Tíminn - 04.10.1947, Qupperneq 1
RITSB0ÓW: )
ÞÓOABSKM ÞÖRARIMSeOK (
V
ÚTOEPANDL: j
FRAMSÓKNARFLOKKDRINN \
Slmar 33(3 o*
p&mreaiBBJAN $dda ílí. í
*“ ”“'***" (
APORKIÐ6LA, INNHEIMTA \
OG AtTOLÝSmOASKRIFSTOPA: \
HXDUHÚEO, Uadarcötu SA \
fMml Mi }
31. árg.
Reykjavík, laugardagiim 4. okt. 1947
181. blað
ERLENT YFIRLIT:
Ný átök stórveldanna um Iran
Fcllir iranska þingið olíusamningiiui við Riissa
í útvarpsfregnum hefir þess verið getið að undanförnu, að
miklar deilur væru í iranska þinginu um olíusamning þ^.nn, sem
stjórnin gerði við Rússa fyrir einu og hálfu ári síðan. Eftir þess-
um fregnum að dæma, virðast allar horfur á, að samningurinn
verði felldur í þinginu.
Mál þetta á orðið langan að-
draganda. Á stríðsárunum var
Iran hernumið af stórveldun-
um. Rússar önnuðust hergæzl-
una í norðurhelmingi landsins,
en Bandamenn í suðurhelm-
ingnum. Á Teheranfundinum
lofuðu öll þessi stórveldi, að þau
skildu farin með her sinn frá
Iran innan sex mánaða frá
stríðslokum. Samkvæmt því lof-
orði, hefðu þau átt að vera far-
in með her sinn þaðan í byrjun
marz 1946. Bandaríkjamenn og
Bretar stóðu við þetta loforð,
en Rússar ekki. Jafnframt því,
sem Rússar vanefndu loforðið,
höfðu þeir stutt til valda í
nyrzta fylki Irans, Azerbeidjan,
kommúnistískan leppflokk, er
hafði myndað þar sérstaka
stjórn og lýst yfir sjálfstjórn
fylkisins. Þegar íranska stjórn-
in ætlaði að bæla þessa upp-
reisnarhreyfingu niður, bann-
aði rússneski herinn íranska
hernum yfirferð um landið.
Iranska stjórnin skaut þá mál-
inu til öryggisráðsins og varð
þar mikið þóf um málið, eins og
vænta mátti. En meðan á því
stóð, sömdu Rússar skyndilega
við irönsku stjórnina. Sam-
kvæmt þeim samningum skyldu
Rússar flytja her sinn burtu,
Azerbeidjanfylkið skyldi fá
heimastjórn, og stofnað skyldi
rússneskt-iranskt olíufélag, sem
annaðist allar olíuvinnslu í
Norður-Iran og skyldi 51% af
hlutafénu vera rússneskt. Jafn-
framt lofaði iranska stjórnin að
leggja frumvarpið um rússnesk-
iranska olíufélaéið fyrir þingið
innan sj£ mánaða.
S’San þessi samningur var
gerðyr, hefir orðið mikil breyt-
ing á ástandinu í Iran. Stjórnin
efndi til þingkosninga í fyrra og
hugðist leppstjórnin í Azer-
beidjan að hindra þær þar í
fylkinu, því að hún mun hafa
óttast að í ljós kæmi, að fylgi
hennar reyndist ekki mikið.
Stjórnin sendi þá herlið til Az-
erbeidjan, rak leppstjórnina frá,
og flúðu aðalmenn hennar ým-
ist til Rússlands eða voru fang-
Ælsaðir. Kosningar fóru síðan
Fyrsta skemmtisam-
koma Framsóknarm.
í haust
Framsóknarvist halda Fram-
sóknarfélögin í Reykjavík í
Samkomusal Mjólkurstöðvar-
innar föstudaginn 10. okt n. k.
kl. 8.30 stundvíslega. Ræður
verða fluttar og Sigurður Ólafs-
son syngur einsöng með undir-
leik Gunnars Sigurgeirssonar
píanóleikara.
Þegar tillit er tekið til þess,
hve mikið fólk hefir spurt eftir
þessari samkomu er fullljóst að
hún verður fjölsótt -eigi síffur
en þær samkomur sem félögin
hafa gengist fyrir undanfarin
ár. Er því Framsóknarfólki bent
á að panta aðgöngumiða sem
fyrst, pöntunum verður veitt
móttaka í síma 2323 eins og að
undanförnu. Pantaðir miðar
óskast sóttir fyrir kll. 4 e. h. á
föstudag. Þá er fólki góðfúslega
bent á að mæta réttstundis að
spilaborðunum. Brot á því þýðir:
styttri skemmtun.
fram og fengu stjórnarflokk-
arnir mikinn meirihluta.
Eftir kosningarnar tók mjög
að bera á því, að áhrif Banda-
ríkjamanna fóru vaxandi í
landinu. Stjórnin leitaði eftir
sérfræðilegri aðstoð þeirra á
ýmsum greinum og þeim var
m. a. falið að hjálpa til við end-
urskipulagningu iranska hersins
og lögreglunnar. Jafnframt hafa
Bandaríkin veitt Iran stórlán
til hergagnakaupa. Meðan þessu
fór fram, dró iranska stjórnin
að leggja olíusamninginn við
Rússa fyrir þingið, enda þótt
hann ætti að leggjasi fyrir það
ekki síðar en í október síðastl.
Fyrst fyrir nokkrum vikum, var
samningurinn lagður fyrir þing-
ið, en horfur virðast nú á, að
það felli hann.
í rússneskum blöðum er deilt
mjög hart á irönsku stjórnina
um þessar mundir og hún ásök-
uð fyrir samningsrof. Jafnframt
berast þær fre^nir út, að rúss-
neskur her streymi til landa-
mæranna. Sencjiherrar Banda-
ríkjanna í Teheran hefir í ann-
an stað lýst fullu fylgi Banda-
ríkja^na við þá stefnu, að ir-
anska þjóðin hagnýti ein og
óháð auðlindir landsins, og sagt
Bandaríkjamenn fúsa til að
styrkja hana í þeirri viðleitni.
Brezki sendiherrann hefir hins
vegar lýst yfir því, að Bretar
teldu eðlilegt, að Iran héldi
gerða samninga. Telja ýmsir
þetta stafa af því, að Bretar
telji hagsmunum sínum hætt í
Suður-Iran, en þeir hafa þar
miklar olíulindir, ef Rússum
verður alveg bægt frá Norður-
Iran. Aðrir telja, að Bretay geri
þetta til að reyna að tryggja
friðinn. En víst er það, að hér
er eitt erfiðasta deilumál stór-
veldanna á ferðinni, því að
Rússar munu telja sig eiga örð-
ugra með tilslökun hér en t. d.
í Grikklandi, þar sem hér er
raunverulega deilt um yfirráð
í landi, sem liggur að Sovét-
ríkjunum. Auk þess er hér deilt
um olíuna, sem er eftirsóttust
allra hráefna.
DE VALERA
Það vakti nokkra athygli,
þegar De Valera, forsætisráð-
herra íra, kom til London fyrir
skömmu, en hann hafði þá ekki
komið þangað í 9 ár. De Valera
lét Eire vera hlutlaust á stríðs-
árunum og hafa Rússar því ekki
viljað láta taka Eire í samein-
uðu þjóðirnar. Hins vegar virð-
ist sambúðin nú vera að batna
milli Eire og Bretlands.
A leið frá Darunörku til Brazilíu
Mynd þessi er af skólaskipinu „Danmark," sem nýiega lagði af stað til Brazilíu með 116 nemendur.
Skiptast Norður-
löndin á ferða-
mönnum?
Rætt við forstöðu-
maiiii Ferðaskrlf-
stof unnar um starf-
semi hennar
Þorleifur Þórðarson for-
stjóri Ferffaskýifstofu ríkis-
ins er nýlega kominn heim
frá Svíþjóff, þar sem hann
sat fund ferffaskrifstofu-
stjóra Norffurlanda. Hefir
tíffindamaffur Tímans hitt
Þorleif aff máli og sjmrt hann
frétta af fundinum og starf-
semi ferffaskrifstofunnar al-
mennt.
Norffurlöndin skiptast á
ferffamönnum.
Ríkisstjórnin reynir að koma
bátaflotanum á veiðar
Abyrgðiu verður að vissu leyti látin ná
til bátafisksins
Um þessar mundir eru útvegsmenn og ríkisstjórn, aff reyna
aff finna grundvöll fyrir því, að unnt verði aff gera út í haust.
Ekki mun endanlega hafa verið gengiff frá þeim málum, en til-
lögur hafa veriff lagðar fram varffandi þessi mál, af hálfu ríkis-
stjórnarinnar og munu þær nú til athugunar hjá útvegsmönnum.
Blaðið átti í gær tal við Helga
Benediktsson útgerðarmann í
Vestmannaeyjum um útgerðar-
horfur þar í haust. Hann kvað
algera stöðvun vera þar, eins
og málum væri nú háttað.
Fyrir nokkru síðan gekk í
gildi nýr kauptaxti hjá verka-
kvennafélaginu í Eyjum, er
hafði það mikla kauphækkun í
för með sér, að hraðfrystihúsin
sáu sér ekki fært að halda á-
fram að taka á móti fiski.
Eins og kunnugt er, var skip-
uð sérstök nefnd til að hafa á
hendi eftirlit og framkvæmd
fiskiábyrgðarlaganna, er sett
voru í árslok 1946. Þessi nefnd
hefir í orðsendingu til útvegs-
manna skýrt frá því, að ríkis-
sjóður sé fús að veita aðstoð til
að veita aðstoð til útgerðarinn-
ar í haust með fjárframlögum.
í orðsendingu nefndarinnar til
útvegsmanna segir, að ríkis-
stjórnin bjóðist til að bæta upp
bátafisk þannig, að helmingur
af brúttósölu úti í Englandi
nægi til að greiða ábyrgðarverð
þeirra, sem veiða fiskinn. Út-
gerðarmenn flutningaskipanna
eiga að fá helminginn af sölu-
verði aflans, hvort sem það
þýðir tap eða gróða fyrir þá.
Framsóknarfélag
V estur-Barðastrand-
arsýslu stofnað
Nýtt Framsóknarfélag var
stofnað í Barðastrandarsýslu 7.
september. Heitir félagið Fram-
sóknarfélág Vestur-Barða-
strandarsýslu og var stofnfund-
urinn haldinn að Sveinseyri í
Tálknafirði. Stjórn félagsins
skipa, Halldór Júlíusson að
Saurbæ formaður, Árni G. Þor-
steinsson kaupfélagsstjóri ritari
og Guðmundur Jónsson, Sveins-
eyri, gjaldkeri.
Hinn helmingurinn af sölu-
verðinu fer til að greiða kaup
þeirra, sem veiða fiskinn, og
nægi það ekki tekur ríkissjóður
að sér að greiða mismuninn.
Ekki er enn vitað með vissu
hversu margir af útgerðar-
mönnum telja sig geta gengið
inn á að reka skip sín á þess-
um grundvelli, en málið er til
athugunar og kemur væntan-
lega í ljós innan skamms hvort
útgerðarmenn telja sér fært að
gera út skipin í haust við þær
aðstæður, er áð framan greinir.
Samkvæmt öðrum heimildum,
sem blaðið hefir aflað sér, hef-
ir útvegsmönnum annars staðar
á landinu verið gefinn kostur á
svipuðum kjörum. Einkum mun
vera áhugi fyrir því á Aust-
fjörðum og í Eyjafirði að not-
færa sér þessi kjör.
Samkoma Vest-
ur-íslendinga
Félag Vestur-íslendinga efndi
til samkomu í Oddfellowhúsinu
s.l. miðvikudagskvöld. öllum
Vestur-íslendingum, og nokkr-
um öðrum, sem dvalið hafa er-
lendis, og staddir eru hér heima
og til náðist, var boðið. Voru
þeir óvenju margir, þar á meðal:
'tsrl Valdimar Eylands, forseti
Þj óðrækni/sfélagsins vestra og
frá hans, Gunnar Matthíasson
Jochumssonar og frú, óperu-
söngkonan Nanna Egilsdóttir og
maður hennar og þrjár hjúkr-
unarkonur, sem ætla að starfa
hér heima um sinn.
Sr. Valdimar bar félaginu
kærar kveðjur frá Þjóðræknis-
félaginu vestra. Gunnar flutti
snjallt erindi um möguleika
hinnar voldugu þjóðar Banda-
ríkjanna til þess að skapa betri
heim.
ALÞINGI:
Forsetakosningunum
lauk í gær
Forsetakosningar þær, sem
var frestað á Alþingi í fyrradag
samkvæmt ósk forsætisráð-
herra, héldu áfram í gær. Ekkert
samkomulag hafði náðst milli
stjórnarflokkanna og höfðu
Framsóknarmenn menn í kjöri
við allar kosningarnar. Hins
vegar höfðu hinir stjórnar-
flokkíirnir ekki menn í kjöri,
þegar kosnir voru forseti efri
deildar og fyrsti varaforseti
neðri deildar,.
Kosningarnar fóru annars
á þessa leið:
í efri deild var Bernharð Stef-
ánsson kosinn forseti efri deild-
ar, Þorsteinn Þejrsteinsson
fyrsti varaforseti og Guðmund-
ur I. Guðmundsson annar vara-
forseti. Skrifarar voru kosnir
Björn Kristjánsson og Eiríkur
Einarsson.
í neðri deild var Steingrímur
Steinþórsson kosinn fyrsti
varaforseti og Sigurður Bjarna-
son annara varaforseti. Ritarar
voru kosnir Páll Þorsteinsson
og Ingólfur Jónsson.
í dag munu fara fram kosn-
ingar á nefndum, bæði í sam-
einuðu þingi og deildum.
Mytill áhugi er nú vaknaður
á norðurlöndum fyrir ferðalög-
um til íslands, en eins og sakir
standa eru slík ferðalög tals-
verðum örðugleikum bundin.
Miklar líkur eru til, að á næst-
unni verði efnt til ferðamanna-
skipta milli Norðurlandanna.
Eru þessar ferðir hugsaðar
þannig, að hópar ferðamanna
frá hinum Norðurlöndunum
komi hingað til lands, en íslend-
ingar fari aftur á móti til hinna
Norðurlanadanna. Eru þetta
skiptiferðalög á svokölluðum
clearings-grundvelli, en slik
viðskipti koma sér vel í gjald-
eyrisvandræðunum og skapa
mönnum tækifæri til að ferðast,
sem annars ættu þess ekki kost.
Ræddi Þorleifur möguleika á
slíkum skiptiferðum við fulltrúa
hinna Nprðurlandanna, en þeir
höfðu mikinn áhuga fyrir því
að slíkar ferðir kjemust á.
Standa vonir til að slíkar ferðir
geti að einhverju leyti hafizt
þegar á næsta vori. Verður lögð
áherzla á að gefa einkum þeim
kost á þessum ferðum, sem ekki
hafa áður farið utan.
Ferffaskrifstofan hefir í hyggju
aff efna til bændafara.
Undanfarið hefir það verið til
athugunar hjá ferðask,rifstof-
unni að efna til orlofsferða
bænda næsta sumar. Hyggst
Þorleifur að leita þar samstarfs
við Búnaðarfélag íslands, en
(Framhald á 4. síöu)
Nokkub ber á óánægju
vegna skömmtunarinnar
Óáiiægjan beinist aðallega gegn
fyrirkomulaginu
Talsvert ber á óánægju yfir hinum nýju skömmtunarráffstöf-
unum og virffist þaff stafa meira af ýmsum ágöllum á fram-
kvæmdinni heldur en hinu, aff menn telji skömmtunina óeðlilega
og ónauffsynlega. Auðvelt virðist að bæta úr ýmsu af því, sem
oánægjunni veldur.
Óánægja kvenfólksins.
Kvenfólkið virðist ekki sízt
óánægt yfir ýmsu í sambandi
við skömmtunina. Því finnst t.
d. mjög óþægilegt að þurfa að
kaupa báða kjólana, sem því er
ætlað að fá, hjá sömu verzlun-
inni og helzt sama daginn. En
ekki virðist komizt hjá því, eins
og fyrirkomulagið er nú. Þá
finnst konunum það mikill
ágalli, að þeim virðist meinað
að kaupa efni í kjólana og
sauma þá sjálfar, eins og fyrir-
komulagið er nú. Loks telja kon-
urnar það nauðsynlegt, að
barnshafandi konur fái auka-
skammt fyrir barnsfatnaði
og einnig fái hjón, sem eru að
stofna heimili, aukaskammt
fyrir búsáhöldum.
Úr öllum þessum ágöllum
virðist auðvelt og sjálfsagt að
bæta.
íslenzki iffnaffurinn.
Þá óttast margir, að skömmt-
(FramKald d 4. slSu)