Tíminn - 30.08.1947, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARPLOKKTJRINN
Símar 2353 og 437S
PRENTSMIÐJAN EDDA hX.
I vITSTJÓRASKRD7STOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu Ð A
Símar 2353 og 4371
AFGREŒíSLA, DÍNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDDHÚSI, Undargötu ÐA
Siml
31. árg.
Reykjavík, laugardaginn 30. ágúst 1947
157. Mað
ERLENT YFIRLIT:
Borgarastyrjöldin í Indlandi
Seinustu ágizkanir eru, að um 200 þús.
hafi fallið í óeirðunum.
Trúarbragðadeilurnar hafa oft verið harðar og blóðugar í Ind-
landi, en aldrei hefir kveðið meira að þeim en síðan landinu
var skipt í tvö ríki. Segja má, að síðan hafi geisað blóðug inn-
byrðisstyrjöld í Punjabfylki, en þar hafa deilurnar oftast verið
harðastar áður. Nú hafa deilurnar aukizt við það, að fylkinu
hefir verið skipt og tilheyrir annar hlultinn Pakistan, en hinn
Indlandi. Skiptinguna hefir eigi verið hægt að framkvæma með
öðrum hætti en þeim, að allstórir trúarbragðaminnihlutar eru
beggja megin landamæranna og hafa ofsóknirnar mjög beinzt
gegn þeim seinustu dagana.
Brezku konungshjónin kynna tengdasoninn
Borgir í rústum.
Erlendir fréttamenn, sem
hafa heimsótt ýmsar borgir í
Punjab undanfarið, segja, að
þær séu sízt betur leiknar en
þýzku borgirnar, sem harðast
urðu uii í loftárásunum. Það
hefir nefnilega verið ein hern-
aðaraðferð öfgamannanna, er
fyrir óeirðunum hafa staðið,
að kveikja í húsum trúarand-
stæðinga. Iðulega hafa farið um
göturnar stórir flokkar brennu-
varga, sem unnið hafa íkveikju-
starf á skipulagðan hátt, og
gert það á svo mörgum stöðum
í einu, að hvorki lögregAa né
herlið fengu neitt við ráðið.
Mest hefir kveðið að slíkum
spellvirkjum í Lahore, enda
líkja ýmsir erlendir blaðamenn
henni við Hamborg og Berlín
og telja hana jafnvel enn ver
farna.
Blóðbaðið í Ludhiana.
Síðastl. miðvikudag gerðust
atburðir í borginni Ludhiana,
sem er um 30 km. frá New Delhi,
er gefa nokkura hugmynd um
þessi ógnarátök í Indlandi. í
borginni búa um hálf millj.
Múhameðstrúarmanna og 100
þus. Sikhar, sem eru þriðji
stærsti trúarflokkurinn í Ind-
landi, næst eftir Hindúum og
Múhvmeðstrúarmönnum. Mú-
hameðstrúarmenn hafa áreitt
Sikharnir skipulögðu hefndar-
þá kenna á meirihluta sínum.
Á púðvikudaginn hófu svo
Sikkarnir skipulega hefndar-
sókn og réðust fylktu liði inn í
hverfi Múhameðstrúarmanna.
Margir þeirra voru búnir
brennutækjum, eins og eldblys-
um og olíublautum dúkum, og
kveiktu þeir í húsum Múham-
eðstrúarmanna. Aðrir voru bún-
ir hvers konar vopnum og
veittu þeir Múhameðstrúar-
mönnum árásir hvarvetna þar,
sem þeir náðu til þeirra. Þessi
viðureign stóð langt fram á nótt
og loguðu þá stór hveffi í borg-
arhluta Múhameðstrúarmanna
og mannfall þeirra var talið
skipt> þúsundum.
Slíkir atburðir hafa verið
næsta tiðir í Indlandi að undan-
förnu.. Einkum hefir baráttan
staðið milli Múhameðstrúar-
manna og Hindúa, en einnig
milli Múhameðstrúarmanna og
ERLENDAR FRETTIR
Maximos hefir myndað nýja
samsteypustjórn í Grikklandi,
en hann var forsætisráðherra í
fráfarandi stjórn. Tsaldaris
mistókst stjórnarmyndunin, þar
sem miðflokkarnir vildu ekki
styðja hann. Bandamenn lýstu
sig hins vegar andvíga stjórn,
er væri mynduð af hægri flokk-
unum einum.
. Öryggisráðið hefir fellt tillögu
Brasilíumanna um að vísa frá
kæru Egipta á hendur Bretum.
Aðeins sex fulltrúar greiddu at-
kvæði með tillögunni, en engin
tillaga nær samþykki, nema
hún fái sjö atkvæði.
Sikha. Meðan óvíst var um
skiptingu landsins, áttu Mú-
hameðstrúarmenn oftast upp-
tökin, en síðan hefir frumkvæð-
ið verið oftar hjá Hindúum og
Sikhum, sem eru andvígir skipt-
ingu landsins og kenna Múham-
eðstrúarmönnum um hana.
Mannfall og fólksflutningar.
Tölur þær, sem birtar hafa
verið um mannfall í þessari
borgarastyrjöld, sem raunveru-
lega hefir geisað í Indlandi síð-
ustu vikurnar, eru mjög á reiki.
Nú í vikuni birti Reuterfrétta-
stofau þá fregn, að um 2QÍ) þús.
manns hefðu þegar fallið. Aðr-
ar tölur eru nokkru lægri, en
öllum fregnum kemur saman
um, að mannfallið skipti mörg-
um tugum þúsunda.
Strax og landamærin voru á-
kveðin, hófust fólksflutningar
í stórum stíl. Gizkað er á, að
um hálf millj. Hindúa hafi yfir-
gefið Pakistan síðan og um 25
þús. Múhameðstrúarmanna
flytji sig nú daglega frá Ind-
landi til Pakistan. Þessir stór-
(Framhald á 4. síöu)
Kauffmannstyð-
ur óskir íslend-
inga í handrita-
málinu
Stúdentasambandi Islands
hefir nýlega borizt svohljóðandi
bréf frá Henrik Kauffman,
sendiherra Dana í Washing-
ton:
„Ég viðurkenni með þökkum
móttöku ýmissa rita varðandi
íslenzku handritin í dönskum
söfnum, sem íslenzka stúdenta-
samhandið fékk mér í hendur
síðasta daginn, sem ég' var í
Reykjavík.
Ég hefi lesið þessi rit með
mikilli athygli, og það hefir
glatt mig að sjá hinn ljósa
skilning á íslenzkum óskum,
sem danskir lýðháskólakenn-
arar hafa sýnt. Það er von mín,
að þetta mál muni áður en
langt um líður leysast á þann
hátt, að íslenzka þjóðin megi
vel við una, og geti myndað
grundvöllinn að vináttusam-
bandi milli þesara tveggja
bræðraþjóða, vináttusambandi,
sem mér persónulega er mjög í
mun að komist á."
Það er óhætt að fullyrða, að
Bá ^ilningur og Vinarhugttr,
sem kemur fram í þessari kveðju
Kauffmans, verður metinn af
íslendingum að verðleikum og
vafalaust styður álit þessa
merka manns, að þeirri lausn,
sem íslendingar vænta að verði
á þessu máli og heppilegust
myndi verða sambúð landanna.
Mynd þessi var tekin í garðveizlu, sem ensku konungshjónin héldu ný-
lega til að kynna Mountbatten tengdason sinn. Konungshjónin sjást hér
á mió'ri myndinni, ásamt Mary ekkjudrottningu, prinsessunum tveim og
Mountbatten liðsforingja. Veizlan var haldin rétt eftir að trúlofun þeirra
var opinberuð. Það hefir nú verið ákveðið, að þau Elisabet og Mount-
batten verði gefin saman í hjónaband 20. nóvember næstk.
Viðskiptaráðsmennirnir oska
eftir opinberri rannsókn á
störfum sínum
Yf irlýsing frá Viðskiptanefnd vegna skrifa
í Vísi.
Út af forystugrein í Vísi í gær, þar sem þeim aðilum, er fóru
með veitingu gjaldeyris- og innflutningsleyfa, er borið á brýn
ýms embættisafbrot, meðal annars að hafa gefið út leyfi, án þess
að þau væru skrásett, og jafnvel dylgjað um mútur í því sam-
bandi, hefir viðskiptanefnd gefið út svohljóðandi yfirlýsingu.
Lofsamlegir dómar norskra blaða
um íslenzku íþróttamennina
Kenpnin í 1500 m. hlaupinu var skenunti-
legust.
Tímanum bárust í gær tvö Oslóarblöð, sem komu út síðastl.
fimmtudag, en þar birtist frásögn frá íþróttamótinu, er hófst í
Osló kvöldið áður. Frásagnir blaðanna sýna, að afrek íslendinga
hafa vakið þar langmesta athygli, en frá þeim var nokkuð sagt
hér í blaðinu í gær. Verður hér bætt við útdrætti úr frásögn
uorsku blaðanna.
„í forustugrein í Vísi í gær:c
er rætt um orðróm, sem gangi í
bæhum um að leyfisveitingar
þeirra stofnana er með þær fóru
áður en viðskiptanefndin tók
til starfa, hafi ekki verið með
felldu, og er dylgjað um émb-
ættisbrot í þessu sambandi.
Út af þessu vill nefndin lýsa
yfir eftirfarandi:
1. Skömmu eftir að nefndin
tók til starfa ákvað hún að
kalla inn 'til skrásetningar og
framlengingar öll gjaldeyris- og
innflutningsleyfi, sem út voru
gefin fyrir 1. ágúst 1947, þ. e. a.
s. öll leyfi sem viðskiptaráð og
nýbyggingarráð höfðu gefið út.
Var þetta gert til þess að kom-
ast að raun um hve mikið væri
ónotað af leyfum þessum, en
það var ekki unnt að sjá á ann-
an hátt, þar eð innflutnings-
skýrslur HagstofiHinar bera það
ekki með sér, en slíkt uppgjör
hins vegar nauðsynlegt í sam-
bandi við yfirlit yfir gjaldeyris-
ástandið.
2. Öll þessi leyfi hafa nú ver-
ið lögð inn til skrifstofu nefnd-
arinnar og athuguð þar og við
þá athugun hefir ekkert það
komið fram, sem gefi minnsta
tilefni til \>ess að ætla, að orð-
rómur sá, sem um ræðir í
rí-efridri grein hafi við rök að
styðjast.
Reykjavík, 29. ágúst 1947.
Viðskiptanefndin."
Ennfremur hafa fyrrverandi
viðskiptaráðsmenn gert ráðstaf-
anir til þess að höfða meiðyrða-
mál gegn ritstjóra Vísis og
jafnframt ákveðið að fara þess
á leit við ríkisstjómina, að húrt
láti fara fram rannsókn á þessu
máli.
Fiskur fluttur loft-
leiðis héðan til Prag
Innan fárra daga mun sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna
senda fyrstu sendinguna af
frystum fiski loftleiðis til meg-
inlands álfunnar. -
Englendingur nokkur, Mr.
;Kahn að nafni, hefir dvalið
hér á landi um hríð til að und-
irbúa þessi viðskipti.
Það er brezk leiguflugvél, sem
flytur þennan fyrsta farm og
á hann að fara til Praha.
Sænskur námsstyrkur
Sænska ríkisstjórnin hefir
boðizt til ~þess að veita íslenzk-
um námsmanni styrk, sænskar
kr. 2350,00 til náms veturinn
1947_48 við eina eða fleiri af
eftirtöldum menntastofnunum:
Uppsalaháskóla, Lundarháskóla,
Karolinska mediko-kirurgiska
Institutet í Stokkhólmi, Stokk-
hólmsháskóla og Gautaborgar-
háskóla, en af þessari upphæð
verða 450 s. kr. greiddar í ferða-
kostnað. Æskilegast er, að
styrkþegi hafi stundað háskóla-
nám á íslandi að minnsta kosti
í 2 ár. Nemandi, sem ætlar að
leggja stund á sænsku eða sögu
Svíþjóðar, sænskar bókmenntir,
sænsk lög eða þjóðmenningu,
verður látinn ganga fyrir.
Umsókn um styrkinn ber að
senda Háskóla íslands í síðasta
lagi 6. september 1947.
Aðalfyrirsögnin yfir frásögn
„Morgenbladets" frá íþrótta-
mótinu hljóðar á þessa leið:
„Islendingene var den store
overraskelse ved Bisletstevnet".
Blaðið segir síðan í greininni., að
þótt Ameríkumenn ynni allt
það, sem þeir höfðu líkur til að
vinna, nema 1500 m. hlaupið, þá
varð „pá mange máter kvelden
Islands". Blaðið fer miklum
viðurkeninngarorðum um Óskar
Jónsson fyrir sigur hans í 1500
m. hlaupinu, og lýkur einnig
lofsorði á Finnbjörn Þorvalds-
son og Hauk Clausen fyrir að
sigra Peter Bloch, Noregsmeist-
arann í 100 m. hlaupi. j
Aðalfyrirsögnin í „Aftenpost-
en" hljóðar á þessa leið: „Is-
lendingen Oscar Jonsson ny
landsrekord pá 1500 m." í und-
irfyrirsögn segir enn fremur:
„Islendingene hadde en stor
dag". í greininni eru afrek
beirra síðan rómuð og m. a.
sagt: „De var flote karer gjest-
ene fra Sagaöya". Einkum er
sagt ítarlega frá afreki Óskars
Jónssonar. Blaðið segir, að
beim Finnbirni og Hauki hafi
verið veitt sérstök athygli, þar
sem þeir séu í norræna liðinu,
sem eigi að keppa við Svía, og
hafi áhorfendurnir síður en svo
orðið fyrir vonbrigðum af þeim.
Keppnin í 1500 m. hlaupinu.
Frásögnum beggja blaðanna
ber saman um, að keppnin í 1500
m. hafi vakið einna mesta at-
hygli. Bandaríkjamaðurinn
Hulse var talinn nokkurnveginn
viss um sigurinn. Hann leiddi
líka hlaupið lengi vel með Norð-
mennina Sponberg og Andre-
sen næst á eftir sér. Þegar 300
m. voru eftir af hlaupinu, var
Sponberg orðinn fyrstur og
voru þeir Hulse þá um 10 m. á
undan næsta manni, en um 25
m. á undan Óskari Jónssyni.
Þegar um 200 m. voru eftir kom
„den ukjente fra Island", eins
og Morgenbladet kemst að orði.
Þá hóf Óskar Jónsson upphlaup
sitt og fór fram úr öllum keppi-
nautum sinum, þótt þeir reyndu
að gera sitt ítrasta. Rétt við
markið reyndi Hulse að komast
fram úr Sponberg, sem þá var
enn fyrstur, en tókst það ekki,
„men bak disse to kom islend-
ingen í kjempefart og hans
spurt kunne ikke Sponberg be-
svare", segir Morgenbladet,
Teiknimynd þessi af Óskari Jónssyni
fylgir frásögn „Atenposten" af Osló-
armótinu.
„Det ble en helt uventet og po-
pulær seier", segir það enn-
fremur um sigur Óskars.
Tími Óskars varð 3.53.4 mín.,
sem er 5 sek. betra en íslands-
(Framhald á 4. síOu)
meru
óðum að hætta veiðum
Nokkur síld hefir borizt til
síldarverksmiðjunnar á Rauf-
arhöfn, og er bræðsla hafin þar
að nýju. Síldin hefir aðallega
veiðst við Svínalækjartanga og
Digranes. Nokkur skip fengu þar
sæmilegan afla í fyrradag og i
gær, m. a. fékk Snæfelll frá Ak-
ureyri 600 mál i einu kasti. Flest
fengu þó lítinn eða engan afla.
í gær höfðu 54 skip gert upp
við Síldarvqrksmiðjur ríkisins.
Þeim skipum fjölgar stöðugt, er
halda heimleiðis. Um 30 skip eru
komin á reknetaveiðar, en afli
þeirra hefir verið tregur.
Hefst verkfall reykvískra
járnsmiða á mánudaginn?
Félag járniðnaðarmanna hefir tilkynnt Vinnuveitendafélagi
íslands, að járnsmiðir munu leggja niður vinnu 1. september,
þar sem samningar hafa ekki tekizt um kaupkröfur þær, sem
þeir hafa gert. Tilkynningin um verkfall þetta var send vinnu-
veitendum síðastliðið sunnudagskvöld, eftir að samkomulags-
umleitanir höfðu reynzt árangurslausar.
Járnsmiðirnir krefjast 12 kr.
grunnkaupshækkunar á viku,
eða frá 158 í 170 krónur, en þeir
munu ekki hafa farið fram á
breytingar á öðrum atriðum
samninganna.
Samningaumleitanir fóru fram
síðastliðna viku og voru síðustu
fun^)irnir haldnir á sunnudag.
Árangur varð enginn, og sendu
járnsmiðir þá verkfallstilkynn-
ingu sína. Mun verkfall þeirra
hefjast næstkomandi mánudag,
eins og áður segir.
Þá hefir Dagsbrún sent
Vinnuveitendafélaginu tilkynn-
ingu um samúðarverkfall þeirra
Dagsbrúnarmanna sem starfa
við járnsmiðjur. Víðtækara sam-
úðarverkfall virðist félagið ekki
hafa í hyggju að gera.