Tíminn - 11.09.1947, Page 4
DAGSKRÁ er bezta Islenzka
tímaritið um þjóðfélagsmál
REYKJAVÍK
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
Eddiíhúsinu við Lindargötu. Sími 6066
11. SEPT. 1947
164. blað
Mestu fjárglæfrar.
(Framhald af 1. síSu)
kvæmda. Með þessu á ekki að-
eins að reyna að réttlæta ó-
stjórnina, heldur á einnig að
hafa þessa upphæð af nýbygg-
ingarreikningi. Slíkt er vitan-
lega fullkomnasta fölsun og
váeri miklu nær að endurskoða
leyfisveitingar Nýbyggingaráðs
og athuga, hvort allar þær 350
milj. kr., sem það ráðstafaði
hafi raunverulega farið til ný-
sköpunar. Er kannske hægt að
kalla jeppana, sem ráðið leyfði
Reykvíkingum að kaupa til
skemmtiferða, nýsköpunar-
framkvæmdir? Og ætli það sé
ekki svo með fleira?
Sannleikurinn er því sá, að
það er áreiðanlega ríflega á-
ætlað, að 350 milj. kr. fari til
nýsköpunar af þeim 1523 milj.
kr., sem þjóðin hefir haft til
ráðstöfunar árin 1945—47. Um
1200 milj. kr. eða 400 milj. kr.
á ári hafa farið til venjulegrar
eyðslu. Það er stærsti fjár-
glæfrareikningur, sem nokkrir
íslenzkir menn hafa staðið að.
Skömmtun hefði ekki verið
umflúin, þótt síldin hefði
veiðst vel.
Rétt þykir að eyða nokkrum
orðum að þeim fullyrðingum,
að ekki væri neinn gjaldeyris-
skortur nú, ef síldveiðin hefði
verið eðlileg í ár. Samkvæmt
áætlun Landsbankans hefðu
gjaldeyristekjurnar orðið 387
milj. s kr. á þessu árþ ef síld-
veiðin hefði orðið sæmileg. —
Gjaldeyrisinneignin var um ára-
mátin 223 milj. kr. og hefði
þjóðin því getað haft til ráð-
stöfunar á árinu 600 milj. kr.
af erlendum gjaldeyri, ef síld-
veiðin hefði verið sæmileg og
ekkert hefði verið hirt um að
eiga neinar gjaldeyrisinneignir
um áramótin. Leyfisveitingar
Viðskiptaráðs og Nýbygginga-
ráðs námu fyrstu sjö mánuði
ársins 499 milj. kr. og hefðu þá
átt að vera eftir til ráðstöfunar
seinustu fimm mánuði ársins
101 milj. kr., ef síldveiðin hefði
ekki brugðist og ekkert verið
hirt um að eiga neinn handbær-
an gjaldeyri um áramótin. Við-
skiptaráð taldi hins vegar, að
nauðsynlegt væri að veita leyfi
seinástu fimm mánuðina fyrir
170 milj. kr., þótt verulegs
sparnaðar væri gætt og aðal-
lega væri sinnt þörfum 'fram-
leiðslunnar. Það hefði því allt-
af vantað 70 milj. kr. til að full-
nægja þessari áætlun, þótt síld-
in hefði veiðst sæmilega. —
Skömmtunar- og niðurskurðar-
ráðstafanir hefðu því yerið
nauðsynlegar, þótt síldin hefði
veiðst vel. Það er því blekking,
að kenna síldarleysinu fyrst og
fremst um gjaldeyrisskortinn.
Til viðbótar blekkingarvið-
leitninni, sýnir það mæta vel
hugsunarhátt þessara manna,
að þeir telja hinn gífurlega inn-
flutning réttlætanlegan vegna
þess, að því hafi verið treyst,
að ekki yrði aðeins toppverð á
afurðunum, heldur líka topp-
veiði! Slíkt kalla þeir bjartsýni,
en allir hugsandi menn munu
telja þetta fyrirhyggjuleysi og
glæframennsku á hæsta stigi.
Þótt núverandi stjórn kupni hér
eftir að reynast vel, verður
henni það til ámælis, að hún
skyldi ekki bregðast fyrr við
þessum voða. Það hefði getað
bjargað nokkuru.
Fyrsta sporið í viðreisnar-
áttinp.
Það má segja, að tilgangs-
llítið sé að sakast um orðna
hluti. En Það verða menn að
gera sér ljóst, að því aðeins er
viðreisnarvon, að menn geri sér
ljóst, hvað aflaga hefir farið.
Það er ekki von, að almenning-
ur fáist til sparnaðar og sjálfs-
afneitunar, meðan helztu stjórn-
arblöðin og jafnvel aðalmenn
stjórnarsamstarfsins telja að
ekki hafi gætt neins verulegs
óhófs og eyðslusemi á undan-
förnum árum. Og enn síður fást
þá stórburgeisarnir til sjálfs-
afneitunar, ef þannig er stöð-
ugt verið að réttlæta gegndar-
lausa .eyðslusemi þeirra. Menn,
sem lofsyngja mesta sukk og
fjárglæfra í sögu þjóðarinnar,
hina vinsælu sendiferðabíla útvegum vér til af
greiðslu á þessu ári gegn innflutnings- og gjald
eyrisleyfum fyrir vörubílum frá Ameríku.
Allar nánari upplýsingar í síma 7080
Emkaumboð
Frá Vík í Mýrdal
Fréttaritari í Vík í Mýrdal sím-
ar, að óþurrkar hafi verið þar
að undanförnu og heyskapur
gengið treglega af þeirra völd-
um. Margir bændur eiga því
mikið hey úti, sum langhrakin
og geta ekki komið að því gagni
sem skyldi, sem fóður.
Súluhlaupið hélt áfram af
fullum krafti í gær og er nú
símasambandslaust við Núps-
stað. Hins vegar er búizt við því,
að hlaupið taki nú bráðlega að
réna.
í fyrradag kviknaði í íbúðar-
húsi starfsmanna miðunar-
stöðvarinnar í Vík og skemmd-
ist það mikið af eldi og vatni.
Slökkviliðinu tókst þó fljótlega
a ðráða niðurlögum eldsins. Tal-
ið er að kviknað hafi í út frá
olíukyndingu.
Til kanpenda Tíraans
í Reykjavík
Oft veldur miklum leiðindum,
hve erfitt er víða 1 bænum að
koma blaðinu með skilum til
kaupendanna. Það eru vinsam-
leg tilmæli til þeirra, sem verða
fyrir vanskilum, að þreytast
ekki á að láta afgreiðsluna vita
um þau, þar til þau hafa verið
löguð og jafnframt að leiðbeina
börnunum, sem bera út blaðið,
hvar bezt sé að láta það. Þeir
kaupendur^sem búa utan við að-
albæinn og fá blaðið I pósti,
gerðu Tímanum mikinn greiða,
ef þeir borguðu andvirði blaðs-
ins á afgreiðslunni. —
geta ekki vænst þess, að sparn-
aðarhjal þeirra verði svo tekið
alvarlega.
Það er óhætt að fullyrða, að
fyrsta sporið til viðreisnar er
að fordæma sukk og óhóf und-
anfarinna ára og vinna gegn
því, að þannig verði breytt
framvegis. Þeir, sem ekki
byggja á þessari undirstöðu,
verða aldrei líklegir til giftu-
samrar forustu í viðreisnarmál-
unum. Það mætti alveg eins
telja, að þeir, sem mest lofi
nazíismann, séu vænlegastir til
að endurreisa Þýzkaland.
Búkollubíiið.
(Framhald af 1. síðu)
máli andvígir, voru fjarverandi.
Er þetta gert til þess að málið
komi ekki á dagskrá reglulegs
bæjarstjórnarfundar,, en dag-
skrá þeirra er birt fyrir fram
og þá hefði gefizt tækifæri til
að ræða það opinberlega, áður
en það kom fyrir bæjarstjórn.
í öðru lagi er málið afgreitt
þegar á þessum fundi, þótt
venjuleg málsmeðferð væri sú,
að láta aðeins fara þar fram
fyrstu umræðu um það, þar
sem um var að ræða algerlega
nýjar tillögur, sem bæjarfull-
trúum hafði ekki gefizt kostur
á að athuga áður.
Þegar þátttaka bæjarins í
þe.ssum búrekstri, var fyrst bor-
in fram í bæjarstjórn, fékk hún
svo eindregna andúð bæjarbúa,
að formælendur hennar þorðu
ekki annað en láta undan síga.
Nú hafa sjálfstæðismenn og
kommúnistar tekið málið upp
á ný í þessari ábyrgðarmynd og
komið að baki bæjarfulltrúum
og öllum bæjarbúum, og tekizt
að smeygja klafanum um háls
þeirra með þessu atferli. Þetta
mál hefir verið sótt með ein-
dæmum og neytt allra bragða,
og nú hefir áróðursmönnum
þess loks tekist að komajyár-
hagsábyrgð og rekstri þessa
sögufræga læknabúskapar að
verulsgu leyti á herðar Reyk-
víkinga.
Menningar- og minn-
ingarsjóður kvenna
Látið minningagjafabók sjóðs-
ins geyma um aldur og ævi nöfn
mætra kvenna og frásögn um
störf þeirra til alþjóöarheilla.
Kaupið minningarspjöld sjóðs-
ins. Fást í Reykjavík hjá Braga
Brynjólfssyni, ísafoldarbóka-
búðum, Hljóðfærahúsi Reykja-
víkur, bókabúð Laugarness. —
Á Akureyri: Bókabúð Rikku,
Hönnu Möller og Gimnhildi Ry-
el. — Á Blönduósi: hjá Þuríði
Sæmundsen.
Lelðrétting
í greinargerð Sæmundar Frið-
riksjsonar framkvæmdastjóra
um fjárskiptamál milli Blöndu
og Héraðsvatna höfðu tilvitn-
unarmerki lent á skökkum stað
í blaðinu í gær. Það sem tekið
er upp úr greinargerð Sauð-
fjársjúkdómanefndar varðandi
yfirlit nr. II. er þetta:
„Á yfirliti nr. II. er gert ráð
fyrir að slátra þegar á næsta
hausti öllu fé mill Blöndu og
Héraðsvatna, auk þeirra fjár-
skipta, sem ráðgerð eru sam-
kvæmt hinum yfirlitunum. Að
öðru leyti er þetta yfirlit eins
og nr. I.
En allmikla ókosti hefir það í
för með sér, að slátra fénu milli
Blöndu og Héraðsvatna strax í
haust. yÆí það til þess að
haustið 1948 fengi allt svæðið
frá Miðfirði að Héraðsvötnum
ekki nema 14 þúsund lömb í
staðinn fyrir 48 þúsund fjár,
eða innan við 30%. Þetta yrði
til mikils tjóns fyrir umrætt
svæði næstu ár. Auk þess yrði
að greiða aukabætur úr ríkis-
sjóði af þessum sökum, á árinu
1950, vegna þess að ekki yrði
hægt að útvega 50% lamba mið-
að við fjártölu. Nemur sú upp-
hæð um kr. 650 þúsund eins og
áður getur, og veldur því að
heildar kostnaðaráætlunin,
samkvæmt yfirliti nr. II. er
hærri en samkvæmt hinum
tveim.“
Auk þess hafði fallið niður að
birta símskeyti er átti að fylgja
greinargerðinni frá atvinnu-
málaráðherra og fjármálaráð-
herra til forystumanna fjár-
skiptamálsins á ofannefndu
svæði, en það er svohljóðandi:
„Að gefnu tilefni viljum við
undirritaðir geta þess, að við
höfum ekki fallizt á og sam-
þykkjum ekki önnur fjárskipti
á þessu hausti en þau, er sauð-
fjársjúkdómanefnd hefir þegar
gert tillögur um. Afstaða fjár-
málaráðherra byggist á því, að
nú er upplýst, að fyrirhuguð
fjárskipti milli Blöndu og Hér-
aðsvatna á þessu hausti hefir
stór auka útgjöld í för með sér
fyrir ríkissjóð.“
Vinnið ötuUefja fyrlr
Timann.
(jamia Bíé
HJi ónabandsf r í
(Vacation from Marriage)
Metro Goldwyn Mayer-stór-
mynd, gerS undir stjórn Alex-
ander Korda.
Að alhlutverkin leika:
Robert Donat,
Deborah Kerr,
Ann Todd.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
iNpdi-Síó
ia Bíó
Tónllst og
tilhngalíf
(„Do You Love Me“)
Falleg músíkmynd í eðlilegum
litum.
Aðalhlutverk:
Maureen O’Hara
Dick Haymes
Harry James
og hljómsveit hans
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 1.
Inngangur frá Austurstræti.
«5555555555555555555555555555555555555
~fjatnarbíó
Uppreisn
í fangelsinu
(Prison break)
Afar spennandi amerísk saka-
málamynd.
Aðalhlutverk leika:
Burton Mac Lomce
John Rusell
Slenda Farrel
Constance Moore
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sími 1182.
5S5SS55S5S5SS5SS5S5S5S55
Tunglskins-
sónatan
Hrífandi músíkmynd með píanó-
snillingnum heimsfræga
Ignace Jan Paderewski
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Ojiið bréf.
(Framhald af 3. síðu)
frá sínu eigin heimili. Ég vona,
hr. verðlagsstjóri, að við nánari
athugun verðið þér sammála
mér, að það eigi að vera tak-
mörk fyrir því, hvað ríkisvaldið
hundelti með vitlausum verð-
skrám og sköttum, þá ein-
staklinga, sem sýna í verkinu
að þeir lelggja krafta sína fram
til þess að skapa sem bezt ferða-
mannaheimili. Það ættu að
vera til ótal ráð að ná af þeim
ágóðanum, yrði hann einhvern
tíma óþarflega mikill, án þess
að þyrla upp alls konar skrif-
finnsku í reglugerðum, verð-
skrám og lögum, sem allir ei;u
neyddir til að brjóta. —
Þó að þetta bréf verði nú ekki
ítarlegra en orðið er, veit ég,
að það verður lesið með at-
hygli af tugum þúsunda manna
um allt land.
Um leið og ég kveð yður með
vinsemd, læt ég þá ósk í Ijós,
að Tíminn ljái yður rúm fyrir
athugasemdir, ef þér kynnuð
að hafa einhverjar málsbætur.
Hreðavatnsskála á höfuðdag-
inn 1947.
Virðingarfyllst.
Vigfús Guffmundsson.
Kapitulaskipti.
(Framhald af 2. síðu)
á jafnhliða. Gilin þarf að þver-
girða með grjóti, svo framburð-
ur stöðvist. Þarna eiga eitt sinn
að hafa verið um 1100 fjár, en
voru komin niður í 90, þegar
eigendaskiptin urðu. Mosinn er
ófrjór, reynist bezt að rífa hann
upp, snúa við og sá síðan. Ekki
viröist þýða að bera á óhreyfðan
mosann. Betra að setja plöntur
í að kalla berar grjóturðir. „Þótt
maður hafi haft ýmislegar
áhyggjur og raunir, þá marg-
borgar þetta sig, svo er gleðin
mikil!“ voru lokaorð hinnar
fróðlegu ræðu dr. Helga Tómas-
sonar.
Auglýsið í Tímannm.
UPPBOD
Opinbert uppboð verður hjá
Áhaldahúsi bæjarins við Skúla-
tún, föstudaginn 19. þ. m. og
hefst kl. 1,30 e. h.
Seldar verða eftirtaldar bif-
reiðir:
R- 316, R- 415, R- 556,
R- 571, R- 843, R-1029,
R-1046, R-1174, R-1397,
R-1641, R-1668, R-2142,
R-2272, R2501, R-2652,
R-2704, R-2707, R-2755,
R-3099, R-3185, R-2335,
R-3413, R-3464, R-3668,
R-3840, R-4116, R-4264,
R-4492, R-4797 Og R-50529.
Greiðsla fari fram við ham-
arshögg.
Borgarfógetinn
í Reykjavík.
Ra
N.s. Dronning
Alexandrine
fer til Færeyja og Kaupmanna-
hafnar um 18. sept. — Þeir sem
fengiff hafa loforff fyrir fari,
sæki farseðla í dag fyryir kl. 5
síffdegis, annars verffa miffarnir
seldir öðrum. íslenzkir ríkis-
horgarar sýni vegabréf stimpl-
uff af Lögreglustjóra. Erlendir
ríkisborgarar sýni skírtcini frá
borgarstjóraskrifstofounni.
SKIPAAFGREIÐSLA
JES ZIMSEN
Erlendur Pétursson
Hagnar Jónsson
hæstaréttarlögmaffur .
Laugavegi 8.
Sími 7752.
Lögfræðistörf og ^eignaum-
sýsla.
Áuglýsið í Tímannm,