Tíminn - 06.05.1950, Síða 8

Tíminn - 06.05.1950, Síða 8
„tffltl/EiVT YFIRLIT“ í DA4*. Etússnesha herforinyjastéttin ,Hvaö hefir orðið af háifri ann ari milj. þýskra stríösfanga4? spurði Adenaucr forsætisráðherra Bonn- síjórnarinnar I gær I þingræðu, er þingið samþykkti mótmæli við yfirlýsingu Rííssa. Þingrið í Bonn samþykkti f gær harðorð mótmæli gegn þeirri yfirlýsingu rússnesku stjórnarinnar, að Rússar hefðu nú látið lausa alla þýzka stríðsfanga, sem þeir tóku hönd- um í styrjöldinni. Kemur illa heim við fjrri fréttir. Adenauer, forsætisráð- herra flutti ræðu í þinginu, þegar mótmælin voru rædd. Gagðí hann, að Rússar hefðu sjálfir tilkynnt, að þeir hefðu iátið lausa um 2 millj. þýzkra stríðsfanga, og væru það all- ir þeir fangar, sem þeir hefðu í vörslu frá stríðsárunum. Þetta kvað hann koma illa hetm við fyrri fregnir Rússa sjálfra, þvi að þeir hefðu ár ð 1945 látið fréttastofu sína tilkynna, að þeir hefðu alls tekið til fanga í styrj- cld.inni 3 millj. 940 þús. ]*;• zkra manna. Rússar hefðu því enga grein gert fyrir því, hvað orðið hefði um meira ei hálfri annarri milljón íanga. Hvað hefir orðið af þeim? Ohugsandi væri, að slíkur íj ildi hefði látizt i fanga- b’.ióum Rússa, og við hljót- ura að krefjast svars Rússa v i þeirri spurningu: Hvað h> íir orðið af hálfri annarri miiljón þýzkra stríðsfanga, ::em Rússar höfðu í haldi? E-'er hafa orðið örlög þeirra manna? Miklar sögusagnir ganga um það, að Rússar ( haldi fjölda manna enn í nauðungarvinnu, og sá orð- l ónrur hlýtur að styrkjast við þessar staðreyndir, sagði Ad- enauer. Mðtmæikorðsencl'ngin var samþykkt með atkvæðum j ailra þingmanna nema komm j únista. Arsenal vann Portsmouth S. 1. miðvikudag keppti Ar- senal víð Portsmouth í ensku knattspyrnukeppninni og vann með 2:0. Staðan er þá þannig, að Portsmouth og Wolverhamton eru jöfn með £1 stig, og hafa leikið jafn marga leiki, en markatalan e’ mun hagstæðari fyrir Fc~tsmouth. í dag fara síð- r.siu leikirnir í keppninni frani og keppir Portsmouth vi'5 Aston Villa, en Wolver- h - mfon keppir við Birming- hsr.i. Reiknað er með að bæði licin vinni og hlýtur Ports- moúth þá meistaratitilinn á hagctæðari markatölu. Bæði liðin keppa á heimaleikvelli or er það mun hagstæðara fyrir þau. Portsmouth var me’stari s.l.. ár. Úislitaleikírnir i ensku rreistárakeppninni fara fram í cisg. H. Fjárlögin komin til þriðju umræðu Fjárlögin eru nú komin til þriðju umræðu. Atkvæða- greiðsla við 2. umræðu fór fram í gær. Tillcgur fjárveit- inganefndar voru samþykkt- ar, nema örfáar, sem voru teknar aftur til 3. umræðu. Tillögur einstakra þing- j manna voru allar felldar nema ein um 1500 kr. styrk til Þorfinns Kristjánssonar i því augnamiði að greiða fyrir heimkomu gamalla íslend- inga, er lengi hafa dvalið er- lendis. Nokkrar tillögur voru teknar aftur. Þriðja umræða fjárlag- anna fer fram í næstu viku og verður nokkrum hluta þeirra (eldhúsdeginum) út- varpað. Bandaríkjamenn mótmæla öðru sinni Bandaríkjastjórn lét sendi herra sinn í Moskvu afhenda rússnesku stjórninni í gær mótmælaorðsendingu sína vegna hvarfs flugvélarinnar yfir Eystrasalti. Segir í henni, að Bandaríkjastjórn geti ekki gert sig ánægða með svar Rússa, því að þar sé aðeins um útúrsnúninga að ræða en ekkert svar víð spurningum. Bandarikja- stjórn kveðst líta mjög alvar- legum augum á þetta mál og ekki sætta sig við annað en hreinskilin svör. Öll önnur meðferð þessa máls auki að- eins á misklíðina og sundur- þykkjuna milli landanna. Hæstaréttardómur í verðlagsmáli Nýlega kvað hæstiréttur upp dóm í máli réttvísinnar gegn Friðrik Bertelsen stór- kaupmanni í Reykjavík fyr- ir of háa álagningu á vör- um. Hlaut hann 65 þús. kr. sekt og ólöglegur ágóði um 150 þús. kr. var gerður upp- tækur. Var þetta staðfesting á undirréttardómi að öðru leyti en því, að sekt var hækk uð um 15 þús. kr. Hafði kaup- maðurinn litið svo á, að sér væri heimilt að leggja á um- boðslaun sín jatnframt hinu raunverulega vöruverði. frjálsífjrótíamót veröa háð í Reykjavík í sumar Mcfstaramót íslands verður háð í tveim áfongum «»' meistaramót Reykjavíkur I þrem. Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur var haldinn þriðjudaginn 4. maí að viðstöddum fulltrúum félaganna innan F. í. R. R., en eins og kunnugt eru f jögur félög í Reykjavík, sem hafa frjálsíþróttir á starfsskrá sinni. Adenauer, forsætisráðherra Bonn-stjórnarinnar. Lie ræddi við utan- ríkisráðherra Hol- lands í gær Trygve Lie aðalritari S. Þ.. er kominn til Haag og ræddi við Sticker utanríkisráðherra Hollands í gær. Síðan ræddi hann við fréttamenn um MoskvufÖr sína. Hann kvaðst v.lja leggja á það áherzlu, að hann færi ekki í umboði nokkurrar ríkisstjórnar eða með skilaboð frá nokkrum þjóðhöfðíngja, og hann kvaðst ekki einu sinni hafa rætt um komu sína til Móskvu við rússneska stjórn- málamenn enn. Það væri einnig aðeins tilviljun, að hann yrði í Moskvu meðan á þríveldafundinum i London stæði. Aðalerindi sitt kvað hann verða það að reyna aö ryðja úr vegi þeim hindrun- um, sem nú væru mestar á starfsemi S. Þ. vegna ósam- komulags austurs og vesturs. Lie kvaðst vona, að auðið yrði að útkljá deiluna um fulltrúarétt Kína á þingi S. Þ. áður en allsherjarþingið kæmi saman og án þess að kveðja þyrfti saman auka- þing. Allmikill snjór á heiðum í Þing- eyjarsýslu Formaður ráðsins var kos- inn Reynir Sigurðsson, og meðstjórnendur þeir Ásmund iur Bjarnason, Örn Eiðsson, Óskar Jónsson og Árni Theó- dórsson. Á fundinum var sam þykkt niðurröðun frjáls- ‘ íþróttamóta í sumar, og j munu þau verða sem hér segir: I 7. maí, Vormót í. R., 14., jTjarnarboðhlaup K. R., 21.— 22., Vormót K. R„ í 1.—12. !júní, Drengjamót Ármanns, 17.—18., 17. júnímótið, 25., Meistaramót Reykjavíkur: Fimmtarþraut og boðhlaup. 3.—4. júlí, Landskeppni við Dani, 6., Frjálsíþróttamót með þátttöku Dana, 16., Ol- ympíudagur, 22.—23., Meist- aramót íslands: Tugþraut og 10 km. hlaup, 29.—30., Meist- aramót Reykjavíkur, aðal- hluti. 4. ágúst, Meistaramót Reykjavíkur: Tugþraut og 10 km. hlaup. 11.—14., Meistara- mót íslands, aöalhluti. 24., B-mót í frjálsum íþróttum. 29.—30., B-júnioramót í frjálsum íþróttum. 12.—13. september, Septembermótið. Stjórnin vill beina þeim til- mælum til stjórna þeirra í- þróttafélaga, sem þátt ætla að taka í mótum þessum, að tilkynna þátttöku sína ekki seinna en fimm dögum fyrir hvert auglýst mót. Að gefnu tilefni vill F.Í.R. R. einnig taka fram, að stjórn ir hlutaðeigandi félaga skulu ekki skrá fleiri keppendur en þá, sem þau ætla eða geta sent, og heldur ekki að skrá þá í fleiri greinar en þeir ætla að taka þátt í. Það er mjög leiðinlegt fyrir áhorf- endur að hafa stórar og fyr- irferðarmiklar keppenda- skrár en fáa keppendur. Gondólaverkfall í Feneyjum I fyrradag hófu gondóla- ræðarar i Feneyjum vekfall til að andmæla því, að litl- ir vélbátar eru nú farnir að keppa við þá um flutninga um síki borgarinnar. Þús- undir erlendra ferðamanna, sem í borginni voru og vildu endilega fara í gondólaferð, gengu eftir gondólaeigendum með grasið í skónum, en fengu engu um þokað. Þeir svöruðu því einu til, að þeir mundu ekki hreyfa farkosti sína fyrr en borgarstjórnin hefði bannað vélbátum að fara um flest siki borgar- innar. Allsherjarverkfall yfirvofandi í Finn- landi. Járnbrautarmenn í Finn- landi halda enn áfram verk- falli og láta engan bilbug á sér finna, þótt her hafi ver- ið kvaddur út til að taka að sér störf þeirra. Verkalýðs- samband Finna hefir mót- mælt herkvaðningunni og hótað allsherjarverkfalli í landinu næsta mánudag, ef ekki verði þegar gengið að eftirlaunakröfum járnbraut- arstarfsmanna. Mótnaæla togaratök- Vaðlaheiði er enn ófær vegna snjóa, sem setti þar niður fyrir nokkru. Mývatns- heiði hefir verið ófær und- anfarna daga þangað til í fyrradag er vegurinn var ruddur. Undanfarna þrjá daga hefir verið hiti og þýða og miklar leysingar. Vegir í sveitum eru nú að verða ill- fa:rir vegna holklaka og aura. Brezka iðnaðar- sýningin liefst á mánndag. Á mánudaginn verður opn- uð hin mikla iðnaðarsýning Breta í London og Birming- ham. Þar mun koma um 15 þúsund gestir frá nálega 100 löndum helms, auk þeirra, sem koma óboðnir. Sýningin stefnir fyrst og fremst að því að sýna framþróun í brezk- um iðnaði síðan í stríðslok. Bretar stækkaflug- velli hersins Henderson, flugmálaráð- herra Breta tilkynnti í gær, að innan skamms mundi verða hafizt handa um stækk un flestra flugvalla brezka flughérsins í Mið-Englandi. Stækkun þessi væri brýn nauðsyn vegna þess, hve her- flugvélar eru nú orðnar þyngri og stærri en þær, sem fyrr voru notaðar. Hann sagði einnig, að notkunin ykist alltaf, og Bandaríkjamenn fengju aukin not af völlu- unm 4 næstunni, þar sem stjórnir beggja landanna væru sammála um það, að það yki öryggi beggja þjóö- anna. umii formlega. Sendiherra Breta í Moskvu afhenti rússnesku stjórninni í gær mótmælaosrðsendingu brezku stjórnarinnar gegn tölcu brezka togarans í Hvíta hafi. Farið var með brezka togarann til Murmansk, og er hann þar enn, og hafa Rússar enga skýringu gefið á því enn, hvort hann hefir verið tekinn fyrir landhelgis brot eða aðrar sakir. Segir í orðsendingu Breta, að þeir krefjist skýringa Rússa á þessu. Togarinn hafi alls ekki verið tekinn að veið um í landhelgi, jafnvel ekki innan þeirrar tólf mílna landhelgislínu, sem . Rússar hafa tekið upp, hvað þá inn- an þriggja mílna línu, sem viðurkennd er í samningum Rússa og Breta.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.