Tíminn - 19.08.1950, Blaðsíða 5

Tíminn - 19.08.1950, Blaðsíða 5
180. blað. TÍMINN, laugardaginn 19. ágúst 1950. 5. Laugard. 19. ágiíst 117 milljónir Samkvæmt verzlunarskýrsl um hagstofunnar heflr við- skiptajöfnuðurinn milli ís- lands og annara landa verið óhagstæður sem nemur 117 millj. króna fyrstu sjö mánuði ársins. Við þetta bætast svo hinar „duldu“ greiðslur, sem1 áður hefir verið vikið að hér í blaðinu Reynt hefir verði að draga úr innflutningi erlendra vara, I enda verður þess vart á ýms- um sviðum. Sú viðleitni hrekkur þó skammt eins og nú er ástatt, bankarnir hafa þegar orðið að taka nokkuð fé að láni erlendis. Ef Mars- hall-hjálpin og hið væntan- lega greiðslubandalag Vest- urlanda hefði ekki verið til staðar, væri innflutningur nú sennilega að mestu stöðvaður um tíma, og ógerlegt hefði þvi verið að ráðast 1 hinar miklu virkjunar framkvæmd- ir, sem nú standa fyrir dyr- um. En þótt hér sé um mikils- verða utan að komandi aðstoð að ræða, verðúr að telja útlit- ið mjög ískyggilegt eins og sakir standa, enda er það mála sannast.að ekki geti hald ist til frambúðar sú fjár- hagslega hjálp, sem nú er veitt ýmsum þjóðum. Er og Marshallsamvinnan að minnsta kosti, meir við það miðuð, að létta undir við fram kvæmdir í landinu en venju- leg viðskipti. Um orsakir hins óhagstæða viðskiptajafnaðar þarf ekki að fjölyrða. Þær eru almenn- ingi að miklu leyti kunnar. Aðalútflutningsvörur sjávar- útvegsins, svo sem freðfiskur og þorskalýsi, hafa stórfallið í verði síðan i fyrra, og i landinu eru allmiklar birgðir af freðfiski, sem mjög erfitt er að selja, jafnvel fyrir lágt verð. Útflutningur saltfisks hefst ekki að ráði fyrr en síð- ara hluta ársins, og sama er að segja um fleiri útflutnings vörur. Við þetta bætist svo það, að mikill hluti togara- flotans hefir stöðvast sakir verkfalls, og enn er ekki út- lit fyrir, að síldveiði verði meiri nú en undanfarin sum- ur. Það er því ekki líklegt, að unnt verði á síðara hluta ársins að jafna þann mikla mun, sem þegar er orðinn á gjaldeyristekjum og gjaldeyr- isútgjöldum landsins á þessu ári. Reynt hefir verið eftir megni að koma þeim vörum í verð erlendis, sem erfiðlegast gengur að selja. íslenzkar sjávarafurðir eru nú seldar til margra landa, og til þess að slík viðskipti megi takast sem víðast, er sú leið mjög oft farin, að taka greiðslu i vörum frá þeim löndum, sem kaupa íslenzkar afurðir, enda þótt innkaupin séu óhagstæð ari en annars staðar. Vöru- skiptaverzlunin fer því sívax- andi, og hefir það sennilega í för með sér síðara hluta árs- ins, að eitthvað komi inn í landið af vörum, sem æskilegt hefði verið að fresta kaupum á eða kaupa annars Staðar á hagstæðara verði. Þetta er ó- ERLENT YFIRLIT: Hefja Rússar styrjöld? Þeir standa miklu vcr að víg'i en vestnr- veldin á sViði stál- og' oliiiframleiðsluiinar Mannkynið bíður nú eftir því milli vonar og ótta, hvort ný heimsstyrjöld muni hefjast í náinni framtíð eða ekki. Svarið við spurningunni um þetta vita aðeins örfáir valdamenn í Moskvu, er hafa það í hendi sinni að koma í veg fyrir þær hörmungar, sem af nýrri styrj- öld munu hljótast. Vilji þeir ekki styrjöld og hefja hana því ekki, verður engin styrjöld. Það fer eftir valdafíkn þeirra og mati þeirra á eigin styrk og væntanlegra andstæðinga, hvernig fram úr þessum málum ræðst. Hinn kunni blaðamaður, John Gordon, ræðir það nýlega í Sun- day Express, hvort Rússar álíti sig nógu öfluga til að hefja1 styrjöld. Aðalatriðin í þessari' grein hans verða rakin hér á eftir: Kjarnorkan. Churchill hefir sagt, að við eigum 'enn tækifæri til að búa okkur undir að mæta allsherj- arárás kommúnista. Þetta álit sitt byggir hann á því, að Banda ríkín hafi enn mikla yfirburði á kjarnorkusviðinu og meðan svo sé, veigri kommúnistar sér við að hefja meginsókn sína. Þetta er vissulega staðreynd, sem við megum aldrei gleyma. En Rússar standa líka höllum fæti á fleirum sviðum og verða ekki í neinni framtíð jafnokar vesturveldanna þar, jafnvel þótt þeir kæmust eins langt í kjarnorkumálunum og þau. Valdhafarnir í Kreml verða að taka þetta með í reikninginn engu síður en kjarnorkusprengj- una, þegar þeir eru að meta möguleika sína til að geta hafi styrjöld. Stálframleiðslan. Rétt eftir að þýzk-rússneska striðið hófst, sagði Stalin mar- skálkur við Beaverbrook lávarð: Það er mótorinn, sem ræður úr- slitum styrjaldarinnar. Sá, sem framleiðir flesta mótora, sigrar. Þetta reyndist lika þannig. Þetta er óbreytt enn. Til þess að hafa yfirburði á þessu sviði, þarf einkum tvennt: Stál og olíu. Stálframleiðsla Bandaríkj- anna er nú 100 millj. tonna á ári. Stálframleiðsla Bretlands er 15.5 millj. og hinna samveld- islandanna 6 millj. tonna. Þar frá má kannske draga stál- framleiðslu Hindustan, sem kann að reyna að halda sér hlutlausu í styrjöld, en hún er 1.4 millj. tonna á ári. Fram- leiðsla Bretlands og samveldis- landanna, að Híndustan frá- dregnu, er þannig um 20 millj. tonna á ári. Árleg stálframleiðsla Frakka er um 9 millj. tonna á ári. Fyrir styrjöldina var stál- framleiðsla Rússa talin 18 millj. tonna á ári. 1 stríðslokin var hún komin niður í 9 milljónir tonna. Síðan hefir hún verið aukin eftir megni og mun nú vera um 21 millj. tonn. Það er mikil aukning, en samt er stál- framleiðsla Rússa enn fimm sinnum minni en framleiðsla Bandaríkjanna einna. Engin leppríki Rússa hafa verulega stálframleiðslu, nema Tékkósló- 1 vakía, er framleiðir um 2.6 millj. tonna á ári. Olían. Þá er komið að olíunni. Sér- fræðingar hafa gert eftir- greinda áætlun um olíufram- leiðsluna í heiminum á árinu 1950. Samkvæmt henni er olíu- framleiðslan á dag áætluð sem hér segir (talið í tunnum): Bandaríkin 5.000.000 Kanda 60.000 Mexico 166.000 Mið- og Suður-Ame- ríka 1.600.000 Vestur-Evrópa 50.000 Iran, Irak og Saudi- Arabía 1.500.000 Austur-Asía 205.000 Samtals 8.581.000 Hér er ótalin olíuframleiðsl- an í Sovétríkjunum og lepp- ríkjum þeirra, en hún er ekki talin vera nema ein milljón tunna á dag eða aðeins J/s af því, sem olíuframleiðslan er ut- an umráðasvæðis Rússa. Vel má vera, að olíufram- leiðsla Rússa sé meiri en hún er áætluð. En þótt þessi áætlun væri tvöfölduð, er bilið samt svo mikið milli olíuframleiðslu STALIN Sovétríkjanna og væntanlegra andstæðinga þeirra, að Rússar munu hugsa sig um tvisvar áð- ur en þeir hefja styrjöld, sem er líkleg til að geta orðið lang- vinn. Þá ber þess að gæta, að aðal- olíulindasvæði Rússa, Baku- svæðið, liggur mjög vel við loft- árásum, og gætu Bandamenn í styrjöld fljótlega unnið mikið tjón á því. Rússar telja sig hafa fundið nýtt olíulindasvæði austan Úr- alfjalla, er sé jafnoki Baku- svæðisins og jafnvel vel það. En vafasamt er að íramleiðslan aukist þar meira en svo, að það nægi til að fullnægja vaxandi þörfum rússneska iðnaðarins á venjulegum tímum. 1 Rúmeníu og Ungverjalandi er olíuframleiðslan nú minni en fyrir styrjöldina og hefir þó verið reynt að auka hana eftir megni. Það er kunnugt, að Rússar telja olíuframleiðsluna eitt mesta vandamál sitt. Það er líka vitað, að fyrsta ársfjórðung þessa árs var hún 6% minni en þeir höfðu áætlað. (Framhald á 6. síðu.) hjákvæmilegt eins og sakir standa til að koma afurðun- um í verð, en um sumar þeirra er svo háttað, að var- hugavert er að geyma þær, enda má framleiðslan illa við því, að biða lengi /ftir greiðsl um, eins og högum hennar er nú háttað. Sölur af þessu tagi hafa það hins vegar í för með sér, að áætlanir um innflutn- ing fara úr skorðum og enn erfiðara er en ella að halda innkaupunum í skefjum. íslendingar hafa nú meiri og minni viðskipti við flestar þjóðir á Norðurlöndum og í Vestur- og Mið-Evrópu, þar á meðal Pólland, Tékkóslóvak íu, Austurríki og Ungverjal,, en auk þess bæði i Noröur- og Suður-Ameríku, svo og hin gömlu fiskkaupalönd við Miðj haf. Spánn virðist nú vera í þann veginn að opnast á ný fyrir saltfiski, en allmiklir örðugleikar eru á greiðslum þaðan m. a. vegna þess, að Spánverjar eru enn ekki þátt takendur í efnahagssamvinnu vesturlandaþjóða, og hafa ekki átt þess kost hingað til. En þó aö útlitið sé slæmt eins og sakir standa, er ekki ástæða til að ætla; að ókleift reynist að leysa þann vanda, sem borið hefir að höndum. Að því er nú unnið með at- orku að auka og tryggja salt- fisksverkunina. Á þessu ári hefir verið unnið að því að koma upp 30—40 fiskþurrk- unarhúsum víðsvegar um land og varið til þess miklu fé. Þar sem unnt er, eru not- uð gömul hús til þurrkunar- innar, en ný byggð sums stað- ar. Jafnframt þarf að vinna að því af alefli að halda mörk uðum fyrir freðfisk þar sem þess er kostur og vinna nýja, og veltur þar á miklu, að vönd un vörunnar takist sem bezt. Óhjákvæmilegt er þó, að horf ast í augu við þá staðreynd, að innkaupunum verður einn ig að stilla i hóf meir en áð- ur tíðkaðist. Hér er þörf mynd arlegra átaka og þolinmæði, meðan verið er að gera þær breytingar á þj óðarbúskapn- um, sem nauðsynlegar eru, en til svartsýni er engin ástæða, ef þjóðin kann sér hóf og leggur sig fram eins og vera ber til að leysa vandann. Raddir nábúarma Mbl. svarar Alþýðublaðinu nokkru í forustugrein sinni í gær. Það segir m. a.: „Fáum ferst það verr en málgagni Alþýðuflokksins að ráðast á þær ráðstafanir, sem núverandi ríkisstjórn lét verða sitt fyrsta verk að framkvæma. Alþýðuflokkur- inn hafði í nær þrjú ár haft stjórnarforystu. Á þeim tíma hafði dýrtíðin í landinu stöð- ugt verið að aukast, hagur atvinnuveganna að þrengjast og fjárhag ríkisins að hraka. Þegar „fyrsta stjórn Alþýðu- flokksins“, eins og Alþýðu- blaðið nefndi stjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar, fór frá, blasti við stórfellt atvinun- leysi og stöðvun allrar út- flutningsframleiðslu í landinu. Þannig var viðskilnaður „fyrstu stjórnar Alþýðuflokks- ins.“ Þannig tryggði hún lífs- kjör almennings!!! Kjarni málsins er sá að nú- verandi ríkisstjórn var mynd- uð til þess að ráða fram úr miklum vanda, sem steðjaði að afkomu þjóðarinnar. Þeir flokkar, sem að henni standa, skoruðust ekki undan að takast á hendur erfitt og vanþakklátt verk og gegna með því skyldu sinni við þjóð sína. Alþýðuflokkurinn, sem átt hafði sinn þátt í sköpun vandræðanna, flúði hinsveg- ar af hólmi, lýst sig „stikk- frían“ og skrjáir nú um hið ytra. Þess vegna velkist nú blað hans eins og pólitískur rekadrumbur á fjörum kom- múnista.“ Öllu ömurlegra hlutskipti en það, sem foringjar Alþýðu- 1 flokksins hafa valið flokkn- | um, er trauðla hugsanlegt. Misréttið Eftir Þ. Þ. V. Við erum stödd hjá kunn- ingjakonu okkar úti á landi. Hún er einsetukona. Fáa á hún að. Hún er ra.unar ein- stæðingur. Heilsan hefir jafn- an verið tæp. Hún vinnur við fiskframleiðsluna, þegar heils an leyfir og ber ýr býtum 5—6 þúsund krónur árlega. Vistarvera hennar er kjall- araherbergi. Eftir langa mæðu, húsnæðisleysi og hrakninga, fékk hún loksins þetta herbergi leigt. Það er í alla staði óvistlegt. Gamalt veggfóður á veggjum, steingólfið dúklaust og inn um norðurvegg seytlar jarð- vatn inn á gólfið. Raki er í veggjum og fúkkalykt i lofti. í ganginum framan við her- bergið eru steinveggirnir ó- húðaðir. Öll vistarveran er auðsjáanlega ekki íbúðarhæf. „Hvað greiðirðu um mán- uðinn fyrir slíka íbúð?“ spyrj- um við. „Eitt hundrað og fimmtiu krónur“, segir hún. Við undrumst. Hver gætir réttar slíkra ein- stæðinga í okkar þjóðfélagi? Ég er staddur í íbúð eins af meiri háttar embættismönn- um ríkisins. Sjálfur forsetinn veitir embættið. Embættis- maðurinn er ómagalaus. Árs- laun hans m%ð öllum bitling- um nema 80 þúsundum króna. Hann býr á tveim hæðum í stóru húsi, sem ríkið á og hefir 7 herbergi til íbúðar. Hversu mikla húsaleigu greið ir svo embættismaðurinn rik- inu fyrir alla þessa stóru í- búð? Hún er ekkert smáræði! Eitt hundrað og sextíu krón- ur á mánuði eða kr. 10.00 meir en einsetukonan í hinni óheilsusamlegu og óíbúðar- hæfu kjallaraholu. Á sjómannadaginn og oft endranær gumum við mikið af sjómönnunum okkar og skjöllum þá óspart. Þeir eru framherjar þjóðarinnar, vík- ingarinr, sem færa björgina i bú og öll afkoma þjóðarinnar byggist á. Þetta segjum við og þó hafa foringjar þjóðar- innar ennþá hærra um þessa hluti á sjómannadaginn i út- varpi og blöðum. Hver neitar hinu mikilvæga gildi sjó- mannsstarfsins fyrir okkar þjóð? Ekki ég. Það gerir þú heldur ekki, lesari góður. Líf slíkra manna hlýtur því að vera mikils virði, vera hátt metið. Ójá, nokkuð svo. Ekkja sjómannsins fær 9—10 þús- undir fyrir líf mansins síns, ef hann ferst við störf sín á sjónum. Það er allt og sumt. Það er óhugsanlegt, að menn úr yfirstéttum þjóðfé- lagsins falli frá við sjómanns- störf. Mun það ekki vera á- stæðan fyrir því, að hvert mannslíf þjóðfélagsins er metið á 30 þúsundir króna farist það i flugvél. í þeim geta farizt bæði „yfirmenn“- og „undirgefnir" og þess vegna hefir þótt vissara að meta líf flugvélarfarþegans þrefalt við það, sem líf sjó- mannsins er metið. Hvenær lærum við að finna til og blygðast okkar svo, að til framkvæmda komi og hjálpar þeim, sem líða hér mest við skeytingarleysið og misréttið í þjóðfélaginu? Verkalýðsforustuni ber að fá bætt úr þeim órétti, sem sjó- mannaheimilin búa við í þess um efnum. (Eyjablaðið)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.