Tíminn - 22.11.1949, Page 8
£3. árg.
wm
Reykjavlk
„A FÖRTSTJM. VEGi'* t DAGs
Mðnaðarsíöðvar í sveitum.
22. nóv. 1949
250. blað
iiiiiiiniiiiiiiiiiniiiiiiiiiiMiiiiiiiiniiiii
111111111111111111111111111:
IIIIIIIIÍIIimillllllMIIIMM
Hermann Jónasson hættur
stjórnarmyndunartiiraunum
aö svo stöddu
Forsoti hefir faiið Ólafi Th«»rs tilraun
til að mynda mcirihlutasí.j«»rii
Frá skrifstofu forseta hcfir borizt svohljóðandi til-
kynning:'
„Sunnudaginn 20. nóv. fyrir hádegi tjáöi Hermann
Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, forseta ís-
lands, að hann teldi sér ekki unnt eins o? sakir stœðu
að mynda stjórn með fylgi meirihiuta alþ'ngis. Sam-
dægurs átti forseti íslands einnig viðræður við for-
menn hinna þingflokkanna. Að þeim loknum hefir
forseti íslands i dag falið formanni Sjálfsíaeðisflokks-
ins, Ólafi Thors, fyrrv. forsætisráðherra, að gera til-
raun til að mynda stjórn, sem fyrir fram sé tryggður
stuðningur meirihluta alþingis. Mun svar hans liggja
fvrir innan fárra daga.“
Nánar verður skýrt frá þessum mátum í næsta blaði.
II llllll 11111111111111111111111111111111»
Þriðja bindi af merkum
íslendingum komiö úí
Flytur 18 ævlsögm* að þt*ssu sinni.
Þriðja bindið af Merkum íslendingum er komið út á veg-
im Bókfellsútgáfunnar. Þorkell JóhannessQn, prófessor hef-
:r annazt ritstjórn. í bindi þessu eru prentaðar 18 ævisögur
ig þættir, sem allir hafa verið prentaðir áður nema þrír.
Afmæli V erkalýðs-
félags Akraness
Verkalýðsfélag Akraness
hélt hátiðlegt 25 ára afmæli
sitt í gærdag með samkom-
um í samkomuhúsum bæjar
ins. Fyrst um daginn var sam
koma í Bíóhöllinni og voru
j þar ræður fluttar, en um
kvöldið var skemmtisamkoma
i Báruhúsinu gamla og dans-
I leikur. Tveir af forvígismönn
' um félagsins voru heiðraðir
í tflefni af afmælinu, þeir
Sæmundur Friðriksson fyrsti
formaður félagsins, sem nú
er fluttur til Stokkseyrar og
Sveinbjörn Oddsson. sem um
langt skeið hefir verið for- (
' maður félagsins og baráttu-
maður. Voru þeir báðir gerð-
ir að heiðursfélögum og einn
ig kona Sveinbjarnar.
| Verkalýðsfélag Akraness
átti lengi í baráttu við at-
vinnurekendur á staðnum
eins og orðið hefir eðlilegt
hlutskipti annarra verkalýðs
félaga. En upp á síðkastið
hefir baráttan mildast og
skilningur atvinnurekenda
aukizt á félagssamtökunum,
en atvinnurekendum hefir
smátt og smátt skilizt það,
að samtök verkamanna eru
ekki stofnuð til þess eins að
troða illsakir við þá.
Sérskóli fyrir matsveina- og
veitingaþjóna í þann veg-
inn
Ævisögur þær, sem í bind-
nu birtast, eru þessar: Ævi-
saga Brynjólfs biskups Sveins
sonar eftir Torfa Jónson,
prófast, er var bróðursonur
oiskups. Ævisaga Bjarna
sýslumanns Nikulássonar, rit
íð af honum sjálfum. Ævi-
saga séra Jóns Jónssonar í
íteykjahlíð eftir hann sjálf-
an. Ævisaga Stefáns amt-
manns Þórarinssohar, eftir
Gísla Brynjólfsson. Sjálfs-
ævisaga Sveins Pálssonar
iæknis. Sjálfsævisaga Björns
ólsens frá Þingeyrum. Sjálfs-
ævisaga séra Björns Hjálm-
arssonar í Tröllatungu. Ævi-
saga Jóns Thorkelsens eftir
Steingrím biskup Jónsson.
Feðgaævir eftir Boga Bene-
liktsson. Ævisaga Boga Bene-
liktssonar eftir Hannes Þor-
steinsson. Ævisaga Páls Vída-
líns eítir Pétur Eggerz og að
lokum ævisögur þeirra Stein-
gríms Thorsteinssonar skálds
eftir próf. Harald Níelsson,
séra Jóns Bjarnasonar eftir
Þórhal! biskup Bjarnason,
Júlíusar Havsteen amtmanns
eftir Klemens Jónsson, Þór-
oalis biskups Bjarnarsonar
eftir séra Magnús Helgason.
Tryggva Gunnarssonar eftir
'Klemens Jónsson, séra Frið-
riks Bergmanns eftir Bene-
dikt Sveinsson og Jóns Ólafs-
sonar ritstjóra eftir Þorstein
Gislason. Ævisöeunum fylgja
myndir og rithandarsýnis-
hórn ýmsra-
Bókin er hin vandaðastá og
á fjcrða hundrað blaðsíður
að stærð.
Gjaldeyriseign
bankanna
6,9 miljónir
í lok október nam eign
bankanna í erlendum gjald-
eyri 22,0 millj. kr„ en hér
koma til frádráttar ábyrgöar
skúldbindingar þeirra, sem
voru á sama tima að upphæð
15,1 mi!!j. kr. Nettóeign bank
anna erlendis nam þannig 6,9
millj. kr. í lok síðasta mán-
aðar.
Við lok septembermánaðar
áttu bankarnir 4,3 millj. kr.
inneign erlendis, og hefir hún
þannig hækkað um 2 6 millj.
kr. í október. Ekki má taka
þessa hækkun sem merki þess.
að gjaldeyrisástandið hafi
farið batnandi í mánuðinum,
enda liafa yfirfærsluörðug-
leikarnir verið sizt minni en
áður og upphæð gjaldeyris-
leyfanna, sem bíða yfirfærslu
hefir aukizt til mikilla muna.
Framlög Efnahagssam-
vinnustofnunarinnar í Wash-
ington (E.C.A.) eru ekki inni-
falin í þessum töium. Er hér
um að ræða 3,5 millj. dollara
framlag, sem látið var í té
gegn þvi. að íslendingar legðu
fram jafnvirði þeirrar upp-
hæðar í freðfiski til Vestur-
Þýzkalands, og enn fremur 2,
5 millj. dollara framlag án
endurgjalds frá síðastliðnu
vöri. í lok októbermánaðar
Alþingismenn skoða
Reykjavíkursýning-
una
Þingmenn skoðuðu Rvikur-
sýninguna i fyrrad. í boði borg
arstjóra. Ávarpaði Vilhjálmur
Þ. Gíslason formaður sýning-
arnefndar alþingismenn og
leiðbeindi þeim um sýningar-
salina. Síðan var gestum veitt
kaffi. Þar kvaddi Steingrímur
Steinþórsson forseti samein-
aðs þings sér hljóðs og þakk-
aði boðið. Lét hann svo um
mælt að þess væri óskandi
að framfarir í Reykjavík og
annarra byggða, á landinu
fylgdust sem mest að og
héldust í hendur og gagn-
kvæmur skilningur ríkti milli
j höfuðborgarinnar og annarra
byggðarlaga. Margt utanbæj-
arfólk skoðaði sýninguna i
gær, einkum skólafólk.
Miðast aðallega vlð Jiarfir íslenzka
skipaflotans
I sjómannaskólahúsinu nýja err nú verið að koma á fót
• zz". -. ' t
á fót nýrri stofnun sem er nauðsyhlegur þáttur í atvinnu-
málum þjóðarinnar en það er matsvelna og veitingaþjóna-
skóli. Hafa húsakynni stofnunarinnar verið tekin til not-
kunar og reynd þó að skólinn sé raunverulega ekki tekinn
til starfa ennþá. Blaðamður frá Tímanum hefir átti viðtal
við Gunnlaug Ólafsson bryta sem séð hefir um fyrirkomu-
lag á húsakynnum hins nýja skóla og Böðvar Steinþórsson
formann matsveina og veitingaþjónafélagsins og spurt þá
um þessa nýju stofnun.
störL þeirra og kenna þeim
það áeíft þeim er nauðsynlegt
að vfta í starfinu en sleppa
hinuEáð: mestu. Þannig eiga
ungi#. piltar sem fengið hafa
lítilsÉáttar æfingu á mótor-
bátum' eðá sem hj álparmat-
sveinar-á-stærri skipum með
eins vetrar námi orðið vel
færir til þess að veita for-
stöðu eldhúsi á togurunum og
verða fyrirmyndarmatsvein-
ar á fiskibátunum, þar sem
venjulega eru gerðar mirmi
kröfur.
Monaco
Nýr þjóðhöfðingi í smárík-
ínu Monaco vann hollustu-
eið sinn í gær. Var það René
prins, sonur hins nýlátna
þjóðhöfðingja. Um helmingur
þeirra, sem borgararétt hafa
í landinu voru viðstaddir krýn
inguna en þeir eru um 2 þús.
íbúar landsins eru hins vegar
um 20 þúsund.
var búið að nota til vöru-
kaupa sem svarar 37,4 millj.
kr. af þeim 39,0 millj. kr„
sem hér er um að ræða, og
voru þvi eftirstöðvar fram-
laganna þá 1,6 millj. kr. í
lok mánaðarins á undan voru
þessar eftirstöðvar 4,0 millj.
kr„ og hafa því í síðastliðn-
um mánuði verið notaðar 2,4
millj. kr. af þessu fé.
Byrjun á betra
fyrirkomulagi.
Eins og mönnur er kunnugt
hefir til þessa enginn stofn-
un verið starfandi sem búið
getur matsveina og þjóna
undir starf þeirra, nema hvað
þeir hafa lært störf sín smátt
og smátt við liin daglegu
störf. Hlotið þannig misjafna
menntun og þurft að eyða
meiri tíma til náms en nauð-
synlegt er.
Þannig er það raunveru-
lega í flestum okkar iðngrein
um því úrelta iðnámsfyrir-
komulagi sem nú er gildandi
í landinu. Nemendur eru í
fjögur ár að nema það sem
þeir í mörgum tilfellum geta
lært á fáum mánuðum og
læra það auk þess oft ver á
hinum langa tíma en hægt
væri á stuttum en hnitmið-
uðum námsskeiðum.
Matsveinar og
húsateikningar.
Þjóðir þær sem lengst eru
komnar í tækni og framförum
hafa varpað hinu úr-
elta iðnkennslu skipulagi
fyrir borð og tekið
annað hagkvæmara upp í
staðinn. Sérskólar eru fyrir
hinar einstök iðngreinir og
verkin sjálf eru látin skera
úr um það hvort viðkomandi
getur talizt fagmaður eða
ekki. Á skólanum er fyrst og
fremst kennt þaö sem kemur
málinu við en hinu sleppt eða
haldið í skefjum.
Þegar matsveinar og veit-
ingaþjónar voru viðurkennd-
ir sem iðnaðarmenn átti að
fara að kenna þeim
húsateikningar í Iðnskólan-
um í Reykjavík. Af tungumál
um er danskan aðalmálið þó
not þessarar stéttar sem ann
arra iðnstétta sem þurfa að
lesa útlendar bækur séu
margfallt meiri af ensku og
því ástæða til að leggja
áherzlu á þá tungu. Eftir
nokkurt þóf fengu matsveina
nemarnir að sleppa húsa-
teikningunum.
Kennslan færð í nútíma
horf.
Þessi yngsta stétt af iðn-
stéttunum hefir nú ákveðið
að framvegis verði grein
þeirra kennd á sérstökum
skóla og þannig orðið fyrstir
til að færa iönámsgrein á ís-
landi í nútímahorf.
Hinn nýi skóli á að búa
matsveina á flotanum undir
Fullkomin menntun
fyrir bryta
Svo er hugmyndin í fram-
tíðinni að nemendur geti
fengið framhaldsmenntun á
þessum skóla svo að þeir sem
útskrifast þaðan geti orðið
færir um að verða brytar á
stærri skipum.
í haust voru húsakynni
skólans í Sjómannaskólanum
tekin til afnota er sveinspróf
fóru þar fram í matreiðslu
og framreiðsluiðn.
Annars er ekki búið að
(Framhald á 7. síðu.)
Fundur í Nord-
mannslaget
Fundur var haldinn í Nord-
mannslaget í Tjarnarkaffi í
gærkvöldi-
Einar Farestveit, formaður
félagsins stýrði fundi, en Há-
kon Bjarnason, skógræktar-
stjóri, skýrði frá komu norska
skógræktarfólksins hingað i
vor sem leið og för íslending
anna til Noregs. Þakkaði
hann Nordmannslaget fyrir
þá velvild og fyrirgreiðslu,
sem það hafði sýnt, bæði með
stórri peningagjöf og eins
með því að halda mikið ski’T
aðarhóf hér, er Norðmenn-
irnir fóru, en íslendingarnir
komu heim.
Ræddi Hákon Bjarnason
síðan um gagn það, er af
þessari ferð hlaust, reynslu
þeirri sem fengist hefði og
möguleikana á, að halda slík
um ferðum áfram annað eða
þriðja hvert ár.
Síðan var sýnd kvikmynd
frá gróðursetningarstörfum
hér á landi, sú mynd verður
síðan felld saman við myndir
þær, sem teknar voru af ís-
lendingunum i Noregi.