Tíminn - 12.08.1947, Side 1

Tíminn - 12.08.1947, Side 1
RITSTJÓRI: ÞÖRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: PRAMSÓKN ARFLOKKURINN Símar 2353 og 4373 PRENTSMIÐJAN EDDA hj. TTSTJÓRASKRIPSTOFOR: EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A slmar 2353 og 4373 AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOPA: EDDUHÚSI, Llndargöw 9A Slml 31. árg. Reykjavík, þriðjmlagiim 12. ágnst 1947 Síldveiðiskýrsla Fiskifélagsins: Bræðslusíldaraflinn orðinn svip- aöur og á allri vertíðinni í fyrra Engin síhlveiði sciiiastu dagana. í lok seinustu viku nam bræðslusíldaraflinn orðið 1.166 þús. lil. á öllu landinu, og er það svipað og allur bræðslusíldaraflinn varð í fyrra. Hins vegar varð saltsíldaraflinn ekki nema 28 þús. (n., en hann var orðinn 70 þús. tn. á sama tíma í fyrra, en varð þá alls 157 þús. tn. — Til samanburðar má ennfremur geta þess, að 11. ágúst 1945 var bræðslusíldaraflinn 376 þús. hl. og 12. á- gúst 1944 870 þús. hl. Seinustu dagana hefir mátt heita alveg síldarlaust, þótt veður hafi ekki hamlað veiðum. Leitarflugvél- ar hafa heldur ekki orðið varar við síld. Hér fer á eftir skýrsla Fiski- félagsins um afla síldveiðiskip- arína (fremri talan er bræðslu- síldaraflinn í málum, en aftari talan saltsíldaraflinn í tn): Botnvörpuskip: Drangey, Rvík 4355, Faxi, Hafnarf. 4878. Gyllir, Rvík 1378. Sindri, Akranesi 9722, Tryggvi gamli, Rvík 5477. Önnur skip: Alden, Dalvík 5883, Ármann, Rvík 1976, Bjarki, Akureyri 5642, Huginn, Rvík 9567, Jökull, Hafnarfirði 6744, Ólafur Bjarna- son, Akranesi 6090, Sigríður, Grundarfirði 5509, Sverrir, Keflavík 3526, Sæfell, Vestm. 7389, Sævar, Vestm. 5061, Mótorskip (1 um nót): Aðalbjörg, Akranesi 3063, Á- gúst Þórarins, Stykkish. 4379, Akraborg, Akureyri 1730, Álsey, Vestm. 7549, Andey, Hrísey 4170 354, Andvari, Rvík 5526, Andvari Þórshöfn 2022, Anglía, Drangs- nesi 632, 140, Anna, Njarðvík 1782, 261, Arinbjörn, Rvík 3768, Ársæll Sigurðsson, Njarðv. 1487, 634, Ásbjörn, Akranesi 1326, Ás- björn, ísafirði 2030, 107, Ásgeir, Rvík 4439, 113, Ásmundur, Ak- ranesi 721, 50, Ásúlfur, ísaf. 3217, Ásþór, Seyðisf. 3901, 289, Atli, Akureyri 3893, 214, Auð- björn, ísafirði 1945, 178, Auður, Akureyri 5470, Austri, Seltjarn- arnesi 181. Baldur, Vestmannaeyjum 2831, 267, Bangsi, Bolungavík 1086, 589, Bára, Grindavík 608, 398, Birkir, Eskifirði 926, Bjarmi, Dalvik 3759, 424, Bjarnarey, Hafnarf. 6495, Bjarni Ólafsson, Keflavík 1439, 100, Björg, Nes- kaupstað 2434, Björg, Eskifirði 3898, 199, Björgvin, Keflavík 2792, Björn, Keflavík 2563, 202, Björn Jónsson, Rvík 2432, Blá- tindur, Vestm. 635, Bragi, Keíla- vík 1484 Bragi, Njarðvík 1897, Brimnes, Patr. 1598, 118, Bris, Akureyri 640, Böðvar, Akranesi 3758, 238. Dagný, Siglufirði 8479, Dagur, Reykjavík 4584, Draupnir, Nes- kaupstað 3791, 263, Dröfn, Nes- kaupstað 2071, 421, Dúx, Kefla- vík 3016. 276. Edda, Hafnarfirði 11566, Egg- ert Ólafsson, Hafnarfirði 1091, 54, Egill, Ólafsfirði 1729, 470, Einar Hálfdáns, Bolungav. 1202, 231, Einar Þveræingur. Ól- afsf. 3490, Eirikur, Sauðárkróki 2459, Eldborg, Borgarnesi 11004, Eldey, Hrísey 3580, 24Ö, Elsa, Rvík 3877, 60, Erlingur II, Vm. 1798, 795, Erna, Á'kureyri 3434, Ernir, Bolungavik 1400, Ester, Akureyri 2336, 229, Eyfirðingur, Akureyri 4122. Fagriklettur, Hafnarfirði 8658, Fanney, Reykjavík 3464, 138, (Framhald á 4. síðul Kaupa Pólver jar 15 þúsund hross háðan næstu fimm árin? Um þessar mundir standa yfir samningar við pólsk stjórnar- völd um sölu á íslenzkum hestum til Póllands. Eru taldar nokkr- ar horfur á, að hægt verði að selja þangað um 15 þúsund hross næstu fimm árin. ERLENDAR FRETTIR Bráðlega mun hefjast ráð- stefna Bandaríkjamanna, Breta og Frakka, þar sem rætt verður um að leyfa Þjóðverjum aukna framleiðslu. í Frakklandi er í undirbún- ingi að fækka opinberum starfs- mönnum um 300 þús. manns. Þeii’ eru nú 1.250 þús. Forvígismenn Smábænda- flokksins og jafnaðarmanna- flokksins i Ungverjalandi hafa mótmælt samningi kjörskrár- innar vegna væntanlegra þing- kosninga, en framkvæmd hennar heyrir undir einn af ráðherrum kommúnista. Rúmenska stjórnin hefir á- kveðið að svipta Bændaflokk- inn öllum þingsætum sínum. Hann var helzti stjórnarand- stöðuflokkurinn. Eins og kunnugt er, var sam- ið í fyrra um nokkra hrossa- sölu til Póllands, en minna varð úr henni en gert var ráð fyrir Samningaumleitanir voru hafn- ar aftur á síðastl. vetri og hafa staðið yfir síðan, en gengið treglega. Nú munu þessar við- ræður þó komnar á það stig að nokkrar horfur eru á, að Pólverjar vilji kaupa héðan 15 þús. hesta næstu fimm árin og yrðu 2000 þeirra fluttir héðan í sumar, en síðan rúm 3000 ár lega. Verðið, sem þeir vilja greiða, mun svara til þess, að bændur geti fengið 1000—1200 kr. fyrir hestinn. Sá böggull fylgir skammrifi, að þeir vilja fá tveggja ára greiðslufrest þannig, að t. d. hestarnir, sem yrðu fluttir út í ár, yrðu ekki greiddir fyrr en 1949. Þá munu þeir viija greiða andvirðið með kolum. Yrði gengið að þessum skilyrðum, myndu bændur sennilega fá um 600 kr. fyrir hestinn, þegar þeir seldu hann, en það mun svara til þess, sem þeir gætu fengið, ef hann væri (Framhald á 4. siðu) 144. blað Þaö veröur tafarlaust að gera ráðstafanir til að tryggja bændum á óþurrkasvæðinu fóðurbætir FYRIR FRAMAÍV ■•iAC.RFSIR I PARIS Viíftal við Pál Zóphóníasson ráðunaut um hcyskapinn í síóastl. viku. Fréttamaður Tímans átti í gær viðtal við Pál Zóphóníasson ráðunaut um heyskapinn í síðastliðinni viku. Frásögn Páls fer hér á eftir og vill Tíminn sérstaklega árétta þá áminningu hans, að þegar verði gerðar ráðstafanir til að tryggja bændum næg- an fóðurbæti næsta vetur. í Frakklandi hefir verið mjög róstusamt að undanförnu og valda því einkum verkföll þau, sem kommúnistar hafa haldið uppi síðan þeir komust í stjórnarandstöðu. Daglega gerast slíkir atburðir í París og sjást hér á myndinni, þ. e. iögreglan verður að beita hörðu til að varna mann- fjöldanum frá því að ráðast inn í þinghúsið. rafmagnsleiðsla veldur dauðaslysi Mál. scisa jiarfnasl tafurlaiisrar og fullkom- innar rannsóknar. Það hörmulega slys varð liér í bænum á sunnudagskvöldið, ið fjögra ára telpa fékk háspennustraum í sig með þeim af- Ieiðingum, að hún beið bana. Orsök slyssins virðist hafa verið gálaus frá gangur á rafmagnsleiöslum hjá starfsmönnum Raf- magnsveitunnar. — Frásögn sú, sem hér fer á eftir, er byggð á upplýsingum rannnsóknarlögreglunnar. Nýr jarðræktarráðu- naiitur hjá Bunaðar- félagi Islands í byrjun júlímánaðar tók Páll Hafstað við störfum sem jarð- ræktarráðunautur hjá Búnað- arfélagi íslands. Eru jarðrækt- arráðunautar félagsins þá orðnir þrír. Fyrir voru Ásgeir L. Jónsson og Björn J. Bjarnason, sem réðist til félagsins í fyrra að afloknu námi við landbún- aðarháskólann í Kaupmanna- höfn. Páll Hafstað er frá Vík í Skagafirði. Hann lauk námi í almennum búfræðum við Bún- aðarháskólann á Ási í Noregi 1943 og stundaði siðan nám í búnaðarhagfræðum í Osló og Stokkhólmi. Síðan hann kom heim, 1945, hefir hann starfaö hjá Búnaðarráði og sölunefnd setuliðseigna. Bær brennur Bærinn Spóastaðir í Biskups- tungum, sem er næsti bær við Skálholt, brann til kaldra kola í fyrrinótt, og mun litlu hafa verið bjargað af innanstokks- munum. Einnig brann hlaða, full af heyi. Óvíst er um elds- upptök, en talið líklegt að kviknað hafi í út frá heyþurrk- unarvél. A gatnamótum Reykjahlíðar og Barmahlíðar, hér í bæ, fram- an hússins nr. 9 viö Barmahlíð, er stór geymsluskáli, sem not- aður hefir verið af Byggingar- samvinnufélagi Reykjavíkur. — Vestan skálans er aðalloftlínu- staur rafmagnsveitunnar. Frá honuro hafa verið lagðar heim- taugarleiðslur sem liggja yfir skáianum endilöngum og eru festar í staur á austurgafli hans. Leiðslurnar, sem eru ekki einangraðar, liggja rétt ofan skálaþaksins. í þeim er 220 volta straumur. Heimtaug þessi var lögð af starfsmönnum Raf- magnsveitu Reykjavíkurbæjar fyrir rúmum tveim árum síðan. Einhvern tíma hefir kaðall verið festur við stromp á skúrn- um. Liggur kaðallinn niður með skálaþakinu að sunnanverðu. Stigi er þeim megin skálans. Mun það að undanförnu hafa verið leikur unglinga þarna i grenndinni að fara upp stigann, lesa sig svo eftir kaðl- inum og komast þannig upp á skálaþakið. Munu fullorðnir hafa látið þennan leik barn- anna afskiptalítinn, enda vafa- laust gert ráð fyrir, að raf- magnsþræðirnir ofan þaksins væru einangraðir, svo sem til mun ætlast að settum reglum. Klukkan rúmlega 5 í fyrra- dag sá kona, sem býr í Barma- hlíö 10, að telpa lá uppi á skála- þakinu. Þekkti konan að þetta var fjögra ára gömul telpa, Inger Faarup að nafni, nýkom- in hingað til lands og átti heima hjá foreldrum sínum að Barmahlíð 10. Gerði konan föð- ur barnsins aðvart. Fór hann þegar upp á skálaþakið og sótti (Framliald á 4. síðu) I gær var sunnudagur í sext- ándu sumarviku, sagði Páll, og enn eru sömu óþurrkarnir á Suðurlandi. Sumir hafa enn engri töðu náð irín, og aðrir lít- illi. Víða er taðan enn flöt á túnunum, en annars staðar í drílum eða sætum, sem þó þarf að dreifa. Það má segja, að þriggja vikna. taða sé úti. og sumt af henni er orðið lélegt fóður. Og enn sjást stykki ósleg- in í túnunum, sem menn hafa Játið bíða eftir þurrkinum, í von um að fá töðuna af þeim óhrakta — en úr sér sprottna. Það er því alveg víst, að kúa- heyin á Suðurlandi verða léleg í vetur, og ekki verður hægt að hafa á þeim sama kúafjölda og undanfarin ár, nema með mikilli fóðurbœtisgjöf. Bændur neyðast því til að fækka kún- um eitthvað, og þá mun heyrast hljóð úr horni, ef fækkunin verður það mikil, að Reykvík- ingar geta ekki fengið næga mjólk keypta. En fá nú bœndurnir nœgun fóöurbœtir? Af sildarmjöli verö- ur lítið. og líklega verður það líka lélegt, ef blööin segja rétt frá um verkun þess. Og þó það fáist, er takmarkað hvað gefa má af því. Og verður nú flutt nægjanlegt inn af mais og hveitikliði. Leyfa þeir aðilar. sem ráða yfir gjaldeyrinum bað? Og geta þeir það? Var ekki fyrrverandi ríkisstjórn bú- in að eyða svo gjaldeyrisforöa okkar að þurrausið væri? Þann- ig spyrja bændur nú, og þeir þurfa að fá fljót svör, því fóð- urbœtirinn þurfa þeir að fara að nota eftir liðugan mánuð. Innflytjendurnir þurfa því að fara að fá hann til landsins úr þessu. Ég vildi mjög alvarlega skora á fjárhagsráö og viðskipta- nefnd að spara nú heldur inn- fiutning á einhverjum óþarfan- um, en láta nægjanlegt verða til af fóðurbætinum, svo bænd- ur gætu haldiö búum sínum sem mest óskertum. Nógur verö- ur samt fjárhagshnekkir þeirra, þar sem þeir þurfa að kaupa auka-fóðurbætir fyl'ir miljónir króna, vegna hröktu heyjanna, rem þeir veröa að fóðra kýrn- ar á. Það eru um 10000 mjólkandi kýr á SuÖurlandi, og er ekki of- reiknað að hver þeirra þurfi 300 til 400 kg. meira af fóður- bætir en siðastliðinn vetur, en það gerir 3—4 miljónir kg. af fóðurbætir fram yfir innflutn- ing siðastliðins árs. Fyrir hönd bænda á ’ Suður- landi vil ég skora á stjórnar- völd landsins að taka þetta mál þegar til athugunar, og láta fljótlega heyra hve mikinn inn- flutning á fóðurbæti þau ætla að leyfa. Á Suövesturlandi og Vest- fjörðum hefir heyskapurinn gengið nokkru betur, en þó eru þar víða úti töður, og sum stað- ar mikið. Þar eru þær líka hraktar, þótt ekki sé það eins og á Suðurlandinu, og þar þarf einnig að gefa meiri fóðurbætir en venjulega, eigi gripirnir að gera gagn. Til þessa þarf að taka tillit þegar innflutnings- magn fóöurbætisins verður á- kveðið. / Húnavatnssýslum og Skaga- firði hefir heyskapurinn gengiö betur. en þó verið tafsamur, ‘ érstaklega í útsveitum og vest- anverðri Húnavatnssýslu. / Eyjafirði hefir heyskapur- inn enn gengið vel. Þar slá nú margir seinni slátt, og sumir hafa alhirt hann eins og t. d. Ólafur Jónsson i Ræktunarfé- laginu. Aðrir slá á engjum, hafa (Framhald á 4. síðui TIMINN Af sérstökum ástæðum kem- ur næsta blað Tímans ekki út fyrr en á fimmtudaginn. Verðlaun fyrir frábær störf í þágu landbúnaðarins Búnaðarfélag íslands hefir nýlega veitt fimm mönnum heið- ursverðlaun samkvæmt þeim fyrirmælum búnaðarþings 1941 að veita slík verðlaun mönnum, er unnið hefðu frábær afrek í þágu landbúnaðarins. Var þá stofnaður sérstakur sjóður í þessu skyni. Verðlaunin, sem eru skraut- ritað skjal, ásamt 1000 kr. í pen- ingum, hafa verið veitt eftir- töldum mönnum að þessu sinni: Gisli Jórísson, Hofi, Svarfað- ardal, Eyjafirði. Heiðursverð- laun fyrir forgöngu um þegn- skylduvinnu viö vegagerð og viðgerðir alls konar véla. Hjörleifur Sigfússon, Álfgeirs- völlum, Skagafirði. Heiðursverð- laun fyrir fyrirgreiðslu á fénaði milli Blöndu og Héraðsvatna um langt skeið. Manna mark- fróðastur. Hjálmar Þorgilsson, Kambi, Skagafirði. Heiðursverðlaun fyrir forgöngu um tilraunir með heyþurrkun í húsi. Bjargmaður með ágætum. Stefán Jónsson, Öndólfsstöð- um. Suður-Þingeyjarsýslu. Heið- ursverðlaun fyrir forgöngu í fé- lagsmálum i héraði. Fjárrækt- arbóndi ágætur og hestamaöur. Hannes Jónsson, Núpsstað, A.-Skaftafellssýlu. Heiðursverð- laun fyrir framúrskarandi dugnað sem fylgdarmaður fólks og fénaðar á vatnasvæði hér- aösins.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.