Tíminn - 02.08.1947, Page 1
\ RITSTJÓRI:
) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
• n. - \
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN \
\
Símar 2353 og 4373
■ '■•• • i
PRENTSMIÐJAN EDDA hl.
: .rTSTJÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A >
Simar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A \
Simi 2SSS
31. árg.
Reykjavík, laugardagiim 2. ágúst 1947
139. blað
Islendingar hefðu getaö unniö
landskeppnina við Norðmenn
Viðtal við Albcrt Guðmiindssoii
Albert Guðmundsson, sem almennt er talinn bezti knattspyrnu-
maður okkar íslendinga, er nú farinn utan og hefir um skeið
ráðið sig sem atvinnumann, hjá einu bezta knattspyrnufélagi
Frakka, er Nancy heitir og er í samnefndri borg. Tíðindamaður
blaðsins hitti Albert daginn áður en hann fór og átti við hann
stutt viðtal, sem hér fer á eftir.
— Hvað viltu segja mér um
fyrirætlanir þínar?
— Ég fer nú til Frakklands
til að undirrita samninga við
franska atvinnuliðið Nancy ög
ætla ég samkvæmt samningum,
að keppa með því a. m. k. eitt
ár. Hvað ég tek fyrir eftir það,
fer eftir því, hvernig mér líkár
í Frakklandi, og hve heimþráin
Albert Guömundsson
verður sterk. Jafnframt knatt-
spyrnunni ætla ég að halda
áfram námi mínu í viðskipta-
fræði. Annars er það meiri
vinna að vera atvinnuknatt-
spyrnumaður en margur hygg-
ur. Þó að ekki sé kejppt nema
einu sinni í- viku eða einu sinni
í hálfum mánuði, verða liðs-
menn að stunda stöðugar æf-
ingar og er venjulega varið til
þeirra 4—5 klst. á dag, hjá at-
vinnufélögunum í Englandi og
Frakklandi.
— Er ekki mikið upp úr því
að hafa að vera atvinnumaður
í knattspyrnu?
— Jú, yfirleitt er atvinnu-
mönnum i knattspyrnu borgað
vel. í Englandi hafa knatt-
spyrnumenn t. d. fjórum sinn-
um meira kaup en verkamenn,
og í Frakklandi mun hlutfallið
vera svipað. Ég hefi, eins og þú
veizt, leikið tvo undanfarna
vetur sem áhugamaður með
brezkum atvinnuliðum. í fyrra
lék ég með Arsenal, sem er eitt
af allra beztu liðum Breta. Fór
ég m. a. með því til Frakklands
ög’ hlaut ég góða dóma þar. Síð-
an hefir þetta franska félag,
sem ég er nú ráðinn til, verið á
hnotskóg eftir mér og réðist ég
til þess nú fyrir skömmu.
— Hvernig líkar þér við Bret-
ana?
— Vel. Þeir eru gæddir mikl-
um íþróttaanda og knattspyrn-
an stendur sennnilega hvergi
framar en í Englandi, enda er
hún þar sannkölluð þjóðar-
íþrótt. Brezku knattspyrnu-
mennirnir eru harðir af sér í
leik og úthaldsgóðir, en jafn-
framt heiðarlegir og drenglund-
aðir.
— Hvað viltu segja mér um
knattspyrnuna hér heima í
sumar?
— Ég held ennþá fast við þá
skoðun mína, að knattspyrnu-
menn okkar geti staðið öðrum
þjóðum á sporði, aðeins ef þeir
æfa nógu vel og eru nógu
strangir við sjálfa sig. Ég tel, að
við hefðum getað unnið fyrsta
leikinn við Norðmennina, ef út-
haldið hefði verið svolítið meira.
Framan af leiknum, held ég, að
við höfum staðið okkur nokkuð
vel, en þegar liða tók á leikinn
fóru okkar menn yfirleitt að
þreytast og þá komu ýmsir gall-
ar í ljós, svo sem að einstakir
liðsmenn gættu ekki mótherj-
ans eins vel og skyldi, og svo
framvegis. Ég tel því, að marka7
fjöldinn í fyrsta leiknum gefi
ekki rétta hugmynd um styrk-
leika liðanna, sem ég held að
hafi verið mjög jöfn. Norska
liðið er gott, þó að það sé mun
lakara en brezka liðið, sem við
(Framhald á 4. síðu)
Veglegar minningartöflur um þá, sem
fórust með ,Goðafossi’ og ,Dettifossi’
Þær cru gcfnar af íslenzkuiii kaiipsýsliimöiin-
iiin. er voru í New York á stríösárunuin
í gær voru Eimskipafélagi íslands afhentar tvær fagrar minn-
ingartöflur um þá, sem fórust með Goðafossi og Dettifossi. Gef-
endurnir voru íslenzkir kaupsýslumenn, sem dvöldu í New York
á stríðsárunum. Ætlast er til, að töflurnar verði framvegis í
anddyri Eimskipafélagshússins eða í aðalskrifstofusal félagsins.
Töflurnar voru afhentar Eim-
skipafélaginu í gær í hádegis-
verðarboði, sem gefendurnir
efndu til. Hannes Kjartansson
stórkaupmaður hafði orð fyrir
gefendunum. Hann fór miklum
viðkenningarorðum um störf
ísl. sjómannanna á stríðsárun-
um og kvaðst fáa hafa haft
betri aðstöðu til að meta þáu
en íslendinga þá, sem dvöldu í
New York, því að íslenzku skip-
in voru eini tengiliðuf þeirra
við föðurlandið. Þeir hefðu því
viljað með nokkrum hætti láta
viðurkenningp sína og þakklæti
koma í ljós.' Guðmundur Vil-
hjálinsson forstjóri þakkaði
gjöfína fyrir hönd Eimskipafé-
lagsins. Að lokum færði Garðar
Gíslason stórkaúpmaður Eim-
skipafélaginu árnaðaróskir sín-
ar.
Töflurnar, sem eru gerðar í
New York, eru hvorttveggja í
senn látlausar og fagrar,- Þær
eru gerðar úr bronce. Á þær
eru letruð nöfn skipverja og
farþega, sem fórust með skip-
unum. Smekklegur rammi um-
lýkur nöfnin og lokast hann að
ofa'n með nákvæmri mynd af
hlutaðeigandi skipi, nafni þess
og dagsetningunni, þegar það
fórst.. í öðru horni rammans að
neðan er íslenzki fáninn í eðli-
legum litum, en Eimskipafé-
lagsfáninn í hinu horninu.
DANSKIR STJÓRNMÁLALEIÐTOGAR
Vilhelm Buhl Hedtoft Hansen
Á norræna þingmannafundinum, sem haldinn var hér í bænum i þess-
ari viku, mættu m. a. nokkrir af þekktustu stjórnmálaforingjum Dana.
Hér að ofan eru myndir af tveim aðalforingjum radikalaflokksins, þeim
Bertil Dahlgaard, fyrrv. innanríkisráðherra, og Jörgen Jörgensen, fyrrv.
mcnntamálaráðherra, og tveimur aðalforingjum jafnaðarmanna, þeim Vil-
helm Buhl, fyrrv. forsætisráðherra, og Hedtoft Hansen, fyrrv. félags-
málaráðherra.
Glingurvörukaup íslendinga til
umræðu í útlendum blöðum
Frásögn tlanska hlaÖsins „Inforiiiatioiieii“
í danska blaðiiiu „Informalionen“ birtist 22. f. m. grein um
ffjaldeyrismálin á íslandi. Þar er því lýst á mjög svipaðan hátt
og í „Manchester Guardian“, hve gálauslega íslendingar hafi
eytt gjaldeyri sínum eftir styrjöldina og sé því svo komið, að
þeir verði nú að fleyta sér á gjaldeyrisláni frá Br)ftum, þótt þeir
liafi verið ein tiltölulega ríkasta Evrópuþjóðin í stríðslokin.
*
Meistaramót Islands
í frjálsum íþróttum
Meistaramót ísland í frjáls-
um íþróttum fer fram á í-
þróttavellinum í Reykjavík
dagana 10.—16. ágúst n.k.
Þetta er að því leyti merkasta
meistaramót, sem hér hefir
verið háð, að það er jafnframt
óbein keppni við Norðmenn,
Dani og Finna. En á meistara-
mótum þessara þjóða verða
valdir úr menn á Norðurlanda-
keppni, sem fram fer í Stokk-
hólmi fyrstu vikuna í septem-
ber. Því móti verður þannig
háttað, að fjögur Norðurlöndin,
ísland, Noregur, Danmörk og
Finnland keppa sameiginlega á
móti Svíum. Sex menn keppa í
hverri grein, þrír frá Svíum og
þrír frá hinum Norðurlöndun-
um sameinuðum. Héðan frá ís-
landi verða aðeins valdir úr
þeir menn, sem ná einhverjum
af þremur beztu áröngrum á
Norðurlöndum (utan Svíþjóð-
ar) í sinni grein. Er þess naum-
ast að vænta, að hægt verði að
senda marga menn héðan, en
(Framhald á 4. síðu)
í áframhaldi greinarinnar er
vikið að viðskiptum Dana og
íslendinga og segir þar á þessa
leið:
— Þessi þróun gjaldeyrismál-
anna á íslandi hefir haft al-
varlegar afleiðingar fyrir mörg
dönsk fyrirtæki, einkum út-
flutningsfyrirtæki, sem stofn-
uð voru í lok stríðsins og verzl-
uðu aðallega við ísland. Jafnvel
á s.l. ári fluttu íslendingar nær
takmarkalaust inn frá Dan-
mörku. Þeir vildu kaupa allt
einnig óhófsvarning, s. s. til-
búin blóm, jólatrésskraut, ódýr
málverk, skreytingar, glergling-
ur (glerkýr!!), leðurvörur og
m. fl. Starfsemi margra danskra
útflutningsfyrirtækja jókst
mjög.
Um nýárið voru þó að lok-
um lagðar hömlur á þennan
innflutning og á fyrstu mánuð-
um ársins mátti heita, að hann
stöðvaðist með öllu, það kom
þá í ljós, að ýmis íslenzk fyrir-
tæki, sem staðið höfðu í þeirri
trú, að „gullöldin" tæki aldrei
enda, höfðu flutt inn án inn-
flutnjngsleyfa, og vörurnar
hlóðust því upp á hafnarbakk-
anum í Reykjavík, en komust
ekki í gegnum tollskoðun. En
á síðustu vikum hefir þó verið
opnað fyrir eitthvað af þessum
(Framhald á 4. síðu)
Ný viðskiptanef nd tekur við stjórn
innflutnings- og gjaldeyrismála
lliin imiiisí eiiinig' verðlagseftirlitið
í gær gaf ríkisstjórnin út reglugerð um starfsemi fjárhags-
ráffs, innflutningsverzlun, gjaldeyrismeffferff og verfflagseftirlit.
Reglugeröin gekk þegar í gildi og fell þar meff niffur störf ný-
byggingaráffs og viffskiptaráffs. Heyra nú öll þessi mál undir
fjárhagsráð og sérstaka viffskiptanefnd, er annast störf hinnar
uýju innflutnings og gjaldeyrisdeildar, sem er sett á stofn sam-
kvæmt fjárhagsráffslögunum.
Hin nýja .viðskiptanefnd er
skip^ið fimm mönnum og eiga
sæí\ i henni Sigurjón Guð-
mundsson skrifstofustjóri, Frið-
finnur Ólafsson viðskiptafræð-
ingur, Óskar Jónsson, Sverrir
Júlíusson útgerðarmaður og Sig-
urður B. Sigurðsson stórkaup-
maður.
Hlutverk viffskipta-
nefndarinnar.
í reglugerðinni eru störf við-
skiptanefndar ákveðin í höfuð-
atriðum þessi:
1. Að gera 'tillögur til fjár-
hagsráðs fyrir ár hvert um
heildaráætlun um útflutning
og innflutning þess árs, magn
og verðmæti. Skal áætlun þessi
miðast við það að hagnýta sem
bezt markaðsmöguleika og full-
nægja sem hagkvæmast inn-
flutningsþörf landsmanna.
2. Að úthluta í samræmi við
áætlun fjárhagsráðs til inn-
flytjenda innflutnings- og
gjaldeyrisleyfum fyrir þeim vör-
um, sem háðar eru leyfisveit-
ingum og setja þau skilyrði um
þau, sem nauðsynleg kunna að
vera vegna viðskiptasanuiinga
eða í f öðrum ástæðum. Úthlut-
un leyfa skal við það miðuð, að
verzlunarkostnaður og gjald-
eyriseyðsla verði sem minnst.
Reynt verði eftir því sem frek-
ast e>j unnt að láta þá sitja fyrir
innflutningsleyfum, sem bezt
og hagkvæmust innkaup gera
og sýna fram á, að þeir selji
vörur sínar ódýrast í ‘landinu.
Skal þetta gilda jafnt um kaup-
mannaverzlanir og samvinnu-
verzlanir og miðað við það, aö
neytendur geti haft viðskipti
•ín þar, sem þeir telji sér hag-
kvæmast að verzla.
3. Að úthluta öðrum gjald-
eýrisleyfum en þeim, sem í 2.
tölulið greinir.
4. Að ákveða vöruskömmtun
og sjá um framkvæmd hennar.
Þegar skömmtun er ákveðin
skal ætíð fyrst leita samþykkis
fjárhagsráðs.
5. Að ráðstafa, ef nauðsyn ber
til farmrými í skipum, er ann-
ast eiga vöruflutninga til lands-
ins, og eru eign íslenzkra aðila
eða á vegum þeirra.
6. Að fara með verðlags-
ákvarðanir og verðlagseftirlit.
7. Önnur störf, er fjárhags-
ráð kann að fela henni.
Verðlagseftirlitið.
Ákvæði reglugerðarinnar um
verðlagseftirlitiö eru í höfuðat-
riðum á þessa leið:
— Viðskiptanefnd hefir með
höndum verðlagsákvarðanir og
eftirlit með öllu verðlagi. Miða
skal hún verðlagsákvaröanir við
þörf þeirra fyrirtækja, sem
hafa vel skipulagðan og hag-
kvæman rekstur.
Nefndin hefir bæði af sjálfs-
dáðum og að fyrirlagi fjár-
hagsráðs eða ríkisstjórnar vald
og skyldu til að ákveða há-
marksverð á hvers konar vörur
og verðmæti, þar á meðal há-
mark álagningar, umboðslauna
og annarrar þóknunar, sem
máli skiptir um verðlag í land-
inu. Svo getur og viðskipta-
nefnd úrskurðað um aðra
kostnaðarliði, sem máli skipta
um verðlagningu á vörum. Þá
getur nefndin ákveðið gjöld
fyrir flutning á landi, sjó og
lofti, þar með talin farmgjöld
og afgreiðslugjöld, enn fremur
greiðslur til verkstæða fyrir alls
konar verk, svo sem pípu- og
rafla^nir, smíðar, málningu og
veggfóðrun, saumaskap, prent-
un og því um líkt. Þá getur við-
skiptanefnd ákveðið hámarks-
verð á greiöasölu, veitingum,
fæði, snyrtingu, fatapressun og
aðgöngumiðum að almennum
skemmtunum og öðru slíku. Á
hinn bóginn hefir nefndin ekki
vald til verðákvörðunar á þeim
vörum, sem verðlagðar eru
samkvæmt sérstökum lögum,
né vöru, sem seld er úr landi,
eða launa fyrir verk, sem á-
kveðin hafa verið með samn-
ingum stéttarfélaga.
Síldveiðin
Slæmt veiðiveður var á síld-
veiðimiðunum fyrir Norðurlandi
í gær. Lítil síld veiddist því.
Nokkur skip urðu þö sildar vör
á Grímseyjarsundi og var vitað
um tvo skip, er fengu þar full-
fermi, en það voru Keflvíking-
ur og Siglunes. Fá skip komu
til Siglufjarðar með síld í gær.
Hátíöahöld verzlunar-
manna hefjast í dag
Hátíðahöld verzlunarmanna í
Reykjavík, sem verzlunar-
mannfélagið gepgst fyrir hefj-
ast eftir hádegi í dag.
Hátíðahöldin hefjast í Tivolí
í dag kl. 5 með því að hátíðin
verður sett. Þá fara fram sýn-
ingar trúða, en um kvöldið
verða aftur sýningar þeirra, en
auk þess syngur þá Pétur Jóns-
son óperusöngvari, kvikmynda-
sýning verður og aö lokum
dans til kl. 2 e. m.
Á morgun verður svo efnt til
skemmtiferðar út í Viðey. Verð-
ur lagt af stað frá Félagsheimili
verzlunarmanna í Vonarstræti
kl. 12,30 og ekið í bílum inn í
.Vatnagarða, en þaðan verður
farið með ferju yfir sundið. í
Viðey fer fram hátíðleg athöfn,
þar sem Skúla fógeta verður
minnst. Verður haldin guðs-
þjónusta í Viðeyjarkirkju, þar
sem biskupinn messar. Er fólk
áminnt um að ganga vel um
eyna og spilla þar engu. Um
kvöldið verður svo aftur
skemmtun í Tívolí, þar sem
trúðar sýna, Einar Kristjánsson
syngur og að lokum dansað til
kl. 2 e. m.
Á mánudaginn verða skemmt-
anir i Tívolí með svipuðu sniði
og daginn áður, og lýkur þeim
með stórfenglegustu flugelda-
sýningu, sem haldin hefír ver-
ið hér á landi.