Tíminn - 09.03.1949, Síða 8
„ERLENT YFIRLIT“ í daq:
Kiarnorhui&nuðurinn í Randa-
ríhjjunum.
33. árg.
Indland mun ekki
gerast aðili að hern-
aðarsamningum
annarra ríkja
Nehru, forsætisráðherra
Indlands hefir látið svo um-
mælt í fæðu, að hvorki Hind-
ústan né Pakistan muni hafa
í hyggju að gerast aðilar að
þeim her- og varnai'banda-
lögum, sem nú eru í uppsigl-
ingu í heiminum eða kunni
að verða gerö á næstunni.
Þessi ríki muni kappkosta
góða sambúð við alla ná-
granna sfna og önnur þau
ríki, sem þau þurfi að hafa
skipti við og þessvegna vilji
þau ekki leggja lóð á meta-
skálarnar í togstreitu stór-
veldanna í heimsmálunum.
Svo virðist einnig, sem Ind-
land þurfi ekki að óttast árás
úr neinni átt að sinni.
Stjórn Sun Fo
farin frá
Reynt að myiida
nýja stjórn í
Nanking.
í fyrradag baðst Sun Fo,
forsætisráðherra stjórnar
Kína í Kanton lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt. Ágrein-
ingur um*friðarumleitanir við
kommúnista við Li forseta
mun hafa valdið lausnarbeiðn
inni. Vildi Sun Fo meðal ann
ars ekki flytja affsetur stjórn
ar sinnar aftur til Nanking,
en kommúnistar settu það að
skilyrði ásamt öðru fyrir því
að sáttaumleitanir gætu haf-
izt. Li forseti er nú að reyna
að mynda stjórn og er ákveð-
ið að sú stjórn hafi aðsetur
í Nariking.
Búizt við að fólks-
fjöldi í ísrael fjór-
faldist á næstu
árum
Ben Gurion forsætisráð-
ráðherra ísraels hélt rspðu á
þingi ísraels í gær og er talið
að fjögurra ára kjörtímabil
hans nú eftir nýafstaðnar
kosningar hefjist með henni.
Sagði hann að ísrael mundi
reyna að stárfa og koma fram
í skiptum við aðrar þjóðir á
grundvelli Sameinuðu Þj óð-
anna og starfa i anda þeirra.
Hann sagði, að Ísraelsríki
væri lítið og ungt enn en það
ætti fyrir höndum að stækka
og dafna og gerðu menn ráð
fyrir, að fólksfjöldi þess
mundi fjórfaldast á næstu
fimm árum.
Fundur uin stofnun
Fvrópuráðs.
Ríkjum þeim, sem boðin
var þátttaka í stofnun Evr-
ópuráðs, var sent fundarboð
undirbúningsstofnfundarins í
gær. Er fundurinn ákveðinn
í London og á að hefjast
hinn 21. þessa mánaðar.
„Á FÖRM W VEGI“ í BAG:
Emjjað á flóttanum.
9. marz 1949
53. blað
óður árarsgur á
' ínu í
Þrjú íslandsmet voru sett
á mótinu
Þrír KR-ingar settu íslandsmet á innanhúsmóti félags-
;ns í gær, en þa'ð voru þeir Friðrik Guðmundsson í kúlu-
varpi, Torfi Eryngeirsson í þrístökki án atrennu og Sigurð-
ur Ejörnsson í langstökki án atrennu.
Hermaður nokkur hefir gert uppjötvun r. I km í rivmijandi Vi'S
sígaretlureykingar, og miðar hún að því að gera sígarettuna nota-
drýgri. Ahald það, sem hann hefir gert er mjó pípa á lengd við
sígarettuna, og er sígarettunni brugðið innan í hana. Hér sést fögur
blómarós vera að reyna hið nýja tæki.
Uppkastíð aö Atlanzhafs-
sáttmálanum fuligert
og samþykkt
Verðwf að ííkiiBdum birt eítir nokkra daga
í gær var lokið við uppkastið að Atlanzhafs-sáttmál-
anum í \Vashington og það samþykkt af þeim sjö þjóðum,
sem að gerð þess hafa staðið. Uppkastið hefir þó ekki verið
birt enn því að stjórnir viðkomandi landa eiga að fá það í
hendur fyrst, en gert er ráð fyrir, að það vei*ði birt í heild í
lok vikunnar.
Þegar uppkastið var sam-
þykkt, voru á fundi fulltrú-
ar þeirra sjö ríkja, sem að
undirbúningnuna hafa stað-
ið, Bandaríkjanna, Kanada,
Bretlands, Frakklands, Hol-
lands, Belgíu og Luxemburg.
Auk þess var Acheson utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
viðstaddur og Morgenstjerne
sendiherra Norðmanna.
Um efni uppkastsins hefir
ekkert verið gert opinberlega
kunnugt, en ýmsar fregnir
hafa þó borizt um það og
sum blöð hafa birt ýmislegt
um það. Sáttmálinn verður
í tólf greinum.
Talið er víst, að megin-
kjarni sáttmálans verði sá,
að allar þjóðir, sem aðilar
eru að honum, séu skuld-
bundhar að koma hverri
þjóð, sem aðili er að sáttmál
anum, til hjálpar, ef hún
verður fyrir hernaðarlegri
árás, og sé þannig litið á árás
á eina þeirra sem árás á þær
allar. Gildir það og ekki að-
eins um árás á lönd þeirra,
heldur einnig á skip þeirra,
flugvélar eða yfirráðasvæði.
Rúmenskir stjörnu-
riddarar fá tvö
herbergi
Ný húsnæöislöggjöf er geng
in í gildi í Rúmeníu, og sam
kvæmt henni njóta þeir, sem
heiðraðir hafa verið með
stjörnu lýðveldisins, sérstakra
hlunninda. Þeir mega búa í
tveggja herbergja íbúðum.
Xý gerð mið-
stöðvarkatla.
I (Framhald af 1. síöu)
efnisskorts, af því að stóð á
afgreiðslu pantaðs efnis.
Annars hefir vélsmiðja Ol.
Olsens orðið að leggja leyfin
inn til annarra fyrirtækja,
sem haft hafa efni og viljað
selja henni það. En eins og
að líkum lætur hefir það efni
verið að miklum mun dýr-
ara en efni, sem vélsmiðjan
hefir fengið beint gegnum
heildsala. Hinu sama gegnir
með mótora. Fengi vélsmiðj-
! an til umráða svolítið brot af
þeim gjaldeyri, sem sannan-
legt er að sparast á kötlum
frá henni, þyrfti hún aldrei
að vera efnislaus. Því fleiri
katla, sem vélsmiðja Ol. Ol-
sen getur smíðað, því meiri
gjaldeyrir sparast við fram-
leiðslu hennar.
i Þar sem óvéfengjanlegar
(sannanir eru fyrir þessu,
i ætti að mega telja víst, að
! Viðskiptanefnd láti vélsmiðj
unni í té leyfi fyrir nægu
efni, því Ol. Olsen er reiðu-
búinn að leggja spilin á borð
ið fyrir nefndina.
Þegar Ol. Olsen sýndi
blaðamönnum vélsmiðjuna,
sagði hann m. a.: „Nú á ég
ekkert efni. Og efnið í þenn-
an ketil, sem ég er nú að
smíða, varð ég að láta kaup-
andann sjálfan útvega. Og
sjálfum verður mér lítið úr
verki, þar eð ég verð stöðugt
að vera með annan fótinn í
Reykjavík til að reyna að
afla mér efnis, svo ég þurfi
ekki að senda mannskapinn
í moldarmokstur og loka að
loka að fullu og öllu.
Úrslit í einstökum grein-
um voru þessi:
Kúluvarp.
1. Friðrik Guðmundsson
KR 13.92 m. 2. Sigfús Sig-
urðsson Self. 13.46 m. 3. Vil-
hjálmur Vilhjálmsson KR
13.30 m. — Fyrra metið átti
Kristján Vattnes KR 13.10 m.
Þrístökk án atrennu.
1. Torfi Bryngeirsson KR
9.56 m. 2. Trausti Eyjólfsson
KR 9.28 m. 3. Þorsteinn Löve
ÍR 9.28 m. — Fyrra metiö átti
Hermann Magnússon KR
9.39 m.
Langstökk án atrennu.
1. Sigurður Björnssöh KR
3.14 m. 2. Torfi Bryrigeirsson
KR 3.07 m. 3. Trausti Eyj-
ólfsson KR 3.05 m. — Fyrra
metið átti Hermann Magnús
son KR 3.13.m.
Hástökk með atrennu.
1. Sigurður Björnsson KR
1.45 m. 2. Torfi Bryngeirsson
KR 1.45 m. 3. Hörður Har-
aldsson Á. 1.45 m.
Hástökk með atrennu.
1. Örn Clausen ÍR 1.80 m.
2. Kolbeinn Kristinsson Self.
1.70 m. 3. Sigurður Friðfinns
son FH 1.60 m.
Hæfnisglíma KR fór einn-
ig fram í fyrrakvöld og lauk
með því, að Rögnvaldur
Gunnlaugsson bar sigur úr
býtum og hlaut bikarinn að
verðlaunum. Næstur varð
Sigurður Sigurjónsson og
þriðji Aðalsteinn Eiríksson.
í gærkvöldi fór afmælis-
sundmót KR fram í Sund-
höllinni. Þátttakendur voru
74 frá 6 félögum, þ. e. frá KR,
Ármanni, Ægi, ÍR, HSÞ og
Umf. Laugdæla.
Sættir að takast
milli Transjórdan
og Gyðinga
Talið er, að frumdrættir að
samkomulagi milli Trans-
jórdaníu og ísraels hafi
náðst á sáttafundinum á
Rhodos í gær, en þá hófust
fundir að nýju eftir nokkurt
hlé. Ræddu sendinefndirn-
ar þá við stjórnir sínar og að
því loknu var þessi samnings-
grundvöllur lagður fram og
talið líklegt, að samkomuiag
næðist um hann. Ekkert hefir
þó enn verið birt um innihald
þessa samkomulags, og verð-
ur það að líkindum ekki gert
fyrr en friðarsamningar verða
undirritaðir. Samkomulag
þetta er einnig talið ná til
Libanon.
Dómur fallinn yfir
4f
sakborningunum 15
í Sofíu
í gær var kveðinn upp dóm
ur í máli þeirra fimmtán
manna í Sofíu, sem sakaðir
hafa verið um svartamarkaðs
brask og njósnir fyrir erlend
ríki, aðallega Bretland og
Bandarí'kin. Réttarhöldunum
lauk fyrir nokkrum dögum
eins og kunnugt er. Fjórir
þessara manna voru dæmdir
í ævilangt fangelsi en hinir
fengu fangelsisdóm, sem var
frá einu ári upp í fimmtán
ár.
Goðafoss fer með
frystan fisk ti!
Goðafoss er nú að taka
hraðfrystan fisk til flutnings
á Ameríkumarkað. Hefir skip
ið að undanförnu tekið fisk
á Vestfjarðavhöfnum, en var
í Keflavík í gær og tók þar
fisk til útflutnings á Ame-
rikumarkað, sem frystur hefir
verið í vetur. Hefir allmikið
verið fr/:t af fiski hér í ver-
stöðvunum í vetur í umbúðum
fyrir Amerikumarkað. Eru
mun greiðari afskipunarmögu
leikar á fiski til Ameríku en
fyrir Evrópumarkað og vilja
frystihúsin talsvert á sig-
leggja til að losna fyrr við fisk
inn en undanfarið hefir verið.
Vilja gera Make-
dóníu að sérstöku
og sjálfstæðu ríki
Uppreisnarmenn í Norður-
Grikklandi hafa lýst yfir því,
að þeir muni vinna að því,
að stofnað verði sérstakt og
sjálfstætt ríki í Norður-Grikk
landi og nái það yfir Make-
dóníu alla. Er þetta gert til
andstöðu gegn Tító og fylgj-
endum hans, en Markos hers
höfðingi sem uppreisnarmenn
settu nýlega af, var honum
hlynntur að ýmsu leyti.