Tíminn - 14.10.1947, Side 1
RITSTJORI: \
ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON \
ÚTGEFANDI: |
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
Síml 2323
31. árg.
Reykjavík, þriðjudagmn 14. okt. 1947
187. blað
Fréttir úr Vopnafirhi
Frásögn Halldórs Ásgrímssonar
haupfélagsstjóra
Tíminn hefir fyrir nokkru snúið sér til Halldórs Ásgrímssonar
kaupfélagsstjóra og alþingismanns, og spurt hann almennra
tíðinda úr Vopnafirði. Frásögn Halldórs fer hér á eftir:
F j ár skaðaveðrið
í júiíbyrjun.
í byrjun júlímánaðar gekk
hér yfir fárveður með óhemju
rigningu og stormi, að slíkt má
teljast með eindæmum, um það
leyti árs. Urðu vatnavextir svo
miklir, að tæplega koma slíkir
í mestu vorleysingum.
Dagana á undan hafði sauð-
fé almennt verið rúið og rekið
til afréttar, og datt engum í
hug, að yfir vofði slíkt ofstopa
veður, en talið var féð vel und-
irbúið að mæta kuldum, sem
stundum koma um rúninga, því
all't heilbrigt fé var vel undan
vetri gengið og bjöllfyllgdað.
í þessum veðurham óttuðust
þó sumir afdrif fjárins og’fóru
strax og fært þótti, að grenslast
eftir líðan þess. Kom þá í ljós,
að engir stórfelldir fjárskaðar
virtust hafa orðið nema í, og
í nágrenni, svokallaðrar Smjör-
vatnsheiðar, en þar mun veðr-
ið hafa verið verst og land
skjólaminnst. Allar lækjarspræn
ur urðu þar og fljótt ófærar
og hindraði það einnig féð að
færa sig nægilega til. Þeir
bændur, sem rekið höfðu fé sitt
til þessarar afréttar urðu marg-
ir fyrir stórfelldu tjóni. Lá féð
þar víðs vegar í hrönnum dautt,
jafnvel veturgamalt, hvað þá ær
frá lömbum.
Bezta sumar síðan fyrir
frostaveturinn 1881.
a Upp úr þessu brá til hinnar
björtustu og blíðustu sumar-
veðráttu, sem segja má að entist
úrtakalaust fram á haust. —
Hafa elztu menn helzt til jafn-
aðar sumarið fyrir frostavetur-
inn mikla 1881. Segja má, að
ERLENDAR FRÉTTIR
Stjórnmálanefnd sameinuðu
þjóðanna hefir ákveðið að
leggja til, að skipuð verði ný
Balkannefnd á vegum samein-
uðu þjóðanna og jafnframt
skori þing þeirra á Búlgaríu,
Jugoslavíu og Albaníji að hlut-
ast ekki til um innanlandsmál
Grikkja. Er þetta samkvæmt
miðlunartillögu frá Frökkum,
en Bandarikjamenn lögðu upp-
haflega til, að þingiZ lýsti yfir
því, að Búlgarar, Jugoslavar og
Albanir hefðu gert sig seka um
íhlutun í innanlandsmál
Grikkja. Fulltrúi Rússa og
Austur-Evrópuríkjanna í stjórn-
málanefndinni voru andvígir
áðurgreindri samþykkt nefnd-
arinnar.
Fulltrúar Arabaríkjanna hafa
endurnýjað þær yfirlýsingar
sínar, að þeir muni reyna að
hindra skiptingu Palestínu með
vopnavaldi. Jafnframt er full-
yrt, að bæði Egiptar og Sýrlend-
ingar sendi her til landamæra
Palestínu. Á þingi sameinuðu
þjóðanna hafa Bandaríkin lýst
yfir því, að þau séu fylgjandi
skiptingu Palestínu. Indverjar
hafa Jiins vegar borið fram þá
tillögu þar, að stofnað verði sér-
stakt Arabaríki í Palestínu, en
Gyðingum tryggð þar ýms sér-
réttindi.
Um seinustu helgi tóku til
starfa í 19 fylkjum Bandaríkj-
anna samtök manna, sem vilja
fá Eisenhower herghöfðingja
kosinn næsta forseta Banda-
ríkjanna. Forvígismenn sam-
takanna eru einkum republik-
anir, en í þeim eru líka allmarg-
ir demokratar.
frá óveðrinu í júlíbyrjun og
fram yfir ágústlok væri sífelld
sól og sunnan- og suðvestan-
vindar ríkjandi. Mátti helzt
líkja suðvestanvindunum í júlí
og ágúst við svokallaða lauf-
vinda, sem stundum ganga yfir
í septembermánuði, og eru oft
varasamir vegna heyfoks. Nú
gerðu þessir vindar ekki teljandi
tjón í Vopnafirði, en töfðu þó
sums staðar eitthvað heyskap.
Vegna þurrkanna var einnig
þegar leið á sumarið, kvartað
undan því að erfitt og tafsamt
væri að losa harðvelli með ljá
og eins há á túnum. Kvörtuðu
jafnvel sumir undan því sama,
sem losuðu með sláttuvél, töldu
grasið lint og þróttlítið vegna
þurrka og bælt af vindi. Má
vafalaust telja það tíðindum
sæta, að menn þar eystra kvarti
undan ofmiklum þurrkum.
Vegna úrfellisins -mikla í
júlíbyrjun mun heyskapur hafa
byrjað minnst viku seinna en
til stóð. Olli það bæði, að allt
var á floti, jafnvel túnin, og hitt
að ýms verk töfðust, sem ljúka
þurfti.
Góður heyfengur,
en léleg kartöfluuppskera.
Að vöxtum mun heyfengur í
Vopnafirði hafa' orðið fremur
góður og nýting frábær. Þeg
ar ég fór að heiman, var upp-
taka úr görðum ekki að fullu
lokið. Hausttíðin hafði verið
góð og engin næturfrost komið
í byrjun september, eða fyrr
eins og svo títt er. Almennt mun
uppskeran ekki hafa verið sér-
lega góð, og í sumum tilfellum
mjög léleg, og var hinum miklu
þurrkum um kennt, enda
skrælnaði sums staðar kartöflu-
gras í þurrlendum görðum,
þegar leið á sumarið, og víðar
munu þeir hafa dregið úr
vextinum.
Sláturfé vænna en í fyrra.
Það, sem af var sláturtíð, virt-
ist féð reynast öllu vænna til
frálags en síðustu haust, þrátt
fyrir vonda veðrið, sem kom á
það nýrúið, og landlæga garna-
veiki. Á mörgum bæjum gerir
garnaveikin sífelldan usla og
drepur fé á öllum tímum árs. —
Borið hefir líka á kýlaveiki. Er
það óþverrakvilli, þótt ekki valdi
tjóni í líkingu við garnaveikina.
Nægur fiskur á Vopna-
firði í sumar.
Lítið var um sjósókn á
Vopnafirði í sumar. Voru flestir
sjómenn þaðan á síld og var
svo líka í fyrra. Hafa þeir nú
freistað gæfunnar á þeim vett-
vangi í tvö sumur og brugðizt
vonir, eins og flestum öðrum.
sem þær veiðar hafa stundað.
í sumar virtist nægur fiskur,
jafnvel á grunnmiðum, en þar
hefir oft undanfarin ár verið
lítils fengs von. Mun þessari
breytingu hafa valdið meiri
fiskigengd en oft áður og þó
ekki síður, að tæplega sást
dragnótabátur í Vopnafirði í
sumar, og er það óvenjulegt.
Hafa Vopnfirðingar lítið dálæti
á þeirri veiðiaðferð og telja, að
reynslan hafi sýnt, að drag-
nótabátamir eyðileggi fiski
göngur innfjarða og neyði þar
með trillubátana til að sækja á
djúpmiðin. Er slíkt að vonum
ekki vel séð, að opnir bátar þurfi
að sækja björg sína utan fjarð-
ar meðan vel búnir þilfarsbátar
(Framhald d 4. síðuj
Fyrir nokkru síðan flaufr mannlaus flugvél yfir Atlantshaf, og gekk ferð-
in öll að óskum. Hún var þó ekkert smásmiði þcssi flulgvél — það geta
lesendur ráðið af myndinni hér að ofan.
TRIMTE-MÁLIÐ:
Sænska skonnortan
stranctaði ekki
Komst hjálparlaust til ÞorláUshafnar
Á laugardagskvöldið var
sendi sænska skonnortan
Trinite frá Málmey í Svíþjóð
út neyðarskeyti. Var skipið
statt suður af Reykjanes-
tanga og hafði komið að því
mikill leki. Óttaðist skip-
stjóri að skipið myndi þá og
þegar sökkva.
Skip fóru þegar að leita að
skonnortunni og björgunar-
flugvél var send til að leita að
því frá Keflavíkurflugvellinum.
Skipstjórinn hafði gefið upp í
skeyti sínu, að hann væri um 20
sjómílur undan Krísuvíkur-
bjargi. Seinna kom í ljós, að sú
staðarákvörðun var röng. Komst
skipið af sjálfsdáðum til Þor-
lákshafnar um kvöldið, en þá
var mjög mikill sjór kominn í
það.
Tíminn átti í gær tal við
Skúla Þorleifsson í Þorlákshöfn.
Kvað hann skipið hafa komizt
þangað af sjálfsdáðum á laug-
ardaýinn. Um tíma höfðu skip-
verjar verið uggandi yfir því,
að þeir myndu neyðast til að
hleypa skipinu upp í brimgarð-
inn á ströndinni vegna þess
hversu mikill leki var kominn að
því, en þá uppgötvuðu þeir lónið
inn í Þorlákshöfn. Sigldu þeir
þar inn og lögðust við akkeri á
læginu, en þar inni var logn og
alveg öldulaust. Hefir skipið
verið þar síðan. í blöðum hér
var skýrt þannig frá þessu máli,
að sk'ipið hefði strandað, en
samkvæmt frásögn Skúla er það
ekki rétt hermt.
Skipverjar hafa átt von á vél-
dælum frá Reykjavík til að dæla
sjónum úr skipinu, en þær voru
ókomnar í gærkvöldi. Hafa
skipverjar notazt við handdælur
eingöngu fram til þessa, en
mjög er talið ósennilegt, að
þeim ta«í,ist að halda skipinu
lengi á floti með því móti.
Fyrsta Framsóknar-
vistin
Fyrsta Framsóknarvist Fram-
sóknarfélaganna í Reykjavík
var haldin í samkomusal mjólk-
urstöðvarinnar á föstudags-
kvöldið.
Fyrst var sp|llað að venju.
Síðan flutti Bjarni Ásgeirsson
ráðherra ræðu og minnti menn
á, að nú væri tímabært fyrir ís-
lendinga að hugleiða sannindi
hins gamla heilræðis: Gakktu
hægt um gleðinnar dyr. — Þá
söng Sigurður Ólafsson allmörg
lög og vakti mikla hrifningu
samkomugesta. Er Sigurður
bróðir Erlings heitins Ólafsonar
söngvara. — Að lokum var
dansað.
Friðgeir Sveinsson fulltrúi
stjómaði samkomunni.
Jolivet prófessor flyt-
ur fyrirlestra í Há-
skólaimm
Alfred Jolivet, prófessor í
norrænum fræðum við háskól-
ann í París, flytur tvo fyrir
lestra í Háskóla íslands, og
verður fyrri fyrirlesturinn flutt-
ur næstkomandi miðvikudag 15
okt. kl. 6. í I. kennslustofu, og
mun fjalla um Xavier Marmier.
Var hann kunnur bókmennta
fræðingur og ferðaðist hér á
landi með Gaimard fyrir rúm-
um 100 árum og ritaði ítarlega
um land og þjóð af miklum
skilningi og vinsemd. Marmier
var Ákaflega víðförull maður
og naut mikillar virðingar, og
var meðal annars meðlimur í
franska akademíinu.
Hinn fyrirlesturinp verður
fluttur miðvikudaginn 22. þ. m.
á sama stað og tíma og verður
um norræn áhrif á skáldskap
Leconte de Lisle, en hann var
eitt af J?ekktustu Ijóðskáldum
Frakka á 19. öld.
Jolivet prófessor eí mörgum
íslendingum að góðu, kunnur
Dvaldist hann hér 1931 og flutti
þá fyrirlestra í háskólanum, en
síðan hefir hann unnið ötullega
að því að kynna íslenzkar nú
tínyabókmenntir með þjóð sinni;
og ritað ýmsar greinar í frönsk
tímarit og þýtt Sölku Völku
Halldórs Kiljans á frakkneska
tungu. Heimili Jolivete prófess-
ors hefir staðið íslenzkum
námsmönnum og öðrum opið,
og hefir hann verið þeim til að-
stoðar í hvívetna. Jolivet próf-
essor hefir lagt mikla stund á
að kynna sér íslenzkar nútíma
bókmenntir og talar íslenzku
mætavel.
Talin mikil síld í
fsafjarðardjúpi
Síldin er smá, en fituniagn 18,8%
Eins og getið hefir verið í fréttum að undanförnu hefir sára-
lítil beitusíld veiðst í haust og ekki nema hluti af því magni, sem
nauðsynlegt er að afla, ef unnt á að vera að gera út á vetrar-
vertíðina.
fS
Nú fyrir nokkrum dögum
veiddist hins vegar síld í fjörðum
við ísafjarðardjúp. Er það eins
konar millisíld, en hún er feit
og talin góð til beitu. Tíminn
hefir frétt, að kunnugir menn
við djúpið telji þar mikla síld,
aðallega í Mjóafirði og ísafirði.
Síldin, sem veiddist á dögun-
um, fékkst í Skötufirði. Veidd-
ust þar í einu um 800 tunnur.
Var síldin öll mjög sæmileg.
M.b. Hugrún kom með sýnishorn
af þessari síld hingað til
Reykjavíkur og hefir hún verið
rannsökuð af efnafræðingi hjá
Fiskifélaginu. Reyndist fitu-
magn hennar um .18,8% en það
er mjög hátt fitumagn.
Að undanförnu hefir talsvert
veiðst af smokkfiski þar vestur í farnir að ráðgera niðurskurð í
Djúpinu, en sú veiði hefir nú trássi við þá menn, er fjölluðu
algerlega fjarað út. I um þetta af hálfu hins opin-
Síldveiði hefir engin verið í bera. Hafði sauðfjársjúkdóma-
Faxaflóa að undanförnu. Eru nefnd lagt til við ráðherrann,
reknetabátar frá verstöðvum að hann gæfi þetta fyrirheit.
við flóann að hætta veiðum þar í dag munu bændur nyrðra
sem ekkert hefir fiskazt svo halda með sér fund til þess að
lengi. Aðeins tveir bátar úr ræða þessi mál, og hefir Tím-
hverri verstöð’ munu halda anum verið tjáð, að líkur séu
áfram að leita síldar, en hinir til, að þeir muni yfirleitt una
eru allir hættir. Gæftir hafa þessum málalokum sæmilega.
verið mjög slæmar að undan- ____________________ _______________
förnu. : ~
Fjárskipti milli Hér-
aðsvatna og Miðf jarð-
ar ákveðin 1948
trsknrðnr landbúnað*
arráðherra
Landbúnaðarráðherra ákvað í
gær, að fjárskipti skyldu fara
fram haustið 1948 á svæðinu
milli Héraðsvatna og Miðfjarð-
ar. Hafa verið allharðar deilur
um þessi fjárskiptamál að und-
anförnu, og voru margir nyrðra
Fjárskipti í Reykjadal
Skólarnir að Laugar-; í annað sinn
vatni taka til starfa ^««...1. i í«ra.i...
Skólar þeir, er heimkynni
sitt eiga aff Laugarvatni hafa
veriff aff taka til starfa aff
undanförnu, affrir en héraðs-
skólinn, en hann mun taka
til starfa nú síffast í mánuff-
inum.
Gagnfræðadeild og deild fyrir
þá nemendur, sem ætla að
taka próf upp í mennta^kóla
næsta vor, munu byrja um 20.
oktober. Húsmæðraskólinn byrj-
aði 15. september, íþróttakenn-
araskóli ríkisins var settur 1.
oktober. Annar bekkur héraðs-
skólans mun taka til stafra 25.
oktober, en 1. bekkur 1. nov-
ember.
Aðalfundur
Félag héraðsdómara heldur
aðalfund sinn í Reykjavík í dag.
Verður hann háður í Oddfellow-
húsinu og hefst kl. 1 y2.
Bindindismannamót
að Selfossi
Almennt bindindismannamót
var haldið í Selfossbíó s.l.
sunnudag að tilhlutan umdæm-
isstúkunnar nr. 1. Var það sótt
af templurum og öðrum bind-
indismönnum víðs vegar að af
Suðurlandi. Hófst það með út-
breiðslufundi kl. 2. Á fuhdinum
fluttu ræður Sverrir Jónsson
umdæmistemþlar, Felix Guð-
mundsson, stórkanzlari og séra
Björn Magnússon, stórfræðslu-
stjóri. I.O.G.T.-kórinn söng
undir stjórn Ottós Guðjónsson-
ar, Jón Sigurðsson söng og lék
undir á gítar, Jóhannes Jóhann-
esson lék einleik á harmoniku.
Fundinn sátu 400—500 manns.
Kl. 5 var sýnd kvikmyndin
,,Leikaralíf“ fyrir troðfullu húsi.
Á undan sýningu flutti Arn-
grímur Fr. Bjarnason ávarp. Kl.
8 hófst dansleikur í Selfossbíó.
sveltuimm
í haust fóru fram fjár-
skipti í Reykjadal í
Suffur-Þingeyjarsýslu. Er þaff
í annaff sinn, en fjárskipti
voru framkvæmd þar í fyrsta
sinn haustiff 1941.
! Alls var lógað um 5000 fjár,
| fullorðnu og veturgömlu, auk
j lamba. Var fé þessu flestu
jslátrað hjá Kaupféle^gi Þingey-
I inga á Húsavílc. Heildartala
sláturfjárins af fjárskiptasvæð-
inu, að lömbum meðtöldum, var
um 10 þúsund, en alls var slátr-
að hjá Kaupfélaginu á Húsavik
í haust um 13 þúsund fjár.
Alls mun hafa verið flutt hátt
á fjórða þúsund líflamba í
Reykjadalinn í haust í stað þess
fjár, sem lógað var. Var féð
keypt í hreppunum umhverfis
Reykjadal og auk þess nokkuð
norðan af Sléttu til viðbótar.
(Framhald á 4. síðu)
Skólameistaraem-
bættið á Akureyri
augl. til umsóknar
Sigurður Guðmundsson skóla-
meistari á Akureyri lætur nú
innan skamms af störfum við
menntaskólann á Akureyri sök-
um aldurs. Hefir embætti skóla-
meistara verið auglýst laust, og
er umsóknarfrestur til 1. nóv-
ember næstkomandi, en emb-
ættið veitist frá 1. desember.
Sigurður Guðmundsson skóla-
meistari á langt og merkilegt
skólastarf að baki, svo að vart
mun nokkur maður annar ís-
lenzkur hafa unnið heilladrýgra
starf á því sviði honum sam-
tímis.