Tíminn - 05.01.1948, Blaðsíða 2

Tíminn - 05.01.1948, Blaðsíða 2
TIMINN, mánudaginn 5. jan. 1948 2. blað clegi tii' dc ci fó í d ag-. Sólin kom upp kl. 10. 17. Sólar- iag kl. 14.52. Árdegisflóð kl. 0.15. Síðdegísflóð kl. 12.37. í* nótt. "■ Næturakstur annast Litla bíl- stöðin, sími 1380. Næturlæknir er í læknavarðstofu læknafélagsins í Æusturbæjars>*'4anum, sími . 5030. Uæturvöröur er í Reykjavíkur Ápóteki, sími 1769. Ösóttar skömmtunarbækur. ' Enn eiga margir Reykvíkingar E-ftir að sækja skömmtunarbækur ■-.ínar. Úthlutun þeirra átti að fara fram tvo daga milli jóla og nýárs, 4n þá voru aöeins 40 þúsund bækur ■íóttár, svo eftir urðu um 15 þús. fækur. Síðastliðinn föstudag var fsókunum úthlutað í Góðtemplara- Kúsinu, en aðsóknin var þá einnig íremur treg. Nú eru bækurnar af- greiddar daglega í úthlutunarskrif vtofunni í Austurstræti 10, og var þar löng biðröð allan þann tíma, sem skrifstofan var opin á laugar- daginn. Í.R.-bíUinil 22692. • Dregiö var í bílhappdrætti í- þróttafélags Reykjavíkur fyrir ný- 4rið. Vinningurinn, sem var ný- íeg De Soto-bifreið, kom upp á óiiða númer 22692. Getur sá Seppni því snúið sér til Sigurpáls 'Jónssonar, formanns félagsins.og fengið bilinn afhendan. Sigurpáll ór daglega við í skrifstofu ísa- '’oldarprentsmiðju við Ingólfsstr. Góður skíðasnjór um helgrina- Mörg hundruð æskufólks úr Reykjavík var á skíðum upp um fjöll og firnindi um helgina. Nokk- urt skíðafæri var komið á láglendi og ágætt á fjöllum uppi. Flest öll íþróttafélögin efndu til skíðaferða um helgina og hafðist margt fólk ' íð í skíðaskáluni félaganna og að lColviðarhóli aðfaranótt sunnu- dagsins. íslendingar fara á Vetrar- Ól.ympluleikina í Sviss Vetrar-Ólympíuleikirnir verða að “essu sinni haldnir í St. Moritz í Sviss. Er það einhver vinsælasti •kíðastaður ]^ir i landi, og sækja báhgað árlega fjöldamargir skíða- henn úr öllum löndum heims. — úhdirbúningur undir leikina, sem ,ram eiga að fara um mánaða- aótin næstu, er fyrir löngu hafin. ’iqgar á síðastliðnu sumri var bú- ,.ð. að . panta upp allt húsnæði, er istjhúsin þar í nágrenninu höfðu ;.;fir að ráöa. Ákveðið hefir verið, •ið íslendingar taki þátt í skíða- keppiíi, og hafa þessir skíðamenn Vérið - valdir til fararinnar: Magnús Bfynjólfsson og Guðmundur Guð- muhdsson frá Akureyri og Jónas Ásgeirsson frá Siglufirði. — Auk þeirra fara til leikanna héðan Ein- :.r Pálsson og Hermann Stefánsson, hó. ekki til þess að keppa þar. — Skíðamennirnir fara utan einhvern næstu daga. Árnað heilla ' Ijúskaparhcit sitt hafa gert ’nmnugt: Ungfrú Sigurveig Ástgeirsdóttir 'rá Syðri-Hömrum í Ásahreppi í Rangárvallasýslu og Þorsteinn Finnbogason frá Skálmarsnesmúla í Barðastrandasýsiu nú lögreglu- þjónn í Hafnarfirði. Ungfrú Bjarney .Sigurðardóttir Grenimel 14 og Ásbjörn Björnsson heildsali Bakkastíg 4 í Reykjavík. Ungfrú Edda Þórz verzlunarmær cg Magnús Valdimarsson verslun- armaður. Ungfrú Svava Árnadóttir Bala í T’ykkvabæ í Rangárvallasýslu. og Jón Árnason, Óðinsgötu 25 í Rvík. Ungfrú Guðrún Guðnadóttir, "láarima í Þykkvabæ, og Guðlaug- ur Árnason, Bala í sömu sveit. Ungfrú A>».a Gunnlaugsdótt- ir, Vesturgötu 22, og Hörður Krist- msson, Hringbraut 145, Reykjavík. ,, Ungfrú Ása Guðmundsdóttir, Sollagötu 3, og Ingi R. Helgason I jgfræðinemi, Hverfisgötu 100 B, Reykjavík. Ungfrú Sv^va Júlíusdóttir, Hörpu götu 4, og Óskar Sigurðsson bif- reiðastjóri, Miðtúni 50, Reykjavík. ‘Uiigfrú Gyða Strange, Njálsgötu 98, og Axel Nielsen, Meðalholti 11, Reykjavík. Ungfrú Valdís R. Blöndal, Tún- götu 51, og Birgir Frímannsson, Barónsstig 80, Reykjavík. Geíin hafa vcrið saman í hjónaband: Úngfrú Áuður Guðmundsdóttir og Magnús Randrup, hljóðfæra- leikari. Heimili þeirra verður að Vitastíg 1 í Hafnarfirði. Ungfrú Helga Hinriksdóttir og Sveinn Bjarnason bifreiðastjóri. — Heimili þeirra vröur að Brautar- holti 26 í Reykjavík. Ungfrú Guðleif Vigfúsdóttir, Holti, og Andrés Hannesson, vél- stjóri frá Eyrarbakka. Heimili þeirra verður í Vestmannaeyjum. Félagslíí Vndir þessum lið verða birtar örstuttar tilkynningar frá ýmsum félögum. Ódýrar auglýsingar Le ikhúsið Næsta sýning á miðvikudags- kvöldið. J ólatrésskemmtun Glímufélagsins Ármanns er í dag kl. 4,30 (skemmtunin í kvöld kl. 9,30) í Sjálfstæðishúsinu. Stúkan Víkingur heldur fyrsta fund sinn á árinu í kvöld á venjulegum stað og tíma. Há®sSc©B5a. Einhleyp kona vill gjarnan ger- ast ráðskona við sjó eða í sveit. Góð húsakynni og önnur þægindi áskilin. Tilboð, er greini slíkt, leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir hádegi föstudag 9. janúar, merkt: „Við sjó eða í sveit“. §MÍ^akeBEBEgIa. Tek að mér að sníða og máta dömu- og barnafatnaö. Elísabet Jónsdóttir, Sörlaskjól 5. Stúkan Framtíðin hefir fund og nýársfagnað í ]Myi’IíEIE“o Templarahöllinni kli. 8 í kvöld. i Nýr togari Karlsefni, hinn nýi togari h.f. Karlsefnis, útgerðarfyrirtækis GeirsThorsteinsonar, kom hingaö á laugardaginn. Er togarinn smíðaö- ur í skipasmíðastöð A. Hall í Aber- deen í Englandi. Fór togarinn á gamlársdag frá Englandi og reynd- ist mjög vel á heimleiöinni. Skinn eru ciýr, en hugkvæm stúlka og smekkleg getur prýtt kápuna sína á annan hátt. Það má nota snúrur og leggingar í staöinn, og það getur mira að sgja farið prýði- ícga á því. Þetta er hagkvæm og fremur kcstnaðarlítil leið til þess að „skinna” upp á gömlu kápuna, þótt eklii sc í bókstaflegum skiln- ingi. Á förnum vegi Blaöamannfélag íslands átti þess að minnast í gær, að hálf öld er liðin frá stofnun þess. Ég veit ei gerla, hversu almenningur í land- inu telur þetta félag merkilega stofnun, en okkur, sem að blaða- mennsku höfum unnið, er hún kær og svo þýðingarmikil í okkar augum, að vel e> þess vert að eyða fáeinum línum til þess að minnast hennar á slíkum tímamótum. Ókunnuga mun ef til vill furða á því, að íslenzkir blaðamenn skuli geta verið samhentir og samvinnu- þýðir innan vébanda félgasskapar síns, svo hart s em oft er deilt í stjórnmálablööum landsins og af miklum þunga. En það er þó eigi að síður svo, að ég hefi af fáum félögum kynni, þar sem menn eru eins vel samhentir i félagsstarfi og í Blaðamannafélaginu. Þar starfa Morgunblaösemnn og Tímamenn, Þjóðviljamenn og Alþýðublaðs- menn saman í fyllsta bróðerni og hafa ætíð gert, svo lengi sem ég þekki til. Félagið okkar er vett- vangur, þar sem við störfum allir saman af vinarhug og hlýju þeli. Það er eins og helgustu vé í gamla daga — menn leggja frá sér vopn- in, áður en gengið er á félagsfundi eða til annarra starfa í þágu fé- lagsins. f meira en áratug veit ég ekki til þess, að innan hlaðamanna stéttarinnar hafi neinn maður ver- ið svo vanþroska, að hann hafi reynt að gerast vargur í þeim véum. Vegna þessarar samstillingar hef- ir félaginu líka auðnazt aö leysa af höndum töluvert starf og all- merkilegt á undanförnum árum, ekki aðeins í þágu blaðamanna- stéttarinnar siálfrar, heldur einnig í þágu alþjóðar. Á >;ðustu árum hefir Blaðamannafélagið til dæmis staðið fyrir heimboðum erlendra blaðamanna til íslnnds og gert þeim kleift að kynnast sem bezt landinu og þjóðinni, atvinnulífi hennar og menningu. Er í því sam- bandi skemmst að miimast margra ágætra norskra blaðamanna, er hingað komu í boði B. f. síðast- liðj-f sumar. Með þessum hætti héfir verið unnið víðtækt land- kynningarstarf, er reynzt hefir mjög affarasælt. Að sama marki hefir Blaðamannafélagið einnig stefnt, að nokkru leyti að minnsta kosti, með því að senda fulltrúa á þing og samkomur blaðamanna í öðrum löndum. Þannig fóru tveir íslenzkir blaöamenn á alþjóðaþing blaðamanna í Prag síðastl. sumar. Og svo mætti margt telja. Hin hliðin í starfi félagsins veit inn á við og hefir sérstaklega mið- azt við það að gera blaðamönnum kleift að gegna hlutverld sínu sem bezt, auk þess sem leitazt hefir verið við að skapa blaðamönnum þau kjör, að sem starfhæfastir menn vilji við blaðamennsku fást. Þessi er viðleitni okkar, en störf okkar er ekki mitt að dæma. Þess er ekki að leynast, að við blaðamenn sætum oft nokkru að- kasti fyrir hroðvirkni og fljótíærni, og erum við þá gjarna bornir saman við. fyrirrennara okkar. Ég vil engum skugga varpa á þá. En á hitt leyfist mér ef til vill að benda, að venjulega gleymist að taka með í reikninginn, að hinir gömlu og góðu blaðamenn stýrðu litlum vikublöðum og höfðu að ætla má sæmilega rúman tíma til þess að skrifa greinar sínar eins og þeir kusu, aö þær væru úr garði : geröar. Nú eru komin dagblöð í ! stað vikublaðanna gömlu og miklu meiri vinnuhraða kraf»ct. Ég hygg, að það sé nú ekki óateenet. áð hver blaðamaður verði að skrifa allt að eina síðu á hverjum degi, dag eftir dag, ár út og ár inn, auk annarra starfa, er blaðaútgáfu fylgja, svo sem umbrots, prófarka- lesturs, samtala við fjölda manna og margs annars. — En hvað um það — við blaðamenn kvörtum ekki, hvorki yfir þeirri vinn". sem okkur er ætlað að inna af hönd- um né dómi almennings. Við lít- um meira að segja svo til, að við höfum ástæðu til að vera reifir og glaðir, þrátt fyrir það, sem stundum heyrist um okkur sagt, því aS okkur virðist sá dómur um okkur og ckkar störf mikilvæg- astur, að nú vill enginn, er . telst maður með mönnum, lengur án blaða vera, eins eða fleiri. J. H. SkákaHeMia! Fs*ÍE3ierkjasafíSí8rí!£,>S Skákflokkur alþjóðafrímerkja- klúbbsins „Swizzerland” efnir til bréfskákkeppni, sem liefst 1. jan. 1948. í hverjum hóp verða 12 þátt- takendur. Þátttökugjald jafnvirði 10 svissneskra franka í íslenzkum ónotuðum frímerkjum. Allir þátt- takendur fá bóka- eða frímerkja- verðlaun. Minnstu verðlaun eru jafnvirði þátttökugjaldsins. Frímerkjasafnarar hafa jafn- framt tækifæri til að skipta frí- merkjum. Allar upplýsingar gefur: Rudolf Bania, Lisany U. Rakovnika 238, Ceskoslovensko, sem stjórnar keppninni. Hann tekur einnig við þátttökugjöldum. Hafið þér lesið Myrkur um miðjan dag eftir snillinginn j Arthur Kostíer? Sæiig5íirk©nEir Tek sængurkonur heim og geng í hús. Upplýsingar í síma 2904. BfiVffiíSSEB0 ýmsar stærðir VERZLUN INGÞÓRS Selfossi. — Simi 27. ©ska eftás* tveggja herbergja íbúð. Fyrir- framgreiðsla. — Upplýsingar í sima 4 6 7 3. Karlmannaföt úr íslenzkum efnum. Allar venjulegar stæröir frá nr. 34 til 42. Einhneppt og tvihneppt. Verð frá kr. 348.00 j til kr. 595.00 Gott snið. Vanöaður frágangur. Einnig fyrirliggj andi karlmannavetrarfrakkar. ÚÍLTÍ M A Bergstaðastíg 28 :: :: Jörðin Gufá í Borgarhreppi er laus til kaups og á- ♦♦ «♦ ♦I búðar á næsta vori, ef viðunandi tilboð fæst. *♦ » *♦ ♦♦ :: Semja ber við undirritaðan eiganda og ábúanda. í: Guðmundur Ásmundsson Gufá. sem vilja ná með auglýsingar eða annað til sem allra flestra landsmanna, œttu að athuga, að Tíminn er les- inn á nœrri hverju heimili í flestöllum sveitum lands- ins, mjög mikið i mörgum kauytúnum og kaupstöðum, og að lesendum hans fer nú hraðfjölgandi í Reykjavík og nágrenni hennar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.