Tíminn - 14.06.1948, Qupperneq 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsinu
Ritstjómarsimar:
4373 og 2353
Afgreiðslu- og auglýs-
ingasími 2323
Prentsmiðjan Edda
32. árg.
Reykjavík, mánudaginn 14. júní 1948.
130. blað
IslendirLgar í boði borgarstjórncrinnar í Hatnborg
Rlynd þcssi var tekin í boði bæjarstjórnarinnar í Hamborg í ráðhúsi borgarinnar sl. mánudag. Árn'
Siemsen kaupmaður er að halda ræðu, en borgarstjórinn er þar slammt frá. Er kross á myndinni par
sem borgarstjórinn er. (Ejósm. Guðbjartur Ásgeirsson)
Skipshöfnin s«£ sfuarfjarííaríagaramnn
Seirprise í fo©ði borgarstjórans
Borgarsíjórinn í Hamborg hélt á mánudaginn var boð í ráð
liúsi borgarinnar, og var þangað boðið skipshöíninni af tog-
aranum Surprise frá Hafnarfirði sem var þá í Hamborg og
hafði komið þangað með fisk. í boði þessu var ennfremur
Árni Siemsen, stórkaupmaður í Lúbeck. Voru við þetta tæki-
íæri fluttar hjartnæmar ræður af borgarstjóranum í Ham-
borg og fulltrúum íslendinga.
I»að er gott að vera íslend-
íngur í Þýzkalandi.
Fólk í hafnarbæjunum í
Þýzkalandi ber mjög hlýjan
hug til íslands og íslendinga
um þessar mundir og eru við-
tökur þær, er þýzkir sjómenn
hafa fengið hér í Reykjavik
eftir styrjöldina, einkum í
vetur, orðnar víðfrægar víða
um Þýzkaland, enda hafa
þýzku blöðin ekki látið sitt
eftir liggja að skýra frá því
mikla vinarþeli, er komið hef
ir í ljós við þetta tækifæri.
Stingur þessi framkoma ís-
lendinga mjög í stúf við fram
komu flestra annarra þjóða
í garð Þjóðverja um þessar
mundir.
Síðastliðinn mánudag
hafði borgarstjórinn boð inni
til heiðurs íslendingum, og
var það haldið í þakklætis-
og viðurkenningarskyni fyr-
ir framkomu íslendinga í
garð Þjóðverja og einkum
móttökur þær, er skipsverjar
á togaranum Lappland fengu
hér í vetur, en þeir björguðu
skipbrotsmönnum af vélbátn
um „Björg".
Boð þetta var haldið í ráð-
húsi Hamborgar og hófst það
klukkan tvö eftir hádegi á
mánudaginn. Skipshöfnin af
togaranum Surprise var boð-
ið, en sá togari kom þá um
helging með fisk til Hamborg
ar og lagði af stað til íslands
um kvöldið. Var það eina is-
lenzka skipið, sem i Hamborg
var um þessar mundir.
Voru skipverjar sóttir á
stórum bíl niðúr á bryggju,
og þeim ekið til ráðhússins,
þar sem borgarstjórinn tók
sjálfur á móti hinum íslenzku
sjómönnum.
EngJn matveizla var hald-
in af skiljanlegum ástæðum,
en mönnum var gefið í staup-
inu og ræður voru fluttar.
Fyrstur talaði borgarstjórinn
sjálfur, sem er virðulegur
maöur, nokkuð viö aldur.
Mæltizt honum vel. Hann
rómaði mjög hug íslendinga
í garð þjóðverja og minntist
sérstaklega á móttökur þær,
er skipverjar á togaranum
„Lappland" fengu í Reykja-
vík, og svo aðrar þýzkar skips
hafnir, sem hingað komu í
vetur.
Þá talaði Árni Siemsen,
stórkaupmaður, og þakkaði
borgarstjóra fyrir lof hans í
garö íslendinga. Einnig tal-
aði Freymóöur Jóhannsson
fulltrúi íslenzku skipanna í
Hamborg.
Eftir ræðurnar var íslenzku
sjómönnunum sýnd ráðhús-
byggingin hátt og lágt, en þar
er margt merkra, sögulegra
muna og málverka. Er ráð-
húsbyggingin stórhýsi mikið
og fagurt í gömlum stíl og
varð tiltölulega lítið fyrir
skemmdum af völdum styrj-
aldarinnar.
Eftir þetta urðu íslenzku
sjómennirnir að hraða sér til
skips, því togarinn lagði af
stað til íslands þá um kvöld-
ið og kom til Hafnarfjarðar á
laugardagsmorgun.
lllllllllllll|llllll||llll||||tllll||||||||||||||||l||||IIHII|ll,lim
| Bernadotti greifi kom til i
H Rítodos í gæi'kveldi til þess aðl
| undirbúa friðarráðstefnuna þar.i
: Hann kvað ailt vera með kyrr-í
| um kjörum í Palestínu og vopna|
: hiéið allvel haidið.
1 t)m 40® Gyðingar, sem eru aðl
| flytja til Palestínu komu með|
: skipi til Tel Aviv í gær. Alliri
I vopnfærir karlmenn voru tekniri
| í vörslu *g verða í haldi meðani
| vopnahléið varir.
i Bernadotte fer í dag tili
i Kairó til fundar við leiðtogai
i Araba, sem konaa þar satnan ái
| fnndi ArababandalagslBs í dag. i
| Útvarprð í Kairo hefir sakað:
| GyðÍBg-a UBt vopnahlésrof íi
| Jerúsalena og sagt a* þeir hafif
| UHBið að því a* baeta hcrnaöar-i
: aðstöðu sÍBa í borginni. Eftir-i
| iitsmens hafa verið sendir ti11
| stöðva Gyðinga í borginni tili
i þess að rannsaka, hvað hæft sé:
: í þessum ásökunum,
•tlMIIIIIIIIIIHIIIIIIIUIIIIIIIIIIIII,111111111111,111,11111111111111
FjöSmenn og myndarleg vor-
hatíö Framsóknarmanna að
Þjórsártúni í gær
Vorhátíð Framsóknarmanna í Árness- og Rangárvalla-
sýslum var haldin að Þjórsártúni í gær. Veður var allgott, og
fór samkoman hið bezta fram. Fjölmenni var og skemmtu
menn sér hið bezta við ræður, söng, kvikmyndasýningar og
dans.
Helgi Jónasson,alþingismað
ur setti samkomuna, sem
hófst klukkan 3 e. h. Flutti
hann ávarp. Síðan fluttu ræð
ur þeir Eysteinn Jónsson ráð-
herra, Jörundur Brynjólfs-
son, alþingismaður, Ólafur
Halldórsson frá Króki og sr,
Sveinbjörn Högnason á milli
ræonanna ^söng biandaður
kór frá Selfossi undir stjórn
Ingimundar Guðjónssonar. í
honum eru um 25 manns. Þá
sýndi Vigíús Sigurgeirsson og
kvikmyndir og einnig kvik-
myndaði hann samkomuna.
Síðan var dansað fram eftir
kvöldi.
Samkoma þessi var öll hin
ánægjulegasta og fór hið
bezta fram. Mikið - var um
samkomuhöld þar austan
fjalls um helgina bæði á laug
ardaginn og sunnudaginn.
Víðkunnur danskur
leikari í heirasókn
Es* a£ áslesszksma
seííEgsas
Kominn er hingað til lands
víðfrægur leikari, sem er af
íslenzkum ættum. Er það leik
arinn Mogens Wieth, sem al-
mennt er talinn með fremstu
leikurum, sem nú eru uppi á
Norðurlöndum. Kemur hann
hingað í boði Norræna félags
ins og ætlar að leika í „Dauða
dansinum", eftir Strindberg
ásamt þeim Reumerthjónun-
um.
Wieth er ungur maður, að-
eins 28 ára að aldri. Hann er
af íslenzku bergi brotinn,
kominn af landshöfðingja, er
hér var á síðustu öld. Sonur
hans fór til Danmerkur að
leita gæfunnar. Ætlaði að
verða leikari, en svo fór, að
hann varð lögreglumaður.
Dóttir hans varð hins vegar
leikkona, og Mogens Wieth er
systursonur hennar.
Niðurjöfnun útsvara
á ísafirði lokið
Frá fréttaritara Tímans
á ÍSafirði.
Niðurjöfnun útsvara á ísa-
firði er nýlokið. Jafnað var
niður 2 milj. og 310 þús. kr.
á 870 gjaldendur. Útsvörin
hafa hækkað frá s.l. ári um
284 þús. kr. en gjaldendum
fækkað um 86. 28 gjaldendur
greiða yfir 10 þús. kr.
Hæstu útsvör eru þessi: M.
Bernhardsen skipasmíðastöð
kr. 70 þús. og sama 20 þús.
Kaupfélag ísfirðinga 50 þús.
Jóhann J. Eyfirðingur 37,600
kr. Smjörlikisgerð ísafjarðar
29,600 kr. Tryggvi Jóakims-
son 27,800 kr. og Hans Svane
lyfsali 19,200 kr.
Þrátt fyrir þessa miklu
hækkun útsvaranna er að-
eins varið til verklegra íram-
kvæmda einum 56 þús. kr.
Hitt allt til þeirra hluta á að
taka að láni. Útsvörin hér
munu vera ein þau hæstu,
sem til eru á landinu.
Vísitalan 319 stig
Kauplagsnefnd og hagstof-
an hafa reiknað út vísitölu
framfærslukostnaðar í júní-
mánuði og hafði hún læklcað
um eitt stig og er því nú 319
stig. Mestu veldur um þessa
eins stigs lækkun að vefnað-
arvara hefir lækkað litið eitt
í verði.
lllllll•l•llll•tll•tlllllllllllll■lll■ltlll■Sll■l•■■ll■••*■al■■•llllll
| Þing S.U.F.
I Eins og frá hefir verið
I skýrt hér í blaðinu hefst 4.
1 þing Sambands ungra
| Framsóknarmanna á Akur
1 eyri klukkan 10 f. h. mið-
J vikudaginn 16. júní. FuJI-
Wieth ræddi við blaða-
menn í morgun og lét í ijös
ánægju yfir því að vera kom-
inn hingað til lands forfeðra
sinna. Ætlar hann að ferð- :
ast um landið í nokkra daga, j
áður en hann fer aftur til i
Danmerkur, þar sem hann j
tekur þá stx-ax aftur tíl við -1
leikstörf.
Fyrir nokkrum dögum var j
honum veitt heiðursveður- j
kennáig, félags gagnrýnenda j
(Framhald á 2. síðu)
trúar eru beðnir að snúa
sér til skrifstofu framsókn
arfélaganna á Akureyri,
sem sjá um móttökurnar,
þegar er þeir koma til bæj-
arins. Fá þeir þar alíar
nánari upplýsingar um
þingið og dvöliná á Akur-
ejrri meðan þingið stendur.
Skrifstofa þessi er í Rotary
sal gistihúss KEA á Akur-
eyri.
Iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiniiiiiiii iiiiiiiiiiiin
iiiiiiiimimiiiinmiMiiiiiiiiiiiimmmiiimiiimiimmimiiiiMimiiiimiiimimiimiimmmmmiiiiiiii