Tíminn - 11.12.1947, Side 1

Tíminn - 11.12.1947, Side 1
Ritstjóri: ) Þórarinn Þórarinsson J Fréttaritstjóri: ) Jón Helgason IÚtgefandi —'————,--------J Skrifstofur í Ectduhúsinu Ritstjórnarsímar'. 4373 og 2353 Afgteiösla og auglýsinga- \ sími 2323 Prentsmiöjan Edda ! i--------------------------— 31. árg-. Reykjavík, fimmtudaginn 11. des. 1947 330. blaö Síór/iýsí K.Á. tekib til notkunar Hið nýja stórhýsi Kaupfélags Arnesinga að Selfossi. — (Ljósm.: Guðni Þórðarsson). Skáldsaga séra Frið-1 riks um Sölva kom- in úí í dag kom út fyrra bindi skáldsögu séra Friðriks Friðrikssonar um Sölva. Þeir eru þó margir, sem áður hafa haft nokkur kynni af Sölva séra Fciðriks, því að hann hefir oft lesið upp kafla úr henni á fundum og samkom- um. Margir vinir hans hafa hvað eftir annað lagt að honum að leyfa útgáfu sög- unnar, en hann jafnan verið tregur til. Ný hefir hann þó Dr. Friðrik Friðriksson. loks látið tilleiðast, en segir þó í formála, að sér sé nauð- ugt að senda Sölva sinn út í lífið meðai bráðókunnugs fólks. Séra Friðrik getur þó verið viss um það, að Sölva hams verður hvergi illa tekið, því að hann mun afla sér varanlegra vinsælda við fyrstu kynni, ekki síður en höfundurinn hefir sjálfur gert á lífsleiðinni. Hinir mörgu vinir séra Friðriks gleðjast yfir því, að sagan skuli nú loks birtast á prenti, svo að alrnenningur á þess kost að njóta hennar. Sölvi er viðamikið skáld- verk. Síðari hlutinn mun koma út i sambandi við átt- ræðisafmæli séra Friðriks, sem er 25. maí næstkomandi. Útgefandi Sölva er bóka- gerðin Lilja. Reglugerð um eigna- könnun komin út Framtalsdagnr í\- kveSSsBBs .81. des. Fjármálaráðuneytið' hefir nú gefið út reglugerð um eignakönnun samkv. lögum nr. 67, 1947. Samkvæmt henni er framtalsdagur á- kveðinn 31. des. og skal frain- tölum skilað til skaítaýfir- valda fyrir 1. febrúar 1948. Gilda þau framtöl einnig sem almenn skattframtöl fyrir árið 1948. Frá cg með 31. des. hætta allir ísl. peningaseðlar að vera löglegur gjaldmiðill manna á milli og til hvers konar annarra greiðslna, cg iæíur Landsbanltinn í té nýja seðla í stað hinna gömlu. Gömlu seðlarnir halda bó gildi sínu gagnvart Lands- bankanum framtalsdag og tíu næstu daga. Allt fyrir- komulag þessarar peninga- ‘nnköllunar mun nánar verða aualýst af Landsbankanum . . Sami maður má ekki skipta seðlum nema einu sinni, og skulu menn sýna nafnaskír- teini þegar skintin fara fram. Ýmsir bankar, spari- sjóðir og aðrar stofnanir munu og annast seðlaskiptin í umboði Landsbankans. Þá skal hver sá, er á fram- talsdegi á innstæðu í banka eða annarri lánsstofnun af- henda þeirri stofnun yfirlýs- ingu til staðfestingar á eign- arheimild sinni og sýna um leið nafnskírteini sitt. Öll innlend handhafaveð- bréf ber og að tilkynna til sérstakrar skráningar. Um framkvæmd eigna- könnunarlaganna sér sérstök framtalsnefnd, en skattayf- irvöld skulu þó veita henni a.ðstoð. Ekki veiðiveður í Hvalfirði Veður hefir að mestu hamla'ð veiðum í Hvalfirði seinustu tvo dagana. Heldur , virðist þó vera að breyta til (Framlwld d 2. síöu) Eitt mesta og glæsilegasta verzl- unarhús á tandinu utan Rvíkur ¥iSS£al viffi Egil TlBöParenseii kaupfélag's- stjjóra Kaupféiag Árncsinga hefir nú tekið hið nýja og veglega hús sitt að Selfossi til notkunar að öllu leyti. Var vefnaðar- vörir»eild kaupfélagsins opnuð í hinuin nýju húsakynnum í fyrradag, en áður var búið að taka í notkun efri hæðir húss- ins, og auk þess sölubúðir fyrir bækur, búsáhöld, rafmagns- og byggingavörur og matvörur. Talandi tákn um mátt samtakanna. Kaupfélag Árnesinga hefir nú leyst húsnæðismál sitt á hinn myndarlegasta hátt með byggingu stórhýsis, sem gnæfir yfir Selfossþorp og setur svip sinn á þorpið, sem mestu leyti upp í kringum kaupfélagið og starfsemi þess, sem nú er orðin mjög fjölþætt og umfangsmikil. Er þetta mikla átak Kaup- félags Árnesinga talandi tákn um samtakamátt sam- vinnufélaganna og sýnir glögglega, hvers þau eru megnuö. Smekklegasta vefnaðarvörubúð landsins. Það er meira virði en marg ur hyggur í fljótu bragði aö samvinnufélögin hafi fallegar og aðlaðandi búðir og skrif- stofur, því að í hvert sinn sem félagsmenn koma í slík- ar búðir, fá þeir nýja sönnun fyrir mætti samtakanna og úrræðum samvinnunnar. — Kaupfélag Árnesinga hefir nú tekið til starfa í húsnæði, sem félagsmennirnir geta verið stoltir af og bent öðr- um á sem fyrirmynd. Þar er nú sennilega smekklegasta vefnaðarvörubúð á landinu, og ennfremur er bókabúðin fulíkomnari en áður hefir þekkzt hér á landi. Hinar deildirnar eru cinnig eins fullkomnar og bezt ve'rður á kosið.___ -___ Lýsing á húsinu. Tíðindamaður Tímans fór austur að Selfossi í fyrradag og var výðstaddur, er hin nýja vefnaðarvörudeild var opnuð. Fjöldi félagsmanna kom Janga vegu að til þess að fagna þessum áfanga í starfsemi félagsins. Við tækifæri átti tíðinda- maðurinn eftirfarandi viðtal við Egil Thorarensen kaup- félagsstjóra. — Hvað er húsið stórt og til hvers ætlið þið aðallega að nota það? — Fyrst og fremst verður húsið notað fyrir verzlanir og skrifstofur. í kjallara eru geymslur, uppvigtun og járn- vörudeild. Á fyrstu hæðinni eru svo aðalsölubúðirnar •— vefnaðarvörudeild, bókadeild, búsáhaldadeild og matvöru- deild. Auk þess eru á þessari hæð afgreiðs’.a bifreiðanna. Eru sérstakir skápar fyrir hverja bifreið, og þangað sækja bílstjórarnir pakkana. sem bændur hafa pantað, og fara með þá um leið og þeii Kaupfélag-sstjórinn, Egill Thorar- ensen, vi3 skrifborð silt. sækja mjólkina. í gegnum pöntunardeildina eru af- greiddar allar vörur, sem bændur senda pantanir á. — Þar fer fram mestur hlut- inn af viðskiptum félagsins. Reynt hefir verið að vanda sem bezt til frágangs á öllu og gera búðirnar sem ha^,».n- legastar fyrir afgreiðslufólk og viðskiptavini. Á annarri hæð eru svo skrifstofur félagsinr-. Á ris- hæðinni er saumastofa, sem fé’agið rak áður í öðrum húsakynnum, og annast hún eingöngu karlímannafata- saum. Á þessari hæð verður einnig dömusaumastofa og stór kaffi- og sámkomusal- ur handa starfsfólkinu — Hverjir gerðu teikning- ar að húsinu og sáu um framkvæmdir? — Þórir Baldvinsson gerði útlitsteikingu að húsinu, en aðrar teikningar önnuðust húsameistararnir Skarphéð- inn Jóhannsson og Halldór Jónsson, sem hafði yfirum- sjón með innsmíði. Yfirsmið- ur var Guðmundur Eiriksson á Eyrarbakka, en húsgögn öll í búðir og skrifstofur smíðaði húsgagnavinnuverkstæðið Rauðará í Reykjavík. Stærð hússins er 40x13 y2 metir. Fjölþætt starfsemi K. Á. — Hverjar eru nú þelztu starfsgreinar Kaupfélags Ár- nesinga? — Auk verzlunarreksturs- ins rekum við iðnað, bifreiða- viðgerðarverkstæði, landbún- aðarvélaverkstæði, yfirbygg- ingaverkstæöi, járnsmiöa- verkstæði og saumastofu. — Við þessi störf vinna hjá fé- laginu um 80 manns. Auk þessa rekur félagið allum- fangsmikla flutninga á landi og hefir í daglegri notkun um 40 bifreiðar, bæði í suður- ferðum og einnig til mjólkur flutninga frá bændum að mjólkurbúinu, og flytja þeir bílar um leið vörurnar til bænda. FélagiÖ rekur einnig bú í Laugardælum, en þá jörð keypti það fyrir nokkr- um árum. Mun láta nærri, að hjá félagirui. vinni nú að jafn aði um 200 manns. Vörusala félagsins nam á seinástá ári rúmlega ellefu og hálfri miljón króna og greiddi fé’.agið þá 10% arð til félagsmanna sinna. Skymasterflugvél ferst á Labrador í gærmorgun var f arið að óttast um ameríska Skymast- erflugvél, sem átti að koma til Goose Bay flugvallarins á Labrador á þriðjudagskvöld- ið. Flugvél þessi var amerísk herflutningavél á leið til Westover. Farið var að leita vélarinnar í gænnorgun, og fannst flak hennar alllangt frá flugvellinum. Það voru leitarflugvélar, sem fundu flakið, og sást maður á ferli við það, en ekki er vitað nema fleiri séu á lífi. Alls voru í vélinni 29 menn, þar af var áhöfn 10 manns. Hjálparleiðangrur eru nú á leiðinni að ílakinu. Kaffikvöld F. R. á mánudaginn Næsta mánudagskvöld efn- ir ramsóknarf élag Reykj a- víkur til kaffikvölds í Breið- firðingabúð. Pálmi Hannesson segir þar frá Heklugosinu og sýnir skuggamyndir, en að því loknu sýnir Vigfús Sigur- geirsson Heklukvikmynd sína. Félagsmenn mega taka með sér gesti, og eru þeir beðnir að tilkynna þátttöku sína sem fyrst í skrifstofu Framsóknarflokksins í Eddu- húsi eöa i síma 6066.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.