Tíminn - 20.09.1947, Side 1
| BrrsTJóRi:
ÞÓHAIWNN ÞÓRAHINS80N
( ðTGEPANDI:
( FRAMSÓKNARPLOKKTJRINN
| 8Imar 2363 Cg 4373
} PRENTSMJDJAN EDDA tlJ.
31. árg.
Reykjavlk, laugardagtim 20. sept. 1947
JÖRASKRlRSrOPDR:
EDmiHÚSI. Undargetu S A
SUnar 2363 og 4373
APQREIÐSLA, innreimta
OO AOGI,ÝSINGASKRIPSTOPA: '
SDDOHÚSI, IilrdargOtu 9A }
8tmi sm l
>
171. blað
Ræningjar brjðtast inn í bæinn
að Auraseli í Fljótshlíð
Stela fjármunum, stórskemma innbii og ógna
Nýja brúin yfir Jökulsá á Fjöllum, sem
styttir leiðina til Austurlands um 60-70
börnum, sem voru ein heima
Sá einstaki atburffur gerðist í fyrradag aff Auraseli í Fljótshlíff,
i Rangárvallasýslu, aff þrír ræningjar komu þar í bifreiff, eftir
hádegiff, ógnuffu börnum, er þar voru ein heima, meff hnífum,
stálu peningum pg eyðilögffu innanstokksmuni og búsáhöld.
Hjónin fara aff jarffarför. Ö——
Laust fyrir hádegi í fyrradag
fóru hjónin að Auraseli í Fljóts-
hlíðarhreppi, þau Ágúst Krist-
jánsson og Guðbjörg Guðjóns-
dóttir, að heiman frá sér til að
vera við 4arðarför, er verða átti
eftir hádegið að Breiðabólsstað
í Fljótshlíð. Þau hjónin skildu
eftir fjögur börn sín ein heima.
þar sem ekki var annað fólk á
heimilinu, en þau hjón og börn-
in. Átti elzta barna þeirra hjóna,
stúlka um fermingaraldur, Sig-
ríður að nafni, að gæta heimil-
isins og yngri systkina sinna
meðan hjónin væru í burtu.
Bærinn Aurasel er nokkuð út
úr, þar sem hann er austan
Þverár, en tilheyrir þrátt fyrir
það Fljótshlíðarhreppi.
Ræningjarnir koma.
Um kl. 1 e. h. var Sigríður
litla ein inni við, en systkini
hennar þrjú voru einhvers stað-
ar úti að leika sér. Bærinn að
Auraseli er timburhús, orðið
nokkuð gamalt. Vissi Sigríður
ekki fyrri til, en þrír karlmenh
geistust inn í húsið. Kröfðust
þeir af henni, að hún vísaði
þeim á &l\a fjármuni og annað
verðmæti, er þar kynni að vera
geymt. Ógnuðu þeir henni með
opnum hnífum, er hún þrjósk-
aðist við að verða við orðum
þeirra. Gerði þá einn maðurinn
sig liklegan til að veita henni
líkamsárás og barði til hennar,
en barninu tókst að komast út,
áður en illræðismaðurinn gæti
veitt henni áverka. Fór hún
þegar til hinna systkina sinna
og földu börnin sig úti við, mað-
an óþokkar þessir dvöldu innan
húss.
Stálu og eyðilögffu.
Ránsmennirnir munu hafa
veriff um hálfa klukkustund á
bænum. Bifreiff sína, er var
fólksbifreiff, höfðu þeir skilið
eftir alllangt frá bænum. Gátu
börnin ekki tekið eftir neinum.
einkennum á henni, enda svo
hrædd við þennan óþjóðalýð, að
þau munu fyrst og fremst hafa
hugsað um að verða ekki á vegi
þeirra, meðan þeir dvöldu þar.
Voru þeir farnir fyrir góðri
stundu, er börnin áræddu aftur
inn í bæinn.
Þegar Sigríður litla kom aft-
ur inn í húsið ásamt systkinum
sínum,, var þar ijót aðkoma.
Innanstokksmunir flestir voru
meira og minna stórskemmdir,
leirtau það er til var á heimilinu
mest allt brotið, umturnað hefði
verið í öllum rúmum og rúm-
fatnaður skemmdur. Auk þess
höfðu ræningjarnir stolið þar
um 1600 krónum, brotið blóma-
potta og eyðilagt blómin, er í
þeim voru. í stuttu máli höfðu
þeir gert tilraun til að eyði-
leggja flest það, er þeir töldu
sér ekki hag í að stela.
Hjónin koma heim.
Þar sem svo langt var að
Breiðabólsstað, var ekki unnt
fyrir krakkana að gera foreldr-
um sínum aðvart fyrr en þau
komu heim um kvöldið, og vissu
þau því ekkert um það, er skeð
hafði, fyrr en þau komu heim
frá jarðarförinni um kl. 8. Var
þá þegar brugðið við og sýslu-
manni Rangæinga, Birni Björns-
Ljósmyndasýning
Ferðafélags íslands
opnuð
Ljósmyndasýning Ferðafé-
lags íslands í sýningarskála
myndlistarmanna var opnuð kl.
5 í gær, að viðstöddum fjölda
gesta, þar á meðal Bjarna Ás-
geirssyni atvinnumálaráðherra
og Eysteini Jónssyni mennta-
málaráðherra.
Formaður Ferðafélagsins, Geir
Zoéga vegamálastjóri opnaði
sýninguna, bauð gesti velkomna
og rakti að nokkru tildrög sýn-
ingarinnar. Drap hann um leið
á fyrri sýningar, sem Ferðafé-
lagið hefir haldið á afmælum
sínum og gat um þá þýðingu, er
slíkar sýningar hafa til að glæða
ferðalöngun manna og auka
áhuga þeirra fyrir landinu og
fegurð þess. Ennfremur þakkaði
hann þeim, sem unnið hafa að
undirbúningi sýningarinnar, en
það eru mest þeir Steinþór Sig-
urðsson magister, Þorsteinn Jós-
efsson blaðamaður, auk fleiri.
Þá gat formaður um vegleg-
ar gjafir, sem velunnarar fé-
lagsins hafa gefið til verðlauna-
veitinga fyrir beztu myndir
sýningarinnar. En ísafoldar-
prentsmiðja gaf 10 þús. krónur
til verðlauna. Bókaútgáfa Helga-
fells gaf bækur og verzlun Hans
Petersen gaf mjög vandaða
myndavél, sem er nokkur þús-
und króna virði. Er það Kodak
meðalist II, sem er einhver bezta
myndavél, sem nú er framleidd
í heiminum.
Steinþór Sigurðsson lýsti því
næst sýningunni og gat um
ýmsa erfiðleika, sem við hafði
verið að etja til að koma sýn-
ingunni upp. Á sýningunni eru
386 ljósmyndir eftir 25 áhuga-
ljósmyndara.
Skipuð hefir verið þriggja
manna dómnefnd til að dæma
um þær myndir sem verðlaun
eiga að hljóta, en veitt verða
þrenn verðlaun í öllum aðal-
flokkunum. í dómnefndinni
eiga sæti þeir Pálmi Hannesson
rektor, Vigfús Sigurgeirsson og
Halldór Arnórsson ljósmynd-
arar
Verða úrslit verðlaunasam-
keppninnar tilkynnt einhvern-
tíma áður en sýningunni lýkur,
en hún stendur til máaðamóta.
Sýningin er opin daglega kl. 11
—11.
syni, gert aðvart um atburð
þennan.
Snemma í gærmorgun hóf svo
sýslumaður rannsókn sína í
málinu og vann að henni í allan
gærdag fram á kvöld. Seint í
gærkvöldi hafði ekki tekizt að
finna sökudólgana. Hins veg-
ar er ekki grunlaust um, að
tekizt hafi að ná skrásetningar-
númerinu á bifreið þeirra.
Rannsókn málsins mun að sjálf-
sögðu halda áfram næstu daga.
*
FORGÖNGIJMENN NÝIIJ BRÚARIIVNAR
Eysteinn Jónsson.
Ingvar Pálmason.
Páll Hermannsson.
Páll Zóphóníasson.
I.R.-ingarnir komnir heim
eftir glæsilega íþróttaför
km.verðuropnuöídag
RrúÍEi er liyg'g'ði fyrir fé brúarsjóðs, sem stofn-
aður var fyrir frumkvæði Aiistfjarða|iing>
ínanua Framsóknarflokksins
í dag verffur nýja brúin á Jökulsá á Fjöllum opnuff til umferff-
ar og styttist þá bifreiffaleiffin til Austurlandsins um 60—70 km.
frá því, sem veriff hefir. Þessi mikla samgöngubót er gerff fyrir
fé úr brúarsjóffi, sem stofnaffur var fyrir nokkrum árum fyrir
frumkvæffi þingmanna Múlasýslna. Stofnun brúarsjóðs mætti
| harffri mótspyrnu af hálfu hinna svokölluffu „nýsköpunar-
f!okka“ og er þetta eitt dæmi af mörgum um þaff, hverjir hafa
; veriff og eru hinir raunverulegu brautryffjendur framfaranna.
Andstaffan gegn Brúarsjóffi.
Frumvarp um stofnun brúar-
sjóðs var flutt upphaflega í efri
1 deild 1939 og voru flutnings-
mennirnir Páll Hermannsson,
Ingvar Pálmason og Páll Zóp-
hóniasson. Fjórði þingmaður
Múlasýslu, Eysteinn Jónsson,
átti sæti í neðri deild, og gat
því ekki verið meðflutnings-
maður, en frv. var þó ekki síður
flutt að frumkvæði hans. Sam-
kvæmt frumvarpinu skyldi einn
eyri af hverjum bensínlítra
renna í brúarsjóð, en úr sjóðn-
um átti að veita fé til stórbrúa
samkv. fjárlögum. í greinargerö
var Jökulsárbrúin nefnd sem
eitt fyrsta verkefni sjóðsins.
1 Brúarsjóðsfrv. dagaði uppi á
þessu þingi, en var aftur flutt
af sömu þingmönnum á þing-
inu 1940. Þá var það fellt við
3. umræðu með 8:8 atkv. og
greiddu þessir þingmenn at-
kvæði gegn því: Bjarni Snæ-
björnsson, Brynjólfur Bjarna-
son, Erlendur Þorsteinsson, Jó-
hann Þ. Jósefsson, Magnús
Gíslason, Magnús Jónsson, Sig-
urjón Á. Ólafsson og Þorsteinn
Þorsteinsson. Með frumvarpinu
greiddu atkvæði Framsóknar-
menn allir og Árni Jónsson frá
Múla.
á Jökulsá á Fjöllum ganga fyrir
öðrum. Þessi tillaga var sam-
þykkt með 10:6 atk. Nei sögðu
Bjarni Snæbjörnsson, Brynjólf-
ur Bjarriason, Erlendur Þor-
steinsson, Jóhann Þ. Jósefsson,
Magnús Jónsson og Sigurjón Á.
Ólafsson. Frv. náði síðan sam-
þykki þingsins í þessu formi.
Lögin um áðurnefnda bráða-
birgðatekjuöflun gengu úr gildi
á næsta ári, og var þá flutt
stjórnarfrv. um bifreiðaskatt o.
fl„ þar sem gert var ráð fyrir, að
þessi tekjuöflun haldi áfram.
Jakob Möller var þá fjármála-
ráðherra og flutti hann frv. í
því formi, að brúarsjóðsákvæðið
var fellt niður. Fjárhagsnefnd
n. d. lagði til, að þetta ákvæði
yrði tekið upp í frv. og var það
samþykkt. Einn fjárhagsnefnd-
armaður, Jón Pálmason, mælti
þó gegn þessu, og greiddi at-
kvæði gegn breytingartillögunni,
ásamt Eiríki Einarssyni og
Jakob Möller. Frv. varð síðan að
lögum i þessu formi. Á þinginu
1942—43 fluttu þeir Eysteinn
Jónsson og Páll Zóphóníasson
frv. um þá breytingu á lögunum,
að tveir aurar' af bensínlítra
skyldu renna í brúarsjóð í stað
eins áður. Þetta frv. var sam-
þykkt.
Viðtal vift Gísla Kristjánsson
f.R.-ingarnir komu heim í fyrrakvöld eftir frækilega sigurför
um Noreg og Svíþjóð. Hafa þeir í þessari för sinni borið merki
íslands meff sóma og eiga þakkir skiliff fyrir. Gefur þessi för
þeirra og sá árangur, sem í henni náffist, góffar vonir um þátt-
töku íslands í Olympiuleikjunum, sérstaklega þegar á þaff er
litiff, aff hér á hlut aff máli affeins eitt af mörgum íþróttafélögum,
sem starfandi eru hér á landi. Hefir tíffindamaffur blaffsiins hitt
Gísla Kristjánsson, skrifstofumann, aff máli og spurt hann frétta
úr förinni, en hann var einn af keppendum fararinnar.
— Hver var aðdragandinn að
því, aff þið fóruð þessa íþrótta-
för, sem varð svo glæsileg?
— Það er nú nokkuð langt mál
að segja þá sögu alla. íþrótta-
félag Reykjavíkur hefir ekki áð-
ur farið í frálsíþróttaför út úr
landinu. Undanfarin tvö ár hefir
félágið staðið í allnánu sam-
bandi við sænsk íþróttafélög og
gengizt fyrir boðum sænskra
íþróttamanna hingað. Má segja,
að þessi för sé að nokkru leyti
árangur af þessari samvinnu eða
samstarfi, sem tekizt hefir með
sænskum og íslenzkum íþrótta-
mönnum. Hafa þeir Georg Berg-
fors, hinn sænski íþróttakenn-
ari okkar og Sigurpáll Jónsson
formaður Í.R. manna mest unn-
ið að þessu samstarfi, og undir-
búningi ferðarinnar.
Við fórum í boði sænska
íþróttafélagsins „Skuru“. En í
Noregi dvöldum við á vegum
norska íþróttasamþandsins.
— Hverriig var ferðalaginu
háttað í aðalatriðum?
— Við fórum héðan með flug-
vélinni Heklu til Oslo sunnud. 4.
ágúst, og gekk sú ferð ágætlega.
Þegar við komum til Noregs var
tekið á móti okkur af fulltrúum
norska íþróttasambandsins, sem
greiddu götu okkar allan tím-
ann sem við dvöldum í Noregi.
Létu þeir okkur í té fylgdar-
mann, sem er meðlimur í stjórn
samþandsins, og skyldi hann
ekki við okkur meðan við dvöld-
um í Noregi.
— Hvað kepptuð þið oft í Nor-
egi?
— Við tókum þátt í móti sem
stóð yfir í tvo daga, 26.—27. ág„
svokallaðir Osloleikir, sem er al-
þjóðakeppni. Tóku þátt í þeim
leikjum hópur mjög góðra am-
erískra frjálsíþróttamanna, og
einnig beztu íþróttamenn Norð-
manna og nokkrir Svíar. Við
(Framhald á 4. síðuj
Brúarsjóffur stofnaffur.
Fyrir þingið 1940 var síffar
lagt frv. um bráðabirgðatekju-
öflun ríkissjóffs, þar sem gert
var ráð fyrir hækkun bensín-
gjaldsins úr 4 í 8 aura. Frv.
þetta var lagt fram í efri deild
og fluttu þeir Páll Hermannsson
og Páll Zóphóníasson þar þá
breytingartillögu, að gjaldið
skyldi hækka upp í 9 aura og
skyldi einn eyrir af því renna í
brúarsjóð, er veitti fé til bygg-
inga stórbrúa, og skyldi nú brú
„Nýsköpunar“flokkarnir fella
niffur brúarsjóffsákvæffin.
Þessi ákvæði um brúarsjóð
giltu svo fram á þingið 1946, en
þá voru lögin um bifreiðaskatt-
inn endurnýjuff, en brúarsjóffs-
ákvæðið fellt niður. Skúli Guð-
mundsson flutti þá breytinga-
tillögu þess efnis, að brúar-
sjóðsákvæðið yrði tekið upp í
frv., en það var fellt með at-
kvæðum allra þáv. stjórnar-
sinna, gegn atkvæðum Fram-
(Framhald á 4. síðu)