voru gestunum sýnd mannvirki hita- veitu Reykjavíkur og þeim gef- in lýsing á fyrirtækinu og starf rækslu þess. Þegar lagt var af stað um morguninn var gott veður, en sólarlaust, en þegar komið var upp að Reykjum var komið glaða sólskin og mikill hiti. — Hélst þetta blíðskaparveður all- ann daginn og þótti flestum norsku gestanna nóg um hit- ann á Þingvöllum. Er komið var til Þingvalla var staðnæmst á barmi Almanna- gjár, hjá útsýnisskífunni, og horft yfir vellina. Þaðan var gengið ofan Almannagjá og að Lögbergi. — Blöktu þar íslenzki og norski fáninn hlið við hlið, tákn órjúfanlegrar vináttu þess ara frændþjóða. | Af lögbergi lýsti Pálmi Hann- esson rektor Þingvöllum, sögu þeirra frá fyrstu tíð og til vorra | tíma. En á meðan sátu Norski j ríkisarfinn og aðrir gestir í lynggróinni brekkunni fyrir neðan. Var það eftirtektarvert, hve margir hinna norsku gesta hrifust að söguhelgi og fegurð staðarins. Frá Lögbergi var gengið til Valhallar, þar sem .snæddur var hádegisverður í boði bæjar- stjórnar Reykjavíkur. — Fluttu þar ræður Gunnar Thoroddsen borgarstjóri, sem bauð gesti (Framhald á 4. slðu) Hér fer á eftir yfirlit um hey- skapinn í seinustu viku, er blaðið hefir fengið hjá Páli Zóphoníassyni: Síðastliðna viku má segja, að aldrei þornaði á steini á Suður- landi. Bændur fóru sér því hægt við sláttinn, dunduðu við að slá það, sem ekki er véltækt í tún- unum, en létu það véltækja eiga sig og spretta úr sér. Tað- an, sem sett var í dríli um fyrri helgi, var aldrei hreyfð alla vikuna. Á Vestfjörðum hefir tíðarfar- ið verið skárra, en þó má heita að ekkert af töðu hafi náðst upp þar. í Húnavatns- og Skagafjarð- arsýslum er töluvert af töðu komið í sæti, og nokkuð inn, en þurrkar hafa verið mjög stop- ulir og taísamt við heyskap- inn að eiga. í Eyjarfjarðarsýslu byrjuðti þeir fyrstu að slá tún um miðj- an júní, og þó tíðarfariö væri erfitt um tíma, hafa þeir, er fyrst byrjuðu, hyrt tún sín, og má segja, að taðan sé góð. Þeir sem síðar byrjuðu, hafa enn ekki lokið túnaslætti, en þaö sem losað er, er komið inn, og nýtingin góð. Þó spruttu töður nokkuð úr sér hjá þeim, er síð- ar byrjuðu, því óþurrkar um mánaðamótin gerðu það að verkum, að menn veigruðu sér við að slá mikið niður þá. í Þino;eyjarsýslu hefir taða náðst með ágætri verkun, og er túnaslætti víða langt komið. í Múlasýslum. hefir öll taða náðst með ágætisverkun og er túnaslætti þar lokið allvíða, enda var víða byrjaöur sláttur um Jónsmessu. Þeir, sem síðar byrjuðu, eru enn í túnum, en allt hefir náðst inn til þessa um leið og þaö er losaö. í Skaftafellssýslu hafa veriö óþurrkar, en þó skárra tíðar- far en 'á, Suðurlandi. Sigrast á óþurrkunum. Vert er að nefna þrennt í sambandi við það, sem af er heyskapnum: 1. Ólafur Jónsson í Gróðrar- stöðinni á Akureyri, er byrjaöi (Framhald á 4. síðu) Forseii oi/ krónprinsinn rið Snorralnufi Mynd Þcssi var tekin, þegar forseti íslands og Ölafur krónprins voru aS skoða Snorralaug í Reykholti. Við hlið forsetans er Þórir Steinþórsson, skólastjóri í Reykholti.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.