Tíminn - 26.03.1950, Qupperneq 8

Tíminn - 26.03.1950, Qupperneq 8
„ERLEiVT YF1RLYT“ t BÆG: Leopoid Beltjíukonunfiur. 34. árg. Reykjavík Þrjár tékkneskar flugvélar lenda í Þýzkalandi \a*r 30 af 85 farþegum flugvélauna vilja smia heim. Þrjár tékkneskar flugvélar lentu í fyrradag á flugvelli Bandaríska hernámssvæðinu í Þýzkalandi, skammt frá Munchen, með samtals 85 farþega innanborðs. í opinberri tilkynningu sem gefin var út um mál þetta í gær segir meðal annars allar þessar flugvélar hafi verið á leið til Prag, í innanlandsflugí. Tveir af flugmönnunum hafi breytt V :n stefnu af fúsum vilja, en hins vegar hafi sá þriðji verið neyddur til þess af farþegunum. — Nær 60 af þessum 85 farþegum hafa Iýst yfir þvi, að þeir vilji snúa aftur til Tékkóslóvakíu. Fara heim með járnbraut. Bandarísku hernaðaryfir- völdin hafa heitið því, að sjá um að fólk þetta komist leið- ar sinnar til Prag, með járn- braut, og ein bandarísk kona, meðal farþeganna, sem vinn- ur í þjónustu upplýsingadeild ar Bandaríkjanna í Prag, hélt þegar í gær áleiðið þangað frá Þýzkalandi. Flugufregnir. Farþegarnir, sem í flugvél- um þessum voru, höfðu allir farmiða til Prag og höfðu fæstir þeirra hugmynd um, þegar vélarnar breyttu um stefnu. Lýst hefir verið yfir, að flugufregnir um að ýmsir háttsettir embættismenn væru meðal farþeganna, hafi ekki við rök aö styðjast. Spaak vil! þingroí Paul-Henri Spaak, leiðtogi jafnaðarmannaflokks Belgíu, hefir lýst yfir því, að úr því sem komið sé, verði stjórnar- kreppan ekki leyst á annan hátt, en þann, að rjúfa þing og efna til nýrra kosninga í landinu. De Wiart barón, einn af leiðtogum kaþólska flokks- ins, hefir gefist upp við stjórn armyndun og óvíst er, hvort Karl ríkisstjóri muni fela öðrum stjórnmálaleiðtogum að gera frekari tilraunir til stjórnarmyndunar. — í gær var lífið i Brussel með venju- le^gum hætti og allir verka- menn sneru aftur til vinnu í gærmorgun. í Vallóníu var þátttaka í allsherjarverkfall- inu nær 100%, en í flæmsku héruðunum stöðvuðust aðeins tvö járniðnaðarfyrirtæki. Sí- felldir árekstrar urðu milli verkfallsmanna og lögreglu í Brussei í fyrrinótt. „A FÖRMJM VEGI“ t DAGi Skóyurinn er qriólund. 36. marz 1950 69. blað „Harpa“ heldur hljómleika á fimmtudaginn Jan Moravek er söngstjóri og Svanhvít llgllsdóttir einsöngvari. Næstkomandi fimmtudag, kl. 7 e. h. heldur söngfélagið Harpa hljómleika í Gamla Bíó, þá fyrstu um tveggja ára skeið, en félagið hélt síðast hljómleika veturinn 1948, undir stjórn dr. Victor von Urbantschitsch. Jan Moravek hefir nú tekið að sér stjórn kórsins. Hann stjórnaði tékkneskum kór í Vínarborg, en hefir ekki áður stjórnaö kór hérlendis. Fritz Weishappel mun annast undirleik. Kvikmyndasýning í Flugvallarhótelinu Einn þáttur í starfi Al- þjóðasambands opinberra ferðaskrifstofa er að stuðla að því, að skrifstofur innan sambandsins sýni og láni kynningar-kvikmyndir. Ferðaskrifstofa ríkisins hef ir að sjálfsögðu áhuga fyrir því, að koma íslenzkum kvik- myndum á framfæri sem víð- ast og um leið ber henni að sjálfsögðu að sýna myndir, er henni berazt frá opinberum aðilum innan sambandsins. Hér er því um gagnkvæma auglýsinga- og fræðslustarf- semi að ræða. Fyrstu myndirnar, sem Ferðaskrfistofunni hafa bor- izt, eru frá Belgíu og belg- ísku nýlendunum í Afríku. Verða þessar myndir sýndar í dag, sunnudaginn 21. marz, já FlugvaJlarhótelinu á tíma- j bilinu kl. 3—5. j Aðgangur er ókeypis. Ferðir jverða frá Ferðaskrifstofunni. Veitingar á staðnum. Vöpuskipíf IVorogs og Danmerkur. Nýlega hefir verið undirrit- aður samningur milli Noregs og Danmerkur um vöruskipti milli landanna á þessu ári. Munu Norðmenn láta Dani hafa vörur fyrir 190 millj. norskra króna, en fá vörur frá Dönum fyrir 130 millj. danskra króna. Norðmenn munu aðallega láta Dani hafa hvallýsi og timbur og trjá- vörur, en fá í staðinn sykur, vélar og fleira. Kristján Jóhannsson, kepp- andi í veltivigt á hnefaleika- móti Ármanns í kvöld. Hefja Svíar mjólk- urflutninga í tankskipum? í Svíþjóð eru nú uppi ráða- gerðir um það að flytja mjólk, sem afgangs er þar 1 landi i tankskipi til Baltisku land- anna og byrja með því að flytja mjólk í hraðskreiðu, litlu tankskipi til Lettlands. Ráðagerðir þessar eru þó enn á athugunarstigi, en margir telja líklegt, aö þær séu fram kvæmanlegar. Finnsku lista- hjónin kvödci Finnlandsvinafélagið Suo- mi hélt kveðjufund fyrir finnsku listahjónin, sem hér hafa dvalið að undanförnu, í gærkvöldi. Var fundurinn haldinn í Tjarnarkaffi. Brynj ólfur Jóhannesson leikari las upp og Árni Stefánsson og Sigurður Þórarinsson sýndu og skýrðu kvikmynd af leið- angri yfir Vatnajckul. Frú Tii Niemela söng við undir- leik manns sins, Pentti Kos- kimies, við frábærar viðtök- ur. Að því loknu þakkaði for maður Finnlandsvinafélags- ins, Jens Guðbjörnsson, hin- um finnsku gestum fyrir kom una og færði þeim að gjöf frá félaginu íslenzkan fána á silfurstöng með áletruðum skildi til minningar um kom una hingað. Hjónin fóru áleiðis heim í nótt sem leið. Hafa þau beð- ið blaðið að bera cllum þeim mörgu góðkunningjum, sem þau eignuðust i dvöl sinni hér, kærar þakkir og kveðj- ur, þvi að þeim gafst ekki kostur á að kveðja þá alla áður en þau fóru. Rífa tipp göíu í leit að gulli í bænum Wedderburn í Ástralíu hefir fundist gull undir aðalgötu bæjarins og hamast nú gullgrafarar að rífa upp götuna með skófl- um og hökum. Gullæöið byrjaði þegar grænmetissali nokkur fann gullmola,- sem reyndist vera yfir 40 þúsund króna virði. Eigandi V/edderburn Hotels, hefir einnig fundið gullklump ! sem talinn er mikils vírði. Álitið er, að gullæð sé und- ; ir bænum og er nú varla fært j um aðalgötuna, því gullgrafar i arnir moka svo ákaft, að götusteinarnir fljúga sem skæðadrífa. (Politiken) Fjölbreytt söngskrá. Á hlj ómleikunum næstkom andi fimmtudag, verður með- al annars flutt hið mikla verk Schuberts „Söngur Mir- iam“, en Svanhvít Egilsdótt- ir fer með einsöngshlutverk- ið. Hún syngur auk þess ein- söng i „Ave Maria,“ eftir Schubert, en söngstjórinn hefir samið sérstakt kórverk um lagið. — Á söngskránni verða ennfremur lög eftir Emil Thoroddsen, Björgvin Guðmundsson, Lindblad, Kjerulf, söngstjórann Jan Moravek og fleiri. Samkór Reykjavíkur tekur þátt í hljómleikunum. í söngfélaginu Hörpu er nú 31 félagi, en 16 félagar úr Samkór Reykjavíkur munu syngja með á hljómleikun- um á fimmtudaginn. Harpa hyggst fara í söngför um ná- grenni Reykjavíkur innan skamms, meðal annars til Hafnarfjarðar, Sandgerðis, Keflavíkur og ef til vill fleiri staða. Stjórhin. Núverandi formaður söng- félagsins Hörpu er Ágúst Pét- ursson, en auk hans eru í stjóm félagsins þau Ásta Jónsdóttir og Steingrímur Gíslason. — 16 farasí í flugslysi Tyrknesk flugvél rakst í gær á hæð er hún var í þann veginn að lenda á flugvellin- um í Ankara og fórust a'llir, sem í henni voru, 16 manns. Meðal farþeganna var einn Breti og tveir Bandaríkja- menn. — Vörur lækka í Austur-Þýzkalandi Útvarpið í Osló skýrði frá þvi i gærkvöldi, að austur- þýzka stjórnin hefði tilkynnt, að næsta mánudag mundi Verð á matvörum og fleíri nauðsynjavarningi lækka í Austur-Þýzkalandi. Verð mat væla lækkar um 28%, en verð margra annarra nauðsynja- vara um 23%. Samsæri gegn Franco í gær var kveðinn upp í Toledó, dómur yfir átta Spán- verjum, sem sakaðir voru um samsæri gegn stjórn Francós. Menn þessir fengu allir tveggja til tuttugu ára fang- elsi. — Truman ílytur ræðu Truman, forseti Bandaríkj- anna, flutti ræðu í gærkvöldi, þar sem hann skoraði á banda ríska þingið að samþykkja án nokkurra breytinga, tillögur stjórnarinnar um efnahags- aðstoð til handa erlendum þjóðum. Forsetinn sagði, að á þann hátt yrði bezt unnið að varðveizlu friðarins i heim inum. Efnahagsaðstoðin mið- | aði að því, að draga úr fá- tækt, eymd og öryggisleysi viðkomandi þjóða, eða með öðrum orðum, að útrýma þeim jarðvegi, sem kommúnisminn þrifist bezt í. FEimlnr verkalýðs- lciðtoga. Fulltrúar um það bil 100 verkalýðsfélaga á Malakka komu saman til fundar í gær í Kuala Lumpur, til þess að ræða stofnun verkalýðssam- bands Malakkaskaga. VcrzlMnarsaiKiii- iingur Kína og Pól- lands. PóJska sendinefndin kom i gær til Varsjá frá Kina, þar sem hún hefir dvalið undan- farna tvo mánuði og unnið að því að gera verzlunarsamn ing við kínversku stjórnina. Tilkynnt hefir verið að slik- ur verzlunarsamningur muni undirritaður innan skamms. SBretar hafsia kröf- IU23 Argeaíásin. Brezka stjórnin hefir vísað á bug kröfum stjórnar Arg- ; entíu um 40% hækkun á iverði á kjöti því, sem Argen- ! tina selur Bretlandi samkv. gildandi samningi. — Fór argentíska stjórnin fram á verðhækkun þessa sökum lækkunarinnar á gengi sterl- ingspundsins. Verkfalll lýkur. Starfsmenn í gas- og raf- j magnsstöðvum Frakklands ' sneru aftur til vinnu sinnar j í gærmorgun, en þá hafði jVerkfall þeirra staðið yfir í Jhálfan mánuð. Þeir sam- ; þykktu að ganga að tilboði i stjórnarinnar um 5% hækk- un á launum og nokkrar aðr- 'ar launauppbætur. Ljósadýrð við Þjóðleikhúsið í fyrrakvöld var ljósköst- urum komið fyrir á Þjóðleik- húsinu og húsið upplýst. Einn ig var kveikt á ljósrömmum fyrir ofan dyr hússins. Var ljósadýrð þessi ætluð fyrir ljósmyndara til myndatöku, bæði innandyra og utan. Var ljósunum haganlega komið fyrir og uku þau áhrif bygg- ingarstíls hússins.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.