Tíminn - 23.10.1947, Blaðsíða 4
D A G S K R Á er bezta islenzka
tímaritið um þjóðfélagsmál
4
REYKJAVÍK
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í
Edduhúsinu við Lindargötu. Sími 6066
23. OKT. 1947
194. blað
Notið tómstundirnar til náms
í Bréfaskóla S.5.S. getið þér lært:
íslenzha réttritun
Reikning
Rókfœrslu
E&sku
Fundurstjórn »(/ fundarreglur
Skipulag og starfshœtti
samvinnufélagu
Þeim, sem læra undir skóla í lieiina-
húsum skal bent á það, að bréfaskólinn
er sérstaklega heppilegur til undirbún-
ings undir próf upp í neðri bekki fram-
haldsskólanna.
Veitum fúslega allar upplýsingar
Bréfaskóli S. í. S.
Reykjavík
SKIPAIITGCKO
RIKISINS
Sjón er sögu
ríkari
Hinn 29. september s.l. kl. 17
lagði ég af stað frá Reykjavík
ásamt Jóni E. Bergsveinssyni og
var ferðinni heitið austur á
sanda.
Ég var fyrir löngu búinn að
ráðgera þessa ferð, sem var far-
in til þess að sjá með eigin
augum þær torfærur, sem svo
mörgum sjómanninum hefir orð
ið örðugt yfirferðar, þegar þeir
hafa verið svo ólánssamir að
sigla skipum sínum á land
þarna, sem of oft hefir komið
fyrir, og þá oft leitt af meiri
og minni manndauði. Ennfrem-
ur fór ég að sjá skýlin sem
Kvennadeildir Slysavarnafé-
lagsins hafa látið byggja á hin-
um ýmsu stöðum, þar sem tíð-
ust hafa verið skipsströndin.,
og hætturnar mestar. Ég hefi
oft siglt meðfram þassum stöð-
um og athugað þá á uppdrætti,
en mér gat aldrei komið til hug-
ar, að hætturnar væru eins al-
varlegar, eins og ég sá í þess-
ari ferð. Það 'er því ekki alveg
út 1 bláinn að konurnar settu
sér það mark að gera það sem
þeim var auðið til bjargar þeim
mönnum, sem bærust á land
víðsvegar á söndunum. Enda
eru þær búnar að reisa þarna
austurfrá hvorki meira né
minna en sjö skipbrotsmanna-
skýli, svo vel búin að klæðnaði,
rúmfötum og matvælum, sem
bezt verður á kosið í útihúsi.
Ég held að mér sé óhætt að
fullyrða það, að enginn þarf að
líða skort í nokkra daga, þó
fjölmenna skipshöfn bæri þar
að garði, enda hægt í sæmilegu
skygni að gera vart við sig með
því að skjóta upp ragettu. Er
því ástæðulaust að yfirgefa
skýlin fyrr en mannhjálp berst
frá næstu bæjum. Þetta allt
hefir kostað mikið fé, og hafa
konurnar aflað þess með fram-
lögum almennings á ýmsan,
hátt.
Ennþá hugsa þær sér að búa
skýlin betur út af ýmsum ör-
yggistækjum, sem eru nokkuð
dýr, og eru nú konurnar í
Reykjavík að undirbúa hluta-
veltu meðal annars til að afla fé
í þessu skyni.
Reykvíkingar munu nú sem
fyrr leggja þessu góða málefni
lið, hver eftir sinni getu, þegar
konurnar koma og heimsækja
þá.
Þess skal og getið að á Meðal-
landssandi þar sem fyrsta
kvennadeildarskýlið var byggt
er búið að reisa stikur með
ströndinni á 22 km. vegalengd
með ör sem vísar leiðina að
skýlinu og svo þaðan að næsta
bæ, Lyngum, og er það 15 km.
Guðbjartur Ólafsson.
Margí er nú til
í matlxm
Lundi,
Norðlenzk saltsíld,
Ný faxasíld,
Nýtt hrefnukjöt,
Hákarl og harðir
þorskhausar,
Ný lúða,
Frosinn sjóbirtingur,
Úrvals saltfiskur
í 25 kg. pökkum.
FISKBÚÐIN
Hverfisg. 123. Sími 1465.
Hafliði Baldvinsson.
Útbreiðið Tímannl
„I»ú átt að virða
sjálfan
(Framháld, af 2. síBu)
— Og farðu nú heim til þín
og legðu þig, góði minn.
En nú kemur húsbóndinn
heim, greindur maður og
skemmtilegur, stilltur og glað-
vær, og gamla konan kemur
með kaffið og við spjöllum um
eitt og annað á víð og dreif.
Margt hefir nú breytzt á þeim
50 árum, sem liðin eru frá því,
að þau byrjuðu hjúskap í Lokin-
hömrum, þar sem jafnan voru
um 20 manns í heimili og alls
um 50 manns í dalnum og ekki
nema örskotslengd milli bæj-
anna. Þá var safnazt saman og
unað við gleðskap og spilagam-
an um helgar, en jafnan þjóð-
legt bókmenntalíf á heimilum.
Og það leynir sér ekki, þó að
lítið sé um það talað, að með
söknuði og þrá minnast hjónin
stóru, myndarlegu sveitaheim-
ilanna frá fyrri árum sínum.
Þau hjón fluttust frá Lokin-
hömrum að Ytrihúsum í Dýra-
firði. Þau ræða um veruna þar
og kynninguna við þá bræður á
Núpi, Kristinn og séra Sigtrygg.
Það eru óvenjulegir menn og
studdu hvor annan á margan
hátt, en flestir misskildu séra
Sigtrygg, a. m. k. lengi framan
af.
Svo fluttu þau suður haustið
1923. Þá átti að njóta togara-
gróðans. Gísli var þá að fylla
fimmta áratuginn.
— Ég var fjórar vertíðir á
togara, segir hann. Þá hætti ég,
því að ég fann að ég var orðinn
of gamall til þess og engin
framtíð í því fyrir mig, en það
var sízt erfiðara, en það sem
maður var vanur að fást við.
Talið barst að lífskjörum al-
mennings fyrr og nú. Það má nú
margt á milli vera. Hvað skyldi
verða úr unglingunum, sem
liggja í bælinu fram yfir há-
degi? Undan öllu er kvartað.
Allt þykir erfitt. Allt er van-
metið, sem vel er gert og stöðugt
meira og meirí heimtað sem
sjálfskylda af öðrum. En þetta
gefur fólkinu hvorki þroska né
hamingju.
Það var talað um það 1 út-
varpinu nýlega að æskufólkið
núna væri betur undir lífið búið
en fyrri kynslóðir. Við mættum
ætla að svo væri. Einhvers
staðar ætti að sjá stað allra
miljónanna, sem varið er til
menntamála og (ekki kunnu
unglingarnir áður logsuðu o. þ.
h. sér til sjálpar. En þetta er
bara ekki nóg. Því aff takist ekki
aff kenna unglingunum aff
leggja sig fram og vera trúir í
starfi, verða þeir aldrei ham-
ingjusamir menn.
Þetta var lausleg skyndiheim-
sókn aðeins, en hvað sem um
þessa endursögn hér má segja,
fannst mér þegar ég kvaddi og
fór, að ég hefði orðið margs var,
sém vert væri að þekkja og
skilja. En ef til villl liggur það
að verulegu leyti í persónulegri
snertingu við gömlu hjónin.
H. Kr.
Auglýsendur!
Hafið þér athugað að lesend-
um Tímans fjölgar sífellt i
Reykjavík og flestum öðrum
kaupstöðum og að Tíminn er
útbreiddasta blaðið yfirleitt í
kauptúnum og sveitum um land
allt.
AffHlýeMf i TímaniHB.
Virkjiin Þjórsá
(Framhald af 1. síOu)
ar athuganir á virkjunarmögu-
leikum þar. Síðan hefir félagið
látið lítið til sín heyra og hefir
jafnvel verið haldið, að það
væri úr sögunni. Svo mun þó
ekki og hefir heyrzt, að það hafi
haldið stjórnarfund á síðastl.
sumri. Má vera, að rannsóknir
þær, sem nú er verið að gera,
hafi vakið það til lífsins.
Atvinnumálaráöherra mun
fyrir nokkru hafa látið hefja
athugun á því, hvernig um-
ræddum eignarrétti Titanfélags
ins sé háttað og ýmsum öðrum
atriðum í því sambandi. Virkj-
unarleyfi hefir félagið engin
hér á landi.
Arnarhvols-
byggingin
(Framhald af 1. síðu)
Á hæðinni f-yrir ofan dómsal-
inn verða fimm herbergi handa
dómurum, stór stofa handa
dómurum, snyrtiherbergi, bún-
ingsherbergi, aðsetur hæsta-
réttarritara og vélritara.
Hæstaréttarbyggingin er frá-
skilin Arnarhvolsbyggingunni,
þótt hún sé í beinu áframhaldi
af henni, því að innangengt er
ekki á milli bygginganna.
Hæstiréttur ætti að geta flutt
í hið nýja húsnæði fljótlega
eftir áramótin, ef gjaldeyrir
fæst fyrir því efni, sem kaupa
þarf frá útlöndum til þess að
ljúka byggingunni.
Vinnið ötuliega fgrir
Tímann.
„SÚÐIN”
vestur og norður til Þórshafn-
ar um miðja næstu viku. Skip-
ið fer beint til Patreksfjarðar
og þaðan um Vestfjarðahafnir,
Húnaflóa, Skagafjörð, Siglu-
fjörð, Akureyri, Húsavík, Kópa-
sker og Raufarhöfn til Þórs-
hafnar. Á Þórshöfn snýr skipið
við og fer suður aftur með við-
komu á Akureyri, Siglufirði og
Vestf j arðahöfnum.
Vörum veitt móttaka dagana
til næstu helgar. Pantaðir far-
seðlar óskast sóttir á mánudag.
8 „ESJA”
verður í vélahreinsun á Akur-
eyri fram á mánaðamót, en fer
þá suður með viðkomu á Siglu-
firði, ísafirði, Bíldudal og Pat-
reksfirði. Eftir suðurkomu fer
skipið venjulega strandferð
austur um land til Siglufjarðar
og Akureyrar. Móttaka á vörum
verður auglýst síðar.
„Hvanney”
D
til Hornafjarðar, Djúpavogs,
Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarð-
ar. Vörumóttaka árdegis í dag.
(jcttnla Síó
Hættulegir
félagar
(Dangerous Fartners)
Framúrskarandi spennandi
amerísk sakamálamynd.
James Craig,
Signe Hasso,
Edmund Gwenn.
Sýnd kl. 5 og 9.
Börn innan 16 ára fá ekki
aðgang.
K555S555S55555555555555555555555555555
jHpoti-Síc
Samsærið
Cowboy Commandos
Spennandi kúrekamynd.
Aðalhlutverk:
Ray Corrigan
Dennes Moore
Max Terhune.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sími 1182.
Bönnuð fyrir börn innan 16 ára.
ia Síó
Anna og Síams-
konungnr.
Hin mikilfenglelga stórmyni.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum yngri én 12 ára.
Ást og ofnæmi.
Bráðskemmtileg gamanmynd
með: Noah Beery jr., Martha
O’Driscoll, Guadaljara Trioið
og grínleikarinn Fuzzy Knight.
Aukamynd: Baráttan gegn of-
drykkjunni. (Vegna áskoranna).
JjarHarkíó
Töfraboginn
(The Magic Bow)
Hrífandi mynd um fiðlusnill-
inginn Paganini.
Stewart Granger
Phyllis Calvert
Jean Kent.
Einleikur á fiðlu:
Yehudi Menuhin.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Hjartans þakkir vottum viff öllum nær og fjær, fyrir
auffsýnda samúff og hluttekningu við fráfall og jarffarför
sonar okkar og bróffur,
Hróbjartar Jónssonar
Miff-Grund.
Þorgerffur Hróbjartsdóttir,
Jón Eyjólfsson og börn.
INNILEG ÞÖKK
öllum þeim, sem glöddu mig og sæmdu með heimsókn,
gjöfum og gæfuóskum á 85. ára afmælisdegi mínum 27.
sept. n. 1.
SIGTRYGGUR GUÐLAUGSSON Á NÚPI.
Hin margöftirspurða saga af Mary O’NeiIl
Kona var
mér gefin
eftir hinn heimsfræga
brezka skáldsagnahöfund
HALL CAINE
er komin í bókabúðir.
Sagan af Mary O’Neill
er stórbrotin ævAsaga í|’
skáldsöguformi, er lýsir
ástum og æviraunum
fagurrar stúlku.
Sagan af Mary O’Neill
hefir verið þýdd á fjórt-
án tungumál og farið sig-
urför um allan heim.
BÓKAÚTGÁFAN
„FREYJA".
| Jólablaðsauglýsingar
Þeir, sem ætla að auglýsa í Jólablaði Tímans, eru vin-
samlegast beðnir að senda auglýsingarnar sem allra fyrst,
því að fram úr þessu verður byrjað að prenta blaðið.
Munið, að því fyrr sem auglýsingarnar berast, þvi meiri
möguleikar eru á að koma jólablaðinu í tæka tíð til les-
endanna.