Tíminn - 01.10.1947, Síða 1

Tíminn - 01.10.1947, Síða 1
BITSTJÓM: ÞÓRABINN HÓRARINSaON OTGEPANDI: framsóknarplokkurinn Símar 33CS og 4S1S PRENTSMIÐJAN EDDA bJt. RITSTJéRAaKHIM'OPH: ISDDUBtrSI. Ltndar»öta S A Sím&r 2363 og 4378 APGRKEÐSLA, INNHKTMTA OG ADGLÝSINGASKRIFSTOPA: EDBUHÚ3I, UBdargötu 0A Sönl SSB 31. árg. Reykjavík, miðvlkudagiiui 1. okt. 1947 178. blað Skömmtun á fjölmörgum vör- um gengur í gildi í dag í dag gengur í gildi víðtæk skömmtun á margs konarvörum, svo sem matvöru alls konar erlendri, sápu, vefnaðarvöru, fatnaði, búsáhöldum og fleiru. Hafa verið gefnir út nýir skömmtunar- seðlar, sem byrjað er að úthluta og gilda þeir frá deginum í dag að telja. Þar sem skömmtun þessi varðar hvern einstakling í landinu, er nauðsynlegt fyrir alla að kynna sér sem bezt fyrir- komulag hennar þegár í upphafi. j'ilMlllif jnl' n'WTTi »'( 'mmn n ilP :iW'' FLUTTIR HEIM A hinum nýja skömmturiar- seðli eru reitirnir auðkenndir með bókstöfum og tölustöfum. Gilda síðan sérstakar reglur um það, hvað afgreitt er gegn hverjum reit. í gær var birt hér í blaðinu skrá yfir þær vörur, sem skammtaðar eru, en þá var ekki búið að tilkynna um, hvernig skömmtuninni yrði háttað að öðru leyti. í gær gaf skömmtunarstjóri, Elías Ó. Guðmundsson, yfirlit um gildi reitanna og fyrirkomu- lag skömmtunarinnar. Flestir skammtarnir eru mið- aðir við þrjá mánuði, eða frá 1. okt., til 31. des. 1947. Gilda reit- irnir sem innkaupaheimild fyrir skömmtunarvörum á þeim tíma, nema öðru vísi sé tilgreint. Reitirnir á skömmtunarseðl- inum, sem merktir eru A 1 tU A 10, báðir meðtaldir, gilda hver sem innkaupaheimild fyrir 1 kg. af kornvöru. Reitirnir merktir A 11 til A 15 gilda á sama hátt fyrir 1 ktf. af korn- vörum eða brauðum og hver hinna afmörkuðu smáreita þeirra fyrir 200 gr. af sama. Reitirnir merktir B 1 til B 50 að báðum meðtöldum gilda sem innkaupaheimild fyrir fatnaði, eða vefnaðarvörum. Gildir hver reitur fyrir 2 krónu verðmæti í smásölu af þessum vörum, öðr- um en tilbúnum ytri fatnaði. Fyrir þessa reiti má einnig kaupa búsáhöld fyrir jafn mikla upphæð. Reitirnir merktir K 1 til K 9 gilda hver fyrir hálfu kg. af sykri. Reitirnir merktir M 1 til M 4 gildir hver fyrir hreinlætisvör- um, þannig, að út á hvern reit má kaupa hálft kg. af blaut- sápu, eða tvo pakka af þvotta- efni, eða eitt stk. af handsápu, eða 1 stk. af stangasápu. Reit- irnir J 1 til J 8 gildir hver fyrir 125 gr. af brenndu lcaffi, eða 150 gr. af óbrenndu. Stofnauki nr. 14 gildir fyrir 1 kg. af erlendu smjöri. Stofnauki nr. 13 gildir fyrir tilbúnum ytri fatnaði fram til ársloka 1948. Gegn þeim stofn- auka fæst á þessu tímabili einn alklæðnaður karla, eða ein yfir- höfn karla eða kvenna, eða tveir ytri kjólar kvenna, eða ein yfir- höfn og einn alklæðnaður á börn undir 10 ára aldri. Um benzínskömmtunina er það að segja, að hún nær til alls benzíns. Skammtur sá, sem hver bifreið fær, er nokkuð misjafn, eftir notkun bifreiðanna. Mest- an skammt fá strætisvagnar, eða 1800 lítra á mánuði. Aðrar sérleyfisbifreiðar og mjóikur- flutningabifreiðar fá 900 lítra og leigubifreiðar til flutninga 400 lítra. Einkabifreiðar fá 60— 45 lítra eftir stærð. Athygli lesenda skal vakin á auglýsingum frá skömmtunar- stjóra, sem birtar eru í blaðinu í dag, þar sem lýst er skömmt- uninni. Mikil hækkun póst- gjalda Hækkuniit á að gefa póstsjóði 800 þus. kr. árlega I auknar tekjur Frá deginum í dag að telja hækka burðargjöld á nokkrum teg- undum póstsendinga samkv. nýrri gjaldskrá útg. 12. þ. m. Þannig hækkar gjald fyrir einfalt bréf innanbæjar (allt að 20 g.) úr 25 aurum í 35 aura, fyrir almenn bréf innanlands og tii Norður- ianda óbreytt alit að 20 g.., en yfir 20 g. til 125 g. úr 100 aurum í 125 aura. Burðargjald fyrir póstávísanir og póstkröfur innan- iands hækkar um ca. 33%. Burðargjöld innanlands fyrir böggla með skipum hækka, sem hér segir: fyrir allt að 1 kg. úr 250 a«rum í 400 aura, 1—3 kg. úr 325 aurum í 600 aura, 3—5 kg. úr 500 aurum í 800 aura o. s. frv. Fyrir böggla með bifreiðum og landpóstum hækkar burðar- gjaldið tilsvarandi. Frá sama tíma lækka burðar- gjöld fyrir flugbréf til útlanda (nema til Bretlands). Þannig lækka burðargjöld fyrir 10 g bréf til Norðurlandanna úr 110 aurum í 90 aura og 10 g bréf til Bandaríkjanna og Canada úr 240 aurujji í 140 aura, og svipuð lækkun verður á bréfum til annarra landa. Póstburðargjöld innanlands hafa haldizt óbreytt síðan 15/11. 1942, en síðan hefir kostnaður við póstreksturinn aukizt stór- lega bæði vegna almennrar grunnlaunahækkunar og hækk- aðra flutrtfngsgjalda bæði með skipum, bifreiðum og- landpóst- um svo og vegna hækkaðrar vísitöiu. Aætlað er að burðargjalda- hækkun þessi gefi pó-stsjóði ca. kr. 800.000 auknar tékjur á ári, þó því aðeins að póstviðskiptin dragist ekki saman vegna kreppu. Á árinu 1946 var reksturshalli póstsins ca. kr. 1.700.600 og veg ur því burðargjaldahækkun þessi ekki á móti honjjm. Þess skal getið, burðar- gjald undir blöð og tímarit hefir ekki verið hækkað. í sumar voru flutt heim lík 11 Dana, er létust í Þýzkalandi á stríðsárun- um. Myndin var tekin, þegar verið var að flytja líkin yfir dönsku landa- Fréttir úr Aust.-Skaptafellssýslu Viðíal við Pál Þorsteinsson alþm. Meðál annarra, sem eiga leið til Reykjavíkur um þessar mundir eru þingmenn utan af landi, þar sem alþingi er kvatt saman um þessi mánaðamót. Tíðindamaður blaðsins hitti að máli Pál Þor- steinsson, þm. Austur-Skaftfellinga og spurði hann frétta þaðan úr héraðinu. Fórust Páli orð á þessa leið: — í Skaftafellssýslu var oft | á þessu ári. Hefir Flugfélag ís- Alþingi kemur saman í dag Forseti íslands hefir kvatt Alþingi saman í dag, 1. októ- ber. Klukkan 13.30 hlýða þing- menn á messu í Dómkirkjunni. Að lokinni guðsþjónustu verður gengið til þinghúss og Alþingi sett. gott veður á þessu sumri, en þurrkar litlir. Grasvöxtur var góður, en sökum votviðris varð heyskapurinn tafsamur. Hey- fengur í héraðinu er misjafn, en víðast fyrir neðan meðallag að vöxtum. Sums staðar í hér- aðinu hröktust hey nokkuð, annars staðar lítið, en yfirleitt voru hey hirt blautari en æski- legt hefði verið. Stórviðrir, sem geisaði um landið fyrir miðjan september, olli ekki stórtjóni í Austur-Skaftafellssýslu. — Þó ódrýgðust hey að mun á sum- um bæjum og nokkrar skemmd- ir urðu á húsum og áhöldum. Á einum bæ í sýslunni var reynd súgþurrkun á heyi, sem mun hafa gefizt vel eftir vonum. Að sjálfsögðu hyggja Skaftfellingar sem aðrir gott til þess, ef tak- ast mætti, að bændur almennt gætu sigrazt á þeim erfiðleik- um sem óþurrkar valda við hey- öflun. Öræfingar slátra fé sínu heima í sveitinni og hafa þeir gert það síðan 1928. Sláturafurð ir þeirra frá síðast liðnu ári voru allar fluttar á bílum til Reykja- víkur. Var gerður s,amningur um þá flutninga við hlutafélag- ið Leiðólf, sem bræðurnir á Kirkjubæjarklaustri standa að. Fóru þeir nokkrar ferðir yfir Skeiðarársand síðast liðið haust og ennfremu á siðasta voi, áður en jökulvötnin tóku að vaxa af sumarhitum. Hafa Öræfingar áhuga á því, að slíkar ferðir verði farnar þangað framvegis, þegar jökulvötnin leyfa. En þótt sláturafurðir verði fluttar land- veg, er ekki unnt að flytja nema lítinn hluta af þeim vörum, sem flytzt inn í sveitina árlega á þeim bílum, er þær sækja. M. a. með tilliti til þess hefir Skipaútgerð rkisins einnig ann- azt vöruflutninga til Öræfa í sumar eins og að undanfömu. Um miðjan september kom skip til Öræfa með kjöttunnur, fóð- urbæti og fleiri vörur. Skipið var afgreitt í Öræfum einungis með þeim hætti, að vörurnar voru dregnar á línu milli skips og lands. Þær vörur, sem þola ekki bleytu eru þá dregnar í land í vatnsþéttu járnhylki, sem smíðað hefir verið til þess eftir ráðum Pálma Loftssonar forstj óra. Flugvellirnir við Fagurhóls- mýri í Öræfum og á Hornafirði hafa verið endurbættir nokkuð Á fimmta þúsund nemendur við framhaldsskóla Reykjavíkur Flesta skólana vantar stórlega húsnæði Framhaldsskólarnir taka allir til starfa nú um mánaðamótin. Verða margir þeirra settir í dag eða alveg næstu daga. Skólarnir eru yfirleitt fullskipaðir og sumir þeirra eru í mestu vandræðum með að geta veitt öllum þeim nemendum móttöku, er óska eftir að stunda nám. Nemendur framhaldsskólanna verða alls um 4000 í vetur. Menntaskólinn. 12 kennsludeildum. Kennarar eru um 20. Bekkir skólans eru Hann var settur síðastliðinn 6 auk undirbúningsdeildar. laugaidag. Nemendur skólans í Auk kinna föstu deilda verða vetur verða 450. Af þeim eru 101 nýir nemendur. Fara 31 þeirra í fyrsta bekk gagnfræðadeildar, en 70 í fyrsta bekk lærdóms- deildar. Alls verða nemendur í námskeið í nokkrum greinum m. a. vélritun. Skólaárið, sem nú er að byrja, er hið fjórða í röðinni síðan 18 deildum. 15 deildir geta starf- f óianum var breytt, þannig að að í skólanum í einu svo að tví- hann hefðl réttindl tlf að ufc- skipta þarf skólanum. Gagn- fræðabekkirnir og 3. bekkur .„. „ . ... verða að hafa kennslustundir f!lðl og að undanfornu Marg skrifa stúdenta. Mun skólahald- ið í vetur verða með svipuðu sínar eftir hádegi. Að öðru leyti verður skólahaldið með líku sniði og áður. Gagnfræðaskóli Reykjavíkur. háttaðar endurbætur hafa farið fram á skólahúsinu að undan- förnu. Kennaraskólinn. lands haldið uppi áætlunarferð- um bæði til Öræía og Horna- fjarðar vikulega í sumar. Skeiðarársandur hefir verið ófær yfirferðar vikum saman í sumar, Skriðjöklarnir eyðast af ar ört um þessar mundir. Eru það afleiðingar hinnar hlýju veðráttu. Það hefir þau áhrif, að sum jökulvötnin breyta far- vegum. — Súla, sem lengst af hefir fallið í Núpsvötn og verið aöal uppistaða þeirra, tók sér nýjan farveg í fyrra, þar sem hún hefir reynzt ófær á hest- um, þegar hún er í fullurn vexti vegna sumarhita. Seint á slætti kom enínftremur jökúlhjlajup í hana, sem felldi landssímalín- una á nokkru svæði. En nú er bú:ð að færa símann í lag aft- ur og fara væntanlega að hefj- ast feröir yfir Skeiðarársand að nýju. Sökum óvenjulegra vatna- vaxta í byrjun sláttar, braut Hvítá í Öræfum sér nýjan far- veg fram hjá brúnni, sem þar er. Á Hornafirði er slátrun þeg- ar hafin. Kaupfélag A-Skaft- fellinga hefir nýlega látið reisa frystihús og nýtt sláturhús. — Reynast þau ágætlega. Að und- anförnu hefir verið keppt að því að fá brú á Heinabergs- vötn, til þess að gera auðveld- ari og öruggari ferðir bifreiða milli Suðursveitar og Hafnar. Byrjað var á brúargerðinni í fyrra, og nú mun allt efni til brúarinnar vera komið í hér- aðið. Vænta A.-Skaftfellingar þess eindreg^ð, að vegamála- stjórnin láti nú þegar hefjast handa um að ljúka brúarsmið- inni í haust. Hlutafélagið Borgey á Horna- firði fékk sér nýjan bát í sum- ar, eftir að hafa misst vélbát- inn Bdrgarey með sviplegum hæitti síðast liðinn vetur. Er það 60—70 smál. bátúr, smíðað- ur innan lands. Allmiklar birgðir af saltfiski hafa legið á Hornafirði frá síð ustu vetrarvertíð og fram að þessu, en nú er unniö að því að rýma fiskgeymsluhúsin og flytja fiskinn burt. Höfn i Hornafirði er vaxandi þorp. Þar hefir þegar verið hafizt handa um að reisa mót- orrafstöð fyrir þorpið og verið er að undirbúa allmiklar hafn arbætur og vatnsveitu fyrir þorpið. Undanfarin ár hefir verið sí- aukin aðsókn að þeim skóla og í vetur verða nemendur þar hátt á 7. hundrað. Vegna þessa mikla fjölda er nauðsynlegt, að marg- skipta skólanum. Fyrsta bekk verður skipt niður í 9 deildir, öðrum bekk í 5 deildir og 3 bekk í 5 deildir. Kennarar við skól- ann eru yfir 30. | „tpndur Skólinn verður á þrem stöðum í vetur. í fyrsta lagi verður hús skólans sjálijs við Lindargötu nýtt til hins ýtrasta. Verður kennt þar stanzlaust í 12 tima hvern virkan dag vikunnar. Þá munu nokkrar deildir úr öllum bekkjum skólans verða til húsa í nýja Sjómannaskólanum og tvær deildir úr fyrsta bekk munu verða í Laugarnesskólan- um. Hið nýi,a hús skólans í Skóla- vörðuholti er enn í byggingu. Verður ekki unnt að taka neitt af því til afnota að þessu sinni, en von er til að það verði tilbúið fyrir annan vetur hér frá, að minnsta kosti nokkur hluti þess. Hann verður settur 2. oktob^p kl. 10 f. h. Nemendur verða 80 Skólinn starfar í 4 deildum. Tvær efi£u deildir skólans eru yfirfullar, en fyrsta deild verður fáliðuð í vetur. Kennarar skól- ans eru 16. Skólinn verður til húsa í húsi skólans við Laufásveg eins og að undanförnu. Sú breyting fyrir dyrum á rekstri skólans, að inntökuskilyrði í skólann verði hin sömu og í lærdómsdeild menntaskóla. Þessi breyting mun þó ekki koma til framkvæmda fyrr en næsta haust. í sambandi við þessa nýlundu verða einnig margar breytingar á náminu í skólanum. Gagnfræðaskóli Reykvíkinga. Sá skóli er nú til húsa að mestu leyti í gamla Stýri- mannaskólanum. Alls munu um 350 nemendur stunda nám við skólann í vetur. Þar af verða 290 í Stýrimannaskólanum. Fyrstabekkjardeildir skólans verða tvær í vetur. Mun önnur deildin verða til húsa í Mela- skólanum, en hin í Miðbæjar- skólanum. í þessum deildum báðum verða um 60 nemendur og eru þær raunverulega vísir að hinum fyrirhugaða Gagn- Kvennaskólinn. Bekkir skólans eru 4 en nem- endur skólans verða 170 í vetur. Kennsludeildir verða 6. Eru l. og 2. bekkur tvískiptir. Kenn- arar skólans eru enn ráðnir sem stundakennarar, en þar sem skólinn er nú kominn undir lög- in um gagnfræðaskóla mun skólinn {á fasta kennara á næsta skólaári. Skólinn verður settur kl. 2 e. h. í dag. Húsmæðraskóli Reykjavíkur. Fastir nemendur eru 80. í heimavist eru 40 nemendur, en 24 í dagskóla og 16 í kvöldskóla. Kennt er í skólanum frá kl. 8 á morgnana til kl. 5 e. h. Kvöld-’ skólinn er frá kl. 6,30 á kvöldin til kl. II Heimavistin er 9 mán- aða skóli og eru kenndar þar ýmsar bóklegar námsgreinar auk matreiðslu og handavinnu. í dagskólanum er kennd har.da- Samvinnuskólinn. Hann verður settur á morgun og starfar í tveim deildum eins og að undanförnu. Nemendur verða alis- um 60 en kennarar 9. Skólinn hefir fengið mjög end- urbætt húsnæði í Sambands- húsinu. í ráði hefir verið að undanförnu, að bæta þriðju deildinni við skólann, en að þessu sinni mun þó ekki verða af því, en forráðamenn skólans munu hafa í hyggju, að koma þeirri fyrirætlun í framkvæmd svo fljótt sem aðstæður leyfa. Verzlunarskólinn. Nemendur munu verða um 350 i vetur og starfar skólinn I Kennarar fræðaskóla Vesturbæjar. í ráði t vinna og matreiðsla, en einungis er að stofna sérstakan skóla fyr- ir vesturbæinn og mun ákveðið að næsta skólahús, er byggt verður, verði afhent þeim skóla til afnota. matreiðsla á kvöldin. skólans eru 7. Húsmæðrakennaraskóli ríkisins. Nemendur hans hafa verið í hálfsmánaðar fríi, en' í sumar starfaði skólinn austur á Laug- arvatni. Nemendur koma úr sumarleyfinu í dag og hefst þá kennsla aftur. Fastir nemendur skólans eru 12. í vetur verða tvö námskeið á vegum skólans fyrir stúlkur og verður þar kennd matreiðsla. Fyrra námskeiðið hefst um miðjan októbermán- uð og stendur yfir í tvo mánuði, en seinna námskeiðið verður seinnipart vetrar. Auk þessara námskeiða mun skólinn sjá hjúkrunarkonum frá Lands- spítalanum fyrir kennslu í til- búningi sjúkrafæðu. Skólinn verður til húsa í háskólanum eins og að undanförnu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.