Tíminn - 16.10.1947, Síða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
)
ÚTGEFANDI: i
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373 'i
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í. |
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝ SINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A
Sími 2323
31. árj(.
Reýkjavík, fimmtiidaginii 16. okt. 1947
189. blað
Þrjár tillögur um áfengismál
lagöar fyrir Alþingi
Tillögurnar miða að takmörkun áfengisneyzlu
t
o«í' afnámi óheilbrigðra áfengisveitinga og
, sérréttinda
í fyrradag voru lagðar fram í sameinuffu þingi þrjár þings-
ályktunartillögur og ein fyrirspurn varðandi áfengismál. Tillög-
urnar miffa allar aff því aff draga úr áfengisnautn *&g afnema
ýmsar óheilbrigðar venjur og sérréttindi, eins og opinberar
drykkjuskaparveizlur og áfengisfríðindi ýmsra opinberra starfs-
manna. Tillaganna er nánar getið hér á eftir:
Ráffstafanir til aff draga úr
áfengisnautn.
Sex þingmenn, Sijfús Sigur-
hjartarson, Hannibal Valdi-
marsson, Páll Þorsteinsson, Pét-
ur Ottesen^ Halldór Ásgrímsson
og Skúli Guffmundsson flytja
svohljóðandi tillögu um ráff-
stafanir til að draga úr áfeng-
isnautn:
Alþingi ályktar aff fela ríkis-
stjórninni aff 'gera eftirtaldar
ráffsf/ifanir:
a. aff láta lög nr. 26 frá 1943
um héraðabönn, koma til fram-
kvæmda eigi síffar en 1. jan.
1948.
b. aff gefa út reglugerff um
skömmtun áfengis, og verffi þar
meffal annars ákveffiff, aff áfengi
megi ekki selja, nema gegn
skömmtunarsefflum kaupanda,
enda sýni hann persónuskír-
teini sín.“ \
í greinargerffinni segir pi. a.:
„Á síðasta Alþingi voru flutt-
ar allmargar tillögur til þings-
ályktunar varðandi áfengismál-
in. Tvær þeirra vöktu verulega
athygli, og má fullyrða, aff þær
áttu hljómgrunn hjá þjóðinni,
var önnur um framkvæmd
héraðabanna, en hin um
skömmtun áfengis.
Þrátt fyrir eindregnar áskor-
anir frá fjölmörgum fundum og
samtökum um, að Alþingi sam-
þykkti þqssar tillögur, fékkst
hvorug þeirra afgreidd. Slík
meffferff þessara mála var
ósæmandi Alþingi. Þessar tvær
tillögur eru aff efni til samein-
aðar í þeirri tillögu, sem hér
liggur fyrir, og er þess að
vænta, að Alþingi víki sér nú
ekki undan að afgreiða þær,
enda efni þeirra mjög rætt, og
mætti ætla, að sérhver þing-
maður hefði þegar fullmótaðar
skoðanir á því og óskaði ekki að
dylja þær.“ J
Afnám vínveitinga
á kostnað ríkisins.
Sex þingmenn, Skúli Guð-
mundsson, Pétur Ottesen, Sigfús
Sigurhj artarson, Hannibal
Valdimarasson, Halldór Ás-
grímsson og Páll Þorsteinsson
flytja svohljóðandi tillögu um
afnám vínveitinga á kostnað
ríkisins:
„Alþingi ályktar, aff áfengir
drykkir skuli ekki veittir á
ERLENDAR FRÉTTIR
Um helgína fóru fram bæjar-
stjórnarkosningar í Róm. Flokk-
ur de. Gasperis forsætisráð-
herra, Kristilegi lýðræðisflokk-
urinn, vann stórkostlegan sigur
í kosningunum. Hlaut flokkur-
inn 204,000 atkvæði, en það er
helmingi meira atkvæðamagn,
en við s>~ustu kosningar. Bæj-
arstjórnarfulltrúar flokksins
eru nú 37.
Samsteypa jafnaðarmanna og
kommúnista fékk líka atkvæða-
töiu og áður og 37 fulltrúa. Sýna
þessar kosningar glögglega, að
kommúnistum hefir slður en
svo aukiztj fylgi á Ítalíu. Aðrir
flokkar fengu 6 fulltrúa.
kostnað ríkisins eða ríkisstofn-
ana.“
í greinargerðinni se^ir, að til-
laga um þetta efni hafi verið
fram borin á síðasta þingi, og
var henni vísað til þivgnefndar,
en nefndarálit kom ekki. Málið
sé því flutt hér í annací sinja, og
vísast til greinargerðar, er fylgi
nefndri tillögu á Alþingi 1946.
Það var Skúli Guðmundsson,
sem flutti þessa tillögu í fyrra.
Afnám sérréttinda í
áfengiskaupum.
Sex þÁngmenn, Skúli Guð-
mundsson, Pétur Ottesen, Sigfús
Sigui;hjartarson, Hannibal
Valdimarsson, Halldór Ásgríms-
son og Páll Þorsteinsson flytja
svohljóðandi tillögu um afnám
sérréttinda í áfengismáluy.i:
Alþingi ályktar aff skora á
ríkisstjórnina aff afnema þau
sérréttindi, sem nokkrir viff-
skiptamenn áfengisverzlunar
ríkisins njóta nú, aff fá þar
keypt vínföng fyrir lægra verff
en affrir kaupendur þurfa að
borga fyrir þá vöru.
í greinargerðinni er þess get-
ið, að tillaga um þetta efni hafi
verið flutt á síðasta þingi, en
ekki hlotið fullnaðarafgreiðslu.
Það var Skúli Guðmunddson,
sem þá flutti tillöguna.
Fyrirspurnir
Jónasar Jónssonar.
Fyrirspurn sú, sem Jónas
Jónsson hefir lagt f?;am varð-
andi þessi mál, er svohljóðandi:
Hvaða trúnaðarstöðum í
landinu fylgir réttur til að fá
frá ríkinu áfengi til kaups með
niðursettu verði?
Hvenær hafa trúnaðarmenn
þjóðiélagsins öðlazt þessi rétt-
indi, hvaða stjórnarvöld veittu
réttindin, og hvaða ár fékk hver
einstijk trúnaðarstaða sinn
frumrétt?
Hvaða skilyrði eða takmark-
aniv eru settar hinum einstöku'
notendum þessara hl*mninda?
Hvaða valdastöður, sem ekki
hafa enn öðlazt þennan rétt,
gætu, ef beita skyldi fullri sann-
girni, komið til grein^ ef hlunn-
indi þessi ættu að ná eftirleiðis
til fleiri manna en hingað til?
Kínverska listmuna-
sýningin opnuð í dag
Frú Oddný Sen opnar í dag
kínverska listmunasýningu I
Listamannaskálanum. Er þar að
sjá marga merkilega muni, er
margir munu sennilega minnast
frá fyrri sýningu frúarihnar, er
hún var nýkomin heim frá
Kína.
Eins og mönnum mun kunn-
ugt, er komnir eru til vits og
ára, eru Kínverjár meðal elztu
menningarþjóða. Meðal þeirra
þróaðist há menning meðan
hvítar þjóðir voru villimenn í
hellum og frumskógum.
Munir þeir, sem frú Oddný
sýnir, gera sitt vitni um þessa
menningu. Yorður ekki reynt
að lýsa þeim hér, en þess aðeins
getið, að hinir elztu eru mörg
hundruð ára gamlir.
V ,
Ekki til bátar á Þingeyri
handa öllum, er vilja
stunda sjó
Vantar aðstöðn í landi til aukiimar ntgerðar
Júgóslövum og ítölum í Trieste kemur ekki of vel saman. Ryskingar og
hvers konar árekstrar eru þar daglegir viðburðir. Kynða kommúnistar
ekki síst undir. — Myndin hér að ofan var tekin, þegar eitt uppþotið var
að hefjast.
Aff undanförnu hafa veriff gerffir út 3 bátar frá Þingeyri í
Ðýrafirði, en margir sjómenn þar verffa aff leita annaff í ver,
vegna þess aff fleiri bátar eru þar ekki til. Affstaffa til útgerffar
frá Þingeyri er líka aff ýmsu leyti erfiff, enda lítiff gert til að
skapa skilyrffi í landi, og fjármagn nú hvergi fáanlegt til fram-
kvæmda. Eiríkur Þorsteinsson, kaupfélagsstjóri á Þingeyri, er
staddur hér í bænum um þessar mundir, og hefir tíffindamaður
blaffsins átt tal við hann og spurt hann frétta aff vestan.
Þrír bátar gerffir út
frá Þingeyri.
Að undanförnu hafa verið
gerðir út þrír bátar frá Þingeyri.
Eru það Skíðblaðnir 64 smál.,
Sæhrímnir 79 smál. og Gullfaxi
19 smál. Skíðblaðnir var keypt-
ur notaður frá Syíþjöð fyrir
tveimur árum, og hefir reynzt
mjög vel, og betur en flestir
nýju bátanna, sem smíðaðir
voru í Svíþjóð á vegum fyrrver-
andi ríkisstjórnar.
Sæhrímnir var keyptur til
Þingeyrar 1939 af Ingvari Guð-
jónssyni. Var þá stofnað út-
gerðarfélag til^að anuast rekst-
ur hans.
Útvarpsumræðurnar
um Parísarráð-
stefnuna
Einar Olgeirsson iioí-
aði ekki ræðutíma
sinn
í fyrrakvöld fóru fram út-
varpsumræffur um þings-
ályktunartillögu frá Einari
Olgeirssyni varffandi þátt-
töku íslands í Parísarráff-
stefnunni.
Þau einstæðu tíðindi gerðust
við þetta tækifæri, að Einar Ol-
geirsson, formælandi þ/ngs-
ályktunartillögunnar, sem á
dagskrá var, gafst algerlega upp
við að mæla með henni og verja
málstað sinn. Notaði hann ekki
fjórða hluta af frumræðutíma
sínum, en það mun vera algert
einsdæmi við slíkar umræður.
í gær fór fram atkvæða-
greiðsla um tillögu frá Bjarna
Benediktssyni um að vísa mál-
inu frá með rökstuddri dagskrá
og að á Alþingi hefði verið sam-
þykkt þátttaka íslands í parís-
arráðstefnunni. Atkvæði féllu
þannig, að tillagan var sam-
þykkt með 34 atkvæðum gegn
10, en 8 voru fjarverandi.
Vantar affstöffu í landi.
Það er sama sagan á Þingeyri
og víðast hvar annars staðar,
að tilfinnanlegur skortur er á
fullnægjandi aðbúnaði fyrir
bátana í landi. Á Þingeyri vant-
ar tilfinnanlega fiskverkunar-
hús og fiskiðjuver svo hægt sé
að gera aflanum fullnægjandi
skil, þegar á land kemur. Og
engar lánastofnanir eru nú fá-
anlegar til að lána til slíkra
framkvæmda.
Gömlu verkunaraffferffirnar
úreltar.
Á undanförnum árum hefir
öll áherzla verið lögð á að koma
upp hraðfrystihúsum, .og er það
gott, svo langt sem það nær, og
á meða.-a- marakaðir fást, en
alltaf má þó búast við að grípa
verði til þess að salta. Nú er
búið að taka mörg -gájmlu salt-
fiskhúsin til annarra nota, enda
mörg þeirra orðin algerlega ó-
fullnægjandi. Auk þess má bú-
ast við, og er raunár óumflýj-
anlegt, að grípa verði til bspttra
verkunaraðferða. Það getur ekki
borgg^ sig lengur að þurrka
saltfiskinn á gömlu stakkstæð-
unum og er athugandi, hvort
(Framhald á 4. síðu)
Viðskiptanefnd farin
til HoIIands
Ríkisstjórnin hefir skipað
sendinefnd til að fara til við-
ræðna við hollenzk stjórnar-
völd og athuga möguldika á
vörukaupum, í framhaldi af
viðræðum þeim við hollenzka
verzlunarnefnd, sem fram fóru
í Reykjavík fyrir nokkru.
Nefndina skipa: Eggert Krist-
jánsson, varaformaður Verzl-
unarráðsins, formaður, Helgi
Þorsteinsson framkvæmdastjóri
Sambands ísl. samvinnufélaga
og Þórhallur Ásgeirsson fulltrúi
í utanríkisráðuneytinu.
Lagði nefndin af stað til Hol-
lands í gær með flugvél.
Olögskráð, erlend skip við síld-
veiðar í landhelgi sl. sumar
Málað yfir nafn og númei*, sett á það íslenzkt
Iieiti og dreginn npp ísl. fáni
Orffrómur nokkur hefir gengiff um þaff aff undanförnu, aff er-
lend skip hafa á síffastliðnu sumri veitt síld hér viff land undir
islenzkum fána í íslenzkri landhelgi, án þess aff vera hér
löglega skráð, eða hafi fullnægt :
íslenzk skip.
*
Tíminn hefir aflað sér frek-
ari upplýsinga um þetta mál.
Við þá athugun kom í ljós, að
eitt erlent skip hefir stundað
hér síldveiðar í sumar, án þess
að vera lögskráð, en samt boýið
íslenzkt nafn og siglt undir
íslenzkum fána.
Sœskur bátur kemur til
Vestmannaeyja.
Forsaga þessa máls, eins og
Tminn hefir hana eftir góðum
heimildum, er sú, að sænskur
bátur kemur til Vestmannaeyja
í síðastliðnum júnímánuði. —
Bátur þessi, sem var um 60
smálestir að stærð, kom til
l'.ndí/ins með sænskri áhöfn,
með. sænskt nafn og undir
sænskum fána og kvaðst skip-
stjórinn á bátnum vera eigandi
hans. Báturinn var 50 ára gam-
all, en bannað er með lögum að
kaupa til lands skip, sem eru
eldri en 12 ára.
Skipt um nafn og númer.
Báturinn var í Eyjum nokkra
hríð, en í júlíbyrjun tóku menn
eftir því, að búið var að mála
yfir hið sænska nafn og númer
hans, en í staðinn var komið
nafnið „Leó II“. og stafirnir
V.E.ll. Vakti þetta nokkra furðu
þar sem kunnugt var, að skipa-
skdðunin í Eyjum hafði neitað
bátnum um íslenzkt vottorð.
Þrátt fyrir þetta fór báturinn þó
(Framhald á 4. síðu)
Finnski sendiherrann
nýi í Reykjavík
Hinn nýji sendiherra Finna
hér, Páivo K. Tarjenne, og frú
hans eru komin hjngað til
Reykjavíkur og mun sendiherr-
ann bráðlega leggja embsgttis-
skilríki sín fyrir forseta íslands.
Tíðindamenn blaða, og út-
varps áttu í gær stutt samtal
við sendiherrahjónin. Kynnti
Bjarni Guðmundsson blaða-
fulltrúi þau, en auk þeirra, er
nefndir hafa verið, voru við-
staddir Eiríkur Leifsson ræðis-
maður Finna hér, og 4-f°ns
Jónsson, vararæðismaður á
Siglufirði.
Sendiherrann sagðj, að sér
vær mikil ánægja að vera kom-
inn hingað til lands og geta átt
þátt í því að treysta brf3ðra-
böndin milli Finna og íslend-
inga, þessara tveggja þjóða, er
öðluðust sjálfstæði sitt því nær
samtímis. Hann lét og í ljós
þakklæti fyrir þá samúð, er
Finnar hefðu átt að mæta héð-
an á erfiðum tímum.
Búsetu mun sendiherrann
ekki hafa hér, heldur í Osló. Á
sama hátt mun sendiherra ís-
lendjnga i Stokkhólmi verða ís-
lenzkur sendiherra í Finnlandi.
Mun hann leggja fram embætt-
isskilríki sín einhvern næstu
daga.
Páivo K. Tarjanne er fæddur
í Tavastehus í Finnlandi árið
1903. Stundaði hann nám í
Helsingfors og Frakklandi. Eftir
að hann gekk í þjónustu
finnska utanríkismálaráðuneyt-
isins vann hann í Svíþjóð og
Sviss og s.l. tvö ár hefir hann
verið sendiherra Finna í Osló.
þeim, er gerffar eru um
Rýmkun á
skömmtun
Viðskiptamálaráðherra tjáði
Alþingi í gær, að afnumin yrði
skömmtun á íslenzkum prjóna-
vörum og gefinn aukaskammtur
af vinnufötum og vinnuskó-
fatnaði. —
Var bent á það hér í blaðinu í
gærmorgun, hvílík fásinna
skömmtun á íslenzkum prjóna-
vörum væri.
Óþokkabragð:
Drengur sprengir
hljóðhimnu í gam-
alli konu
í fyrradag gerffi stálpaffur
drengur aldraffa konu heyrn-
arlausa á öffru eyra meff því
aff henda að henni „kín-
verja.“
Kona þessi hefir um nokkur
ár haft það að atvinnu á haust-
in, að svíða kindahausta fyrir
bæjarbúa og hefir haft bæki-
stöð innarlega við Skúlagötuna.
í fyrrakvöld varð hún fyrir
óvæntri árás. Stálpaður dreng-
ur, er hafði meðferðis „kínverja“
og var að leika sér að því að
kveikja í þeim og sprengja þá,
fékk allt í einu löngun til að
bekkjast til við konuna, þar.sem
hún var við vinnu sína. Kveikti
hann í einum „kínverj anna“ og
henti að konunni með þeim af-
leiðingum, að púðursprengja
þessi lenti á höfði konunnar og
rauf hljóðhimnuna í öðru eyra
um leið og sprengingin varð. Er
konan nú frá störfum og verð-
ur að ganga til læknis um iang-
an tíma.
Ekkert verkfall hjá
Dagsbrún
Samningar hafa náðst milli
verkamannafélagsins Dags-
brúnar og Vinnuveitendafélags
íslands og kemur ekki til vinnu-
stöðvunar hér að þessu sinni.
Samningar verða óbreyttir frá
því sem áður var, en uppsegjan- .
legir af beggja hálfu með mán-
aðar fyrirvara.
Hins vegar hófu klæðskerar,
er starfa hjá klæðskerameistur-
um, verkafall í gær. Verkfallið
nær ekki til hraðsaumastofa. Þá
eru járniðnaðarmenn í verk-
falli, og hefir ekkert samkomu-
lag názt í þeirra deilu.
Mjólkin minnkuð
Undanfarið hefir mjög dregið
úr mjólkurmagni því, er flutzt
hefir til bæjarins. Af þessum
ástæðum hefir verið ákve5>ið að
! draga nokkuð úr mjólkur-
j skammtinum í bili. Verður
mjólkurskammturinn nú mið-
j aður við 4 desilítra handa hverj-
I um einstaklingi.