Tíminn - 31.07.1947, Side 1
RITSTJÓRI: '
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON )
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
\
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. S
i
.ITST JÓR ASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
Slmar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: ,
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A
gftnl 23S
31. árg.
Reykjavík, fimmtndagiim 31. júlí 1947
137. blað
Formaður Islendingafélagsins í
Oslo í 23 ár
Yifttal við Guðna ISonriliktsson
Allir íslendingar, sem dvalið hafa í Oslo lengri eða skemmri
iíma, þekkja Guðna Benediktsson og allir að hinu sama — góðu.
Guðni hefir í meira en tvo áratugi verið óþreytandi hjálparhella
og ráðgjafí landa í höfuðborg Noregs, en hann hefir unnið störf
sín í kyrrþey og ekkert er fjarri honum en að minnast á það,
sem hann hefir gert fyrir aðra.
Frá f'Lnnskn íbróttaliátLðLnnL
Mynd þessi er frá setningu finnsku íþróttahátiðarinnar, sem Ármenning-
arnir tóku þátt í. Myndin sýnir íþróttaflokkana, er þeir ganga fylktu liði
inn á íþróttavöllinn. íþróttamennirnir í þessari göngu skiptu mörgum
þúsundum.
Ákvörðun um nýtt verðlag
á landbúnaðarvörum
frestað
Stjórniu gefnr út bráðabirgðalög
Ríkisstjórnin hefir ákveðið að gefa út bráðabirgðalög, þar
sem ákveðið er að ekki þurfi að ákveða nýtt verð á landbúnaðar-
afurðum fyrr en 30. ágúst næstk. Samkvæmt afurðasölulögun-
um, er samþykkt voru á seinasta þingi, átti nýja verðið að
ganga í gildi 1. ágúst næstk.
Ég hringdi til Guðna og bað
hann að koma til mín á gisti-
húsið og Guðni, sem vafalaust
hefir haldið, að ég þyrfti á ein-
hverri aðsjtoð að hálda kom
strax.
Guðni Benediktsson og sonur hans.
Meðan við drukkum norskt
„Solo“ spurði ég þennan kurt-
eisa og geðfelda mann um æfi
hans og störf.
— Ég er fæddur á Ormstöðum
í Breiðdal en er alinn upp á
Fáskrúðsfirði sagði Guðni. —
Ég lauk gagnfræðaprófi frá
Flensborgarskóla en fór 22 eða
23 ára til Björgvinar, þar var
eg í 6 mánuði og vann í Hansa
Bryggeri. Mér fannst ekki nóg
að sjá Björgvin, svo ég fór til
Osló og gerðist bókhaldari hjá
Shell, þar er ég enn.
— Samkvæmt tilkynningu ut-
anríkisráðuneytis Bandtíkj anna
var dr. Edward É. Acheson
snemma í júlí skipaður sérstak-
ur erindreki Trumans forseta
með sendiherraumboði til að
veita forstöðu viðskiptasendi-
nefnd Bandaríkjanna til margra
Norðurálfuríkja þar á meðal ís-
lands. Hlutverk nefndarinnar er
að rannsaka að hve miklu leyti
hægt er að nota framleiðslu
Evrópulanda til að bæta úr mat-
arskortinum á hernámssvæði
Breta og Bandaríkjamanna í
Þýzkalandi.
Dr. Acheson, er bróðir Dean
G. Acheson, fyrrum aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna.
Hann er prófessor í fjármála-
— Hvenær urðuð þér formað-
ur íslendingafélagsins í Osló?
— Þegar það var stofnað
hinn . des. 1923. Ingimundur
Eyjólfsson ljósmyndari kallaði
landa saman þennan dag og var
þá stofnað íslendingafélag. —
í .fyrstu stjórn félagsins voru
kosnir: Björn Benjamínsson,
sem er gjaldkeri enn í dag.
Bjarni Ásgeirsson söðlasmiður,
sem er dáinn fyrir rúmlega 10
árum, Jón Gunnarsson verk-
fræðingur og ég. Ingimundur
Eyjólfsson, sem var aðalhvata-
maðurinnn að stofnun félags-
ins, dó árið 1930.
— Hvefsu margir eru nú í
félaginu? Af búsettum íslend-
ingum 30—40 en auk þeirra
farfuglar okkar, á ég þar eink-
um við námsmenn, sem koma og
fara.
— Hefir félagið starfað óslit-
ið öll þessi ár?
Nei, á stríðsárunum var allur
félagsskapur bannaður en nú
er allt að komast í gamla horf-
ið aftur.
Hversu oft haldið þið fundi?
Við reynum að hittast einu
sinni í mánuði en sá þrándur
er í götu eins og stendur að
illmögulegt er að fá húsnæði
til fundahalda.
— Hvað hafið þið helzt til
skemmtunar á fundum?
Við höfum hvorki ræðumenn,
upplesara né söngvara í okk-
ar hópi svo við verðum að láta
okkur nægja að borða, spjalla,
syngja og dansa saman. Meiri
hluti þeirra íslendinga, sem hér
(Framhald á 4. siOu)
fræði við George Washington
háskólans, en starfaði á stríðs-
árunum við framkvæmd láns-
og leigulaganna og einnig við
hagfræðideild herforingjaráðs
Bandaríkjanna.
Dr. Acheson kom til ísland
frá Bretlandi, en þangað
kom hann frá hernámssvæðinu
í Þýzkalandi. í för með honum
eru tveir sérfræðingar í fiski-
málum. Hefir hann þegar hafið
viðræður við íslenzk stjórnar-
völd um erindi sitt.
Ríkisstjórnin hefir skipað
fjögra manna nefnd til þess að
annast þessar viðræður af hálfu
íslendinga. í nefndinni eru:
Björn Ólafsson, Kjartan Thors,
Kristján Einarsson og Hafsteinn
Bergþórsson.
Tilefni bráðabirgðalaganna er
það, að verðlagsnefndin hefir
ekki getið lokið starfi sínu á
tilsettum tíma vegna þess, hve
seint hefir gengið að afla ýmsra
upplýsinga.
Eins og' kunnugt er, skipa
verðlagsnefndina fulltrúar
bænda og neytenda. Fulltrúar
stéttasambands bænda eru þeir
Sverrir Gíslason 'í Hvammi,
Steingrínfjur Steinþórsson bún-
aðarmálastjóri og Sigurjón Sig-
urðsson Raítholti. Fulltrúar
neytenda eru þeir Sæmundur
Ólafsson (Sjómannafél. Rvíkur),
Ingólfur Gunnlaugsson (Alþýðu-
sambandið) og Einar Gíslason
(Landssamband iðnaðarmanna).
Ákvörðun nefndarinnar um
verðlagið nær ekki gildi, nema
allir nefndarmennirnir séu
sammála. Verði nefndin ekki
sammála, sker sérstakur gerðar-
dómur úr ágreiningnum. Skal
haiTT! skipaður einum fulltrúa
frá hvorum aðila og hagstofu-
stjóra.
Þeir aðilar, sem einkum hafa
aðstoðað nefndina við söfnun
upplýsinga, eru hagstofustjóri
og formaður búreikningaskrif-
stofunnar.
Verðið á nýja kjötinu.
Þar sem ákveðið hefir verið
að leyfa slátrun eftir 10. ágúst,
þurfti að setja sérstök ákvæði
inn í bráðabirgðalögin um verð-
ið á nýja kjötinu fram til 30.
ágúst. Er framleiðsluráði land-
búnaðarins heimilað að ákveða
verðið með tilliti til gildandi
verðlags og framleiðslukostnað-
ar. Samkvæmt lögum, er fyrr-
verandi stjórn setti, kemur verð-
ið á nýja kjötinu ekki inn í
vísitöluna meðan nóg er til af
gamla kjötinu.
Sumarhátíð Fram-
sóknarmanna í Rang-
árvalla- og Árnessýslu
Framsóknarfélögin í Árnes-
og Rangárvallasýslu gangast
fyrir sameiginlegri skemmtun
að Þjórsártúni, sunnudaginn 3.
ágúst. Meðal dagskrárliða verð-
ur: Ræða, Eysteinn Jónsson
menntamálaráðherra, karla-
kórssöngurw upplestur, Tómas
Guðmundsson skáld, og ræða,
Pálmi Hannesson rektor. Síðar
mun verða dansað.
Árnesingar og Rangæingar
munu eflaust fjölmenna á þessa
sameiginlegu skemmtun hérað-
anna og keppast um að gera
hana sem glæsilegasta.
Maður deyr af
sólsting
Ungur maður í Hveragerði,
Guðjón Guðmundsson, lézt af
sólsting um fyrri helgi. Guðjón
var 19 ára gamall.
Guðjón fór fyrra sunnudag í
sólbað í fjallshlíð, sem er
skammt frá Hveragerði. Um
(Framhald á 4. síöu)
Amerísk nefnd komin hingaö
vegna afuröasölunnar til
Þýzkalands
Um þessar mundir dvelur hér amerísk sendinefnd, sem er
komin hingað til viðræðna við ríkisstjórnina um vörusölu til
hernámssvæða Bandamanna í Þýzkalandi. í tilkynningu frá
rikisstjórninni segir svo um verkefni nefndarinnar:
Leitaö eftir lánsviöskiptum
við Þýzkaland
Dr. Achcsoii crinilrcki Bamlaríkjastjúrnar
ficfir rætt við íslcnzk stjúrnarvöld iiin fisk-
söIib [iaugiið.
Dr. Acheson, sem undanfarna daga hefir dvalið hér á landi í
umboöi Bandaríkjastjórnar, vegna fisksölumála til Þýzkalands
fer héðan aftur í dag ásamt aöstoðarmönnum sínum, en kemur
að öllum líkindum aftur, að nokkrum tíma liðnum. Ræddi hann
i gær við blaðamenn.
Eins og kunnugt er, feröast
Dr. Acheson um Norðurlönd og
víðar með sérstöku sendiherra-
umboði Trumans forseta, til að
kynna sér matvælaframleiöslu
þjóðanna og athuga, hvaða
möguleikar eru á því að auka
matvælaframleiðslu þeirra með
Þýzkalands markað fyrir augum.
Matvælaástandið í Þýzka-
landi er mjög bágborið og hafa
Bandaríkin og Bretland því á-
kveðið að reyna að koma á
auknum matvælaflutningi þang
að, frá þjóðum sem eitthvað
geta af mörkum lagt. Verður
látið heita svo, að viðskipti þessi
verði við þýzka aðila, en Banda-
ríkin og Bretland telja sig að
nokkru leyti skuldbundin til á-
birgðar gagnvart þeim. Hefir
helzt verið hugsað um að á
þennan hátt yrðu fluttar til
Þýzkalands þær matvörur er
norðurlandaþjóðirnar gætu auk-
ið framleiðslu sína á og er eink-
um rætt um aukinn fiskinn-
flutning. Þjóðverjar þurfa ca.
250 þús. smál. af fiski til að
hægt sé að auka matarskammt-
inn um 1 kg. af fiski á mann á
viku. Annars er fiskþörf Þjóð-
verja það mikil, að henni verð-
ur ekki fullnægt í náinni fram-
tíð, hversu mikið sem fiskveiði-
þjóðirnar legðu að sér til þess.
Þegar Acheson var spurður
um viðræður sínar við íslenzk
stjórnarvöld, sagði hann að bezt
væri að snúa sér til þeirra beint
varðandi upplýsingar um ár-
angur viðræðnanna. En >hann
kvaðst hafa leitað eftir upplýs-
ingum um hve mikiö íslend-
ingar gætu af mörkum lagt af
fiski Þýzkalandsmarkað, með
þeim skilyrðum að greiðslufrest-
ur fengist að verulegu leyti á
andvirði fisksins. Hugmynd
Bandaríkjanna er sú að koma
sem fyrst á fót viðskiptum Þjóð-
verja sjálfra við þjóðir þær sem
(Framliald á 4. siðu)
ERLENDAR FRETTIR
Fulltrúi Rússa í Öryggisráðinu
hefir beitt neitunarvaldi sínu
til að hindra samþykkt tillögu
frá Bandaríkjamönnum um
skipun nefndar, sem annist
gæzlu á landamærum Grikk-
lands og nágrannaríkja þess.
Þetta er í 11. sinni, sem Rússar
beita neitunarvaldinu.
Indverska stjórnin hefir á-
kveðið að leggja deilumál Indó-
nesíumanna og Hollendinga fyr-
ir Öryggisráðið, þó ekki fyrst
um sinn.
Forráðamenn hins nýja ind-
verska ríkis, sem Hindúar
mynda, hafa ákveðið að sniða
stjórnskipun sína eftir stjórn-
skip-«n Bretlands.
Brezku herna.ðaryfirvöldin í
Palestínu létu nýlega hengja
þrjá skemmdarverkamenn. Sam-
tök skemmdarverkamanna hafa
nú hótað að láta hengja tvo
enska liðþjálfa, sem þeir hafa
í haldi.
í Brest varð mikil sprenging
í ensku skipi á mánudagskvöld-
ið var. Um 20 menn fórust og
200 særðust. Skemmdir urðu
mjög miklar.
Norræna þingmannafund-
inum lauk í gær
Norræna þingmannafundinum lauk síðdegis í gær. Hann hófst
kl. 10 árdegis með framsöguræðu, sem Bögholm ritstjóri flutti
um sameinuðu þjóðirnar og þingmannasamböndin. Spunnust af
því fjörugar umræður, sem koniu víða við, og tóku margir til
niáls. Síðar á fundinum var borin upp og samþykkt tillaga um
fiskveiðamálin, er var undirbúin
inn áður.
Tillaga þessi, sem var eina til-
lagan, er fundurinn samþykkti,
hljóðar svo:
1) Funduiúnn lýsir yfir á-
nægju sinni á því vísindastarfi,
sem unnið hefir verið af hálfu
Norðurlanda á sviði hinna al-
þjóðlegu hafrannsókna, og jafn-
hliða því sem hann beinir þakk-
læti sínu til forgöngumann-
anna á þessu sviði, leggur hann
áherzlu á nauðsyn þess, að
þessu starfi verði haldið áfram
og það aukið, svo að það komi
að sem allra mestu gagni fyrir
Norðurlandaþj óðirnar.
2) Fundurinn leggur áherzlu
á þýðingu tilraunanna til þess
að auka efnahagslegt samstarf
á sviði fiskiveiðanna, sem hafið
hefir verið af norrænni hálfu
og síöar hlotið stuðning frá
öðrum þjóðum, m. a. frá ráð-
stefnunni í Bergen í sept. 1946.
Fundurinn beinir þeirri áskor-
un til ríkisstjórnanna á Norð-
urlöndum, að þær taki til at-
liugunar, hvernig áframhaldi
(Framhald á 4. síðu)
af nefnd, sem kosin var dag-
/ hópi hinna norrœnu þingmanna eru
þrjár konur. Tvœr þeirra, Astrid Skare
frá Noregi (t. v.) og Ingeborg Hansen
frá Danmörku sjást hér á myndinni.
(Ljósm.: Guðni Þórðarson).