Tíminn - 26.07.1947, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
PRAMSÓKN ARFIiOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hjt.
I ITSTJÓRASKRIPSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
Slml
31. árj(.
Hovkjavík. laugardagiim 26. júlí 1947
135. blað
Landskeppnin í knattspyrnu
milli Norðmanna og íslendinga
Eins og vænta mátti, lauk landskeppninni í knattspyrnu milli
Norðmanna og íslendinga með sigri hinna fyrrnefndu, 4:2.
Leikur íslenzka liðsins var þó mun betri en leikur íslenzka úr-
valsliðanna gegn brezku knattspyrnumönnunum í vor, enda
var norska liðið ekki eins sterkt og þeir. Markafjöldinn má
leljast allgóður mælikvarði á styrkleika landsliðanna.
Norðmenn úthaldsbetri.
í heild var landsleikurinn
frekar fjörugur og skemmtileg-
ur, en ekki alltaf vel leikinn að
sama skapi. Samleik og stað-
setningu var oft mjög ábóta-
vant hjá báðum liðunum, þótt
meira bæri á því hjá íslending-
um. Má vera að hjá Norðmönnum
hafi þetta eitthvað stafað af
því, að þeir voru óvanir malar-
velli. Hins vegar var kapp og
dugnaður leikmanna mikill, en
það gerði einkum giftumuninn,
að Norðmepn héldu betur út.
Leikmennirnir.
Það er alltaf vandasamt að
gera upp á milli einstakra leik-
manna, en vafalaust er það þó
flestra dómur, að Albert Guð-
mundsson, sem lék miðfram-
herja, hafi verið bezti maður-
inna vellinum. Hann sýndi jafnt
mikla leikni með knöttinn, mik-
inn flýti og glöggt auga fyrir
réttri staðsetningu. Hann var
langsaml. bezti maður íslendinga
á véliinum og myndi hafa'sómt
sé? vel í hvaða landsliði, sem
var. Án hans hefði útkoman
•orðið íslendingúm stórum ó-
hagstæðari, enda heyrðust ýms-
ir segja: Hvernig fer, þegar við
missum Albert, en hann er nú
ráðinn atvinnuknattspyrnumað-
ur til Frakklands. Norðmenn
sýndu líka, að þeir kunnu að
meta hann, því að þeir létu tvo
af einna beztu mönnum sínum
gæta hans allan síðari hálfleik-
inn. Gekk það svo langt, að
stundum voru dæmdar á þá
vítaspyrnur.
Margir aðrir íslenzku leik-
mennirnir stóðu sig vel. Her-
mann Hermannsson varði mark-
ið oft ágætlega og Sigurður
Ólafsson var traustur bakvörð-
ur, eins og endranær, en spyrn
ur hans voru ekki ylltaf nógu
vel hnitmiðaðar. Sæmundur
Gíslason (v. miðframvörður) og
Karl Guðmundsson (bakvörður)
stóðu sig einnig ágætlega. Um
engan íslenzka leikmanninn
verður sagt, að þeir hafi staðið
sig illa eða sýnt slæmarv leik.
Framkoma þeirra var mjög
sæmileg, þótt Norðmenn reynd-
ust þeim ofurefli.
Erfitt er að segja um það,
hver var beztur í norska lðinu.
Framherjarnir Thoresen og
Brynhildsen léku oft afburða-
vel. Miðframvörðurirui Svensen
lék einnig með miklum ágæt-
um og sama mátti segja um H.
Boye Karlsen. Thorgersen mark-
vörður reyndist mjög traustur
og öruggur.
Gangur leiksins.
Leikurinn hefst með upp-
hlaupi Norðmanna, en íjlend-
ingar komast fljótt í sókn og
Norðmenn fá á sig hornspyrnu,
sem kemur þo ekki að sök! Þeg-
ar tvær mínútur eru af leik,
! nær Albert knettinum, gerir
snöggt upphlaup og skorar með
langri og óverjandi spyrnu í
; annað horn marksins. Norð-
menn svara markinu með harðri
sókn, en hún stranda,r á sterkri
vörn íslendinga, sem fá öðru
hvoru ur>phlaup, er setja mark
(Framhald á 4. síðu)
DÖNSKU KON U NGSHJONIN
Sýningar hafnar á norsku kvik-
myndinni „Englandsfararnir“
Ágvðinn rcimur í sjóð, scm sluðlar að auknum
íiieiiniiigarsaniböiidum TVorðinannai
o}» íslcndinga
Hin fræga norska kvikmynd, Englandsfararnir, seni er gerð
eftir samnefndri skáldsögu Sigurd Evenmoens, var sýnd blaða-
mönnum og gestum kl. 5 í Tjarnarbíó í gær. Fannst öllum, sem
þar voru, mikið til um myndina, enda er hún talin ein allra bezta
kvikmyndin, er fjallar um hernám Noregs.
ERLENDAR FRÉTTIR
Sockarno, forseti Indonesíu,
hefir skorað á Breta og Banda-
ríkjamenn að reyna tafarlaust
að miðla málum milli Hollend-
inga og Indonesíumanna. —
Hollendingar halda hernaðar-
aðgerðum sínum áfram og er
viðnám lítið af hálfu Indonesíu-
manna, en þeir búa sig undir
langan skæruhernað og hafa
eyðilagt samgönguleiðir og
mannvirki í stórum stíl.
Albanía hefir neitað rann-
sóknarnefnd sameinuðu þjóð-
anna í Grikklandsmálunum um
landvistarleyfi. Nefndin vildi fá
leyfi til að kynna sér, hvort
uppreisnarmenn í Grikklandi
fengu aðstoð og herstyrk þaðan.
Rússar eru sagðir hafa í und-
irbúningi að kveðja saman ráð-
stefnu um fjárhagslega sam-
vinnu ríkjanna í Austur-Evrópu.
Fundur þingmannasambands
Norðurlanda hefst hér á þriðjud.
Fumliim sitja 60 fulltriiar frá fiiiiin \orðnr-
laiidanna
Fulltrúafundur Þingmannasambands Norðurlanda, sem haldinn
verður hér á landi að þessu sinni, hefst í Alþingishúsinu kl. 10,30
n. k. þriðjudag. Skýrði Gunnar Thoroddsen blaðamönnum í gær
frá tilhögun fundarins, en hann er formaður íslenzku stjórnar-
meðlimanna í ráðinu og forseti sambandsins sjálfs á yfirstand-
andi ári.
Mynd þessi var nýlega tekin af dönsku konungshjónunum, er þau
skrupppu í stutta sjóferð með Danncbrog. Að neðan sjást dætur þeirra
þrjár, ásamt fóstrum sínum.
Skemmtiför út í Viðey um
verzlunarmannahelgina
Fjölbreyttar skeiiiintanir verzlunariiiaiiiia
standa yfir í |irjá ilaga
Verzlunarmenn ætla að efna til fjölbreyttra útihátíðahalda hér
í bænum um verzlunarmannahelgina, sem verður að þessu sinni
þrír dagar, 2., 3. og 4 ágúst. Skýrði stjórn félagsins blaðamönnum
í gær frá tilhögun hátíðahaldanna.
Það var frú Guðrún Bóasdótt-
ir Brunborg, sem annarst sýn-
ingu myndarinnar hér og mun
hún verða sýnd víða um landið.
Ágóðinn mun renna í minning-
arsjóð um son Guðrúnar, Olaf,
sem lézt í fangabúðum nazista.
Guðrún ferðaðist hér um landið
í fyrra og flutti fyrirlestra og
sýndi kvikmyndir. Ágóðinn af
þeirri ferð hennar rann í þenn-
an sjóð, sem nemur nú orðið
50 þús. kr. Bætist nú vonandi
rífleg upphæð í sjóðinn, en til-
gangur hans er að styrkja ís-
lenzka stúdenta til náms í Nor-
egi og norska stúdenta til náms
hér.
Englandsfararnir fjallar um
unga Norðmenn, sem ætluðu að
komast til Bretlands á stríðsár-
unum en voru klófestir af naz-
istum, leiknir ^grimmilega í
fangelsum þeirra og síðast
drepnir. Myndin er mjög vel
leikin og á mragan hátt óvenju-
leg. Kvikmyndafélagð Snorra-
(Framhald á 4. slðu)
Bræðslusíldaraflinn
orðinn 350 þús. mál
Saltsíldaraflinn 12
[iíis. tuiinur
í fyrrakvöld nam bræðslu-
síldaraflinn á öllu landinu
350.000 málum, en saltsíldar-
aflinn tæpum 12.000 tn.
Bræðslusildaraflinn skiptist
þannig eftir verksmiðj unum
(talið í málum): Ríkisverk-
smiðjurnar 192.000, Rauðka
30.000, Hjalteyri 40.000, Krossa-
nes 5.200, Dagverðareyri 12.000,
Skaga>,trönd 2.500, Djúpavík
38.000, Ingólfsfjörður 30.000.
Saltsildaraflinn skiptist þann-
ig (talið í tunnum): Siglufjörð-
ur 10.865, Djúpavík 224, Skaga-
strönd 258, Raufarhöfn 583.
í gær barst mikil síld til
Raufarhafnar, en lítil til Siglu-
fjarðar. Síldveiði var yóð á
miðunum sunnan Langaness.
Drengur drukknar
Það slys varð í fyrradag 1
Stafholtsey í Borgarfirði, að 13
ára drengur, Sigfús Blöndal,
drukknaði í sýki í túnfætinum
þar. Sigfús var sonur hjónanna
í Stafholtsey, Pálínu og Páls
Blöndal.
Slysið vildi þannig til, að Sig-
fús var að baða sig í sýlfjum í
túnfætinum, eru kílar frá Hvítá.
Hann var ósyndur, en síkin eru
(Framhald á 4. síðu)
Hátíðahöldin hefjast á laug-
ardaginn 2. ágúst kl. 5 með því
að Guðjón Einarsson, formaður
Verzlunarmannafélagsins, setur
hátíðina. Á eftir hefjas^hátíða-
höld, sem standa til kl. 2 um
nóttina. Fara öll þessi útihátíða-
höld fram í Tivoli á sama tíma
alla dagana, kl. 5 til kl.
2 e. miðnætti. Verða. þau meö
nokkuð svipuðu sniði alla dag-
ana, en þó með breyttri dag-
skrá.
Af skemmtikröftum má nefna
Einar Kristjánsson söngvara,
Pétur Jónsson söngvara, Einar
Markússon píanóleikara. Auk
þess sýna loftfimleikahjónin
listir sínar og nýir trúðar, sem
komnir verða til Tivoli fyrir
þann tíma. Ennfremur Baldur
Georgs með Konna.
Öll kvöldin verður dansaö frá
kl. 10—2. Dansað verður í nýj-
um húsakynnum, sem reist hafa
verið í Tivoli.
Á sunnudaginn efnir félagið
til nýstárlegrar skemmtiferðar
út í Viðey, þar sem Skúla Magn-
ússonar verður sérstaklega
minnzt. Farið verður með bif-
reiðum frá Lækjartorgi inn í
Vatnagarða, en þaðan verður
farið með bílferjunum frá
Akranesi yfir sundið til Viðeyj-
ar. Þar fer fram messa, er bisk-
upinn, Sigurgeir Sigurðsson,
flytur, og lagður verður blóm-
sve/igip' á minni/imerki Skúla
fógeta. Farið verður úr Viðey
aftur kl. 4—6, en þá hefjast
hátíðahöldin í Tivoli.
Þegar hátíðahöldunum lýkur
á mánudagskvöldið verður stór-
kostleg flugeldasýning í Tivoli,
sennilega sú stórfenglegasta,
sem haldin hefir verið hér á
landi.
Það er í annað sinn, sem
norrænn þingmannafundur er
haldinn hér á landi. í fyrsta
sinn var hann haldinn hér 1930.
Þingmannasamband Norður-
landa er stofnað 1907 af Norð-
mönnum, Svíum og Dönum.
Finnar gengu í það nokkru
seinna, og íslendingar 1926.
Ráð sambandsins er skipað
20 mönnum, fjórum frá hvoru
landi. í nefnd íslands eru Bern-
harð Stefánsson, Sigfús Sigur-
hjartarson, Stefán Jóh. Stef-
ánsson og Gunnar Thoroddsen,
sem jafnframt er formaður.
Verður hann forseti fundarins,
samkvæmt þeirri venju, er rík-
ir á fundum sambandsins. í
þessum samtökum norrænna
þingmanna eru þeir alþingis-
menn þjóðanna, er það kjósa,
og víðast allflestir þingmenn-
irnir. Hér eru allir þingmenn
með tölu i sambandinu.
Tvö aðalmál liggja fyrir þess-
um fundi. Það fyrra er norræn
samvinna, um fiskveiðar og
fisksölumál. Formælandi er Jó-
hann Þ. Jósefsson fjármálaráð-
herra. Hitt aðalmál fundarins
eru Sameinuðu þjóðirnar —
Alþjóðasamband þingmanna —
Norræna þingmannasambandið.
Norsku og sænsku fultrúarnir
koma hingað með norskri flug-
vél, sem væntanleg er hingað
fyrir hádegi á sunnudag, en
dönsku fulltrúarnir koma með
Heklu, flugvél Loftleiða.
Þingmannafundurínn hefst
kl. 10.30 á þriðjudag með stutt-
um ráðsfundi, en að honum
loknum hefst sjálfur sambands-
fundurinn, eða um kl. 11. Fund-
ir verða svo þann dag og dag-
inn eftir, en á fimmtudag 31.
júlí verður þingfulltrúum boðið
í skemmtiferð austur að Gull-
foss, Geysi og Þingvöllum. En
um kvöldið verður kveðjusam-
sæti í Valhöll.
Alls taka þátt i fundinum 56
fulltrúar og fjórir varamenn,
frá íslandi er hafa rétt til að
sitja fundinn, sem verður þá
setinn af 60 mönnum. Danir
send^ ful!a tölu fulltrúa á fund-
inn eða 19, Norðmenn senda 10,
Svíar 7 og Finnar einn.
Skip brenmir
Skipverjar á m.b. Einar Þver-
æingur, urðu að yfirgefa skipið,
er eldur kom upp í því síðdegis
á fimmtudaginn var.
Einar Þveræingur (eldra skip-
ið), var á siglingu út af Mel-
rakkasléttu, er eldur kom upp í
því. Breiddist hann óðfluga út
og gátu skipverjar ekki við
hánn ráðið. Varð skipið alelda
á tiltölulega skammri stundu og
urðu skipverjar að yfirgefa skip-
ið í nótabát sínum. Skipið sökk
skömmu síðar.
Enginn skipverja mun hafa
slasast. Áhöfnin mun hafa verið
8 til 10 menn.
3
iminn
Vei/nu breytinga í
prentsmiðjjunni, hem-
ur Tíminn ekhi út fyrr
en á miðvikudtttiinn
hemur.
Norsku gestirnir fara heimleiðis
með Lyru kl. 16 í dag
Kroiipriiistiin flaug til IVoregs í fyrrinótt
Norsku gestirnir fara héð’an með Lyru kl. 16 í dag. Kl. 12 hefst
skilnaðarveizla, sem norska Snorranefndin heldur í Sjálfstæðis-
húsinu, og er þangaí boðið mörgum íslendingum. Telja má víst,
að mikill mannfjöldi muni verða við höfnina, þegar Lyra fer,
og hinir norsku gestir verði því virðulega kvaddir.
í gær fóru norsku gestirnir í
boði íslenzku Snorranefndar-
innar austur í Þjórsárdal, skoð-
uðu þar rústir í Stöng og fengu
góða útsýn til Heklu. Voru þeir
mjög ánægðir með förina.
í fyrradag var þeim sýndur
bærinn, en kl. 4 síðdegis bauð
forsetinn þeim til Bessastaða.
Um kvöldið voru þeir viðstaddir
landsleilfinn.
Á miðvikudaginn fóru þeir til
Gullfoss og Geysir í boði ís-
lenzku Snorranefndarinnar og
sáu mjög glæsilegt Geysisgos.
Þá um kvöldið fóru tundurspill-
arnir héðan og með þeim ráð-
herrarnir og þingforsetarnir.
Heimför krónprÍRSÍns.
Ólafur krónprins Norðmanna
flaug héðan heimleiðis með
norskum Katalínubát í fyrra-
kvöld.
Eins og áður var sagt frá, fór
krónprinsinn til Akureyrar á
miðvikudaginn og var svo ráð
fyrir gert, að hann færi þaðan
flugleiðis heim til Noregs. Vegna
veðurútlits varð þó ekki af því
og fór hann með bifreið hingað
til Reykjavíkur og kom til bæj-
arins kl. 7 í fyrrakvöld.
Klukkan rúmlega 9 í fyrra-
kvöld fór Ólafur konungsefni
frá’ flughöfninni í Skerjafirði
Var forseti íslands, Sveinn
Björnsson mættur þar til að
kveðja hann, ásamt forsetarit-
ara, Gunnlaugi Þórðarsyni, ut-
anríkisráðherra, Bjarna Bene-
diktssyni, Agnari Kl. Jónssyni
skrifstofustjóra í utanríkis-
ráðuneytinu, Elling Ellingsen
flugmálastjóra og Sigurði Jóns-
syni skrifstofustjóra.
Forseta íslands barst i gær
(Framhald á 4. síðut