Tíminn - 09.03.1949, Page 2
TÍMINN, miðvikudaginn 9. marz 1949
53. blað
hafi tií heiia
í dag:
i Sólin kom upp kl. 7,09. Sólarlag
kl. 18,10. 18. dagur í Góu. Imbru-
dagur. — Sæluvika.
í nótt:
• Næturlyknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, sími
5030. Næturvörður er í Lyfjabúð-
irini Iðunn, sími 7911. Næturakstur
arinast Litla bílastöðin, sími 1380.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Esja var á Vestfjörðum í gær á
norðurleið. Hekla er í Reykjavík.
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið verður vænt
aniega á Akureyri í dag. Súðin er
væntanlega í Trapani. Þyrill er á
leið frá Englandi til ísiands.
Skallagrímur.
Laxfoss fer til Akraness og Borgar
ness á morgun kl. 12 á hádegi.
Fer frá Akranesi á suðurleið kl.
7. e. h.
Einarsson & Zoega.
Foldin er í Reykjavík. Linge-
stroom er í Vestmannaeyjum, lest-
ar fiskimjöl til Hillands. Reykja-
nes er í Trapani.
Flugferðir
Flugfélag íslands.
Gullfaxi er hér og var í æfinga-
flugi í gær.
Flogið var í gær til Akureyrar,
Vestmannaeyja, ísafjarðar, Hólma-
víkur og Sands.
Loftleiðir.
' Hekla fór í gærmorgun til Prest
víkur og Kaupmannahafnar með
yfir 40 farþega. Er væntanleg aftur
ídag milli kl. 5—6 síðd. með um
20 farþega.
Flogið var í gær til Akureyrar,
Siglufjarðar, ísafjarðar og Patreks
fjarðar.
Árnað heiila
Hjónabönd.
Nýlega voru gefin saman ííijóna
band af sr. Jóhanni Hlíðar ungfrú
Bryndís Pétursdóttir leikkona og
Örn 'Eiríksson loftsiglingafræðing-
ur frá Akureyri.
Einnig voru gefin saman í hjóna
band í Hallgrímskirkju s.l. laugar-
dag af sr. Jakob Jóna^yni, ungfrú
Kristjana S. Guðmundsdóttir Týs-
götu 4C og Haukur ísleifsson loft-
skeytafræðingur.
Einnig voru gefin saman í hjóna
band nú fyrir síðustu helgi af sr.
Jóni Thorarensen ungfrú Ingigerö-
ur Guðmundsdóttir og Geir Ágústs
son húsasmiður.
Tralofanir.
Nýlega hafa birt hjúskaparheit
sltt Ungfrú Hild’ar Bjarnadóttir
(læknis Guðmundssonar Patreks-
firði) og Sigurður Jónasson (Magn
ússonar skólastjóra).
Einnig hafa nýlega kunngert hjú
skaparheit sitt ungfrú Ethel Bjarna
sen, Háskólanum og Garðar G'sla-
son flugmaður, Miðstræti 6, Rvík.
Ennfremur hafa birt hjúskapar-
heit sitt nýlega ungfrú Guðný
Kristjánsdóttir Blönduósi og Hólm
steinn Valdimarsson frá Smyrla-
bergi, A.-Hún.
Ur ýmsum áttum
Gestir í bænum:
Sigurður Magnússon bóndi, Dpl-
um, Fáskrúðsfirði, Guðmundur Jósa
fatson bóndi Austurhlíð. Gísli Páls
son bóndi Sauðanesi, Hallgrímur
Guðjónsson bóndi Hvammi, Jón
Hannesson bóndi Undirfelli, Þor-
björn Björnsson bóndi Geitaskarði,
Sigurgrimur Jónsson bóndi Holti,
Páll Guðmundsson bóndi Hjálms-
stöðum.
Frá áfengisvarnarnefnd.
Undanfarið hefir Áfengisvarnar-
nefnd Reykjavíkur eða einhver úr
henni verið -til viðfals í F.lliheim-
ilinu og getað méð starfi sínu hjálp
að ýmsum til að komast á réttan
kjöl aftur.
Nú hefir nefndin fengið sérstaka
skrifstofu til afnota í Templara-
höllinni Fríkirkjuveg 11 (kjallar-
anum). Verður hún ópin daglega
kl. 5.30 til 6.30 síðdegis. Á þeim
tima verður nefndin til viðtals.
Sími 7594. — Öll mál er farið með
sem trúnaðarmál.
Skógræktarfélag
Eyfiröinga hélt aðalfund sinn á
Akureyri 27. • febrúar.
Plantað hafði verið á vegum fé-
lagsins s.l. vor 20 þús. og 500, piönt-
um og höfðu 143 sjálfboðaliðar
unnið að því i 437 vinnustundir.
Ýmislegt fleira ágætt hafði fé-
lagið hafst að á árinu. Gjafir höfðu
félaginu borist á árinu frá Krist-
jáni Benediktssyni trésmið kr.
14056,00 og minningargjöf um Árna
Jóhannsson fyrrverandi formann
félagsins kr. 500,00. Félagsmenn eru
nú 330 og hafði þeim fjölgað um
55 á s.l. ári. Stjórn félagsins skipa
nú Guðm. Karl Pétursson formað--
ur, Þorsteinn Davíðsson ritari, Ár-
mann Davíðsson gjaldkeri, Björn
Þórðarson og Þorsteinn Þorsteins-
son meðstjórnéndur. Samvaldir á-
gætismenn. i
Frá Skíðasambandi íslands.
Landsþjálfari Skíðasambands ís-
lands, Axel Wikström, -dvelur nú
á Norðurlandi og kennir skíða-
göngu. Kenndi hann fyrst í Stranda
sýslu, en undanfarið hefir hann
starfað á vegum Héraðssambands
Suður-Þingeyinga og kennt þar á.
tveim stöðum, í Mývatnssveit og
Reykjadal. Þeim námskeiðum er
nú senn lokið og telja Þingeying-
ar árangur þeirra mjög góðan.
Wikström mun næst kenna á
Akureyri, nokkra daga, en síðan á
Siglufirði um tveggja vikna skeið.
Loks fer hann til ísafjarðar og
kennir við skíðaskólann þar fyrri
helming aprílmánaðar. Skiðaráðin
á þessum stöðum sjá um undirbún-
ing námskeiðanna.
Togaraverkfallið. ‘
í gærkvöldi var togaradeilan ó-
leyst og er nú fjórða vikan óðum
að líða síðan verkfallið hófst. Eru
nú flestir orðnir stórundrandi yfir
að aðilar togaranna skuli láta þá
liggja í höfn viku eftir viku nú
á hávertíðinni.
Eitthvað meira en lítið hlýtur
að vera athugavert við þjóðfélag,
þar sem þegnarnir haga ,sér á þenn
an hátt, hvort sem hér eiga sök
á togaraeigendur eða einhverjir
þeir, sem vinna við skipin.
Skátakvikmynd.
Skátar sýndu kvikmynd í gær í
Tjarnarbíó af 10. skátamóti sínu,
sem háð var á Þingvöllum s.l. sum-
ar. Hefir Óskar Gíslason tekið
myndina og er hún víða fögur og
sýnir vel og bráðlifandi starf og
búskap skátanna í borg sinni þar
eystra. Bregöur myndin skærri
birtu yfir hið góða starf skátanna.
sem áreiðanlega hefir oft mjög
bætandi og þroskandi áhrif á þátt-
takendurna.
Skógarverðir til Noregs.
í gær fóru Sigurður Jónasson,
Varmahlíð og Daníel Kristjánsson
Hreðavatni tii Noregs á vegum
Skógræktar ríkisins til skógræktar
náms. Ætluðu þeir til Tromsfylkis
og vera þar fyrst við fræþresking-
ar og svo við gresjun og gróður-
setningu þegar fram á vorið kem-
ur. Njóta þeir þar ytra fyrir-
greiðslu Reidars Bathens fylkis-
:ý:<7garmeí {tara, sem dvaldi hér
nokkurn tíma í fyrrasumar. — Er
þessi frásögn skv. viðtali við Hákon
Bjarnason skógræktarstjóra.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
Emjað á flóttanum
Menn bera mótlæti misjafnlega
vel. Sumir vaxa, en eðra brestur
fljótlega þol og stillingu. Kommúi
istar á íslandi erú dæmi um seinni
manníerðina. Einn ábyrgra blaða
hefir Þjóðviljinn talið sér hæfa að
hefja ádeilur vegna þess, að mennta
málaráöherra skipaði Guðlaug Rós
inkranz þjóðleikhússtjóra. Barm-
ar hann sér eins og óttasleginn
jfugl við hreiður yfir því, að komm
I únistar skyldu ekki öðlast nýtt vígi,
þar sem þjóðieikhúsið er, heldur
koma í hlut manns, sem líklegur er
til þess að mismuna ekki stefnum
og lífsviðhorfum. að veita því for-
stöðu. í ofanálag á þetta er svo
sá skratti, að Guðlaugi Rósinkranz
er manna bezt trúandi til þess að
haga rekstri þess á þann hátt,
fyrir sakir dugnaðar og hagsýni,
að það verði ekki baggi á opinber
um sjóðum í framtíðinni.
Þessi emjan Þjóðviljans var svo
bætt með gömlum og prýðisvel
sykruöum íhaldslummum svo
að úr yrði rauðbrún súpa, er
minnti fagurlega á þá gullnu
daga, þegar höfðingjar meg-
inlandsins voru að skipta með sér
Noi ðurálfunni. Sú grautargerð er
í rauninni órækur vitnisburður um
það, að Guðlaugi Rósinkranz er
vel treystandi til þess að halda af
réttsýni á málum þjóðleikhússins
! Það er líka eftir öðru, að árás
þessi er gerð, áöur en hann hefir
starf sitt og áður en nokkur
reynula er fengin af honum í<
þessu starfi. Það er einkunn, sem
Þjóðviljinn gefur sjálfum sér í
heiðarlegum og rökföstum mál-
flutningi og er ekki öfundsverður
af.
Það má líka gleðja Þjóðviljann
og aðra með því, að hann mun
hafa æðsta vald í öllum málum
þjóðíeikhússins og þá líka bæði
hvað andlegar og líkamlegar veit-
ingar snertir, og hyggja allir frjáls
lyndir menn gott til þess. Á hinn
bóginn sanna áhyggjur þær, sem
sumir menn virðast hafa af því,
að veitingareksturinn í þjóðleik-
húsinu skuli eiga að lúta stjórn
forsjáls þjóðleikhússtjóra, hversu
þungt þeim veitist að sætta sig
við þá tilhugsun, að þjóðleikhúsið
skuli nú kannske eiga eftir að
bera sig þolanlega.
Að Vilhjálmur Þ. Gíslason var
skipaður formaður þjóðleikhús-
nefndar að tillögu Framsóknar-
fiokksins og af Framsóknarráð-
herra sýnir aftur á móti, að meðal
Framsóknarmanna er alls ekki lit-
ið á þjóðleikhúsið sem pólitískt
togreipi, held’j' menningarstofnun,
sem skylt er að búa sem bezt að,
svo að henni mégi vel farnast.
' " ' / -V. .. ’• ; v'í/TLb;-
VOLPONE
í kvöld kl. 8. Miðasala í dag frá kl. 2. — Sími 3191.
Sími 3191.
Börn fá ekki aðgang.
::
::
FJALA-
KÖTTURINN
Meðan við bíðum
Sjónleikur í þrem þáttum eftir
JOHAN BORGEN
Sýning í Iðnó annað kvöld (fimmtud.) kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í dag frá kl. 4—7. Sími 3191.
Börnum innan 16 ára ekki leyfður aðgangur.
GLATT A HJALLA
KVDLDSYNING
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8,30.
Aðgöngumiða má panta í síma 2339 frá kl. 10—12.
Pantanir sækist kl. 2—4. Dansað til kl. 1.
Vér höfum ákveðið að gefa út eftirfarandi bækur,
sem ekki eru verndaðar af rithöfundarrétti eða vér
ekki enn fengið svar frá höfundunum:
R. H. DANTE: Two years before the Mast.
Carlo Levi: Christ stoppet at Cboli.
Zofia Kossak: Konge af Jerusalem („Blesser are
the meek“)
Leo Tolstoy: Smásögur
Sami: Kreutzer sónatan
Fyodor Dostoevsky: Karamazovbræðurnir.
Eric Maria Remarqe: Kameraden.
Sami: „Liebe deinen Náchsten“
Prentsmiðja Austurlands h.f.
Seyðisfirði
Sláturfélag Suðurlands
Rcykhús — Frystihús
IViðnrsnðuverksmiðJa — Bjngnagcrð
Reykjavík. Sími 1249. Símnefni: Sláturféiag. I
Framleíðir og selur 1 heildsölu og smásölu: NiðursoSið
kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alls konar
áskurð á brauð, mest og ,þezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávallt nýraykt, viðurkennt fyrir gæðl.
Frosið kjöt alls konar, fryst og geymt i vél-
frystihúsi eftir fyllstu nútímakröfum.
Verðskrár sendar eftúr óskum, og pantanir afgreidd-
ar um allt land.
Auglýsingasími Tímans 81300