Tíminn - 28.10.1947, Qupperneq 1
RITSTJÓIII:
ÞÓRARINN ÞÓRARIN BSON )
(
0TGEFANDI: J
FRAMSÓKNARFLiOKKURINN \
Simar 3368 og 4373 t
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
( RirsTjóRAfcKmwmyuM:
\ SDDUHÚSI, LincUrgötu B A
Símar 3368 •* 4Bf>
\ AFGREIÐSLA, INNHEtMTA
) CXJ AUGIiÝSINGASKRIVBTOFA:
\ EDDUHÚBI, Lindargrötu B A
S
\ Siml 3338
(
31. árjg.
TtMINN, þriðjudaginn 38. okt. 1947
197. blað
ERLENT YFIRLIT:
Sleppur fsland við
næstu styrjöld ?
-- 'TT— - - - ,~,v • -T«
flvar verður barizt aðallega, ef til styrjaldar
i
kcmur milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna?
Í „ -- ----------
Meffal ýmsra hernaffarfræffinga virffist gæta þeirrar skoffunar, '
aff löndin á Norffurpólssvæffinu verffi einn helzti orrustuvöllurinn, i
ef til styrjaldar kemur milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Einkum gætti þessarar skoffunar fyrst eftir stríffslokin. í seinni
tíff hafa hins vegar fleiri og fleiri látiff þaff álit uppi, aff norffur-
svæffiff, — og er þá einkum átt viff Alaska, Grænland, ísland og
Svalbarffa, — muni ekki koma eins mikiff viff sögu, ef til styrjaldar
kemur, og haldiff var fram um skeiff. Meffal þeirra, sem nýlega
hafa látiff þetta álit uppi, er kunnur sænskur hernaffarsérfræff-
ingur, Baldt-Christmas, sem hefir skrifaff greinar í Göteborgs
Handels- och Sjöfartstidning um hernaffarmál.
Þeir, sem hafa álitið, að norð-
ursvæðið yrði einn helzti or-
ustuvöllurinn í næstu styrjöld,
hafa byggt það á því, að Banda-
ríl^in myndu nota stöðvar á
Grænlandi og íslandi til þess að
halda uppi loftsókn gegn Sovét-
ríkjunum. Mótmæli Dana og ís-
lendinga gegn slíkum hernaðar-
aðgerðum eru ekki talin líkleg
til þess að hindra þær, ef
Bandaríkin hefðu þær í huga,
þar sem víst þykir, að stórveldin
muni ekki fremur í næstu styrj-
öld en hingað til virða hlutleysi
smáþjóðanna, þegar stríðshags-
munir þeirra eru annars vegar.
Bandaríkin myndu í styrjöld við
Sovétríkin að líkindum hernema
bæði Grænland og ísland, en
Rússar myndu láta hernám
ríkjanna á meginlandi Evrópu
verða sitt fyrsta verk, að svo
miklu J^ýti, sem þeir kæmu því
við.
Hinir, sem halda fram þeirri
skoðun, að ekki verði barizt
verulega á norðursvæðinu í
næstu styrjöld, byggja hana á
því, að Bandaríkin muni aðeins
nota stöðvar sínar á Grænlandi
og íslandi í varnarskyni, því að
Rússar eiga hægast með að
sækja á hendur þeim þá leið.
Hins vegar munu Bandaríkin
fyrst og fremst sækja að Rúss-
um að sunnan eða frá stöðvum,
sem þeir myndu hafa í Tyrk-
landi, Iran, Irak og Pakistan.
Það þarf ekki annað en að
líta á landabréfið til að gera sér
ljóst, að Bandaríkjunum væri
það margfallt auðveldara að
heyja loftsókn gegn olíunám-
um og helztu iðnaðarborgum
Sovétríkjanna frá þessum
löndum en frá Grænlandi og
íslandi. Flugleiðin myndi þá
styttast í 3—5 klst. flug í stað
10—16 klst. flugs. Flugvélarnar
gætu þá flutt mun meira af
sprengjum í hverri ferð og
áhafnirnar gætu þá verið fá-
mennari. Auk þess eru veður-
skilyrði betri á þessum slóðum.
Loftsókn frá þessum löndum
yrði því miklu auðveldari og
áhrifameiri en frá íslandi og
Grænlandi.
Margt bendir til, að Banda-
ríkjamönnum yrði auðvelt að fá
bækistöðvar í þessum löndum.
Bandaríkin hafa veitt Tyrkjum
stórlán til vígbúnaðar og verður
það m. a. notað til að bæta
hafnarskilyrði þar og leggja bíl-
vegi um landið, svo að liðflutn-
ingar verði greiðari til norður-
landamæranna, ef Tyrkir þyrftu
á hjálp að halda. Formaður
tyrkneska herforingjaráðsins
dvelur nú í Bandaríkjunum,
ásamt ýmsum helztu samstarfs-
mönnum sínum, og ræða þar
við fulltrúa Bandaríkjahersins
um varnir Tyrklands. í Iran
virðast Bandaríkjamenn hafa
náð sterkum ítökum og eiga
mjög vingott við stjórnina. Irak,
Transjordania og Pakistan
munu að öllum líkindum fylgja
Bretum að málum og Banda-
ríkin því fá stöðvar þar, ef
Bretar væru með í stríðinu.
Reynist þær ályktanir réttar,
sem hér hafa verið raktar, virð-
ist hættan af verulegum styrj-
aldarátökum á norðursvæðinu
minni en oft hefir verið haldið
fram í seinni tíð. Ef til átaka
kæmi þar, stafaði það þá fyrst
og fremst af því, að Rússar
hyggðust að sækja Bandaríkin
heim, og vildu þvi brjóta niður
varnir þeirra á þessum slóðum.
En ætli Rússar að g*ra árás á
Bandaríkin, eiga þeir ekki aðra
skemmri leið að fara.
ERLENDAR FRETTIR
De Gaulle hefir haldið ræðu
og krafjzt þess, að franska
þingið verði rofið. Þingið kemur
saman i dag eða hálfum mánuði
fyrr en upphaflega var ætlast
til.
Bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningar fóru fram í Frakk-
landi á sunnudaginn á þeim
stöðum, sem þeim lauk ekki
fyrra sunnudag. Úrslit eru enn
ekki kunn til fullnustu, en Ijóst
er þó, að fylgi de Gaulle hefir
enn aukist, en fylgi kommún-
ista minnkað. Jafnaðarmenn
standa í stað.
Tyrkir hafa sent sameinuðu
þjóðunuih kæru á hendur Rúss-
um fyrir undirróður í Tyrklandi
og áróður gegn Tyrkjum í öðr-
um löndum.
Brezka stjórnin hefir ákveðið
að minnka verklegar fram-
kvæmdir um 5200 milj. kr. á
næsta ári, en auka útflutnings-
framleiðsluna að sama skapi.
Fjölmenn samkoma
Framsóknarmanna
í Vík
Framsóknarfélag Vestur-
Skaftafellssýslu hélt samkomu í
vík síðastliðinn laugardag. Er
það einhver fjölmennasta sam-
komá, sem haldin hefir verið í
Vík um langt skeið.
Samkoman hófst með ávarps-
orðum Óskars Jónssonar. Því
næst flutti hinn nýi þingmaður
kjördæmisins, Jón Gíslason,
ræðu. Þá sýndi Kjartan Bjarna-
son kvikmynd. Næst flutti Ey-
steinn Jónsson menntamála-
ráðherra ræðu, en þá sýndi
Kjartan aftur kvikmyndir, með-
al annass- Heklukvikmynd, sem
vakti mikla hrifningu. Á milli
ræðanna var sungið.
Um kvöldið var svo dans.
Skemmtunin fór í alla staði hið
bezta fram og var hin ánægju-
legasta.
Áróðursbæklingar Jugoslava brenndir
Olíuflutningaskipið Jildred”
strandaði í gær við Járnbarða
á Snæfellsnesi
Mannbjörg varð — Skiplð var sag’t sokklð
Ilollenzka olíuskipiff „Mildred" strandaffi viff Járnbarffa á Snæ-
fellsnesi seint í fyrrinótt effa í gærmorgun. Búiff var í gær aff
bjargá allri áhöfninni, en þaff voru alls 12 menn. Sjö þeirra yfir-
Það er mikil togstreita milli ítala og Júgóslava um Triest. Júgósiavar
vilja umfram allt ná borginni og héraöinu umhverfis hana undir sig og
reka magnaðan áróður í því skyni. — Hér á myndinni sést ítalskt fólk bera
áróðursbæklinga Júgóslava og kommúnista á bál.
Nýr flugvöllur á hólmunum
við ósa Eyjafjaröarár?
Flisgvöllurinn á Melgerðismelum á óhentugum
stað og í niðurníðslu
Nú fyrir helgina fóru þeir flugvallastjóri ríkisins og flugmála-
stjóri norffur til Akureyrar. Var erindi þeirra m. a. þaff aff athuga
um byggingu nýs flugvallar í nágrenni Akureyrar.
Eins og kunnugt er var flug-
völlurinn á Melgerðismelum í
Eyjafirði byggður af brezka
hernámsliðinu á stríðsárunum.
Er völlurinn aðeins ein braut
frá norðri til suðurs, byggð
þannig, að lag af malbiki er
sett ofan á melinn sjálfan. —
Vellinum hefir verið mjög lítið
við haldið, og er hann því kom-
inn í niðurníðslu, og er talið, að
til hans þurfi að kosta stórfé, svo
að hann verði þannig, að hann
fullnægi þeim kröfum, sem
gerðar eru til þannig flugvalla.
Auk þess, hversu flugvöllurinn
er lélegur, er hann á mjög ó-
hentugum stað, þar sem hann
er í mikilli fjarlægð frá Akur-
eyrarbæ.
Af þessum ástæðum mun
helzt hafa verið lagt til mál-
anna, að byggja alveg nýjan
flugvöll og hafa hann í ná-
grenni Akureyrar. Munu þeir
f lugvallastj óri og flugmála-
stjóri hafa rætt þessi mál við
ráðandi menn á Akureyri, en að
svo komnu máli hefir ekkert
verið ákveðið, hvort nýr völlur
verður byggður eða ekki. Var
aðeins ákveðið að láta fara
fram rannsókn og mælingar á
hólmunum og leirunum við ósa
Eyjafjarðarár með það fyrir
augum, að þar mætti fá hent-
ugt svæði fyrir nýjan flugvöll.
Mun undinn bráður bugur að
því að ljúka þeim athugunum,
en síðan tekin ákvörðun um
hvort nýr völlur verður byggður
eða sá gamli endurbættur
Málverkasýning
• •
Orlygs Sigurðssonar
Örlygur Sigurðsson (skólameistara á
Akureyri) opnar málverkasýningu í
Listamannaskálanum í dag. Hefir
hann áður haft málverkasýningar, er
vakið hafa mikla athygli.
Góð síldveiði vestra
Þrjú síldarskip á leið
til Siglufjarðar
Síðustu daga hefir mikið af
síld veiðst í ísafjarðardjúpi, að-
allega í ísafirði, sem gengur
lengst inn úr Djúpinu. Hefir
síldin aðallega verið veidd í
„lása.“ Er talið, að um mjög
mikla síld sé að ræða á þessum
sló&i,m.
Bræðsla mun hefjast hjá síld
arverksmiðjunum í Siglufirði á
miðvikudaginn kemur. Hafa
þessi skip flutt síld til Siglu
fjarðar nú þegar: Ernir 426 mál
Grótta 1522 mál, Fanney 874
mál. Ernir eru að losa nú í ann
að sinn. Von er á Finnbirni
Gróttu og Narfa að vestan með
fullfermi af sild. Ennfremur
munu fleiri skip bætast við
bráðlega, bæði til að veiða og
flytja síld til Siglufjarðar.
Sama og engin síld veiddist
hér á sundunum eða á Kolla-
firði yfir helgina. Einhverjir
bátar voru þó að leita að slld á
þessum svæðum, en urðu lltils
varir. Þó mun einn bátur hafa
fengið nokkra síld í minni Hval-
fjarðar.
gáfu skipiff í björgunarbáti snemma í gærmorgun og náffu þeir
landi um nónbil í gær. Fimm skipsmanna var bjargaff meff þeim
hætti, aff skotiff var út línu og þeir dregnir í land. — Þegar blaffiff
í'rétti síffast aff vestan í gærkvöldi var skipiff sagt sokkiff.
Kl. 7,55 í gærmorgun tók loft-’
skeytastöðin í Reykjavík við
nayðarkalli frá hollenzka olíu-
skipinu „Mildred." Var það sagt
strandað við Malarrif á Snæ-
fellsnesi. Loftskeytastöðin til-
kynnti Slysavarnafélaginu þetta
Degar í stað.
Slysavarnafélagið hófst þegar
handa, náði sambandi við botn-
vörpunginn Akurey og bað hann
að fara á strandstaðinn. Er
Akurey kom á vettvang um kl.
9 í gærmorgun reyndist skipið
strandað við Járnbarða, milli
Dritvíkur og Hólahóla, en ekki
við Malarrif. Skipshöfnin á Ak-
urey sá enga hreyfingu á skip-
inu, enda komst togarinn ekki
nær en i 8—9 hundruð metra
fjarlægð sökum brims.
Slysavarnafélagið hafði einn-
ig símað til Arnarstapa á Snæ-
fellsnesi og beðið björgunar-
sveitina þar að fara á vettvang.
Brást hún að vonum vel við og
lagðL þegar af stað með björg-
unartæki og annan útbúnað.
Skipstjórinn á Akurey símaði
Slysavarnafélaginu undir eins
hvar hið strandaða skip væri, og
jafnframt, að hann fengi ekki
aðgert. Símaði Slysavarnafélag-
ið til Sands og bað um aðstoð
þar, er það frétti hve utarlega á
nesinu skipið var strandað.
Lagði björgunarsveitin á Sandi
þegar af stað, ásamt lækni, í
þrem jeppum og tveimur vöru-
flutningabifreiðum. Voru alls
milli tuttugu og þrjátíu manns
í förinni.
Þegar Sandarar komu á
strandstaðinn var björgunar-
sveitin frá Arnarstapa þar fyrir
og hafði þegar skotið línu til
skipsins og dregið í land þá
fimm menn, sem enn voru eftir
um borð er sveitin kom á vett-
vang. Þeir fimm, sem þarna var
bjargað, voru Snæbjörn Stef-
ánsson skipstjóri, einl íslend-
ingurinn um borð, en hann var
leiðsögumaður skipsins, svo og
skipstjórinn, tveir stýrimenn og
bátsmaður.
Um hina 7 var þá ekki vitað
annað en það, að þeir höfðu
yfirgefið skipið í björgunarbáti
áður en Arnarstapamenn komu
á vettvang. Var jafnvel búist
við, að bátinn hefði rekið til
hafs, enda var vindur hvass af
suðri. En þegar Sandarar voru
á heimleið kom í veg fyrir þá
Maður frá Öndverðunesi. Sagði
hann þeim að björgunarbátur-
inn hefði náð þar landi milli
klukkan þrjú og fjögur og voru
bátsverjar allir heilir á húfi.
Skipið strandaði á skeri. Botn
var þar illur og brim mikið. Var
skipið mjög tekið að brotna ár-
degis í gær, en í gærkvöldi, er
blaðið hafði síðast fregnir að
vestan, var það sagt sokkið. —
„Mildred" var ujn 700 smálestir
að stærð og var hér í flutningum
fyrir Olíufélag íslands h.f.
Samningar sjómanna
og skipaeigenda
Samningar hafa nú tekizt
milli Skipaútgerðar ríkisins og
Eimskipafélagsins annars vegar
og stýrimanna, matsveina, véla-
manna og veitingaþjóna á skip-
um þessara tveggja aðila hins
vegar um kaup og kjör fyrst um
sinn. Var samið þannig, að fyrr-
verandi samningar skyldu gilda
framvegis, en þeim mætti þó
segja upp með mánaðar fyrir-
vara af beggja hálfu.
Enn hafa samningar ekki tek-
izt milli háseta á skipunum og
skipafélaganna, en líkur eru
taldar til, að þeir samningar
takizt, svo að ekki þurfi að óttast
stöðvun á strandferðaskipunum
eða skipum Eimskipafélagsins.
Norræna félagið býð-
••
ur Arnulf Overland
*
til Islands
Norræna félagið hefir nýlega
boðið norska skáldijju Arnulf
Överland hingað til íslands til
þes% að halda hér fyrirlestra og
lesa upp úr verkum sínum.
Överland er einn merkasti og
víðkunnasti rithöfundur Norð-
manna og býr hann nú í heið-
ursbústað norska ríkisins fyrir
skáld. Þannig hefir norska ríkið
heiðrað hann meira en nokkurn
annsin núlifandi rithöfund.
Svar frá skáldinu hefir ekki
borizt ennþá.
Ný efnalang
í dag tekur til starfa hér i
bænum ný efnalaug, sem Uindin
heitir. Var blaðamönnum boðið
að skoða þana í gærdag. Efna-
laug þessi er búin fullkomnum
vélurs til kemiskrar fatahreins-
unar og pressunar.
Efnalaugin Lindin er til húsa
í Skúlagötu 51, en hefir annars
afgreiðslu í Hafnarstræti 16, þar
sem einnig verður hraðpressun
í framtíðinni. Geta meRji þá
gengið þangað inn og fengið föt
sín pressuð, meðan þeir bíða
eftir þeim í til þess gerðum klef-
um. Eru slíkar pressur mjög
vinsaplar erlendis.
í efnalauginni er fullkomin
amerisk hreinsunarvél, sem
skilar fötunum hreinsuðum og
þurrum. Einnig eru í efnalaug-
inni fjórar pressur og í fram-
tíðinni verður þar einnig litun-
arstöð fyrir föt. Efnalaugin er
eign samnefnds hlutafélags og
eru i stjórn þess Sverrir Sigurðs-
son, Gunnar Pétursson og Edvin
Árnason.
í gærkvöldi