Tíminn - 21.08.1947, Page 1
\
V ■ i
} ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON
i RIT8TJÓRI:
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURIN N
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
: ITSTJÓRASKRIFSTOFDR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Þimar 2353 og 4378
AFGREIÐSIiA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargöw 9 A \
Siml
\
31. árg.
Reykjavík, flnimtudagiiin 21. ágnst 1947
150. blað
Nýja brúin á Jökulsá á Fjöllum
opnuö í næsta mánuði
Mývetningar bna sig undir að taka á nióti
ferðamönnuin
Horfur eru nú á því, að nýja brúin á Jökulsá á Fjöllum verði
opnuð til umferðar seint í næsta mánuði, en við það styttist
Mlleiðin til Austurlands um 70—80 km. Brú þessi verður lengsta
hengibrú á landinu, um 104 m. Hún er smíðuð af sömu ensku
verksmiðjunni og smíðaði nýju Ölfusárbrúna. — Þessi nýja Jök-
ulsárbrú er, sem kunnugt er, byggð fyrir fé úr Brúasjóði, en hann
var stofnaður fyrir atbeina Austfjarðaþingmanna.
Friðbjörn Aðalsteins-
son látinn
Friðbjörn Aðalsteinsson skrif-
stofustjóri Landssímans, and'-
aðíst aðfaranótt þriðjudagsins.
Varð hann bráðkvaddur.
Friðbjörn heitinn var fgeddur ,
á Akureyri. Hann lauk gagn- ]
fræðaprófi þar árið 1907 og |
lagði síðan stund á símritun og ,
loftskeytafræði og þótti manna
fróðastur í þeim efnum. Hann
var fyrst ritsímastjóri á ísafirði
og síðan loftskeytastöðvarstjóri (
í Reykjavík árið 1917. Hann var j
skrifstofustjóri Landssímans
frá árinu 1934.
Fniðbjörn Aðalsteinsson Var
mjög vel látinn og vinsæll mað-
ur, meðal samstarfsmanna
sinna og annarra, er kynntust
honum, lipurmenni og höfðingi
í lund. Hann kvæntist í sumar
Elly Thomsen. I
Maður finnst örendur
S.l. sunnudag fannst örendur
maður í báti, sem var á reki
skammt undan Dysjum í Garða-
hverfi á Reykjanesi.
Maðurinn, sem í bátnum var,
hét Júlíus Nikulásson, Lækjar-
götu 1, Hafnarfirði. Hann hafði
að venju róið til þyrsklinga-
veiða á laugardagskvöldið.
Er menn í Garðahverfi sáu
bátinn á reki, fóru þeir að
rannsaka það nánar, og fundu
Július örendan í honum.
Iákur eru taldar á því, að
hann hafi fallið útbyrðis, en
tekizt aó komast upp í bátinn
aftur, og hafi þá verið orðinn
örmagna. Þegar að bátnum var
komið, lá Júlíus á borðstokkn-
um, með höfuð, herðar og ann-
an fótinn innanborðs, en hinn
fótinn lafandi í sjónum.
í fyrra var byrjað að vinna að
stöplagerð brúarinnar og frá því
í júní í vor hafa á milli 40 og 50
manns unnið að staðaldri við
uppsetningu brúarinnar, þar á
meðal fagmenn frá verksmiðju
þeirri, sem smíðaði brúna. Verk-
stjóri við brúarbygginguna er
Sigurður Björnsson frá Reykja-
vík.
Lagður hefir verið vegur frá
Reykjahlið um Námaskarð að
brúarstæðinu á Jökulsá, og að
austan hefir verið gerður af-
leggjari frá brúnni upp á veginn
hjá Grímsstöðum.
ELÍSABET OG MOUNTBATTEN
Mesta þrekraun landnámsáranna
var að standa í skilum
Fyrir 60 árum tók fcrðin til Wiiuiipcg margar
vikur. en 18 klst. nú
Viðtal við frú Oddnýjju Julmsou
i .•■■■'. '
í dag fara héðan tveir Vestur-íslendingar, er dvalið hafa hér
síðan 15. júní. Það eru þær mæðgurnar frú Oddný og Lára Johnson
frá Winnipeg í Manitoba. Frú Oddný fluttist vestur um haf 1888,
þá 23 ára og hefir aldrei komið til íslands síðan, fyrr en nú, eða
samtals í 60 ár.
Tíminn átti viðtal við frú og góif í flestum tilfellum. Voru
Oddnýju í gær að heimili þau hlý og entust allvel. Munu
tengdasonar hennar, Ragnars þau haía verið mun hlýrri en
Ólafssonar lögfræðings. Hún er
fædd að Lundum i Stofholts-!
tungum 19. júlí 1865. Foreldrar ]
hennar voru hjónin Ásgeir
Mynd þessi var tekin af þeim Elísabctu krónprinsessu og Mountbatten
herforingja rétt eftir að þau opinberuðu trúlofun sína.
ERLENDAR FRETTIR
Öryggisráðið hefir samþykkt
að mæla með inngöngu Pa-
kistan í sameinuðu þjóðirnar.
Hins vegar var inntökubeiðni
Albaníu hafnað og Rússar
beittu neitunarvaldi til að fella
inntökubeieðni írlands, Portú-
gal og Transjordaníu.
í Indónesíu haldast stöðugt
nokkur vopnaviðskipti. Örygg-
isráðið hefir enn eklci getað
orðið sammála um neina til-
raun til að koma á samkomu-
lagi.
í Cadiz á Spáni var ægileg
sprenging í tundurduflasmiðju
ríkisins síðastl. þriðjudags-
kvöld. Breiddist þaðan mikill
eldur, sem náði yfir stórt svæði
í borginn, og tók það á annan
sólarhring að ráða niðurlögum
hans. Óttast er, að um þúsund
manns hafi farizt. Eignatjón
varð stórkostlegt.
Öryggisráðið hefir samþykkt
að skora á Grikki, Albani, Júgó-
slava og Búlgari að reyna að
(Framhald. á 4. slðu)
Gistihúsum fjölgar
í Mývatnssveit.
Fullvíst má telja, að ferða-
mannastraumur um Mývatns-
sveit muni enn aukast veru-
lega eftir að hin nýja leið milli
fjórðunganna er fær orðin, enda j
auka nú Mývetningar mjög
gistihúsakost sinn. Hvorki meira
né minna en þrjú íbúðarhús,
sem öll verða væntanlega notuð
til gistihússreksturs að meira
eða minna leyti, eru nú- í smíð-
um í Reykjahlíð einni, og voru
þar þó tvö ágæt gistihús fyrir.
Pétur Jónsson, hinn þjóðkunni
dugnaðarmaður — bóndi, veit-
ingamaður og vegagerðarstjóri
— er rekið hefir greiðasölu á
nýbýli sínu, ReynihljS, undan-
farin ár, eða síðan nýbýlið var
upphaflega reist í landi Reykja-
hlíðar, — byggir nú ásamt son-
um sínum nýtt veitingahús þar
á staðqmn til viðbótar húsa-
kosti þeim, sem hann hefir þar
fyrir. Verður hægt að hýsa 30
næturgesti í hinum nýju húsa-
kynnum, en veitingasalurinn á
að njma 1—200 manns. Auk þe.ss
verða gestaherbergi í hinu nýja
íbúðarhjisi, er Sigurður Einars-
son bóndi í Reykjahlíð á nú í
smíðum, en hann er einnig
þjóðkunnurf og ágætur bóndi og
gestgjafi.
veðrið í Danmörku
veldur erfiðleikum
í Danmörku er nú óvenjulega mikió góðviðri, en það hefir líka
sínar dökku hliðar, engu síður en hið erfiða tíðarfar hér. Segir
svo um þetta í bréfi frá fréttaritara Tímans í Kaupmannahöfn,
dagsettu í byrjun þessarar viku.
í Danmörku hafa verið miklir*
hitar í sumar, en síðastliðna
viku tók alveg út yfir allan
þjófabálk. Dag eftir dag var allt
að þvi 30 stiga hiti í forsælu og j
afleiðingin er sú, að haglendi
og akrar hafa skrælnað. Kýrn-
ar naga þurran moldarsvörð
enda geldast þær nú óðum og
er því mjólkurskortur í Kaup-
mannahöfn eins og stendur.
Hætt er við að rófnauppskeran
eyðileggist ef ekki kemur rign-
ing næstu daga.
í Kaupmannahöfn kviknaði í
stórhýsi sökum hita og nemur
skaðinn allt að því einni milj.
króna.
Venjulegur búningur karla
er einar stuttbuxur, enda eru
Danir brúnir eins ofj Eskimóar.
Kvelifólkið hefir líka valið
stuttbuxurnar, en auk þess
pínulitla dulu til að skýla meö
miðhluta brjóstanna. Börn
(Framhald á 4. siðu)
Tveirmenn dæmdir fyrir nauðgun
Nýlega hefir sakadómarinn í Reykjavík kveðið upp dóm yfir
tveim mönnum, sem voru ákærðir fyrir nauðgun. Var annar
þeirra dæmdur í eins árs fangelsisvist, en hinn í 10 mánaða fang-
elsi. Loks var þeim gert að greiða stúlkunni, sem fyrir árásinni
varð, 10 þús. kr. og málskostnað.
Vélbátur sekkur
Áliöfnin bjargast
nauöiilega
Aðfaranótt mánudagsins sökk
vélbáturinn Víðir frá Gerðum á
bátalegunni í Sandgerði. Fimm
menn, sem voru á bátnum,
björguðust á seinustu stundu.
Hafði komið leki að bátnum
með þeim hætti, að „kalfastið“
sem er milli borðanna í skrokk
skipsins, hafði farið úr og því
myndast rifa á bakborðssíðuna,
er báturinn hafði lagst á hana
við stórstraumsfjöru á sunnu-
daginn. Skipverjar höfðu farið
um borð á sunnudagskvöldið,
og urðu þá ekki neins varir, en
vöknuðu um nóttina við það, að
sjór flaut í kojur þeirra. Þeir
náðu þegar sambandi við loft-
skeytastöðina í Reykjavík, og
reyndi hún síðan að ná síma-
sambandi við Keflavijt og Sand-
gerði, en þa ðtókst ekkj. Að
lokum náðist í samband við
símstjórann í Gerðum, Pétur
(Framhald á 4. síðu)
Finnbogason
Ólafsdóttir.
og Ragnhildur
Hinir dæmdu heita Ólafur
Gunnar Grímsson og Óskar
Lúðvík Grímsson. Málavextir
eru þeir, að laust fyrir kl. 8 að
morgni 2. maí s.l. voru þeir
Ólafur og Óskar staddir með
bifreið hér í miðbænum. Kom
þar að drukkin stúlka og fór
upp 1 bifreiðina með það fyrir
augum að fá bifreiðina til þess
að aka henni heim, þar sem
þetta var stöðvarbifreið. Fóru
báðir mennirnir einnig inn í
bifreiðina og ók annar þeirra.
En í stað þess að aka stúlkunni
heim óku þeir inn fyrir bæinn
og upp að Vatnsendahæð. Þar
nauðgaði Gunnar stúlkunni inni
í bílnum, og Óskar gerði tilraun
til nauðgunar. Eftir þessa lík-
amsárás komst stúlkan til
manna sem voru að vinna
skammt frá loftskeytastöðinni
og aðstoðuðu þeir hana til þess
að komast í bæinn.
Fyrir þessa árás var Ólafur
Gunnar dæmdur til 1 árs fang-
elsisvistar, en Óskar Lúðvík í
10 mánaða fangelsi. Þeir voru
báðir sviftir kosningarétti og
kjörgengi til opinberra starfa
og annarra almennra kosninga.
Þeir voru báðir sviftir ævilangt
leyfi til þess að stýra bifreið og
loks var þeim gert að greiða
stúlkunni kr. 10265.00 auk máls-
kostnaðar. Það skal tekið fram,
að mennirnir voru báðir ó-
drukknir er þeir frömdu þetta
níðingsverk.
Þá hefir sakadómai nýlega
dæmt allmarga menn fyrir
þjófnaði og brot á umferðalög-
gjöfinni.
Erfiðleikar landnámsáranna.
Frú Oddný giftist skömmu
eftif að hún kom vestur, Hinriki
Johnson. Hann var einnig fædd-
ur hér heima en fluttist vestur
á unga aldri. Hann var fæddur
í Önundarfarði árið 1855. Reistu
þau hjón fyrst bú í Lundar-
byggðinni en fluttu sig seinna
lengra ve.st.ur, eða um 200 mílur
vestur af Winnipeg og reistu
sér þar bú á ónumdu landi. Þar
bjuggu þau samfleytt í 40 ár
eða þangað til að maður frú
Oddnýjar andaðist á síðastliðnu
ári. Þá fluttist hún til Winnipeg.
Frú Oddný kvað einna mestu
erfiðleika fyrstu landnámsár-
anna hafa verið þá að geta
staöið í skilum, því að allt varð
að reisa upp frá grunni. All-
margir íslendingar höfðu fengið
land hjá stjórninni á sömu slóð-
um og þau hjónin og urðu þeir
að greiða 10 dollara fyrir landið.
Var svæði það, sem land þetta
var á, skammt frá, þar sem nú
er íslendingabyggðin Baldur.
Heitir það svæði Pipestone-
hérað. Er íslendingar komu á
þessar slóðir var þar algerlega
ónumið land. Var það síður en
svo nokkuð glæsilegt og langt
frá því að vera eins og stjórn-
arvöldin höfðu sagt að það væri.
Meðai annars var land þetta
mjög grvtt. Áður en langur tími
leið, fór líka svo, að flestir land-
anna undu þar ekki hag sínum
og hurfu þaðan flestir nema
Oddný og maður hennar.
Fvrstu byggingarnar.
Á þessu svæði var erfitt um
trjávið, þar sem landið var að
mestu trjálaust sléttlendi. Tóku
því flestir er námu þarna land
það ráð að byggja fyrstu bæi
sína úr torfi. Ytri veggir voru
hiaðnir úr torfi, en þekjan var
úr trjáviði og tyrft yfir. Að inn-
an voru þessi hús þyljuð í hólf
Komið í veg fyrir levf-
islausan vörninn-
flutning
Viðskiptanefnd hefir nú gert
ráðstafanir til að koma í veg
fyrir, að vörur séu fluttar inn,
án innflutnings- og gjaldeyris-
leyfa. Hefir nefndin ákveðið að
óheimilt sé að taka vörur til
flutnings í erlendri höfn, nema
tilgreint sé númer á innflutn-
ingsleyfi hér heima. Þetta hef-
ir verið tilkynnt öllum skipafé-
lögum, sem hlut eiga að máli.
Þetta gildir um allar vörur,
sem hér eftir verða tilkynntar
til flutnings. Vill nefndin benda
innflytjendum á að gera nú
þegar ráðstafanir til þess, að
tilkynna erlendum seljendum
leyflsnúmer sín.
Frú Oddný Johnson og Lára dóttir
hennar, cr þær komu hingað til lands.
bjáikahúsin, er víðast voru bú-
staðir fyrstu landnemanna, þar
sem auðvelt var að afla efni-
viðs til þeirra. Þau hjónin Odd-
ný og Hinrik byggðu sinn fyrsta
bæ þar vestra á þennan hátt.
Einnig byggðu þau gripahús
úr sama efni. Bjuggu þau í þess-
um húsakynnum um 10 ára
skeið. Þar fæddust hin fyrstu
börn þeirra hjóna, en alls eign-
uðust þau 11 börn og eru 10
þeirra á lífi.
Ræktunin hefst.
Land það, er íslendingarnir
fengu fyrir 10 dollara, var 160
ekrur að flatarmáli. Þau hjón
hófu þegar ræktun þess lands.
er þeim var úthlutað, strax er
þau höfðu flutzt á staðinn. En
jafnframt keyptu pau land til
viðbótar og áttu alls um 640
ekrur, er þau brutu og ræktuðu.
Ennfremur leigðu þau talsverða
landspildu og afgirt.; hana sem
(Framhald á 4. siðu)
verða að hætta að
verzla í Svíþjóð
Síðan stríðinu lauk hafa Dan-
ir farið margar ferðir til „fyrir-
heitna landsins" þ. e. Svíþjóðar.
Ef Dana áskotnaðist sænskur
túkall hvað þá meira, fór hann
með ferju til Málmeyjar eða
Helsingjaborgar og keypti fyrir
peningana.
Nú er heldur en ekki komið
babb í bátinn. Svíar hafa bann-
að Dönum alla verzlun í Svíþjóð
nema þeir dvelji þar í minnst
4 daga. í raun og veru er þetta
sama og að stöðva ferðir Dana
yfir sundið, þvi þeir Danir, sem
hafa efni á að dvelja 4 daga í
Svíþjóð eru auðtaldir.
Síðasta daginn sem Danir
máttu fara í einsdagsferð yfir
sundið var mikið um að vera.
Kyenfólkið brá sér yfir í sín-
um lélegustu brókum, keypti
nýjar í Svíþjóð og fleygði þeim
gömlu í garða og stiga stórra
húsa. Ekki er þess getið, að
hinir strönyu sænsku tollþjón-
ar hafi klætt dömurnar úr nýju
buxunum en slitnu flíkunum var
safnað saman og þær brenndar
á mil?lu báli í Málmey.
Danir verða nú að láta sér
nægja að líta öfundaraugum tii
frænda sinna hinum megin við
sundið og það svíkjast þeii
heldur ekki um. Ó. G.