Tíminn - 26.03.1950, Side 2
TIMINN, sunnudaginn 26. marz 1950
69. blað
t nótt.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, sími 5030.
Næturvörður í Reykjavíkur apó-
teki, simi 1760.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 6633.
IJtvarprð
Útvarpið í dag:
(Fastir liðir eins og venjulega.)
11.00 Morguntónleikar (plötur).
12.45 Útvarp af stálþræði frá fundi
í Stúdentafélagi Reykjavikur 21.
þ. m. Umræðuefni: Trú og vísindi,
framhaldsumræður. 14.00 Mesa í
Laugarneskirkju (séra Garðar Þor
steinsson). 15.15 Útvarp til íslend-
inga erlendis. 15.45 Miðdegistónleik
ar (plötur). 16.35 Útvarp af stál-
þræði frá fundi Stúdentafélagsins.
Framhaldsumræður. 18.30 Barna-
tími (Hildur Kalman): a) Saga:
„Allt fyrir eina pönnuköku“. b)
Fréttatími barnanna. c) Spurn-
ingaleikur. 20.20 Einleikur á fagot
(Adolf Kern): a) Hugleiðingar um
lagið „Bjórkjallarinn" eftir Georg
Junge. b) Adagio úr fagotkonsert-
inum eftir Wemer. c) Scherzo eft-
ir Hans Hendrik Wehding. 20.35
Erindi: Smiður Andrésson, I.:
Heimildir og íslenzkar sögupersón-
ur (Einar Arnórsson dr. juris).
21.15 Tónleikar (plötur). 21.20 Upp
lestur: „Skógareplið“, smásaga eft-
ir George Preedy (Jón Aðils leik-
ari). 21.35 Tónleikar: Capriccio fyr
ir píanó og hljómsveit eftir Strav-
insky (plötur). 22.05 Danslög (plöt
ur) til 23.30.
Messur í dag:
Dómkirkjan:
Kl. 11 f. h. séra Jón Auðuns, kl.
5 séra Bjarni Jónsson.
Hallgrímskirkja.
Kl. 11 f. h. séra Sigurjón Árna-
son. Kl. 5 e. h. séra Jakob Jóns-
son. Barnaguðsþjónusta kl. 1.30 e.
h. séra Sigurjón Árnason.
Landakotskirkja:
Kl. 2 e. h. séra Garðar Svavars-
son og kl. 10 f. h. barnaguðsþjón-
usta, sami.
Nesprestakall:
Messað í Fossvogskirkju kl. 5 e.h.
séra Jón Thorarensen.
Fríkirkjan:
Kl. 5 e. h. séra Þorsteinn Björns-
son.
Óháði fríkirkjusöfnuðurinn.
Messað kl. 11 f. h. í Stjörnubíó,
séra Emil Björnsson.
Háskólakapellan.
Guðsþjónusta á vegum guðfræði
deildar háskólans kl. 2 e. h. Próf.
Björn Magnússon þjónar fyrir alt-
ari, séra Sveinn Víkingur prédikar.
Árnab heilla
75 ára
varð í gær Sigurbjörg Guðbrands
dóttir frá Galtadal, nú til heimil-
is í Mávahlíð 11.
Ur ýmsum áttum
Háskólaf yrirlestur. '
„Brot úr heimsmynd íslendinga“
er efni fyrirlestrar, sem Jón Jó-
hannsson dósent fiytur í hátíða-
sal háskólans kl. 2 í dag.
Leiðrétting.
í Tímanum í gær misritaðist
tími og staður fyrir aðalfund eft-
irfarandi tveggja félaga og eiga
samkvæmt leiðréttingu að vera:
Félag islenzkra rithöfunda held-
ur aðalfund sinn í dag kl. 2 e. h.
^ í Tjarnarcafe,. uppi.
Sjómannadagsráðið heldur í dag
aðalfund að Hótel Borg. Fundur-
inn hefst kl. 1.30 e. h.
Um 25 þúsund manns hafa
nú séð hina vinsælu kvik-
mynd Óskars Gíslasonar,
„Síðasti bærinn í dalnum,“
sem sýnd hefir verið í Aust-
urbæjarbíó að undanförnu.
Myndin verður sýnd í síð-
asta sinn í dag kl. 3, 5 og 7.
Á næstunni verður myndin
| sýnd í Hafnarfirði, en ráð-
gert hefir verið að sýna hana
úti á landi í vor og í sumar.
Byrjað verður að sýna hana
í nágrenni Reykjavíkur. i
Útvarpið á morgun:
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar
inn Guðmundsson stjórnar): a)
Lagaflokkur eftir Bellman. b) For
leikur að óperunni „Rakarinn i Se-
villa“ eftir Rossini. 26.45 Um dag-
inn og veginn (Ingólfur Kristjáns-
son blaðam.). 21.05 Einsöngur
(Birgir Halldórsson): a) „Were’er
You Walk“ eftir Hándel. b) „Sól-
skríkjan" eftir Jón Laxdal. c) „Móð
ir við barn“ eftir Björgvln Guð-
mundsson. d) Aría úr óperunni
„Don Giovanni" eftir Mozart. 21.20
Erindi: Smiður Andrésson, II.:
Hirðstjórn Smiðs og Grundarbar-
dagi (Einar Arnórsson dr. juris).
22.10 Passíusálmar. 22.20 Létt lög
(plötur).
Hvar eru skipin?
Einarsson, Zoéga & Co.
Foldin fór frá Ymuiden á föstu-
dagskvöld áleiðis til Hull. Linges-
troom fór frá Akranesi á föstu-
dagskvöld áleiðis til Vestmanna-
eyja, lestar fiskimjöl til Hollands.
Skipadeild S.Í S.
M.s. Arnarfell er væntanlegt til
Reykjavíkur á mánudagskvöld. M.s.
Hvassafell lestar fisk í Faxaflóa.
Kíkisskip.
Hekla var á Fáskrúðsfirði
snemma í morgun á norðurleið.
Esja er væntanleg til Reykjavík-
ur kl. 11—12 í dag að vestan og
norðan. Herðubreið var væntanleg
til Reykjavíkur seint í gærkvöldi
sða nótt frá Austfjörðum. Skjald-
breið var væntanleg til Reykja-
víkur kl. 6—7 í morgun frá Húna-
flóa. Þyrill er í Reykjavik. Ármann
er í Vestmannaeyjum.
Eimskip:
Brúarfoss er í Lysekil, fer þaðan
27. marz til Gautaborgar og Kaup-
mannahafnar. Dettifoss er í Rvík.
Fjallfoss er á leið frá Gautaborg
til Leith og Siglufjarðar. Goðafoss
er í Amsterdam, fer þaðan til Ham
borgar og Gdynia. Lagarfoss er í
New York. Selfoss fór frá Þing-
eyri í gær, var væntanlegur til
Reykjavíkur seint í gærkvöldi.
Tröllafoss fór frá Reykjavík kl.
20 í gærkvöldi til Baltlmore og
New York. Vatnajökull er á leið
frá Norðfirði til Hollands og
Palestínu.
— ft
ornum vec^i
Skógurinn er griðland
í gær heyrði ég yfirmann norskra
skógræktarmála mæla nokkur al-
vöru- og aðvörunarorð til þjóðar
sinnar, einkum norsks æskufólks, J
í norska útvarpið, um nærgætni og j
hlífni í umgengni við norsku skóg-
ana. Hann sagði, að það væri far- 1
ið að vora í Suður-Noregi, og ef
til viil liði ekki á löngu, þangað ^
til fyrstu trén tækju að laufgast.
Með hækkandi sól og veðurblíðu,1
ems og verið hefði þar undan- j
farna daga, ykjust ferðir norsks
fólks út í skógana til þess að heilsa
þeim eftir veturinn og njóta kyrrð-
ar þeirra og unaðssemda á nýju
vori. En skógurinn væri lifandi og
þyrfti gát í umgengni við hann
eins og við menn og aðrar lífver-
ur, og á þessa gát skorti nokkuð
í umgengni margra manna.
Þegar trén færu að laufgast,
yrði mörgum ómótstæðileg freist-
ing að brjóta brumgrein af ungri
björk til þess að hafa með sér
heim og reyna að flytja á þann
hátt ofurlítið bros af nýju vori
inn í heimili sín. En þetta væri
misskilningur. Enginn flytti vor-
bros með lítilli grein, sem brotin
er af stofni. Henni fylgdi dauðinn,
og hann brosir aldrei. Þegar lauf-
grein er brotin af ungri og vax-
andi björk, visnar lauf hennar
brátt, og móðurstofninn, björkin
unga, verður oftast kræklóttur
vanskapningur, sem stendur eftir
sem vitni um skort á menningu
fólksins og virðingu fyrir lífi og
gróðri.
Þetta fólk, sem gerir sig sekt um
það gáleysi að brjótá laufgrein af
ungum stofni, er flest gott fólk og
velviljað, en það veit ekki, hvað
það gerir, hugsar ekki um afleið-
ingar. Hver og einn hugsar á þessa
leið: Hvað gerir það til, þótt ég
brjóti eina litla grein af einu tré
af öllum þúsundunum? Og þetta er
satt, svo langt sem það nær. Ein
lítil grein, sem brotin er af, skipt-
ir litlu máli, en þegar þúsundir
manna gera hið sama og hugsa á
sömu lund, er vá fyrir dyrum. í
þessu efni verður að treysta á
skilning fólksins, velvilja og menn
ingu, en þegar það brestur, verð-
ur að gripa til laganna. Það er
bannað i norskum lögum að brjóta
laufgreinar af trjám í norskum
skógum.
Og að lokum sagði skógfræðing-
urinn: Látið það ekki sjást, að
þið komið með laufgreinar heim
úr skógunum í vor. Látið ekki
brotnar greinar varða veg ykkar,
þegar þið gangið eða akið heim
úr skógarförinni. Annað fólk, sem
er eins hugsunarlaust og þið, og
sér þetta líka, lítur svo á, að þetta
sé sjálfsagður hlutur og fetar í
fótspor ykkar. Þannig verður af-
brot ykkar margfalt, berst frá
manni til manns eins og smitandi
sjúkdómur.
Þessi orð norska skógfræðingsins
eiga að miklu leyti einnig við okk-
ur íslendinga, og kannske í enn
ríkari mæli vegna þess, að við
eigum svo litla skóga, minni og
dýrari sjóð að geyma. Það fólk,
sem heimsækir íslenzku skógana
á komandi vori og sumri, ætti að
festa sér þau í hug. íslenzki skóg-
urinn er og á að vera griðastaður,
staður, sem veitir grið, gefur frið
og kyrrð, og þiégur að launum full
komin grið og gát í umgengni,
virðingu fyrir lífi og gróðri og
hlúandi hendur gestanna. Þau orð
ættu að vera greypt í minni hvers
.- íslendingg: 'Skógy.jinn er griða-
staður. . A. K.
yva V- gö íifiij
t
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
sýnir í kvöld kl. 8
„Bláa kápan“
60. sýning:.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2. Sími 3191.
Síðasta sinn.
S.K.T.
Nýju og gömlu dansamlr í G. T.-
húsinu sunnudagskvöld kl. 9 —
Húsinu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30.
8
::
*•
i:
ii
*♦
I
Sýning norrænna
atvinnuljósmyndara
er í Listamannaskálanum
opin daglega frá klukkan 10. f. h. til klukkan 2 3
Hnefaleikameistaramót
Ármans
verður háð í íþróttahúsinu við Hálogaland í dag kl. 4.
Keppt verður í 8 þyngdarflokkum. Keppendur eru 19.
Aðgöngumiðar við innganginn frá kl. 3.
Ferðir frá Ferðaskrifstofu ríkisins frá kl. 3.
VerzlunarmannaféLag Reykjavíkur
Almennur félagsfundur
verður haldinn í Tjarnarcafé annað kvöld kl. 9.
DAGSKRÁ:
Áhrif gengislækkunarinnar á verzlun og við-
skipti og kjör verzlunarfólks.
Frummælandi: próf. Ólafur Björnsson.
STJÓRNIN.
i
AÐALFUNDUR
Barnavinafélagið Sumargjöf
heldur aðalfund sinn í Grænuborg við Hring-
i;
braut þriðjudaginn 28. þ. m. og hefst kl. 20,30. (,
V^njuleg aðalfundarstörf. <>
STJÓRNIIN. (*
Húsmæöur
Einhver heilnæmasta fæðutegundin er íslenzki ost-
urinn. —
Aukin ostaneyzla eykur heilbrigði þjóðarinnar.
£atnbtm4 MÍ Aatntiimufélaqa
Sími 2678
|
<i
< >
< >
<»
<>
<>
<>
>>
<>
<>
<»
<>
<»
<»
<»
<>
<>
<>
<>
AICLÝS0CASÍMI TÍMANS ER 81300